Morgunblaðið - 25.01.1961, Qupperneq 2
2
MORCIJ'SBLAÐIÐ
Miðvikudagur 25. jan. 1961
Siglfirðingar voru á
móti verkfallinu
SIGLUFIRÐI, 23. janúar. —
Óhætt er að fullyrða að með
al bátasjómanna hér, svo og
alls almennings, mæltist
verkfallið, sem fyrirskipað
var á hátaflotanum, illa fyr-
ir. Ekki hefur verið það líf-
legt yfir atvinnulífinu í
bænum.
Hraðfrystihús Þráins Sig-
urðssonar er eiginlega eina at-
vinnufyrirtækið í bænum, utan
Tunnuverksmiðjunnar og SR-
verksmiðjanna. Gæftir hafa ver
ið góðar og prýðis afli. Kom
verkfallið hér hart niður, og
þótti mönnum hér ástæðulaust
að stöðva bátana, því að það
gat engin áhrif haft á samninga
umleitanir suður í Reykjavík.
if Aðrir ráða málunum en
sjómenn
Eins og málin standa í
dag, eftir að kunnugt var
um niðurstöður af samninga-
umleitunum í Reykjavík,
telja menn fullvíst, að sjó-
menn hér myndu samþykkja
samningstilboðið. En málið
kemur að litlu leyti til þeirra
kasta, því það er trúnaðar-
mannaráð Verkamannafél.
Þróttar, sem taka á afstöðu
til tilboðsins. Sjómennirnir
Nær 400 þús. kr,
brunatjón
SIGLUFIRÐI, 23. jan.: -
Eins og skýrt var frá í frétt-
um um daginn, kom upp
eldur í vélskipinu Ingvar
Guöjónsson hér í Siglufjarð
arhöfn á þriðjudaginn var.
Vitað var að skemmdir
urðu miklar á yfirbyggingu
skipsins. Nú hafa þessar
skemmdir verið kannaðar og
brunatjónið allt metið tU
fjár. Urðu matsmenn sam-
mála um að brunatjónið
væri metið á 357 þúsund
krónur. í ljós kom að öll
hin dýru siglinga- og örygg-
istæki skipsins ýmist eyði-
lögðust eða stórskemmdust,
en sem fyrr segir var eldur-
inn í yfirbyggingu; stjómpalli,
kortaklefa og íbúð skip-
stjóra. — Guðjón.
hafa þar takmarkaða mögu-
leika tU að túlka skoðanir
sínar í ráði þessu.
★
1 vetur munu ganga héðan
4—5 bátar sem leggja upþ í
frystihús Þráins Sigurðsson-
ar. Til mála hefur komið að
SR fái tvö togskip til þess
að stunda veiðar fyrir hrað-
frystihúsið.
Hið nýja stálskip Siglfirðinga,
Anna, eign hraðfrystihúss Þrá-
ins Sigurðssonar, kom úr veiði-
för í morgun með góðan afla.
Var skipið með alls um 40 tonn
af prýðisgóðum línufiski. Ekki
var aflinn settur á land hér,
heldur hélt skipið strax áleiðis
til Vestur-Þýzkalands til að
selja aflann.
Bæjartogarinn Hafliði landaði
hér í dag mjög fallegum afla,
152 tonnum af þorski og ýsu af
heimamiðum. Fór allur fiskur-
inn til vinnslu í hraðfrystihús-
inu. — Stefán.
Stjórnmóln-
nómskeið Týs
Stjómmálanámskeiö.
Námskieiðið í krvöld kl. 20,30 í
Melgerði 1, Kópavogi.
Mattihías Á. Mathiesen allþm.
iflytur erindi um stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Að því loknu
mun Helgi Tryggvason kennari
veita tilsögn og leiðbeiningar í
Bæðumennsku.
Fyrinhugað er að stjórnmála-
námskeiðið verði starfrækt
hvert miðvikudaigskvöld uim
tveggja mánaða skeið. Verður
vandað til fyrirlestrahalds og m.
a. flutt erindi um eftirtalin efni.
Stjórnmálasögu, blaðaúitgáfu og
áhrif hennar, sögu Kói»avogs-
kaupstaðar, atvinnulífið og unga
fólkið og utanríkismál.
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórn Týs, F. U. S.
Dagskrá Alþingis
FUNDUR er í sameinuðu þingi í
dag kl. 1,30. Á dagskrá eru 1.
Fyrirspurnir: a) Framlag frá
Bandaríkjunum. b) Lán til fram
kvæmda. c) Lán frá Bandaríkj-
unum. — Auk þess eru á dag-
skránni 17 önnur mál.
Svar
kom
ekki
EINS og sagt var frá hér í blað-
inu í gær fóru umboðsmenn
B.-listans í Dagsbrún fram á það
við stjórn Dagsbrún, að þeim
yrði afhent eintak af kjörskrá
félagsins ekki síðar en tveim
dögum fyrir kjördag eins og tíð-
kast í öllum verkalýðsfélögum og
skylt er samkvæmt lögum og regl
um Alþýðusambands Islands.
Jafnframt óskuðu umboðsmenn
B.-listans eftir því að sér yrði af-
hentur listi yfir skulduga með-
limi- félagsins, en það er einnig
gert í öðrum verkalýðsfélögum,
en innheimta félagsgjalda í
Dagshrún er með þeim hætti að
hundruð ef ekki þúsundir verka-
manna eru taldir aukameðlimir
vegna skulda, en kommúnistar
hafa aldrei látið andstæðinga
sína fá aðgang að þessari skulda
skrá.
Umboðsmenn B.-listans óskuðu
eftir svari stjórnar Dagsbrúnar
um þessi atriði fyrir kl. 4 í gær,
en ekkert svar barst. Því verð-
ur þó ekki enn trúað, að komm-
únistar ætli að hundsa þessa
kröfu lýðræðissinna, sem byggð
er á augljósum félagslegum
rétti og lögum heildarsamtak-
anna.
Brezkir togarar í
hrösum í landhelgi
Rútubíll valt
stjórnlaus
LANGFERÐABÍL hvolfdi i gær-
kvöldi á veginum á Arnarnes-
bálsi milli Reykjavíkur og Hafn
arfjarðar. G.erðist þetta um kl.
7,30 í gærkvöldi. I bílnum voru
aðeins þrír menn og mun þá ekki
hafa sakað.
Astæðan fyrir þessu var sú, að
þarna hafði myndazt í veginn um
meters breið hola og all djúp.
Lenti þessi stóri bíll með annað
framhjólið ofan í holunni.
Það skipti þá engum togum, að
stýrisútbúnaður bílsins kubbað-
ist í sundur og rann bifreiðin
áfram, algerlega stjórnlaus í
höndum bílstjórans. Slagaði hún
ofan í skurð við vegarbrún og
valt þar um koll. Var mörgum
starsýnt á bílinn, sem leið áttu
suður í Fjörð í gærkveldi, en
framhjól hinnar oltnu bifreiðar
vissu sitt í hvora áttina.
í gær var SA-átt hér á
landi, rigning á SA-landi, en
úrkomulaust norðan lands.
Fremur kalt var á Norður
löndum og meginlandi Evrópu
og á Labrador var hörkuíroet,
upp í 34 stig.
Veðurspáin kl. 10 í gærkv.:
SV-mið: Austan stormur,
rigning.
SV-land, Faxaflói og Faxa-
flóamið: Austan stinnings-
kaldi, rigning öðru hvoru.
Breiðafjörður til NA-lands
og miðin: SA-kaldi, skýjað
með köflum.
Austfirðir, SA-land og mið
in: Austan stinningskaldi,
rigning öðru hvoru.
TVEIR brezkir togarar hafa að
undanförnu verið teknir að ólög-
legum landhelgisveiðum, annar í
Færeyjum og hinn við Noregs-
strendur. Togaranum sem grip-
inn var við Færeyjar var sleppt
eftir að brezkt verndarskip,
Malcolm kom á vettvang. Hinum
sem tekinn var við Noreg var
einnig sleppt að sinni, en ekki
fyrr en skipstjórinn hafði sett
6250 sterlingspunda tryggingu
fyrir því að hann myndi mæta
fyrir norskum rétti, er fjalla
skyldi um mál hans.
Danska freigátan Niels Ebbe-
sen kom að Aberdeen togaranum
Aberdeen Merchant, þar sem
hann virtist vera að veiðum inn-
an sex mílna fiskveiðilandhelgi
Færeyja. Danirnir skipuðu tog-
aranum að nem* staðar, en hann
hlýddi því ekki og var hann þá
fyrst neyddur til að nema staðar,
þegar hann var kominn út fyrir
landhelgina. Þá kom brezka her-
skipið að. Ræddu skipstjórinn á
danska og enska herskipinu um
málið og urðu þeir ásáttir ura
að sleppa togaranum, þar sera
ekki væru fyrir hendi öruggax
sannanir um ólöglega veiði.
Eggjasölusam-
lagið starfar
áfram
FRÁSÖGN Mbl. af því að Fram
leiðsluráð landbúnaðarins hafi
efcki lengur afskipti af verðlagn
ingu eggja, hefir vaildið misskiln
ingi. Hafa sumir talið að Eggja
samlagið hafi þá um leið hætt
störfum sínum. Slíkt er alger
misskilningur. Það, sem gserðist
var einungis að framleiðendum
sjálfum var veitt Xeyfi til að verð
leggja framieiðslu sína. — Eggja
sölusamlagið starfar eftir sem
áður og aðstoðar félagsmenn við
að koma eggjum sínum á markað
inn.
Ungum menntaskólanema úr
Reykjavík, Sverri Hólmars-
syni hefir verið boðið til 3ja
mánaða dvalar í Bandaríkjun-
um á vegum stórblaðsins New
York Herald Tribune. Hér
sést hann við komuna tii New
York.
Sverrir er nemandi í V.
bekk og dvelur vestra með 22
öðrum ungliugum frá ýmsum
löndum, sem einnig eru í boði
blaðsins.
Mikið tjón
VERULEGT tjón varð í bruna
hér í bænum í fyrradag í
trésmíðaverkstæði við Boga-
hlið 11.
Brann þar og eyðilagðist all-
mikið af efni, ýmist unnu eða
sem verið var að vinna. Þar fór
t. d. fullsmíðuð eldhúsinnrétting,
Verkstæðið sem er eign Inga
Ingvasonar Skipasundi 80, var vá
tryggt fyrir 80,00 kr. alls, vélar
allt efni hvort heldur það var
unnið eða óunnið. Er tjónið
miklu meira en þessari trygg-
ingarupphæð nemur.
I SNAIShnútor 1 / SV 50 hnútor ¥ Snjókoma 9 06i \7 Skúrír K Þrumur ws II H Hal L^Lagi
— Samningarnir
Kröfur þær sem sjómenn á
Vestfjörðum gera, er þeir skor-
ast undan að fallast á heildar-
samkomulagið, eru þær að á-
fram verði miðað við gamla
skiptaverðið, kr. 1.66 á kg., en
hækkunin, sem verður á fisk-
verði til útgerðarmanna komi
þeim einnig til góða og munu
þeir telja hana nema 47 aurum
af bezta línufiski. Þannig vilja
þeir halda sig við skiptaverðið
2,13 á kg. og gamla skiptahlut-
fallið.
Á fundinum í fyrrakvöld upp
lýstist að umboð Sigurðar Kristj
ánssonar, form. Sjómannafélags
Isafjarðar, sem var fulltrúi fyr-
ir sjómenn á Vestfjörðum, hefði
verið afturkallað og undirskrif-
aði hann því ekki samkomulag-
ið. Hins vegar skrifaði Harald-
ur Guðmundsson, fulltrúi út-
gerðarmanna á Vestfjörðum,
undir samkomulagið. Síðan
munu útgerðarmenn á Vestfjörð
um hafa tjáð verkalýðsfélögun-
um þar að þeir teldu deiluna
enn vera í höndum sáttasemj-
ara og heildarsamninganefnd-
anna, en sjómenn hafa óskað
eftir beinum samningaviðræðum
milli félaganna á Vestfjörðum.
I samningum þessum er ekki
fjallað um kaup og kjör yfir-
manna á bátaflotanum, og eru
samningaviðræður í gangi milli
fulltrúa Farmanna- og fiski
mannasambands íslands og út-
vegsmanna um kjör þeirra.
Leiðrétting
Það var á misskilningi byggtt !
frétt hér í blaðinu frá Akranesi
dagjs. 20. þm. að Bjarni Pálmars-
son hafi breytt rafkerfi pípu-
ongelsins í kirkjunni þar á staðn
um, enda var gengið frá orgelinu
á s.l. suimri af sérfræðingi frá
verksmiðjunni sem smíðaði það.
Föndur-
námskeið
EINS OG á s.l. vetri gengst
Heimdallur, F. U. S., fyrir fönd-
urnámskeiði fyrir stúlkux inn-
an féttagsins. Hefst það þann 30.
janúar nJk. kl. 20,30 í Valihöil
við Suðurgötu.
Þær, sem hiuig hafa á að taka
þátt í þessu starfi félagsins i
vetur tiikynni þátttöku sína á
skrifistofu félagsiins í VaJhöll, frá
kL 4—7, sem fyrst. — Sími 17102.
Nehrn situr
áfrnm
í embætti
NÝJU DELHI, 24. jan. CReut
er). Nehru forsætisráðhexra
Indlands lýsti þvi yfir á blaða
mannafundi í dag, að hann
hefði ebki í hyggju að láta af
embætti, hvorki nú né í
fyrirsjáanlegri framtíð.
Yfirlýsingu þessa gaf hann,
vegna þess að menn þóttust
skilja það af samtali sem
Nehru átti nýlega við brezkan
blaðamann og birtist í Lund
únablaði, að hann ætlaði að
draga sig í hié.
Nehru sagði að blaðamað-
urinn hefði mi.sskilið orð sin.
Kvaðst hann hafa sagt, að
hann hefði oft verið að velta
fyrir sér þeirri hugmynd,
hvort hann ætti að taka sér
hvíld frá störfum. Meira hefði
hann ekki sagt.
En sem stendur, kvaðst
Nehru ekkj hafa neitt slikt
í hyggju.