Morgunblaðið - 24.01.1961, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 24. jan. 1961
MORGVNBLAÐIÐ
19
— Hótanabréfin
Frh. aí bls. 20.
í dómi Hæstaréttar segir
nánar á þessa leið um hin
þrjú ákæruatriði, hótunar-
bréfin, skammbyssuna og
sakir þær, sem ákærði bar á
starfsfélaga sína:
TJm hótanabréfin
Eins og gögnum málsins er
háttað, er rétt, að rannsakaður
verði nánar ferill ákærða greind
an varðtíma og í því sambandi
spurðir fyrir dómi samstarfs-
menn hans á verðinum, þar á
meðal áður greindur lögreglu-
þjónn nr. 115.
Verjandi ákærða hefur í máli
þessu lagt fram ýmsar ritsmíð-
ir, sem hann telur nafngreind-
an, geðbilaðan mann hafa sett
saman. Telur verjandi líkur fyr-
ir því, að maður þessi kunni
að vera höfundur hótunarbréfa
þeirra, er 1 máli þessu greinir,
og krefst verjandi þess, að rann
sókn málsins verði beint gegn
nefndum manni. Eigi hafa ver-
ið leiddar neinar rökstuddar lík-
ur að því, að 'sjúklingur þessi
sé við hótunarbréfin riðinn, og
ákæruvaldið hefur eigi beint
rannsókn gegn honum. Eins og
málum nú er háttað, er eigi
rétt, að þessi dómstóll skipi fyr-
ir um slíka rannsókn.
Um skammbyssuna
Eins og rannsókn málsins er
háttað, eru engin efni til, að
Hæstiréttur mæli fyrir um frek-
ari eftirgrenslan, að því er á-
kæruatriði þetta varðar. Kröfur
verjanda ákærða ,er þar að
lúta, verða því eigi teknar til
greina.
Um rangar sakargiftir
Ákærði er, eins og áður seg-
ir, sóttur til refsingar fyrir rang
ar sakargiftir á hendur opin-
berum starfsmönnum vegna
sakburðar hans á hendur þeim
S kæru til handhafa ákæruvalds
og á dómþingum. Ákærði hefur
skorazt undan að finna stað
þeim ummælum sínum ,sem
ákæran á hendur honum er af
risin, en þrátt fyrir það, hefur
verjandi hans krafizt þess, að
hafin verði almenn ransókn fyr-
ir sakadómi á hendur þeim
mönnum, sem ákærði hefur bor-
ið sökum. Handhafar ákæru-
valds hafa eigi talið efni til
að sinna greindri kröfu, og eigi
er rétt ,eins og málið liggur
fyrir, að þessi dómstóll kveði
á um slíka rannsókn.
Verjandi víttur
; Loks segir Hæstiréttur:
* Málflutningslaun sækjanda fyr
ir Hæstarétti, kr. 8000,00, og
málflutningslaun verjanda fyrir
Hæstarétti, kr. 1600.00, greiðist
úr ríkissjóði.
Verjandi ákærða hefur í hér-
aði og hér fyrir dómi haft uppi
ýmsar löglausar og fjarstæðu-
kenndar kröfur, varðandi rann-
sókn sakaratriða og meðferð
málsins. Hefur þetta tafið mál-
íð og gert það miklu umfangs-
meira en nauðsyn bar til. Af
þessu efni ber að víta verjand-
- íþróttir
Framh. af bls. 18.
6. Trésmiðja Birgis Agústssonar
kepp. Svaniberg Þórðarson)
r 42,8 sek.
7. Verzlunin Eygló (kepp. As-
grímur Ingólfsson) 43,9 sek.
8. Ræsir h/f (kepp. Bogi Níls-
son 43,9 sek.
9. Sjóvátryggingarfélag Islands
i (kepp. Guðni Sigfússon 44,1
* sek
10. Verzlunin Vaðnes (kepp.
Hinrik HermannssoH) 44,4 sek.
:Að keppni lokinni var sameigin
leg kaffidrykkja og verðlaunaaf-
| hending í Skíðaskálanum. Móts-
| etjóri Bjami Einarsson þakkaði
: firmunum, keppendum og starfs
mönnum fyrir alia fyrirgrei^slu
í sambandi við keppnina.
ann, Guðlaug Einarsson héraðs-
dómslögmann, og hefur verið
litið til þessarar hegðunar hans
við ákvörðun málsvarnarlauna.
— Vestfirðir
Framh. af bls. 1
staðar gilda. Tilrauninni til að
koma á landssamningi hafa vest-
firzkir sjómenn fylgt eftir af
fullum trúnaði og festu, m. a.
með algerri vinnustöðvun á vél-
bátaflotanum, og það hafa þeir
gert á sama tíma og róðrar hafa
óhindrað verið stundaðir frá ýms
um þýðingarmestu verstöðvum
landsins og bátafloti annarra ver
stöðva önnum kafinn við aðrar
veiðar. Með skírskotun til fyrr-
greindra atriða, svo og þess al-
varlega atvinnuástands, sem skap
ast í fjórðungunum við algera
stöðvun vélbátanna yfir háver-
tíðina, samþyíkkir fundurinn að
beina þeim tilmælum til sam-
bandsfélaga ASV að þau aflýsi
vinnustöðvuninni frá og með 24.
jan. 1961 og heimili róðra sam-
kvæmt fyrri samningi við vest-
firzka útvegsmenn, þó með þeim
fyrrivara að skiptaverð til sjó-
manna hækki sem nemi hækkun
fiskverðs til útvegsmanna. Jafn-
framt samþykkir fundurinn að
afturkalla aðild félaganna að
landssamningnum og heimila
stjórn ASV að leita eftir samning
um við fyrri samningsaðila'.
— Lumumba
Framh. af bls. 1
lagði mikla áherzlu á það í
ræðu sinni, að efla þyrfti aga
í her hins nýja ríkis.
Fjölmennur her
Sæti yfirmanns Kongó-hers
hefur verið autt frá því í sept-
ember, þegar Mobutu rak úr
því embætti Lundula, einn af
stuðningsmönnum Lumumba. —
Talið er að um 25 þúsund her-
menn séu í her Kongó, en þeir
eru dreifðir víða um landið og
ekki sérlega gott samband né
stjórn á öllum liðssveitunum. —
Ýmislegt bendir til þess að
Mobutu hyggist nú efla her
landsins sem mest hann má og
undirbúa með þeim hætti sam-
einingu landsins.
Arabaher kvaddur heim
Stjóm Arabíska sambandslýð-
veldisins hefur ákveðið að kalla
hermenn sina, er þjónað hafa í
gæzluliði SÞ heim. Hefur Nass-
er forseti Arabalýðveldisins rit-
að Dag Hammarskjöld bréf, þar
sem hann segir, að Arabar geti
ekki gerzt aðilar að því aðgerð-
arleysi, sem gæzlulið SÞ geri
sig sekt gagnvart þeim atburð-
um sem verið hafa að gerast
í Kongó.
— Bandarikjaför
Framh. af bls. 2
ups í Arnarhvöli og hjá æeku-
lýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar, Ól-
afi Skúlasyni, milli kl. 11 og 12
n.k. miðvikudag til laugardags
— að báðum dögunum meðtöld-
um. Ef einihverj ar íslenzkar fjöŒ-
skyldur vildu taka á móti banda
rískium unglinguim, væru þæor
vinsamlega beðnar um að gefa
sig fram.
Þeir unglingar, sem eitthvað
hefðu tekið þátt í kristilegu
æskulýðsstarfi, gengju fyrir, þar
sem þetta væru samtök, algjör*
lega borin upp af kristnum söfn
uði.
Þess skal getið að Mr. Wiffl-
iams Perkins hefur einu sinni
áður komið hingað til lands. Var
það árið 1957 vegna starfrækslu
vinnubúða í Langholtspresta-
kálli.
Akranesi, 20. janúar
HINGAÐ er kominn Bjarnf
Pálmarsson, hljóðfærasmiður við
annan mann og ætla þeir að
breyta rafkerfinu við hið nýja
pípuorgel Akraness. — Oddur.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem með
samskotum, gjöfum og á annan hátt hjálpuðu okkur er
eldur kom upp á heimili okkar 14. des. sl.
Guð blessi ykkur öll.
Hans Jensson, Anna Magnúsdóttir,
Sigurbjörn Hansson og börn
Selhóli Hellisandi.
Innilegar þakkir til allra, sem hjálpuðu mér á sjöunda
tuginn, með heimsóknum, góðvild og gleði, gjöfum,
kveðjum og orðsins list.
Eiríkur Stefánsson
Lokað í dag
vegna jarðarfarar
Carls Alfred Nielsen, verkstjóra
Elding Trading Corapany hí.
Lokað
frá kl. 1 í dag vegna jarðarfarar
PREIMTIU YIMOAST OFA
HELGA GUÐMUNDSSONAR
Lokað
eftir hádegi í dag
vegna jarðarfarar
Skipaafgreiðsla Jes Zierasen
Lokað
1 dag kl. 12—3
vegna jarðarfarar
Helgi HfcKgnússon & Co.
Hafnarstræti 19
Eiginmaður minn SNOKBI FB. FBIÐBIKSSON WELDING andaðist hinn 22. janúar Sigríður Steingrímsdóttir Welding Urðarstíg 18.
Systir og fóstursystir okkar MABGKÉT GUÐMUNDSDÖTTIB andaðist að sjúkrahúsinu Sólheimum 23. þ.m. Ingibjörg Guðmundsdóttir. Lára Guðmundsdóttir
Hjartkær móðir okkar SÓLVEIG JÓNSDÖTTIB Nesi andaðist að heimili sínu föstudaginn 20. janúar Börnin
VIGGÓ JÓNSSON frá Elliðavatni sem andaðist 18. jan. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 25. jan. kl. 10,30. Vandamenn
Elsku sonur okkar og bróðir ÓLAFUB ÞÓK SIGUBGEIBSSON sem andaðist 15. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 25. janúar kl. 1,30 síðdegis. Sigurbjörg Ólafsdóttir, Sigurgeir Guðjónsson Guðrún Ó. Sigurgeirsdóttir, Guðjón V. Sigurgeirsson Sigmundur Sigurgeirsson, Helga Sigurgeirsdóttir.
Kveðjuathöfn móður okkar ÞÓBU KJABTANSDÓTTUR frá Súluholtshjáleigu fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 25. jan. kl. 15. — Jarðsett verður að Villingaholti, fimmtudag- inn 26. þ.m. kl. 13,30. — Upplýsingar um ferðir austur í síma 23355. Börn, tengdabörn og aðrir ættingjar
Móðir okkar, tengdamóðir og amma INGIBJÖBG JÖNSDÓTTIB Álfheimum 15 verður jarðsungin fr.á Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. janúar kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Jóhann V. Jónsson, Kristrún Kristjánsdóttir Sigurjón Jónsson, Elin Bessadóttir^ Valtýr Jónsson og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför Absæls Arnasonab Börn, tengdabörn og barnabikn
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför MABlU JÓNSDÓTTUB frá Geldingalæk Ingibjörg Jónsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föður og tengdaföður okkar, PÉTUBS E. EINABSSÓNAR Ökrum, Stykkishólmi Jóhanna Jóhannsdóttir, börn og tengdaböm
Þökkum hjartanlega samúð og hluttekningu við and- lát og jarðarför BENEDIKTS TÓMASSONAB skipstjóra frá Sculd Akranesi Fyrir mína hönd, systkina minna og annarra aðstandenda Karl Benediktsson