Morgunblaðið - 25.01.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.01.1961, Blaðsíða 1
i0r0MiwMaM§i 48. árgangur 19. tbl. — Miðvikudagur 25. janúar 1961 S jómannadeilan : Heildarsamkomulag um land allt Þó ekki utseð um Vestfirði t FYRRINÓTT náðist sam- komulag milli deiluaðila í sjómannadeilunni, LÍÚ ann- ars vegar og sjómannasam- takanna innan ASÍ hins veg- ar, um kaup og kjör á báta- flotanum. Hafði sáttasemjari flutt miðlunartillögu í fyrra- kvöld, sem deiluaðilar síðan féllust á. Var þar lagt til að hlutur skipverja í heildarafla verðmæti skyldi vera 29.5%. Samkomulagið var undiritað- að af báðum aðilum að áskildu samþykki félags- funda. Hófust fundir í mörg- um sjómanna- og útgerðar- félögum í gærkvöldi og segir frá þeim í frétt á öðrum stað í blaðinu. ★ Ekki róið á Vestfjörðum Eins og frá var skýrt í Mbl. í gser, tóku sjómannafélögin á Vestfjörðum sig út úr heildar- sanmingunum og óskuðu frekar að róa eftir gömlu samningun- um. Útgerðarmenn á Vestfjörð- um telja hins vegar að málið sé í höndum allsherjarsamninga nefndanna og sáttasemjara. Þeg- ar blaðið hafði samband við sáttasemjara í gærkvöldi, sagði hann að ekkert hefði verið að- hafzt með tilliti til þessara nýju viðhorfa á Vestfjörðum. Og þeg- ar blaðið frétti síðast í gær- kvöldi voru deilumálin óútkljáð og bátar á Vestfjörðum reru þar af leiðandi ekki. A 29,5% í hlut sjómanna Meginatriði samkomulags þess, sem náðist, eru á þá leið að skiptiprósenta á línu- og neta veiðum verður 29,5% af heild- araflaverðmæti báta yfir 30 rúm lestir að stserð. Af bátum 12— 18 rúmlestir verður það 40% og af 18—30 rúmlesta bátum 34%. Á togveiðum rennur 31,5% af aflaverðmætinu í hlut sjómanna, en á dragnótum og humarveið- um 37%. Eins og áður greinir er gert „I natni Delgados réttkjörins forseta' Skeyti frá foringja sjóræningjanna í gær sendi uppreisnarfor- inginn á Santa Maria út svo hljóðandi skeyti, sem NCB- útvarpsstöðin í New York tók upp. Fyrsta frétta tilkynning stjórn anda liðsins, sean hefur hernum ið hafskipið Santa Maria, — til aillra lýðræðissinnaðra blaða og útvarpsstöðva í hinum frjálsa hekni. — Ég hef hernumið hafskipið Santa Maria í nafni Freisisnefnd ar Portugal, sem Umberto Del- gado stjórnar, en hann var rétt kjörinn forseti Portugal, þótt Salazar-stjórnin hindraði með kosningasvikum að hann tæki við embætti. Ég hef tekið skipið, með her- liði sem lýtur yfirstjórn minni og er það fyrsti hiúti portugalsiks yfirráðasvæðis sem við höfum frelsað. Til stuttra vopnaátaka kom, en skipshöfnin hefur fall- izt á pólitíska valdatöku okkar á skipinu og flestir farþeganna lýstu yfir hrifningu og stuðningi við aðgerðir okkar. Þeir hafa full komið næði og öryggi um borð í ekipinu. Skipið og hUt starf um borð í því gengur eins misfeilu- laust eins Og í hverri venjulegri ekemmtiferð. Fer vefl. á með far- þegum og þeirn sem stóðu að valdatökunni. Legg ég heiður minn og drengskap við, að þetta eé rétt. Farþegar og áhöfn biðja mig að koma þeim boðum til valdamanna, að þeir séu heilir á húfi og frjálsir ferða sinna um borð í skipinu. Við getum ekki skýrit frá því, hvert ferðinni er heitið þar sem við erum í opinni andspyrnu Frh. á bls. 23 ráð fyrir að samningur þessi gildi um land allt (þó er ékki útséð um hvað verður á Vest- fjörðum), en áður voru samn- ingarnir milli 20 og 30. Við samninginn er miðað við fiskverð það, sem samkomulag hafði áður tekizt um milli LÍÚ annars vegar og fiskvinnslu- stöðvanna hins vegar, þ.e.a.s. kr. 3,11 á kg. fyrir bezta linufisk og hlutfallslega af öðrum. Á þeim stöðum þar sem kaup tryggingartímabil voru tvö á vetrarvertíðinni, er sá háttur felldur niður. Getur það í ýms um tilfellum stuðlað að því, að róðrar byrji fyrr en ella. En kauptrygging á vetrarvertíð hækkar þó hvergi. Samkomulag þetta náðist eftir 9 fundi með sáttasemjara, sem margir stóðu frana undir morg- un. Frh. á bls. 2. -<S> Portúgalski hershöfðinginn Humberto Delgado dvelst nú í útlegð í Sao Paulo í Brasilíu. Foringi uppreisn- armanna á hafskipinu Santa Maria tilkynnir að hann hafi tekið skipið í nafni Del- gados. Sjálfur lýsti Delgado því yfir í Brasilíu í gær, að hann hefði vitað f,yrir- fram um ráðagerðir Galva- os. Delgado var í framboði í síðustu forsetakosningum í Portugal, sem andstæðingur Salazar-stjórnarinnar. Hon- um var þá stjakað til hliðar. Prentsmiðja Morgunb'luðsias Somningui um smíði tunglskips WASHINGTON, 24. jan. — Geimferðastofnun Band* ríkjastjórnar hefur gert samning við Hughes flug- vélaverksmiðjurnar í Kali- forníu að þær smíði geim- skip sem geti lent mann- laust á tunglinu, farið um yfirborð tunglsins og gefið upplýsingar um það hvernig þar sé umhorfs. Það er gert ráð fyrir að í geimskipi þessu megi koma fyrir mælitækjum. Aðalatriðið er að fram- kvæma efnafræðilegar at- huganir og senda sjónvarps myndir af landslagi tungls- ins til jarðar. Hefur Hughes fyrirtækinu verið falið að smíða að minnsta kosti sex slík geimskip og er áætlaS að skjóta þeim í áttina til tunglsins á tímabilinu 1963 —66. Á geimskipum þessum verður komið fyrir eld- flaugahemlum, sem eiga að draga úr fallinu, þegar þau koma niður á tunglið. «>- Sjoræni«ig]ar taka hafskip: 600 farþegar eru gíslar LONDON, 24. jan. (Reuter) — Portúgalska hafskipið Santa Maria, sem er 21 þús. lestir, siglir nú á fullri ferð suður Karíba- haf. XJppreisnarmenn eða sjóræningjar hafa skipið og 600 far- þega þess á sínu valdi. Þeir virðast stefna til Brasilíu, og hóta að sökkva skipinu, ef herskip nálgast. Portúgalska stjórnin hefur beðið Bretland og Bandarikin um aðstoð til að ná skipinu úr höndum uppreisnarmanna. Brezka freigátan Rothesay hóf leit og eltingu í dag, en þegar brezka þingið kom saman í fyrsta skipti eftir jólafríið bar Hugh Gaitskell fram mótmæli við brezku stjórnina. — Mynduð þið veita rússnesku stjórninni aðstoð, ef uppreisn brytist út á rússnesku skipi, hrópaði Gaitskell. Það er einn höfuðandstæðingur Salasar forsætisráðherra Portugal, sem beitti sér fyrir uppreisnarsamsærinu á Santa Maria. Heitir hann Henricue Galvao og hefur setið í pólitísku fangelsi í Portugal, en slapp úr fangelsiuu og tii Argentínu í maí 1959. r Vel undirbúið. Galrvao laumaðist um borð í 'm IHimmimmiiin iijiiii’iliijismimð ftriintm Hafskipið „Santa Maria“ skiipið með 70 fylgismönnum sín um í ihöfnum í Brasilíu og Curacao. Allt var þetta vel und irbúið og skipulagt fyrirfram. Höfðu uppreisnarmennirnir vopn falin í farangri sínum og svo eina nóttina meðan skipið var á siglingtu í Kariibajhafi, með an farþegar voru í fastasvefni, skömmu fyrir fótaferðatíma, þá réðust uppreisnarmenn upp í Norðmenn víkka land- helgi 1. apríl og 1. sept. NORSKA stjórnin leggur nú til að 6 mílna fiskveiðiland- helgi verði komið á við strendur Noregs frá og með 1. apríl og 12 mílna fiskveiði landhelgi frá og með 1. sept. Einar Gerhardsen forsæt- isráðherra skýrði nýlega frá þessu á fundi með frétta- mönnum og kvað hann frum varp um landhelgisvíkkun þessa verða lagt hið bráð- asta fyrir Stórþingið. Hann sagði að það hefði dregizt að leggja frumvarpið fyrir þingið, af því að nauð- synlegt hefði verið að ljúka samningaviðræðum við ríki sem hagsmuna hefðu að gæta í sam- bandi við víkkunina. Sagði Gerhardsen, að sam- komulag hefði náðst við Breta og vonir stæðu til að samninga- umræður við Vestur-Þjoðverja bæru árangur. Auk þess taldi hann að samkomulag myndi auðveldlega nást um þessi mál við Svíþjóð og Danmörku. Sovétríkin, sem þegar hafa tekið sér tólf mílna landhelgi, virðast ekki kæra sig um neina samninga varðandi fiskiréttindi innan norskrar landhelgi, sagði Gerhardsen. brúna, niður í vélarúm, inn í loft skeytaklefa. Taka skipsins var framkvæmd á skömmum tíma, þó veittu skipstjórnarmenn mjög harða mótspyrnu í skipstjórnaír- 'klefanum. Þar var skotum hleypt af. Þriðji stýrimaðuir skipsine lét lífið í þeim átökum Oig nær tugur manna særðisit. ★ Auðugir skemmtiferðamenn. Farlþegarnir á skipinu voriu skemmtiferðamenn og margt þeirra auðugt fólk, sem vilöi eyða vetrarmánuðunum á skemmtiferð suður í sólinni, varð ekki fyrir neinum óþægind um og lífið á skipinu gekk eftir sem áður inn gang, þótt nú væri ski'pt um stjórnendur. Nokktur uggur hlýtur þó að hafa verið meðal farþeganna um það hvern ig þessari siglingu muni ljúka. Frh. á bls. 23 Stevenson kemur til stnrfn í SÞ NEW York, 24. jan. — Adlai Stevenson hinn nýi aðalfull trúi Bandaríkjanna hjá SÞ gekk á mánudaginn á fund Dags Ilammarskölds og af- henti honum embættisskilríki sín. Þeir notuðu tækifærið og ræddust við í eina klukku- stund um heimsmálin. Steven son sagði fréttamönnum á eft ir, að þeir hefðu m.a. komið inn á Kongó-málin. Fundur þeirra fór fram í skrifstofu framkvæmdastjór- ans á 38. hæð í skrifstofubygg ingu SÞ. Þeir hafa afur mælt sér mót á miðvikudaginn. %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.