Morgunblaðið - 18.01.1961, Blaðsíða 20
Utanríkisviðskiptin
Sjá bls. 11.
13. tbl. — Miðvikudag*r 18. janúar 1961
Þeir viSja stoppa
Sjá bls. 13.
ísl. stúlka lézt í
slysi í Danmörku
I FYRRADAG varð það slys
í Danmörku að ung, íslenzk
stúlka beið bana í bílslysi.
Stúlkan hét María Hjaltalín,
Stutt sumtal
vio foður
Guðmundur
Þórðursonur
MORGUNBLAÐIÐ hefur
verið beðið um að taka
fram, að Guðmundur
Þórðarson hefur aldrei af
sjálfsdáðum sótt um vist á
Bláa bandinu. Á laugar-
dagsmorguninn fór hann
þangað í fylgd með föður
sínum og fyrir orð móður
sinnar. Það er því ekki
rétt tilgáta að hann hafi
reynt að leynast á Bláa
bandinu.
Ennfremur er það á mis
skilningi byggt að hann
hafi drepið á vindlingum
á hendi sér. Brunasárin,
sem minnzt er á í frétt
blaðsins, hlaut hann af
rakettusprengingu kvöldið
fyrir gamlárskvöld.
Þess má að lokum geta
að Guðmundur Þórðarson
lenti fyrir nokkrum árum
í bílslysi á Keflavíkur-
flugvelli og fékk þá slæmt
höfuðhögg og nokkru síðar
snert af mænuveiki.
Sagði Þórður, faðir hans,
í stuttu samtali við Mbl. í
gær, að þá hefði farið að
bera á því að Guðmundur
þyldi illa áfengi — „eins
og hann færi úr sam-
bandi“, svo notuð séu orð
föður hans. En hann bætti
við: „Ég er ekki að biðja
um mildari dóm en hann
á skilið, mig langar aðeins
að þetta komi fram“.
Morgunblaðið sér enga
ástæðu til þess að verða
ekki við þeirri beiðni.
Kona
varð fyrir bíl
ÞAB slys varð á horni Rauðarár
stígs og Flókagötu í gærdag að
Guðrún B. Berndsen varð fyrir
bifreið. Var hún flutt á Slysa-
varðstofuna og síðan heim til sín.
Meiðsli hennar voru ekki talin
alvarleg.
dóttir Steindórs og Svövu
Hjaltalín. Átti hún heima að
Flókagötu 15 í Reykjavík, en
hafði að undanförnu starfað
í Danmörku. María var 20
ára að aldri. Hún var far-
þegi í bifreið, sem rakst á
vörubíl í þoku á þjóðvegin-
um milli Silkiborgar og Ár-
ósa. Sá bifreiðastjórinn ekki
vörubílinn, sem stóð kyrr.
María lézt samstundis.
Jón Kjartansson
tekur sæti á þingi
JÖN . Kjartansson, sýslumaður,
tók sæti á Alþingi í gær í for-
föllum Alfreðs Gíslasonar, átt-
unda landkjörins þingmanns. Er
Jón annar varamaður landskjör-
inna þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins, en fyrsti varamaður,
Sigurður Bjarnason, situr á þingi
sem varamaður Kjartans J. Jó-
hannssonar.
Kjörbréf Jóns Kjartanssonar
var rannsakað á fundi sameinaðs
þings í gær og samþykkt sam-
hljóða.
Jón Kjartansson sat á þingi frá
1923 til 1927 og aftur frá 1953 til
1959.
Stað, Hrútafirði, 17. jan.
I GÆRKVÖLDI tefldi Freysteinn
Þorbergsson, skákmeistari í
Reykjaskóla á 49 borðum. Frey-
steinn vann 37 skákir, gerði 9
jafntefli og tapaði 3 skákum.
— Magnús
Skœð hálsbólga ónœm
fyrir sumum fúkkalyfjum
í HAUST og vetur hefur
gengið hér illkynjuð háls-
bólga og hefur hún verið
útbreyddari en venjulega,
þótt segja megi að hálsbólga
gangi hér að öllum jafnaði
árið um kring.
Tilfellin hafa verið mis-
jafnlega mörg einstakar vik-
ur og ekki munu þau öll
hafa komið fram á skýrslum
til borgarlæknis. í júlímán-
uði í sumar eru eina vikuna
Jóhannes Áskels-
son látinn
1 FYRRINÖTT lézt að helmili
sínu hér í bænum Jóhannes As-
kelsson menntaskólakennari, 58
ára að aldri. Banamein hans var
hjartabilun.
Jóhannes Askelsson var fyrir
löngu þjóðkunnur maður fyrir
störf sín á sviði náttúrufræði. I
þeim efnum liggur mikið eftir
hann af allskonar ritgerðum
þó einkum hafi hann feng-
izt við rannsóknir á plöntu
steingervingum. Hann var einn
af framámönnurn Hins íslenzka
náttúrufræðifélags og formaður
þess um árabil. Hann var aðal-
náttúrufræðikennari menntaskól
ans og þar hefur hann verið
kennari um 30 ára skeið og
samtímis í Kennaraskólanum.
Kennsla féll niður í báðum þess-
um skólum í gær.
skráð 70—80 tilfelli. 1 ágúst
60—70. Fyrri hluta sept.
100 og um miðjan mánuðinn
150. Síðari hluta október eru
dæmin komin upp í 190, um
mánaðamót nóv.-des. 230, í
des. 240 og um miðjan des.
270. Síðan nokkru færri fyr-
ir jólin.
• Tvenns konar hálsbólga
Blaðið sneri sér til Arinbjarn-
ar Kolbeinssonar læknis og spurð
ist fyrir um hverskyns sýklar
væru hér að verki.
Hann kvað hálsbólgu geta staf
að af allmörgum tegundum bæði
baktería og vírusa. Hér væri nú
álitið, að gengju tvær tegundir
hálsbólgu. Önnur stafaði senni-
lega af vírus, hann væri þó ekki
hægt að rækta hér, væri sú háls-
bólga mildari. Hin stafaði af sýkl-
um er nefndust „hæmolytiskir
streptókokkar" og væri hún
þyngri, ylli m. a. hærri hita.
Arinbjörn lét þess getið að
komið hefði í ljós að sum hinna
nýrri fúkkalyfja, þau sem til-
heyra tetracyklinflokknum verk-
uðu ekki á þessa tegund sýkla,
væru þeir orðnir ónæmir fyrir
þessum lyfjum. Hins vegar hefðu
þeir reynst næmir fyrir penic-
illini. Samskonar niðurstöður
hefðu fengizt erlendis. Kvað Ar-
inbjörn ástæðu til að geta þess,
því allmikil brögð væru að því
að fólk. ættu lyf sem þessi og not-
uðu þau án árangurs, eða þeir
bæðu lækna sína um þau.
Ekki kváðu læknar sérstaka
ástæðu til að óttast þessa háls-
bólgu. Hún tæki fljótt af ef fólk
gætti þess að fara vel með sig
og fara ekki of ljótt á fætur. Þótt
hún væri nú meiri en venjulega,
væri ekki hægt að segja að hér
væri um faraldur að ræða.
Ekkert ókveðið
um togskipið
EKKERT er enn ákveðið
hvað gert verður við togskip
ið Marie Jose Rosette, sem
strandaði við hafnargarðinn í
Vestmannaeyjum fyrir viku
síðan. Það er nú mjög skemmt
orðið og heldur áfram að
brjóta úr hafnargarðinum.
Jón Sigurðsson hafnsögu-
maður tjáði fréttamanni blaðs
ins í Eyjum í gær, að nauð-
syn bæri til að f jarlægja skip
ið vegna skemmda þeirra er
það ylli. Hafnarnefnd hefir
hins vegar ekki tekið ákvörð-
un um málið enn sem komið
er og mun að nokkru valda að
beðið er eftir umsögn vá-
tryggjenda skipsins.
TVEIR Fossar voru í höfn
í gær: Fjallfoss og Selfoss.
Voru þeir fánum prýddir *
stafna á milli, í tilefni af
því að í gær voru liðin
47 ár frá því Eimskipafé-
lag Islands var stofnað.
Ekki róið
vegna veðurs
Akureyri, 17. jan.
BKKI róa síldarbátarnir i kvöld
og hæpið að þeir rói á morgun,
því hann spáir hvassvirði. Farið
verður út strax og gefur. i
Hingað kom m.s. Dettifoss s.d.
og lestar hér 50 tonn af fiskimjöli
og heldur síðan til Englands. j j
1 morgun kom saltskipið Thorai
Frellsen, sem veltist 16 sólarw
hringa í hafi, sem kunnugt er aí
fréttum, áður en það náði Vest-
mannaeyjum. Farmurinn er 500
tonn af salti og losar það 330
tonn hér. Saltskipið var þraut-
hlaðið og síst að undra þótt skips
höfnin yrði að taka á öllu sínu
til að verja það áföllum.
— Oddur
Sáttafundir
SÁTTAFUNDIR stóðu í alla
fyrrinótt í vinnudeilu sjó-
manna og útvegsmanna. —•
Sáttasemjari boðaði til fund-