Morgunblaðið - 12.01.1961, Síða 1
20 siður
Belgir
burt!
Moskvu, 11. jan. (NTB-Reuter)
RÍKISSTJÓRN Sovétríkj-
anna krafðist þess í dag að
Belgir yrðu þegar í stað
aviptir gæzlustjórn í Ruanda
Urundi.
! Krafa þessi er fram kom-
In vegna þeirrar ásökunar
að hermenn Mobutus, her-
atjóra í Kongó, hafi notað
Ruanda-Urundi til innrásar
i i Kivu-hérað nýlega til að
ráðast á herflokk stuðnings-
manna Lumumba.
! Tass fréttastofan sendi í kvöld
út yfiriýsingu þar sem sagt er
að ríkisstjóm Sovjetríkjanna
telji nauðsynlegt að:
1. Að afturkalla öll umboð og
réttindi Belgíu varðandi Ruanda
Urundi.
' 2. Að veita Ruanda-Ulrundi
þegar í stað sjálfstæði.
3. Að krefjast þess að Belgir
hlýði nú þegar fyrri samþykkt-
um öryggisráðsins og kalli her-
»ið sitt og aðra starfsmenn heim
írá Kongó.
I 4. Að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir í SÞ með tilliti til að
koma á friði í Kongó í samræmi
við niðurstöður ráðstefnu Afríku
leiðtoganna í Casaiblanca.
TS—-
Hér marar vélbáturinn. En ,
ok í hálfu kafi við syðri hafn
argarðinn í Hafnarfirði, en
þar sökk hann ásamt vélbátn
um Nönnu í ofsaveðrinu í
fyrrinótt. Sézt á siglutré hins l
síðarnefnda milli bátanna. Sjá 2
frétt á öftustu síðu. I
(Ljósm.: G. E.) I
Landhelgi
Noregs
OSLÓ, 11. jan. (Reuter) —
Einar Gerhardsen forsætisráð
herra Noregs tilkynnti í dag
að ríkisstjórnin mundi leggja
í fram frumvarp um útvíkkun
! fiskveiðilögsögunnar við Nor
eg. Ætlunin er að færa mörk
in úr fjórum mílum i sex mil 1
ur hinn 1. apríl n.k. og svo í
12 mílur 1. september. Frum
varp þessa efnis verður lagt
fyrir þingið mjög fljótlega.
Forsætisráðherrann sagði að
ekki hafS verið unnt að leggja
þetta frumvarp fram fyrr, því
nauðsynlegt hafi verið að ’
ljúka fyrst aamningaviðræð
um við þau ríki, er stundað
hafa veiðar á svæðinu, sem
nú verður friðað.
Briissel, 11. jan. (NTB-Reuter)
SVO virðist sem friður sé
nú að komast á í Belgíu eft-
ir 23 daga verkföll og
árekstra. Leiðtogar stjórnar-
flokkanna og jafnaðarmanna
áttu í dag fund í skrifstofu
Eyskens forsætisráðhcrra til
að finna lausn á vandamál-
inu. — Herma áreiðanlegar
fréttir að talsvert hafi miðað
áfram í samkomulagsátt. Þá
hefur einnig verið samþykkt
breytingartillaga jafnaðar-
manna við sparnaðarfrum-
varp ríkisstjórnarinnar, sem
talin er skipta verkfallsmenn
meginmáli.
Breytingartillagan
Nokkrir leiðtogar jafnaðar-
manna eru þó þeirrar skoðunar
®--------------------—----------
Veldissól Mobutu
ofursta að hníga?
ENSKA blaðið Daily Tele-
graph segir, að ósætti sé upp
komið milli Kasavubu, for-
seta Kongó, og Mobutu of-
ursta og vilji Kasavubu nú
losa sig við þennan valda-
mikla foringja hersins. — Að
vísu hefur ekki fengizt stað-
festing fyrir þessum orðrómi
en hann er að verða svo
sterkur í Leopoldville, að
nálgast mjög sterkar líkur.
Mobutu ofursti beið verulegan
hnekki vegna hinnar mislieppn-
uðu herferðar gegn her Lum-
umba manna í Kivu-héraði. Er
Mobutu kominn aftur til Leo-
poldville úr þeirri herferð og hef
ur fremur hægt um sig síðan.
Samtímis því sýndu fjöída-
fundir við komu Hammar-
Framh. á bls. 2
að kalla beri saman ráðstefnu
til að „ræða almennt öryggi“.
Þar eigi fulltrúar ríkisstjórnar-
innar, ríkisandstöðunnar, verka-
lýðsfélaganna og vinnuveitenda
að reyna að leysa deiluna.
Það var Achille van Acker,
fyrrverandi forsætisráðherra
jafnaðarmanna, sem fyrst lagði
fram breytingartillögu þá við
sparnaðarfrumvarpið, sem nú
hefur verið samþykkt. Er til-
Tvœr flug-
vélar hrapa
10 farast
PRAG og Wiesbaden, 11. 1
jan. — (Reuter) — Tékk-
neska fréttastofan Ceteka
skýrði frá því í dag, að
hinn 2. jan. sl. hafi 10
manns látizt er tékknesk
farþegaþota af gerðinni
IL-14 hrapaði til jarðar
nálægt Prag. Var flugvél-
in í reynsluflugi er slysið
vildi til, en hún var
smíðuð í Tékkóslóvakíu.
Enginn komst lífs af úr
flugvélinni. Auk áhafnar-
innar voru í vélinni tækni
fræðingar tékkneska flug-
félagsins. Verið er að rann
saka orsök slyssins.
Frá Wiesbaden í Vestur-
Þýzkalandi er símað að
bandarisk C-47 flutninga-
vél hafi hrapað í flugtaki
nálægt borginni í dag. —
Tólf manns var í vélinni
og sluppu allir lítt meidd-
ir. _ (
lagan þess efnis að þingið skuli
ræða allar ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar varðandi atvinnu-
leysisbætur áður en þær koma
til framkvæmda. En þetta var
einn af þeim liðum, sem verk-
fallsmenn lögðu mest upp úr
að tekinn væri með í sparnaðar
frumvarpið.
Kingston, Jamaica, 11. jan.
—■ (Reuter) —•
JOHN Diefenbaker Iýsti því
yfir hér í gær að Kanada
mundi halda áfram viðskipt-
um við Kúbu og halda opn-
um möguleikum á því að
Kúba taki aftur upp skyn-
samlega stefnu í innanlands-
og alþjóðamálum.
Diefenbaker sagði enn-
fremur að það væri skamm-
sýni ef Kanada tæki þá
stefnu er útilokaði mögu-
leika á því að Kúba sneri
aftur til frelsis.
VIRÐIR RÉTT HVERS LANDS
Kanada mun halda áfram við
skiptunum, sagði ráðherrann,
en ekki leyfa umskipun á
bandarískum vörum né selja til
Kúbu hernaðarvörur.
í sambandi við ádeilur í
Bandaríkjunum vegna áfram-
haldandi viðskipta Kanada og
Fjöldi verkamanna hefur nú
aftur tekið upp vinnu. Forsætis
ráðuneytið hefur tilkynnt að
33% fleiri járnbrautir séu nú
starfandi en fyrir þrem vikum,
og að starfsmenn jámbraut-
anna snúi nú hver af öðrum til
vinnu.
Kúbu sagði Diefenbaker: „Kan-
ada virðir rétt hvers lands til
að ákveða eigin stefnu“. Hann
benti á að Kanada væri að öllu
leyti ósammála stefnu Sovét-
ríkjanna, en héldi þó áfram við
skiptum við þau.
ERLENT FJÁRMAGN
Aðspurður hvort hin nýju
fjárlög Kanada væru samin
í þeim tilgangi að hefta
bandaríska fjárfestingu i
landinu, sagði ráðherrann að
svo væri ekki. Hið eina sem
fjárlögin fælu í sér væri að
kanadísku fjármagni er nú
gert jafnhátt undir höfði og
erlendu, en á því hefur ver-
ið nokkur misbrestur hingað
til.
Eins og er á erlent fjár-
magn 65% af kanadískum
iðnaðar- og námufyrirtækj-
um, sagði ráðherrann. Kan-
ada þarf á þessu fjármagni
að halda, en það verður að
nota í Kanada til hagsbóta
fyrir Kanadamenn.
Kanada verzlar
við Kúbumenn