Morgunblaðið - 24.01.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIL
Þriðjudagur 24. jan. 1961
Eðlilegar framkvœmdir
í sveitum
STEINGRÍMUR Steinþórsson,
búnaðarmálastjóri, flutti ný-
Iega erindi í útvarpið um land
búnaðinn á árinu 1960. Leyndi
sér ekki, að búnaðarmála-
stjóri lét pólitíska afstöðu
hafa áhrif á málflutning sinn.
Höfum við þó látið kyrrt
liggja. En á sunnudaginn tek-
ur Tíminn til við að vitna í
orð búnaðarmálastjóra og þyk
ir því rétt að birta nokkrar
athugasemdir.
Tíminn hefur það eftir bún-
aðarmálastjóra, að skurðgröft
ur á árinu 1960 hafi verið 15%
minni en árið á undan. Við
þær upplýsingar er þess að
geta, að í mörgwm hreppum
hefur nú þegar verið grafið
altt land, sem hægt er að
grafa. Út af fyrir sig er þvi
ekkert óeðlilegt, þó sumsstað-
ar dragi úr skurðgreftri.
Þá segir Tíminn, að túna-
rækt hafi orðið minni í fyrra
en árið áður. í því efni liggja
ekki enn fyrir ákveðnar tölur,
en jafnvel þótt ræktunin hafi
verið eitthvað minni 1960 en
hún er 1959, þá er líklegt að
hún heftur verið svipuð og árið
1957 og 1958, en árið 1959 sker
sig eitt úr sem langmesta rækt
unarárið.
Blað Framsóknarmanna seg
ir:
„RækOunarsamböndin fluttu
aðeins inn tvær jarðýtur á ár-
inu 1960“. Þetta á að vera meg
insönnunin fyrir því, að sam-
dráttur og stöðvun sé í sveit-
unum. í þessu sambandi má
geta þess til gamans, að árið
1958, þegar vinstrf stefnan
náði hámarki sínu, var aðeins
flutt inn ein jarðýta og minn-
ast menn þess ekki, að Tim-
inn hafi skýrt frá þvL En
raunar var hún aðeins 40 hest-
öfl, en hinar tvær sem flutt-
ar voru inn í fyrra, 60.
En þegar meta skal það,
hvernig búið sé að fram-
kvæmdum í sveitum, þá hlýt-
ur fyrst og fremst að verða
miðað við lánveitingar úr sjóð
um landbúnaðarins, ræktunar
sjóði og byggingarsjóði. Heild
arlán úr þessum sjóðum urðu
á árinu 1960 63 millj. kr., en
ekki nema 46 millj. árið 1959.
Þetta mikla fé var hægt að
lána úr sjóðunum á sl. ári,
þrátt fyrir þann viðskilnað
vinstri stjórnarinnar, sem all-
ir þekkja, að sjóðirnir voru
orðnir gjaldþrota. Fjármagn
það, sem á síðasta ári var út-
vegað sjóðum landbúnaðarins
var innlent, og þurftu þeir því
ekki að taka á sig neina geng-
isáhættu. Núverandi ríkis-
stjórn hefur þannig útvegað
sjóðunum innlent fé til útlána
á sl. ári og mun enn glíma við
það erfiða verkefni að bjarga
sjóðunum á varanlegan hátt.
Ársdvöl unglinga
Bandaríkjunum
TJM ÞESSAR mundir dvelur hér
á landi mr. William Perkins,
framkvæmdarstjóri Intemation-
al Christian Youth Exehange, en
það er kristilegur félagsskapur,
sem vinnur að nánari persónu-
Iegum kynnum þjóða I milli.
Einn þáttur félagsskaparins er
að greiða fyrir að unglingar
geti dvalizt í öðrum löndum og
kynnzt þar heimilislífi, mönn-
um og málefnum. Erindi mr.
Perkins er að bjóða islenzku
kirkjunni þátttöku í þessu sam-
starfL íslenzkum unglingum á
aidrinum 16—18 ára er gefinn
kostur á að dveljast í Banda-
ríkjunum um eins árs skeið, og
þær fjölskyldur, sem óska eftir
að taka á móti bandarískum ungl
ingum, eru beðnar um að gefa
sig fram.
Friðrik
varð fjórði
BEVERWIJK, 23. jan. — Biðskák
þeirra Uhknanns og Ivíkx>vs úx
7. umferð lyktaði með sigri hins
Síðamefnda.
í 8. uimferð fóru leiikar, sem
hér segir: Larsen vann Barend
regt, Uihlmann og van der Berg
gerðu jafntefli, biðskák hjá Friðr
ik og GruenfeJd, Ivkov vann
Donner, Gereben vann van
Sdheltinga.
Biðskákina úr 8. umferð vann
Eíriðrik.
9. og síðasta uanferðin fór
þannig: Lansen vann Gereben,
Ivkov vann van SchedUnga, van
der Berg og Donner gerðu jafn
tefli, Uhlmann vann Griienfeld,
Friðrik vann Barendregt.
Lokaniðurstaðan varð þannig.
Lansen og Ivkov 7% vinning
hvor, UWknann 5%, Friðrik 5,
van der Berg 4%, Gereben 4, van
Scheltinga 3%, Griienfeld 3,
Dcxnner 2% og Barendregt 2 v.
•Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson, sagði við blaða
menn s.I. laugardag, að afflmörg
amerísk kirkjufélög stæðu að
félagsskap þessum. — Þjóðir
hafa alltaf tilhneigingu til að
einangrast, sagði biskup, stór-
þjóðirnar engu síður en þær
smáu. Samtökdn sem ihér um
ræðir eru til að vinna á móti
tortryggni þjóða í milli. Hér er
um hreyfingu að ræða, sem hófst
fyrir nokkrum árum og er al-
gjörlega borin uppi af kristnum
söínuði.
I ★
Mr. Perkins sagði, að hann
væri hingað komin til að bjóða
íslenzku kirkjunni þátttökfaj í
samtökunum og undirtektir hjá
forys tumönnum kirkjunnar hér
væru mjög góðar. Þá upplýsti
'hann, að á sd. ári hefðu dval-
izt 130 unglingar á vegum Inter-
national Ghristian Youth Ex-
tíhange, 120 frá Evrépu og 10 frá
öðrum heimsíhlutum. Á sarna
tíma hefðu þeir sent 88 banda-
ríska unglinga til annarra landa.
★
Bisfeup tók fram, að hann
hefði rætt um þessi mál við for-
ystumenn skólamála og teldu
þeir að unglingar á aldrinum 16
til 18 ára misstu ekki teljandi úr
skólagöngiu sinni með því að
dveljast eitt ár erlendis. Allar
nánari upplýsingar þessu við-
vikjandd, t.d. kostnaður o.fl.,
væru veittar á skrifstofu bisk-
Frh. á bis. 19
Hverjir verðn
reknir?
MOSKVU, 23. jan. ('Reuter) —
Miðstjórn Verkalýðssambands
Rússlands er komin saman til
fundar i Moskvu til að ræða
þann aivarlega vanda, sem steðj
ar að í landbúnaðinum. En Krú-
sjeff forsætisráðherra flutti fyrir
nokkru mikla skammarræðu í
Æðstaráðia(u vegna ástandsins í
landbúnaðarmálunum og hótaði
því að reka þá sem hefðu reynzt
óhæfir í starfL
Hefur þessi „hreimskilna"
ræða Krúsjeffs ýtt við mörgum,
einkum í kommúnistaflokknium
og verkalýðssambandinu. En
Krúsjeff kvartaði mjög yfir
vinnusvikum í landibúnaðinum
og virtist því beint til verka-
lýðssambandsins, að koma yrði
á aiúknum aga og vinnuhörkju
til þess að lagfæra þetta ástand.
Það var tilkynnt í dag, að
Krúsjeff legði eftir einn eða tvo
daga af stað í langa ferð um öll
helztu kornrætotarlhóruðin
^ AM IS hnúiaX ik SnjóÁcmo
S* SV50hnútor\ 9 ÚS/VSKf
Vi ikurir
K Þrumur
Vtraii
KuUoaki)
Hilaakil
HAHak
LWLagi 1
Lítil hnáta hljóp
á strætisvagn
UM ÞRJÚLEYTIÐ í gær Mjóp
3ja—4ra ára gömul telpa á stræt
isvagn á Reykj anesbraut, á móts
við Shellstöðina, á sama stað þar
sem önnur lítil telpa hljóp á bíl
í haust og slasaðist.
Strætisvagnimn var rétt að
stanza á biðstöðinni, þegar litla
telpan toom hlaupandi út á göt-
una og lenti á bílnum. Meiddist
hiún lítið, storámaðist svolítið í
andiliti og sprakk fyrir á vör.
bóndadaginn er nú komin í
námunda við Hvarf á Græn-
landi og veldur þar austan-
átt og hlýindum. í gær var
hnúkaþeyr á vesturströndinni,
8 stiga hiti í Brattahlíð klutok-
an átta um morguninn, og 6
stiga hiti um hádegið norður
í Góðvon.
Hér á landi var líka hJýtt,
2—8 stiga hiti á láglendi. í
Möðrudal var þó 1—2 stiga
frost og snjókoma.
rok og rigning í nótt, held-
ur hægari, SA og skúrir á
morgun.
Faxaflói til Vestfjarða og
miðin: Hvass austan í nótt,
stinningskaldi á morgun, úr-
komulítið.
Norðurland, NA-land og
miðin: Austan og SA stinnings
kaldi, þíðviðri.
Austfirðir, SA-land og mið- .
in: SA stinnigskaldi, rigning
öðru hverju.
Umboðsmeim B-listans í Dags-
brún óska eftir kjörskrá
UMBOÐSMENN B-Iistans í Dags
brún hafa farið þess á leit við
stjórn Dagsbrúnar, að þeim verði
afhent kjörskrá félagsins og
listi yfir skulduga félaga eigi síð
ar en tveim dögum fyrir kjör-
dag en sá háttur tíðkast nú í öll-
um verkalýðsfélögum nema Dags
brún, að hver framboðslisti fái
kjörskrá eigi síðar en tveim dög-
um fyrir kosningar, enda er það
í samræmi við lög og reglur Al-
þýðusambands íslands.
Þess er vænzt að stjórn félags
ins verði við þessari sjálfsögðu
Stjórnmálanám-
skeið Týs
TÝR, FELAG ungra Sjálfstæðis
manna í Kópavogi hyggst efna
til stjórnmála- og málfundarnám
skeiðs á næsbunni undir stjórn
Helga Tryggivasonar kennara. —
Námskeiðið mun standa yfix í um
tvo mániuði og mun verða mjög
vandað til fyráriestraíhalds og
mælskuœfinga. Námskeiðið hefst
n.k. miðvitoudagskvöld kl. 8,30
ejh. að Melgerði 1, Kópavogi.
Á fyrsta fundinum fara fram mál
fundur og talæfingar. Þá talar
Matthías Á. Mathiesen a'lþm. um
stefnu Sjálfstæðisflökksins. —
öllu Sjálfstæðisfól k i er heimil
þáttaka. — Stjómin.
Dagskrá Alþingis
FUNDIR eru í báðum deildum kl. 1:30
i dag:
Efri deild: — 1. Sementsverksmiðja,
frv. — 3. umr.
Neðri deild: — 1. Stofnlánadeild sjáv
arútvegsins. — Frh. 1. umr .— 2. Sigl-
ingalög, frv. — 1. umr. — 3. Sjómanna
lög, frv. — 1. umr. — 4. Fræðslumynda
safn ríkisins, frv. — Frh. 2. umr. —
5. Ríkisreikningurinn 1959. frv. — Frh.
2. umr.
33 daga verkföll
4 mannslíf og
Brussel, 23. jan. — (Reuter)
í DAG lauk verkföllunum í
Belgíu með því að verka-
mennirnir í Liege, La Louvri
ere og Charleroi hlýddu skip
un verkalýðsfélaganna um að
snúa aftur til vinnu. Stjórn-
endur verkalýðsfélaganna
segja þó að verkföll og mót-
mælaaðgerðir gegn sparnað-
arfrumvarpi stjórnarinnar
muni halda áfram í nýrri
mynd. Engin frekari skýring
hefur verið gefin á því.
Fjórða dauðsfallið.
Verkföfflin stóðu í 33 daga.
Fjórir menn hafa látið lífið í
iþeim. Sá f jórði andaðist á sjúkra
hiúsi í Liege, síðast liðna nótt.
Hann var 25 ára og hét Alfred
Boutet. Fyrir um 10 dögum fékk
hann byssukúlu í hálsinn í róst-
um í Liege og hefur síðan legið
milli hekns og helju.
Feikilegur kostnaður.
Talið er að verkfölllin hafi toost
að belglísku þ-jóðina um 8000
millj. ísl kr. Þau hófust 20. des.
s.l. með verkföllum starfsmanna
bæjarfélaga. Þegar þau stóðu
sem hæst er talið að 600 þúsund
kostuðu
offjár
manns hafi tekið þátt í þeim.
Hið almenna verkalýðssamband
Jafnaóarmanna stóð að verkföli
unum, en kristiilega verkaiýðs-
sambandið neitaði að taka þátt
í þeim, þar sem hér væri um
póiitísk verkföll að ræða.
Nýjar kosningar.
Víst þykir að sparnaðarfrum-
varp ríkisstjómarinnar hljóti
endanlega afgreiðslu sem lög frá
þjóðþinginu. En vegna verkfall
anna að undanförnu, hefur Ka-
þólski flokkurinin ákveðið að
rjúfa þing og iáta nýjar kosning
ar fara fram hið bráðasta eftir
að lögin hafa tekið gildi.
kröfu B-listans og uppfylli þar
með félagslegar og lagalegar
skyldur.
Bréf umboðsmanna B-listana
fer hér á eftir.
Reykjavík 23. jan. 1961.
Til stjórnar Verkamannafél.
DagSbrún, Reykjavík.
Við undirritaðir umboðsmena
B-listans við stjórnarkjör í Verka
mannafélaginu Dagsbrún óskum
þess hér með að okkur verði af-
hent eintak af kjörskrá félags-
ins minnst tveim sólarhringum
áður en kosning hefst eins ag
reglugerð A.S.I. kveður á um.
Ennfremur óskum við þess að
skrá yfir skulduga meðlimi fé-
lagsins, sem er óaðskiljanlegur
hluti af kjörskránni verði látinh
fylgja kjörskránni. Þá' óskum við
þess að einnig verði okkur látin
í té skrá yfir aukameðlimi Verka
mannafélagsins Dagsbrúnar.
Okkur er ljóst að í lögum fé-
lagsins eru ekki ákveðin fyrir-
mæli varðandi þessi atriði. Hins
vegar hefur sá háttur verið á
hafður að afhenda umboðsmönn-
um listanna ekki kjörskrá, fyrr
en um leið og kosning hefst, en
skrá yfir skulduga meðlimi hefur
alls ekki verið afhent eða lögð
fram. Þetta teljum við ólöglegt.
Þar sem ákveðin fyrirmæli varð
andi þessi atriði eru ekki í lög-
um félags okkar þá teljum við
rétt að í þessu efni sé farið eftir
reglugerð Alþýðusambands Is-
lands um framkvæmd ailsherj-
aratkvæðagreiðslu, en bún kveð
ur s vo á að kjörskrá skuli af hent
umboðsmönnum lista minnst
tveim sótarhringum áður en
kosning hefst og skrá yfir skuld
uga meðlimi skuli fylgja kjör-
skránni.
Varðandi aukameðlimina vilj-
um við taka fram eftirfamndL
Skrá yfir þessa menn hefur aldrei
verið lögð fram, hvorki í sam-
bandi við kosningar eða í annan
tíma. Vdð teljum með öllu óvið-
unandi, að fullgildir meðlimir
í Dagsbrún skuli aldrei hafa feng
ið tækifæri til að kynna sér hver|
ir þeir vertoamenn eru, sera
haldið er á aukameðlimaskrá fé-
lagsims. Við teljum rétt að skylt
að umiboðsmönnum lista við
stjórnarkosningar skuli einnig af
hent s-krá yfir aukameðiimi.
Við viljum fá svar við þessarf
málaleitun okkar ekki siðar en
kl. 4 e.h. þriðjudaginn 24. janúar
1961. -
Virðingarfyllst, t
Jón Hjálmarsson (sign),
Magnús Hákonarson (sign).