Morgunblaðið - 17.01.1961, Qupperneq 24
Einrυi
i Afríku? — Sjá bls. 8.
ft!0MJW#foliÍ!>jÍit3J
12. tbl. — Þriðjudagur 17. janúar 1961
Niósnamal
i Engiandi. — Sjá bls. 12.
Ekkert verkfall
á Suðurnesjum
Bátarnir róa áfram og afli er dágóður
Keflavik, 16. janúar.
SUÐURNESJABÁTAR róa
áfram. 1 dag lægði veðrið á
miðunum og var búizt við,
að allir bátar í Keflavík,
Grindavík og Sandgerði,
mundu róa í kvöld. Tals-
menn sjómanna og útgerðar-
manna telja engar líkur til
þess að verkfall verði boðað
á bátum á Suðurnesjum. —
Landmenn á Sandgérðisbát-
um hafa þó boðað verkfall
frá og meeð 20 þ. m., ef
samningar hafi ékki tekizt
þá — og ef svo verður
stöðvast Sandgerðisbátar að
sjálfsögðu.
Samninganefndir sjómanna og
útgerðarmanna höfðu gert sam
komulag um kaup og kjör báta-
sjómanna ekki alls fyrir löngu
og undirrituðu það með þeim fyr
irvara, að almennur fundur sjó-
manna samþykkti.
Það var þá sem Hannibal kom
suður eftir með lið sitt og beitti
sér fyrir því að sjómenn frestuðu
að taka afstöðu til þess samkomu
lags, er tekizt hafði. I
Formaður verkalýðs- og sjó-
mannafélagsins sagði í kvöld, að
hann teldi lítil líkindi til þess að
verkfall yrði boðað meðan ekki
hefði verið tekin afstaða til fyrr-
greinds samkomulags. Talsmaður
útgerðarmanna var sömu skoð-
unar. j
Aflinn hefur verið dá-
góður að undanförnu. í síðasta
róðri fyrir helgi var hann þetta
6—14 tonn. — H. S. J.
A i Vestmannaeyjar
Útvegsbændur í Vestmannaeyj
um hafa skipað nefnd til við-
ræðna við fiskvinnslustöðvarnar
um fiskverðið. Hafa tveir fundir
verið haldnir og verður fram-
hald þeirra viðræðna. Annars
bíða menn þess sem gerist á
samningafundum í Reykjavík.
Reykjavík
Þeir Reykjavíkurbátar, sem
þegar eru byrjaðir róðra, halda
enn áfram. Verkfall hefur verið
boðað frá 18. þ.m. að telja, ef
samningar hafi þá ekki tekizt.
Afli mun hafa verið ágætur og
sögðu sjómenn í gær, að svo yrði
stillt til, að útilegubátarnir færu
Framhald á bls. 23.
í>-
Egill Thorarensen látinn
EGILL Thorarensen, kaupfélags-
stjóri á Selfossi, andaðist í sjúkra
húsi hér í Reykjavík sl. sunnu-
dag. Hann var fæddur 7. jan. ár-
ið 1897 að Kirkjubæ á Rangár-
völlum, og var því rúmlega 64
ára gamall ,er hann lézt. Foreldr
ar hans voru Grímur Thoraren-
sen, hreppsstjóri í Kirkjubæ og
kona hans, Jónína Egilsdóttir frá
Múla í Biskupstungum.
Egill Thorarensen stundaði
ungur nám í verzlunarfræðum í
Danmörku, en gerðist síðan
verzlunarmaður í Reykjavík.
Einnig stundaði hann sjó-
mennsku um nokkurt skeið. Ár-
ið 1918 hóf hann verzlun austur
í Sigtúnum, sem hann rak til árs-
ins 1930. Þá gerðist hann fram-
kvæmdastjóri við Kaupfélag Ár-
nesinga. Egill Thorarensen var
stjórnarformaður Mjólkurbús
Flóamanna frá 1931 og hafði um
Hæstu vinnmgar í
Happdrætti
rikissjoos
1 GÆR var dregið í B-flokki
Happdrættis ríkissjóðs og hlutu
þessi númer hæstu vinningana:
75 þús. kr.: 119895, 40 þús.:
132105, 15 þús.: 1770 og 10 þús.:
8543 85771 og 120500.
áratugaskeið mikil afskipti og
forystu um afurðasölumál land-
búnaðarins. Hann var hinn mesti
athafnamaður, þrekmikill og
fylginn sér í hverju því máli er
hann beitti sér fyrir.
Stúlka varð
fyrir árás
í GÆR fékk rannsóknarlög-
reglan til meðferðar árásar-
mál. Ung stúlka, sem var yf-
ir börnum í húsi einu í Aust
urbænum, segist hafa orðið
fyrir árás þá um kvöldið,
laust fyrir klukkan 10,30. —
Hafði þá verið bankað á úti-
dyrahurðina. Er hún opnaði
hafi þar verið úti maður,
sem hún bar engin kennsl
á. Segir stúlkan að þessi
Helgafell
strandaði
NESKAUPSTAB, 16. jan. —
Helgafell, eitt Sambahdsskip-
anna, strandaði á Neseyri, utar-
lega í firðinum, norðan við kaup
staðinn. Það var um kl. 4,30 að
skipið tók niðri þarna og var þá
komið langt af alfara siglinga-
leið. Veður var hið fegursta. Á
flóðinu kl. 9, losnaði það og hélt
áfram inn að bryggju. Mönnunr
er ekki ljóst hvað olli þessum
mistökum.
r — Fréttaritari.
Símanum austur er lokað kl.
10 og tókst blaðinu ekki að fá
fregnir af því hvort leki hafði
komið að skipinu, enda var það
að koma að bryggju um 10-leytið.
maður hafi samstundis grip-
ið sig heljartaki. Hann hafi
troðið upp í hana stórri kart
öflu og hótað að drepa hana,
brugðið snæri um háls
henni. Ekki hafði stúlkan
séð framan í manninn, þar
er henni virtist hann vera
með einhverskonar grímu
fyrir andlitinu og hatt á
höfði, sem slútt hafi fram.
Allt í einu hafi svo komið
að manninum styggð við
mannaferðir er heyrzt höfðu
álengdar.
Hafði stúlkan orðið ofsa-
lega hrædd. Ekki höfðu þó
sézt á henni neinir áverkar.
Umræðuþáttur Sigurðar
Magnússonar um sterka ölið
í útvarpinu á sunnudags-
krvöldið vakti mikla athy.gli.
Áttust menn þar við af miklu t
kappi svo að glumdi í út-
varpstækjunum, en enginn
var þar samt glasaglaumur.
Væri synd að segja, að ræðu-
menn hafi dregið diul á skoð-
anir sínar. Það var ekki fyrr
en í lokin, að stjórnandi iþátt-
arins komst að til að stjórna
þættinum og binda endi á
átökin. — Þarna eru þeir við
hljóðnemann: Hinrik Guð-
mundsson, Pétur Sigurðsson,
Guinnar Dal, Freymóðúr Jó-
hannsson og Sigurður Magn-
ússon, sem um skeið hef-
ur stjórnað þessum þáttum
við miklar vinsældir.
Það kom fram við umræð-
urnar að í verzlunum fengj-
ust sérstök ölbruggunarhrá-
efni, með leiðarvísi. Ilöfðu
andmælendur ölsins á orði að
kæra sölu þessa yarnings en
í viðtali við Mbl. í gærkvöldi
sagði Freymóður, að enn
hefði það ekki komizt í verk.
Hins vegar væri fuU ástæða
til að athuga þetta gaumgæfi
lega.
(Ljósm.: Gísli Sigurðsson).
Alþíngi hefur
sförf að nýju
ALÞINGI kom saman til
fyrsta fundar á hinu nýbyrj-
aða ári í gær. Hófst fundur
í sameinuðu þingi kl. 1,30.
Er þingmenn höfðu tekið
sér sæti gekk forsætisráð-
Bílsfjóí inn í Keflavfk fundinn:
16 ára og próflaus
KEFLAVÍK 16. jan. — Bifreiðar
stjórinn, er ók bílnum, sem olli
dauðaslysinu á Faxabraut í fyrri
viku, er fundinn. Lögreglan upp
lýsti í dag, að þetta væri 16 ára
piltur úr Keflavík. Hann hefur
ekki ökuréttindi. Við yflrheyrzl-
ur í dag sagði hann sig hafa
brostið kjark til að gefa sig
fram.
Þetta hörmulega slys varð að
kvöldi hins 11. þ. m. Aldraður
maður, Daníel Matthíasson, varð
fyrir bifreið á Faxabraut og lézt
hann af völdum meiðslanna að-
faranótt laugardags.
Þrjú börn voru sjónarvottar
að slysinu. Þau voru 10, 11 og 13
ára. Eitt barnanna sagði, að bif-
reiðin hefði verið græn, af
Volvo-gerð. Lýst var eftir fleiri
sjónarvottum og það var ekki
fyrr en á laugardaginn, að
Bandaríkjamaður af Keflavíkur
flugvelli gaf sig fram við lög-
regluna og sagðist hafa séð
græna Volvo-bifreið á Faxa-
braut á sama tíma og slysið
varð.
Bandaríkjamaðurinn hafði
ekki frétt um sly-sið fyrr en á
laugardag og var honum þá jafn
fram sagt bvað börnin heifðu
sagt og að lýst væri eftir sjónar-
vottum. Maðurinn býr við Faxa-
braut og var einmitt að koma
heim umrætt kvöld. Rámaði
hann í að hafa séð grænleita
Volvo-bifreið aka eftir götunni,
þegar hann gekk inn í húsið.
Hóf lögreglan þegar leit að
öllum þeim bifreiðum, er til
greina gætu komið, og fannst sú
rétta, lokuð inni í bílskúr. Hafði
henni ekki verið ekið síðan sílys-
Eigandi bifreiðarinnar er 16
ára piltur, einnig úr Keflavík.
Hafði pilturinn, sem ók bifreið-
inni urnrætt sinn, verið að gera
við hana. Að viðgerðinni iokinni
ók faann henni til eigandans.
★
Við yfirheyrslur sagðist hann
ekki hafá séð Daníel heitinn,
hvonki áður né eftir að slysið
varð. Bifreiðin rakst á eitthvað,
framrúðan brotnaði — og heml-
aði ihann þegar, hægði mikið
ferðina. En iþá sagði hann, að
mikil hræðsla hefði gripið sig.
Hann sagðist ekki hafa þorað að
nema staðar og athuga hvað
þetta hefði verið — en ekið til
eigandans.
Þeir settu bifreiðina þegar inn
í bílskúrinn sem er nálægt faeim
ili eigandans, og þar heÆur hún
staðið síðan. Báðir sögðust þeir
ekki hafa þorað að gefa sig fram
herra, Ólafur Thors, að ræðu
stóli og las forsetabréf frá 9.
janúar sl. um framhald á
fundum Alþingis. Þá árnaði
forsætisráðherra forseta sam
einaðs þings og þingmönn-
um öllum gleðilegs árs, og
þakkaði liðið.
Forseti sameinaðs þings, Frið-
jón Skarphéðinsson, tók nú til
máls. Þakkaði hann forsætis-
ráðherra árnaðaróskirnar en gat
því næst um bréf frá nokkrum
þingmönnum, sem ekkl geta
mætt til þings að sinni, er ósk-
uðu að varamenn iþeirra tækju
sæti í þeirra stað. Taka eftirtald-
ir varamenn sæti: Sigurður
Bjarnason, í stað Kjartans J»
Jóhannssonar, Jón Pálmasoni
í stað Einars Ingimundarson-
ar, Einar Sigurðsson í stað
Jónasar Péturssonar og Ingiv*
ar Gíslason í stað Garðars
Halldórssonar. Fimm mál voru
á dagskrá fundarins í gær og er
getið um afgireiðslu þeirra ann-
ars staðar í iblaðinu. Engin þing-
skjöl voru lögð fram í gær.
ið varð og var framrúðan brotin. við lögregluna. — H.S.J.
Bíða veiði-
veðurs
AKRANESI, 16. jan. — Síldar.
bátarnir eru allir í höfn vegna
illviðris á miðunum, en þeir
halda allir út jafnskjótt og eitt-
hvað lægir. — Oddu*.