Morgunblaðið - 12.01.1961, Qupperneq 9
Fimmtudagur 12. jan. 1961
wnncrnvnr aðið
9
Sigurður Brynjólfsson
Minning
F. 12. okt. 1937 D. 20. des. 1960.
1>AÐ vekur hjá flestum trega-
kennda tilfinningu og óræða
spurn, þegar óvænt berst fregn
um andlát ungmennis, sem lífið
hefur leitt fram á veg til fag-
urra fyrirheita í lífsstarfi, sem
af sterkri þrá, einbeitni og með
góðum gáfum var keppt að.
En hversu miklu þyngri er
þá nánustu ástvinum sá örlaga-
dómur, er slítur lífsþráð, sem
jafntengdur hefur verið lífi
þeirra og þeirra eigið hjarta-
blóð? Sú sálarraun er í öllum
tilfellum einkamál, sem engin
orð fá túlkað.
Þó hefur sú raunasaga fylgt
mannkyninu um aldaraðirnar,
að plógur dauðans hefur hvergi
skorið dýpra en í fylkingar
æskumanna. Sú saga hefur því
ávallt verið mesta heimssorgin,
því að orsakanna má leita og
finna í styrjaldaæði því, er
maðurinn sjálfur hefur vakið.
En oft er leitað orsaka og at-
burða, sem torskildari eru og
hugur minn dvelur við eina
slíka ráðgátu lífsins, þegar ég
minnist Sigurðar Brynjólfsson-
ar, er kvaddur var héðan, 23
ára, um það bil, sem lögð var
undirstaða að æviskeiði hans.
Björt voru æskuár Sigurðar
á heimili foreldranna, Hólm-
fríðar Jónasdóttur og Brynjólfs
Sigurðssonar, gasstöðvarstjóra í
Reykjavík, þar sem tíminn leið
í glöðum leik og innilegu sam-
bandi við foreldra og einka-
bróður. Hlýja birtu lagði frá
þessum sviphýra og fríða sveini
á æskuheimilið og til allra, er
nutu nærveru hans. Lundin var
mild og viðkvæm. Það auma
vildi hann bæta og að öllu
fögru hlúa. Farsælum gáfum
var hann gæddur og námshæfni
hans á ýmsum sviðum, svo sem
í stærðfræði, var frábær. Sú
gáfa hefur ættgeng orðið til
afkomenda Björns Gunnlaugs-
sonar, stjörnufræðings. Sigurð-
ur heitinn var fjórði ættliður
frá Birni.
Eftir verzlunarskólanám, með
ágætum vitnisburði, og nám í
loftskeytafræði, hleypti Sigurð-
ur heimdraganum og fór vest-
ur um haf sl. vor til undirbún-
ingsnáms við vélaverkfræðideild
ríkisháskólans í North Carolina
í Bandaríkjunum.
Götu Sigurðar, að þessum
þekkta skóla, greiddi frændi
hans, dr. Sigurður Jónsson,
prófessor frá Flatey, er var
hans önnur hönd og traustur
leiðbeinandi.
Eftir erfitt undirbúningsnám
og kapplestur, gekk Sigurður
til inntökuprófs í skólann á
miðju sumri og stóðst það með
sóma, „betur en bezt hefði mátt
búast við“, skrifar dr. Sigurð-
ur frændi hans í seinasta bréfi
sínu. Skaraði hann fram úr í
eftirlætisfögum sinum, efna-
fræði og stærðfræði.
Var Sigurður að Ijúka sein-
asta prófinu, sem enga úrslita-
þýðingu hafði, þegar hann veikt
ist skyndilega. Um sömu mund-
ir, ef ekki samdægurs, beið
Sigurður prófessor, frændi hans,
bana í bifreiðaslysi.
Um dr. Sigurð má það segja,
úr því að nafn hans er nefnt í
sambandi við frænda hans, að
með honum hafi í valinn fallið
glæsilegur fulltrúi íslenzku
þjóðarinnar. Námsafrek hans og
síðan vísindaiðkanir, við sívax-
andi orðstír, bentu tvímælalaust
til mikils frama. Eflaust verður
hans minnzt að verðleikum, á
öðrum vettvangi.
Sviplegt fráfall dr. Sigurðar
varð það regináfall fyrir nafna
hans og skjólstæðing, eins og á
stóð, að mótstöðuafl hans, gegn
aðsteðjandi sjúkdómi, þvarr svo
mjög, að einn kostur var aðeins
fyrir hendi, að hverfa heim og
leita hvíldar og styrks. — En
allt hneig að einum ósi, sjúk-
dómurinn dró hann til dauða.
Lífssaga Sigurðar Brynjólfs-
sonar er stutt, þar eru aðeins
fá blöð skráð, en sérhvert blað
ber órækan vott um góðan
dreng, er ávann sér traust og
vinhlýju hvar sem hann fór, í
störfum og við nám.
Ástvinir Sigurðar bundu
bjartar vonir við líf þessa góða
og gáfaða sonar, bróður og
frænda og það sama gerðu allir
aðrir er þekktu hann, því að
stutta lífsbraut sína hafði hann
varðað fögrum fyrirheitum.
Þær minningar líkna og hugga
meðan tíminn hemar yfir sárin
og þær minningar verða ást-
vinum ævilangt sólbros.
G. Jóh.
5.—14. marz 1961.
Kaupstefnan i Leipzig
Iðnaðar- og neyzluvörur frá meira en
50 löndum.
Stærsta alþjóðleffa vörusýningin.
Miðstöð hinna vaxandi viðskipta
milli austurs og vesturs.
Upplýsingar um viðskiptasambönd og
leiðbeiningar án endurgjalds.
LEIPZIGER, MESSEAMT, Hainstrasse 18 a
Leipzig G 1 Deutsche Demokratische
Republik
Kaupstefnuskýrteini og upplýsingar veitir:
KAUPSTEFNAN - Reykjavik
Símar: 24397 og 11576.
Símanúmer mitt er
37900
Bilamálun
Halldórs Nikulássonar
Ármúla 14
Rýmingarsala
ÚLPUR verð áður kr. 1802 — Nú kr. 1260
ÚLPUR, verð áður kr. 1653 — Nú kr- 800
ÚLPUR, verð áður kr. 1237 — Nú kr. 800
Ýmsar aðrar ÚLPUR á kr. 350—500 —
ATH.= Verzlunin er að hætta, Allar vörur
með stórkostlegum afslætti.
í dag hefst
ÚTSALA
á ullarkápum, poplínkápum, drögtum,
buxum, pilsum og höttum. — Góðar vörur
Mikill afsláttur-
Bernharð Laxdal
Kjörgarði — Laugavegi 59
Símanúmer mitt verður fyrst um sinn
38050
Öfafur J. Ólafsson
löggiltur endurskoðandi.
Endurskoðunarskrifstofa Mjóstræti 6
Reykjavík.
IJT8ALÁ LTSALA
liTSALA A
Karlmannaíötum og
stökum jökkum
Kápur frá kr. 500
Dragtir
Mikil verð lækkun
Halló Halló
Frá verksmiðjuútsölunni á Víðimelnum
Kvengolftreyjur kr. 130. Barnagolftreyjur frá kr.
60. Barnapeysur frá 25 kr. Barnasokkabuxur frá kr.
35. Sokkahlífar kr. 10. Barnastakkar, allar stærðir
kr. 40. Kvensloppar kr. 125. Barnabolir frá kr. 10
o. m. m. fl.
Nærfataverksmiðjan LILLA h.f.
(Smásalan) — Víðimel 63
Stúlka
vön afgreiðslustörfum óskast nú þegar.
Upplýsingar (ekki 1 shna) í búðinni eftir
kl. 6 í kvöld.
Skóbuð Austurbæjar
Laugavegi 100