Morgunblaðið - 17.01.1961, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 17. janúar 1961
... i *..ja.vfr.
MORGUNBLAÐ1Ð
.'Biffíig. - .. .—
11
★
Borg, Miklaholtshr., 16. jan.
SKÖMMU fyrir hádegi sL
sunnudag sló eldingu nið-
ur í íbúðarhús að Neðra-
Hóli í Staðarsveit og
brann það til kaldra kola
á hálfri klukkustund. Baf-
straumur barst einnig með
vatnsleiðslu, sem lá úr í-
búðarhúsinu og í fjósið, og
drap þar fimm kýr af
átta. Mæðgin, sem voru í
húsinu, sluppu hins vegar
ósködduð.
Piltur varð fyrir raflostl
Er eldingunni sló niður í
Húsið á Neffrá-Hólf í Stáðarsveit, sem brann og hrundi þegar eldingu Iaust niður í það
sl. sunnudag. Húsið er með steinsteyptum útveggjum, en með timburskilrúmum og veggir
klæddir innan með timbrL Byggingin. sem sést til hægri á myndinni, er hlaða og við hana
var fjósið, þar sem kýrnar 5 drápust. Þetta íbúðarhús var reist 1937, en þá hafði gamla
bæjarhúsið að Neðra-Hóli brunnið til kaldra kola, um sumarið. — Þá bjó að Neðra-Hóli
Bjarni J. Bogason og kona hans, Þórunn Jóhannesdóttir, sem nú býr á Akranesi.
öáBSyftaí (Ljósm.: Sveinbjöm Bjarnason)
húsið, var 18 ára gamall sonur
hjónanna á Neðra-Hóli, Sigur-
jón að nafni, staddur í kjallara
hússins. Hann var að dæla
vatni og fékk mikið rafmagns
högg, en það bjargaði lífi
hans, að hann var á gúmmí-
skóm og tréskaft var á vatns-
dælunni. Sakaði hann ekki að
öðru leyti en því, að hann var
heyrnarlaus fyrst á eftir,
Húsið eldhaf á svipstundu
Húsfreyjan á Neðra-Hóli
Elísabet Kristófersdóttir var
stödd í eldJhúsinu, er elding-
unni sló niður. Sviptist þakið
af húsinu og varð það eitt eld-
haf á svipstundu. Svo mikill
þrýstingur varð af eldingunni,
að allar rúður sprungu samtim
is í húsinu og rigndi glerbrot-
unum yfir húsfreyju, þar sem
hún stóð á miðju gólfi. Má
það teljast sérstakt lán, að
hún skyldi ekki skerast eða
skaddast á annan hátt. Hún
varð heldur ekki fyrir raflosti,
þar sem hún var hvergi í nám
unda við neitt, sem gat leitt.
Húsbóndinn, Jónas Þjóðbjörns
son og hinn sonur hans, Jónas
voru úti við, er atburður þessi
gerðist.
Veggirnir molnuðu
Hjálp barst fljótlega frá
næstu bæjum en litlu sem
engu var hægt að bjarga.
Slökkvitæki komu frá Vega-
mótum, eftir um það bil tutt-
ugu mínútur, en þá var mest
allt brunnið. Svo mikill var
kraftur eldingarinnas, að vegg
ir hússins, sem voru úr
steinsteypu, molnuðu niður
í smátt. Húsið var ein hæð
og kjallari, milligerðir all-
ar og loft úr tré. Læsti eldur-
inn sig óðar í tréð, er þakið
sviptist af húsinu, og magnað-
ist af vindinum. Fimm metra
hár staur, sem stóð skammt
frá húsinu, flísaðst einnig í
sundur við eldinguna, en loft-
net frá útvarpi var tengt við
hann.
Eins og áður er sagt, voru
átta kýr í fjósinu, um það bil
tíu metra frá íbúðarhúsinu.
Bafstraumurinn barst með
vatnsleiðslu út í fjósið og drap
fimm kýr, sem lágu við leiðsl-
ur í básum sínum. Hinar kýrn-
ar stóðu í básunum og sakaði
þær ekki. Það vildi einnig til
láns, að vindur var á vestan
og stóð ekki á fjósið eða hlöð-
una, sem einnig er skammt frá
bænum. Annars má telja víst,
að eldurinn hefði bréiðst þang
að út. Slökkvitækin hefðu þá
getað komið að gagni, en ó-
Fimm kýr
drápust
víst hver endalokin hefðu
orðið.
Bræðurnir á Neðra-Hóli
vöktu alla nóttina yfir rúst-
um íbúðarhússins, ef eldur
skyldi koma upp aftur. Jörð-
in er ríkisjörð og mun ríkið
einnig hafa átt íbúðarhúsið.
Hins vegar voru allir innan-
stokksmunir eign hjónanna á
bænum. Þeir voru lágt vá-
tryggðir og varð litlu áf þeim
bjargað. Kýrnar voru óvá-
tryggðar, eins og víðast í sveit
um landsins, og er því tjón
bóndans tilfinnanlegt.
Reif upp jörð
Næsti bær við Neðra-Hól
wmmifm-
Rannsókn á hlut atvinnu-
veganna í þ jóðartekjunum
Orðaskipti á Alþingi
'A FUNDI sameinaðs þings í
gær urðu nokkur orðaskipti
milli Bjartmars Guðmunds-
Bonar og Jóns Þorsteinsson-
ar, en Bjartmar hafði fram-
sögu fyrir þingsályktunartil-
lögu um rannsókn á hlut-
deild hinna einstöku at-
vinnugreina í þjóðarfram-
leiðslunni, sem hann flytur
ésamt Jónasi Péturssyni. Er
tillagan á þessa leið:
' V ★
/ Alþingi ályktar aff fela
rikisstjórninni að láta fara
fram rannsókn á eftirtöldum
alriðum:
>' 1. Hluta hverrar atvinnu-
greinar í þjóðartekjunum,
svo sem landbúnaðar, fisk-
veiða, iðnaðar og þjónustu-
starfa alls konar.
" 2. Skiptingu þjóðarinnar
eftir atvinnu, þ. e. mann-
fjölda sem starfar við hverja
atvlnnugrein og framfæri hef
ur af henni og hvers konar
þjónustustörfum.
3. Heildarf jármagni, sem
bundið er í atvinnuvegunum
hverjum um sig, notkun
rekstrarfjár, þætti ríkis og
lánsstofnana í verðmætasköp
uninni.
Rannsókn þessi verði fram
kvæmd af Framkvæmda-
banka íslands með aðstoð
Hagstofu fslands. Leitazt skal
við að láta hana ná yfir
nokkurt timabil, t. d. síðast-
liðin 10—15 ár. Verðj rann-
sókn þessari hraðað eftir
föngum, og þegar niðurstöð-
ur hennar liggja fyrir, skal
birta hana þjóðinni í ljósu og
aðgengilegu formL . .
* fcJfcF
Bjartmar Guðmundsson fylgdi
þingsályktunartillögumni úr hlaði
mieð ítarlegri ræðu. Að máli
hans loknu kvaddi Jón Þorsteins
son, níundi landskjörinn þing-
maður, sér hljóðs. Sagði hann,
að sér dytti ekki í hug, að þessi
tillaga vaeri borin fram í alvöru.
Hún væri fram borin eingöngu
til að koma í veg fyrir, að sin
tillaga, um rannsóknir á styrkj-
um til landbúnaðarins, yrði aí-
greidd. I tillögu Jónasar og
Bjartmars væri beðið um svo
flóknar rannsóknir, að fullvist
væri, að engin þeirra færi fram.
Sagði Jón Þorsteinsson að lok-
um, að hann vildi mælast tiJ
þess við flutningsmenn, að þeir
lýstu því yfir, að þeir vildu ekki
þessa rannsókn, en flyttu tillög-
una til að koma í veg fyrir að
hin yrði samþykkt.
Bjartmar Guðmundsson tók
aftur til máls. Kvaðst hann vitja
neita því eindregið, að tiliaga
þeirra Jónasar væri borin fram
til þess eins að hindra að tililaga
Jóns Þorsteinssonar yrði sam-
þykkt. En 'hitt væri rétt, að til-
laga Jóns Þorsteinssonar, hefði
orðið til þess að síðari tillagan
var flutt. Flutningsmönnum
hennar hefði þótt rétt, að rann-
sóknin beindist ekki aðeins að
styrkjum til landbúnaðarins,
heldiur væri einnig athugaðir
um leið styrkir til annarra at-
vinnuvega, m. a. til sjávarút-
vegsins.
er Glaumbær. Þar sprungu
rúður og skemmdir urðu á út-
varpstækjum og síma. Þess
má geta, að í maí í fyrra laust
eldingu niður um 1 km frá
Neðra-Hóli, og kom hún nið-
ur á jarðsímastreng og reif
upp jörð á 50—100 m svæði.
Eldingar em óútreiknanlegar
Blaðið hafði í gær tal af
Jakob Guðjohnsen, verkfræð-
ingi og spurði hann um
straumstyrkleika og eðli eld-
inga. Kvað hann straumstyrk-
leikann geta verið allt frá 100
amp. upp í 100.000 amp. Tíu
þúsund amp. styrkleiki væri
f.d. algengur. Mjög erfitt væri
að ’segja um, hvaða leið elding
færi, og hvernig hún greind-
ist. Yfirleitt væri reynt að
leiða eldingar til jarðar
stytztu leið, þar sem, búast
mæ tti við þeim, en þrátt fyr-
ir það væri ekki víst að þær
færu þá leið, heldur aðra, sem
hefði minna viðnám til jarðar.
Ef elding félli niður í hús í
borg eða bæ, væru litlar líkur
til að straumurinn bærist í
önnur nálæg hús, þar sem
vatnskerfi í borgum og bæj-
um væri yfirleitt vel grunn-
fengt, og færi eldingin þá
stylztu leið í jörðina. Hins
^égar mætti telja víst, að jörð
in á Neðra-Hóli váeri mjög
slæm, og straumurinn því bor-
ist beinustu leið eftir vatns-
pípunum út í fjós með þeim
hörmulegum afleiðingum, sem
þar urðu. „Eldingar eru óút-
reiknanlegar eins og konur og
hvirfilvindár í Ameríku“,
sagði Jakob Guðjohnsen að
lokum. £ {
Fleiri tóku ekki til máls og
var umræðu frestað og tillög-
unnj vísað til fjárveitinganefnd
ar.
— Árásarmaðurinn
Frh. af bls. 1 ý
yfirheyrslu hjá Sveini Sæmunds
syni, yfirmanni rannsóknarlög-
reglunnar, kl. laust fyrir 6 á
laugardagskvöld, hafði Sveinn
haft á borðinu fyrir framan sig
teikningarnar, sem þeif Aðal-
steinn og Halldór höfðu gert, eft-
ir lýsingu telpunnar. _4_
— Þegar maðurinn kom inn til
mín, sá ég um leið af teikning-
unum að hér var kominn sá, er
við vorum að leita að, sagði
Sveinn við blaðamann í gær.
Maffurinn, Guffmundur Þórff
arson, Víðimel 49, sem hefur
veriff nokkuð á togurum, ját-
affi strax verknaffinn. Hann
minntist þess aff hafa hitt telp
una á götu, fariff að stimpast
viff hana og ðregið hana inn
á leikvöllinn, en hvaff síðar
gerðist taldi hann sig ekkl
muna. Hefffi hann veriff ölvaff
ur mjög. Kvaffst hann hafa
drukkiff allan föstudaginn og
myndi óljóst atburffarásiua
þann dag og um kvöldiff.
3ja mánaffa varffhald \
Hvort þaff var af ráffnnm
hug gert aff leggjast inn á
Bláa banðiff, svo aff hann
yrffi ekki á vegi hinna
leitandi lögreglnmanna, er
ekki vitaff, en allhyggilegt var
þaff eins og á stóff. Hefur bann
áffur leitaff hælis á Bláa band
inu. i i.
Eins og fyrr segir, var Gnff-
mundur úrskurffaffnr í 3ja
mánaffa gæzluvarðhald og U1
geffheilbrigffisrannsóknar. u
•| ' Sviftnr ökuleyfi ^
Ekki hefur Guðmundtir
komið mikið vi ðsögu í „saka-
skránni“. Hjá rannsóknarlög-
reglunni var engin mynd tff
af honum f myndaspjaldskfS1,
önnur en Ijósmynd af myn'ij
úr ökuskírteini hans. Á áritiu
1959 var hann sviptur ökil-
leyfi um skeið. Hann mun
ekki hafa áður verið dæmdur
í þyngri refsingu fyrir laga-
brot en ökuleyfissviftingu
vegna ölvunar við akstur. t-f
Þaff er álit þeirra er gjofl
þekkja þetta mál, aff telja
megi það hreinustu mildi aff
telpan skyldi sleppa lifanðL
Líffan hennar er eftir atviknm
góff.
Tvö dagskrármálanna voru
tekin af dagskrá, en um hin tvö
urðu ekki umræður. Jón PálmaT
son talaði af hálfu nafndar um
þáiltiLL um byggingarsamvinnu-
félög, og Björn Jónsson hafði
framsögu fyrir þáltill. um niður-
suðuiðnað síldar, er síðan var
vísað til fjárveitinganefndar, en
umræðu frestað.
Eldingar
á Akranesi
AKRANESI, 16. jan. — Lausl
eftir kl. 8 í gærkvöldi laUst eld
ingu niður í háspennulínuna
hingað og voru mikil ljósleiftur
á lofti. Öryggiri í aðveitukerfinu
eyðilögðust í þessum hamförum,
en hinir snjöllu viðgerðarmenn
rafveitunnar brugðu skjótt við
og fengum við rafmagnið aftur
að hálfri stundu liðinni. —Oddur
Roskinn maSur
Óskar eftir kynningu við ís-
lenzka eða útlenda, reglu-
sama og góða stúlku 35—40
ára. Ævilöng kynni um að
ræða. Svar sendist afgr. Mbl.
fyrir 20. þ.m. merkt: „XX
1961 — 1069“.
Mercedes
Benz '54
vörubifreið 5 tonn í góðu
ástandi. — Skipti möguleg.
Opel Record '54
glæsilegur bíll £ topp á-
standi, fæst með góðum kjöir
um.
Aðal-BÍLASALAN
Ingólfsstræti 11
Sími 15014 og 23136.
Aðalstræti 16 — Sími 19181.
Gís/i Einarsson
héraffsdómslögraaffur.
Málflutningsstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
HILMAR FOSS
lögg. skjalþ. og dómt.
Hafnarstræti 11. — Sími 14824.