Morgunblaðið - 18.01.1961, Síða 8
8
MORGVNBLAD1Ð
Miðvikudagur 18. Janúar 1961
E IN S og kunnugt er af
fréttum, sökk radarturn,
sem stóð í Atlantshafi um
128 kílómetrum frá New
York, aðfaranótt mánu-
dagsins, og með honum 27
manns.
Fyrir rúmum mánuði
heimsótti blaðamaður frá
þýzka vikublaðinu Quick
radarturn 3, en sá sem
sökk var radarturn 4. — í
grein sem blaðamaðurinn
ritar um heimsóknina, tal
ar hann um hættuna, sem
er því samfara að dvelja
á þessum athugunarstöðv-
um. Segist þeim þýzka svo
frá: „Meðan ég var á rad-
areyju 3, þurfti að yfir-
gefa radareyju 4. ‘Óveður
hafði skemmt undirstöður
— Ufanríkis-
vibskipiin
Framh. aí bls. 12.
að sú leið yrði farin, eins og á
undanförnum árum, að gripið
yrði til nýrrar gengisfellingar
eða uppbótakerfis í einhverri
msmd. Slíkt myndi aðeins koma
verðbólgunni af stað aftur og
rýra verðgildi peninganna sem
kauphækkuninni svaraði, þann-
ig að engar raunhæfar kjara-
bætur ynnust. Hitt er líklegra,
að af myndi hljótast samdráttur
í atvinnurekstrinum, sem óhjá-
kvæmilega hefði í för með sér
atvinnuleysi.
Ef kaupgjald helzt stöðugt,
mun grundvöllur sá, sem lagður
hefur verið að öruggri atvinnu,
vaxandi framleiðslu og bættum
lífskjörum treystast og efna-
hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar
eflast.
Semþykklir vinnuveit-
enda lýsa almennum
viðhorfum i launamálum
AÐ gefnu tilefni skal það tekið
fram, að Vinnuveitendasamband
fslands gekkst fyrir sameiginleg-
um fundi nokkurra stærstu
vinnuveitendasamtakanna í land
inu 28. nóv. s-1., til þess að ræða
viðhorfin í kaup- og kjaramálum
þá að nýafstöðnu Alþýðusam-
bandsþingi.
Síðan hefur verið starfandi
nefnd til undirbúnings almenn-
ari vinnuveitendafundi óg til að
semja greinargerð og tillögur
fyrir þann fund.
Sá fundur var síðan haldinn
12. þ.m. eins og áður hefur verið
skýrt frá og var tillaga sú og
greinagerð, sem birt var í blað.
inu í gær samþykkt þar sam-
hljóða.
< Frá Vinnuveitendasamb. fsl.)
A radareyju
hennar“. Virðist því við-
gerðin ekki hafa tekizt
sem skyldi.
• Dýrkeypt mínúta
Blaðamaðurinn lýsir radar-
eyjunni númer 3 þannig: Eyj-
an stendur í tuttugu metra
djúpu vatni, 160 kílómetrum
frá ströndinni. Hún er úr
stáli, aðeins 45 metrar á lengd.
Voldug radarloftnet undir
hvítu hjálmunum eru fyrri til
en radarkerfi New York ’borg-
ar að finna sprengjuflugvélar
eða eldflaugar úr austri.
Heilli, dýrmætri mínútu fyrri
til.
• Reiðhjól í stað gönguferða
Ahöfnin er venjulega 60
manns. Allt er gert til að gera
þeim lífið bærilegt. Setustof-
an útbúin með Ijósmyndum
frá Suðunhafseyjum til að
gefa tilbreytingu frá grá-
grænu umhverfinu. Reiðhjól
á rennibraut, sem kemur í
stað gönguferðar, því þarna
eru ekki nema 40—50 spor
milli endamarka eyjunnar.
Svo er þarna sími, sem áhöfn-
in getur notað án endurgjalds
milli klukkan 7 og níu á kvöld
in til að tala við eiginkonur og
fjölskyldur.
• Þarf eftirlit
Varnarkerfið er sjálfvirkt.
Þarf enginn að koma nálægt
tækjunum meðan þau leita í
geimnum að ókunnum flug-
vélum og eldflaugum. Og
finni þau eitthvað athugavert
senda þau sjálfkrafa aðvörun
til meginlandsins. En einn
galli er þó á tækjunum. Þau
þurfa stöðugt eftirlit og við-
hald. Þessvegna er áhöfnin
þarna, 60 menn einangraðir
frá umheiminum.
• Ótti
Að því er þýzki blaðamaður
inn segir ríkir sífelldur ótti á
radareyjunum. Otti, sem veld-
ur því að áhöfninni finnst
eyjan alltaf vera að minnka
og að hafið grípi til þeirra
með þúsund örmum. Eða ótt-
inn við að hvirfilvindur moli
stálundirstöður eyjunnar mél-
inu smærra.
• Dauðageislar
Þegar blaðamaðurinn fór
inn í radarhjálminn til að
skoða tækin, voru þau ekki í
gangi. Þegar hann spurði
hvers vegna, fór einn starfs-
mannanna með honum út og
sýndi honum fugl, sem sat þar
á eyjunni. „Við viljum ekki
myrða yður. En það væri unnt
með þessum sterku geislum.
Það er ekki svo hættulegt í
r.okkurri fjarlægð .en hérna
inni, rétt hjá tækjunum,
munduð þér brenna“. Svo
benti hann á fuglinn. Hann
ætlaði aðeins að hvíla sig á
eyjunni. Nú kemst hann ekki
buit. Radardauðinn er kom-
inn í blóð hans. Bráðum feyk-
ir vindurinn hjálparlausum
fuglinum í sjóinn, .eins og
hann hefur feykt hundruðum
fugla, sem urðu dauðageislun-
um að bráð.
í Atlantshafi
Nýkomnir
kúplingsdiskar
fyrir Ford taxa ’58—59.
og Chevrolet taxa ’59.
H. Jónsson & Co.
Brautarholti 22 •— Sími 22255.