Morgunblaðið - 17.01.1961, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 17. janúar 1961
MORGUNBLAÐIÐ
23
Radarstööin stóð á Jiremur stöplum.
Radarturn hvarf i
sæ með 27 manns
New York, 16. janúar.
(NTB/Reuter)
BANDARÍSKUR radarturn,
sem staðsettur var í Atlants-
hafi, nánar tiltekið 128 km
undan New York, sökk í
nótt og með honum hurfu
27 manns í hafið, 12 menn úr
flughernum og 15 óbreyttir
borgarar.
Tundurspillir, sem leitaði
á staðnum snemma í dag til-
kynnti, að heyrzt hefðu
högg, að því er virtist frá
talstöð. Kafarar voru þegar
sendir á staðinn, ef vera
kynni, að einhver hefði kom-
— Ekkert verkfall
Framh. af bls. 1
til veiða rétt áður en verkfallið
hæfist til þess að geta haldið á
sem lengst, ef stöðvun yrði veru-
Hornafjörður
. Afli var dágóður þá tvo daga,
sem gefið hefur. Annars hafa
verið hér stöðugar ógæftir og
eru enn svo að bátamir væru
bundnir, enda þótt ekki væri
verkfall.
^ 'I * ísafjörður
Aflnn hefur verið misjafn og
ekki viðrað sem bezt. Bátamir
rém í kvöld, en stöðvast síðan, ef
ekki takast samniírgar.
Y' Patreksf jörður
t Þar hefur verið leiðindaveður
og aflinn misjafn, en róið í kvöld.
Á Bíldudal er síðasti róður ann-
að kvöld, takist ekki að semja.
Húsavík
Þar er róið þegar gefur, sem
þó hefur verið allt of sjaldan að
undanförnu. i
Dr. SCHOLL’s
vörur nýkomnar í miklu
úrvali.
Reykjavíkur Apótekj
Sími 19866
izt Iífs af, innilokaður ein-
hversstaðar í turninum. En
menn eru vonlitlir um að
súrefni hafi verið nægilegt
tU svo langs tíma, enda þótt
einhver hefði verið með lífs-
marki í morgun.
Mikill sjór og stormur var í
nótt er nokkur skip heyrðu
neyðarkalL Sigldu þau þegar
á vettvang. Strandgæzlan hafði
ásamt þeim stöðugt samband
við mennina og fengust þær
upplýsingar, að turninn hreyfð-
ist meir í sjónum en eðlilegt
væri. Er 48 mínútur voru liðn-
ar rofnaði sambandið við tum-
inn skyndilega og er skipin
komu á vettvang örskömmu síð-
ar, var ekki tangur né tetur af
honum að sjá.
I morgun fundust ýmsir hlut-
ir úr tuminum á reki og eitt
lík, klætt björgtmarvesti.
Meðfylgjandi mynd er af rad-
arturni nr. 3, en sá er fórst var
númer 4. Stóð hann eins og nr.
3 á þrem stálsökklum og var
oftast nefndur Texasturn 4.
— Lumumba
Framh. af bls. 1
borg hins nýstofnaða Luluaba-
héraðs, leyfa nú flugvélum SÞ
lendingu í bænum, en engum
öðrum. Kveðst yfirmaður liðs
SÞ þar reyna að koma í veg
fyrir átök þar.
Tilkynnt var í Leopoldville í
dag, að Mobutu hyggist flytja
Lumumba frá Thysville á annan
ótilgreindan stað. Er það gert
sökum þess, að Lumumba varð
laus úr haldi um daginn, er til
uppþota kom í herbúðunum
sakir óánægju hermanna Mo-
butus yfir málagreiðslu. Náðist
Lumumba þó fljótt aftur.
Fjöldahandtökur
Jafnframt skýrði innanríkis-
ráðherra Katangafylkis, Gofroid
Munovno, svo frá í dag, að kom
izt hefði upp um samsæri gegn
héraðsstjórn fylkisins. — Hefðu
samsærismenn ætlað að taka
Moise Tshombe af lífi ásamt
öðrum stjómarmönnum.
Af þessum sökum hefði reynzt
nauðsynlegt að handtaka all-
marga menn. — Ekki er víst
hversu margir hafa verið hand-
teknir. Munovno segir einungis,
að þeir hafi verið nokkur
hundruð talsins. Hinir hand-
teknu eru flestir af Batatela-
ættflokknum, ættflokki Lum-
umba og stuðningsmanna hans.
— Óðurami
Framh. af bls. 10.
16. júní 1960, spáði ég því að
fram kæmi í Afríku töframaður,
semi gera mundi undarlega hluti
sem hvítir menn tækju í fyrstu
ekkert mark á. Fleira sagði ég
þar, sem vel gæti átt við þessa
töfrafeðga, og skal það ekki rak-
ið hér, en þó er fjarri mér að
halda því fram að spáin hafi ná-
kvæmlega rætzt. Það gera spár
helzt aldrei, og sumar þær spár
sem frægastar hafi orðið hafa
alls ekki rætzt, eins og t.d. ein
um yfirvofandi heimsslit, sem
fram kom fyrir rúmumi 1900 ár-
um. En fróðlegt gæti verið fyrir
athugula menn að skoða þessa
Alþýðublaðsgrein mína og bera
samjn við það, sem nú er verið
að segja frá. Eróðleg tilraun gæti
einnig verið að endurlesa þessa
grein hér og vita hvort nýtt
kæmi í hug við annan lestur.
Þorsteinn Guðjónsson.
Þakka hjartanlega gjafir, skeyti og annan vináttuvott
á sextugsafmæli mínu.
Einar Guðbjartsson.
Þakka hjartanlega heimsóknir^ gjcifir og heillaskeyti
á sextugsafmæli mínu 21. des. sl.
Sveinn Kr. Jónsson,
Fjólugötu 25, Rvík.
IVfiercedes Benz 454
Til sölu vörubíll í góðu lagi. Vægt verð ef um mikla út
borgun er að ræða. Uppl. í síma 37992, sömuleiðis
keðjur 900x20 til sölu á sama stað.
Hljóðfæraleikarar
Síðasti ársfjórðungur félagsgjaldsins féll í gjald-
daga 1. jan. s.l. og þar með allt félagsgjaldið fyrir
síðasta ár fallið í gjalddaga. Greiðið gjaldið í skrif-
stofu félagsins Skipholti 19, en hún verður opin alla
virka daga kl. 2—4 e.h. þennan mánuð. (Sími 23815).
Félagsgjöld þeirra, sem ekki hafi greitt fyrir
janúarlok, verða dregin af vinnulaunum þeirra í byrj-
un febrúar.
Fél. íslenzkra hljómlistarmanna.
Öllum þeim, nær og fjær, er auðsýndu mér vinarhug
með gjöfum, skeytum og heimsóknum á sjötugsafmæli
mínu, hinn 13. janúar s.l., flyt ég mínar innilegustu
þakkir. Bið ég þeim öllum allrar blessunar nú og ævin-
lega.
Sveinn Halldórsson.
Hugheilar þakkir sendi ég ykkur öllum skyldum og
vandalausum, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöf-
um og góðum kveðjum á sjötíu og fimm ára afmæli mínu
þann 6. þ.m. — Leifið heil.
Jóhann Benediktsson, Háagerði 73.
Vegna jarSarfarar PALS ÞORLEIFSSONAR bókara, verða skrifstofur okkar lokaðar eftir hádegi miðvikudaginn 18. jan. SÖLUSAMBAND ISLENZKRA FISKFRAMLEIÐENDA. $
Hjartkær sonur okkar og bróðir ÓLAFUR ÞÓR SIGURGEIRSSON Grænuhlíð 5, andaðist í Landspítalanum sunnudaginn 15. janúar. Foreldrar og systkinL
guðrUn guðmundsdóttir frá Þrúðardal andaðist 14. þ.m. í sjúkrahúsi Sauðárkróks. Vandamenn.
Móðir mín KATY ÞORSTEINSSON Vestmannaeyjum verður jarðsungin frá Aðventkirkjunni^ miðvikudagina 18. janúar klukkan 2 e.h. Dorote Oddsdóttir.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir ÞÓRHALLUR VILHjALMSSON sem andaðist í Landspítalanum þann 15. þ.m. verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, laugard. 21. þ.m. kl. 2 eh. Sigríður Jónsdóttir, Birgir Þórhallsson, Anna S. Snorradóttir, Guðbjörg Þórhallsdóttir, Vilhjálmur Þórhailsson, Sigriður Guðmannsdóttlr.
Jarðarför Arsæls ARNASONAR bókbandsmeistara, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. janúar kl. 13,30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Börn, tengdaböm og barnaböm.
Otför mannsins míns, PALS þorleifssonar, bókara, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 18. janúar kl. 13,30. — Þeim, sem vildu minnast hans er bent & 9 Minningarsjóð félags ísl. leikara, — minningarspjöld af- greidd í Baðstofu Ferðaskrifstofu ríkisins — eða líknar- stofnanir. Anna Guðmundsdóttir, Hagamel 29
Við þökkum innilega samúð og hluttekningu við andlá,t og jarðarför konu minnar og móður okkar ASTU SVEINSDÓTTUR Hjörtur Klemensson og börn.
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og jarðarfarar stefAns hannessonar kennara frá Litla-HvammL Steinunn Amadóttir^ böra og tengdaböm.