Morgunblaðið - 18.01.1961, Blaðsíða 13
Miðvik'udagur 18. Janúar 1961
MORGUNBLAÐIÐ
13
if.
þeir
vilja
bara
stoppa
f fyrradag var'unniff af kappi
í ísbirninum. Freyr hafffi
komið af Grænlandsmiffum
meff liðlega 200 lestir og þaff,
sem síffast hafffi veiffzt, fór
til frystingar, eldri fiskurinn
í skreiff.
Alfreff Jústsson ræffur ríkj
um í fiskmóttökunni og hann
tíndi golþorskana einn af
öffrum á færibandiff, sem
flutti þá til fiökunarvélanna.
anna.
— Þetta er frekar magur
fiskur, sagði Alfreð. Hann er
alltaf frekar magur frá
Grænlandinu. Samt væri bet-
ur að við fengjum meira af
honum, því allt er hey í
harðindum.
— Samt hefur atvinna ver-
ið sæmileg að undanförrju og
vonandi fer þetta að glæðast,
þegar allir bátar eru „komn-
ir af stað“. Hér er það auð-
vitað bátafiskurinn, sem mik
ilvægastur er yfir vertíðina,
enda þótt hlutur togaranna
hafi jafnan verið allmikill.
En afli þeirra hefur verið
bágborinn að undanförnu.
Þeir verða víst að halda á
spöðunum, sjómennirnir, ef
þeir ætla að láta okkur hafa
nóg að gera.
— Og ekki aðeins okkur,
heldur alla hina, sem ekki
vinna við fiskinn, en eru
samt háðir gjaldeyristekjun-
um, sem blessaður þorskur-
inn færir okkur. Nú, eru það
ekki allir íslendingar?
— En svo eru þeir að tala
um að stoppa allt. Kommún-
istarnir, sem hér vaða uppi,
þeir vilja bara stoppa,
stoppa. Það kemst ekkert
annað að hjá þeim, a. m. k.
þeim, sem ég heyri í hér.
Þeir tala minnst um hærra
kaup. Bara stoppa fram-
leiðsluna.
— En ég held, að enginn
græði á stöðvun, sízt þegar
aflinn er jafntregur og hann
er núna. En þeir, sem vinna
að skemmdarverkum, þeir
eru auðvitað ekki að „spekú-
lera“ í því. Þeir eru að
hugsa um allt annað.
Páll Þorleifsson
Minning
F. 30/5. 1902. D. 10/1. 1961
PÁLL Þorleifsson var fæddur
í Reykjavík 30. maí 1902. For-
eldrar hans voru þau Þorleifur
Jónsson, fyrrv. alþingismaður
Húnvetninga og síðar póst-
meistari í Reykjavík, og frú
Ragnheiður Bjarnadóttir frá
Reykhólum í Barðastrandar-
sýslu.
Páll vann ásamt mér og fleir-
um hjá „útflutningsnefndinni",
sem sá um sölu og útflutning
allra íslenzkra afurða á stríðs-
árunum fyrri og fram til ársins
1921. Árið 1927, er ég tók við
skrifstofu Bookless Brothers,
réði ég Pál sem bókara, Og
vann hann þar, unz firma þetta
hætti störfum hér á landi.
Fluttist hann þá þaðan ásamt
mér til útflutningsdeildar Alli-
ance h.f. Þegar svo Sölusam-
band íslenzkra fiskframleiðenda
var stofnað árið 1932, réðist
Páll þangað sem bókari og hélt
því starfi til æviloka, að und-
anskildum nokkrum árum í síð-
asta stríði, er starfsemi stofn-
unarinnar dróst verulega sam-
an, en þau ár var Páll skrif-
stofumaður hjá Landssmiðjunni.
Óvenjuleg nákvæmni og ó-
skeikulleiki einkenndu störf
Plás, og allur frágangur bóka
og annarra verkefna frá hans
hendi var jafnan með afbrigð-
um hreinn og stílfagur. Munu
allar þær stofnanir, sem Páll
vann hjá vera á einu máli um
þessa kosti hans sem starfs
manns.
Þessi fáu kveðjuorð mín til
I minningar um Pál Þorleifsson
eiga aðeins að vera þakkar* *
orð fyrir langa og ágæta vin-
áttu. Frá því er hann var 16
ára að aldri og þar til hann
féll frá, vorum við nánir vinir
og samverkamenn í rúm 35 ár,
og svo mun Páll hafa kvatt
þennan heim, að hann hafði
enga óvini eignazt, en hins veg-
ar skilið eftir hjá öllum sam-
ferðamönnum sínum góðar minn
ingar og mikinn hlýhug, meiri
en venja er til. Hann var jafn-
an manna prúðastur í öllu við-
móti og kynningu, en þó manna
kátastur, og margt man ég
frumlegt og fyndið, sem Páll
hafði tök á öðrum mönnum
fremur,. en það var jafnan í
hans eigin þrönga vinahóp.
Páll var kvæntur Önnu Guð-
mundsdóttur, leikkonu, og ann-
aðist hún mann sinn í hinum
löngu og erfiðu veikindum hans
með frábærri ástúð og um-
hyggju. Vil ég votta henni,
móður hans svo og systkinun-
um innilega samúð mína.
Kristján Einarsson.
Verkföllin kosta
1500 millj kr
Brussél, 16. janúar.
(Reuter/NTB)
BELGÍSKI ráðherrann Jac-
wues van Offelen, sem hefur
yfirumsjón með utanríkis-
verzlun Belga, hefúr gert
lauslega áætlun um kostnað
þann, er hlotizt hefur af
verkföllunum, sem nú hafa
staðið í 27 daga. Mun kostn-
aðurinn nema sem svarar
1500 milljónum íslenzkra
króna, sé gert ráð fyrir að
verkföllunum ljúki einhvern
næstu daga.
Ekki virðist neitt henda til
láts á þeim í suðurhéruðun-
um og í dag beitti lögreglan
skotvopnum gegn verkfalls-
mönnum í átökum í Liege.
Tveir særðust skotsárum,
þar af annar lífshættulega.
A
1 Atök þessi urðu oftir útifund,
*r um 500 verkfaiiLsmenn eóttu.
Eftir fundinn genigu þeir í hóp-
um syngjandi um aðalgötur
borgarinnar og velltiu um spor-
vagni. Kom lögregla á vettvang
én er átöJk hörðnuðu beitti hún
ekotvopnum. Fyrrverandi hnefa
leikahetja, Joe Woussem, fékk
skot í hnakkann og er vart hug-
að líf. Einnig varð kona nokkur
fyrir byssukúlu, en ekki er vitað
hversu alvarleg meiðsl hennar
voru.
Ósamhljóffa tilkynningar
Verkalýðsleiðtogar hafa und-
anfarna daga birt hinar ýmsu
tilkynningar, og lýsa sumir yifir
því, að verkföllum skuli haldið
linnulaust áfram en aðrir hvetja
menn til að hefja vinnu. Bendir
ýmislegt til þess að nokkurt öng
þveiti ríki í röðum verkfalls-
manna.
Fregnir herma, að starfsemi
stærri verksmiðja sé að færast í
eðlilegt horf í Liege, Charleroi
og Verviers. í norðurhiluta
landsi-ns hefur starfsemi járn-
brauta og sporvagna komizt í
eðlilegt horf, en verkfallsverðir
beita öllum ráðum til að hindra
ferðir sporvagna og járnbrauta
í suðurhéruðunum. Var í nótt
m. a. komið fyrir sprengju í
jámbrautarlínunni milli Brussel
og Liege og varð af mikið tjón.
Um allt land hefur póst- og
símaþjónusta nú komizt í eðli-
legt horf.
Skrífstofustarf
Rösk stúlka getur fengið atvinnu hjá stóru fyrirtæki
í Miðbænum nú þegar. Stúdentspróf æskilegt. Verzl-
unarskóla- eða önnur hliðstæð menntun kemur til
greina. Eiginhandarumsókn er tilgreini aldur, mennt
un og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m.
merkt: „Lipur — 48“.
Skrífstofustúlka
Heildverzlun óskar að ráða stúlka til vélritunar og
til aðstoðar á skrifstofu. Umsóknir sendist afgr.
Morgunbl. merktar: „Vélritun —1314“ fyrir 21. þ.m.
íhúð til sölu
Til sölu er íbúð, tilbúin undir tréverk og málningu
í sambýlishúsi við Stóragerði. íbúðin er endaíbúð,
4 herbergi, eldhús, bað, skáli og geymsla, auk sér-
geymslu í kjallara. Rúmgóðar svalir. Hagstætt verð
og greiðsluskilmálar. Upplýsingar í síma 36266 eftir
kl. 6.
Eignin Kárastigur 2
er til sölu. Laus til afnota 15. maí nk. Nánari upplýs-
ingar gefnar í skrifstofu minni.
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON
hæstaréttarlögmaður
Hafnarstræti 11 — efstu hæð.
ISIý HLJÓMPLATA
16 TOP HITS
Never On Sundays —
My Heart Has A Mind
Of Its Own —
¥OGI —
Its Now Or Never —
Finger Poppin Time —
So Sad —
Mission Bell —
Walk Don’t Run —
Chain Gang —
Kiddio —
In My Little Corner —
Of The World —
Hot Rod Lineoln —
Ta — Ta —
The Twist —
Volare.
16 nýjustu og vinsælustu lögin í Bandaríkjunum á einni
hljómplötu fást hjá:
REYKJAVÍK: Hljóðfæráverzl. Sigr. Helgadóttur —•
Vesturveri. — Drangey, Laugavegi 58.
AKUREYRI: Sportvöru- og Hljóðfæraverzlunin
Ráðhústorgi 5.