Morgunblaðið - 25.01.1961, Page 13
Miðvikudagur 25. Jan. 1961
MORCVNBLAÐIÐ
13
Cook sér
Okkar skSpulag á ferðamálum
þekkist hvergi nema i einræðis-
ríkjum, segir Geir H. Zoega
í'EBÐAMÁLIN hafa verið mjög
á dagskrá að undanförnu. Mikill
áhugi hefur vaknað hér fyrir því
að laða hingað erlenda ferða-
menn, því að móttaka erlendra
ferðamanna er orðinn álitlegur
atvinnuvegur meðal nágranna-
þjóða okkar — og ýmsir eru
þeirrar skoðunar, að okkar land
búi yfir mörgu, sem útlendinga
mundi fýsa að sjá og kynnast.
< Ferðamálin eru í rauninni ekki
gamall atvinnuvegur, ef svo
imætti segja, því aðeins eru liðin
i<52 ár síðan „faðir túrismans“
fæddist. Þessi maður var Eng-
lendingurinn Thomas Cook. —
Hann er upphafsmaður að skipu
lagningu skemmtiferða, fyrsti
Jnaðurinn, sem gerði þetta að at-
vinnu sinni. Með bættum og full
íkomnari samgöngutækjum hefur
ferðamálunum fleygt fram, en
fyrirtæki Cooks ber enn þann
dag höfuð og herðar yfir aðra á
þes.su sviði. Cooks ferðaskrifstof-
urnar eru nú orðnar 400 í 60
iöndum — og hér á landi er ein-
jmitt umboðsskrifstofa Cooks, e.
t.v. sú minnsta, en hins vegar
elzta ferðaskrifstofan hérlendis.
Geir H. Zoega henni forstöðu.
/ — Cook hefur sent erlenda
ferðamenn hingað allt frá 1870,
segir Geir, og auðvitað var þá
ferðazt á hestum um landið en
ekki í bílum og flugvélum. Ferða
menn komu hingað öðru hvoru á
vegum Cook allt fram til síðari
Thomas Cook a etri arum
lieimsstyrjaldarinnar, en eftir
liana hefur skorbur á hótelrými
<n.a. valdið því, að bæði Cook-
gkrifstofurnar og aðrar ferða-
*krifstofur hafa sýnt íslandi
tninni áhuga en «lla. Hin ranga
gengisskráning olli því líka, að
fcér var dýrt fyrir útlendinga að
dvelj ast.
Og Geir heldur áfram: —
Menn verða að gera sér grein fyr
ir. því, að úti í hinum stóra heimi
annast ferðaskrifstofur tugir
milljóna ferðamanna á hverju
ári. Áh-ugi útlendinga á íslandi
er mjög takmarkaður og þegar
þar við bætist, að hér er ekki
hægt að fá inni í hóteli nema
með höppum og glöppum — og
gengið var falskt og þar af leið-
andi mjög dýrt að koma hingað,
þá hafa ferðaskrifstofUrnar skilj
anlega engan áhuga á að auglýsa
ísland. Ferðaskrifstofa í Bret-
Aðalbækistöðvar Cook-fer ðaskrifstofanna í London
alhliða ferðaskrifstofu, sem ann-
aðist þá miklu víðtækari starf-
semi en ferðaskrifstofur hafa
hingað til gert hér. Hún yrði í
nánu sambandi við Cook-skrif-
stofurnar og aðrar, sem ég hef
Fyrsti farmiðinn, sem Cook gaf út.
landi fengi e.t.v. 100 Breta til að umboð fyrir.
ferðast til Danmerkur fyrir sama
auglýsingakostnað og einn feng-
ist til íslandsferðar. Dæmið var
einfaldlega þannig.
— En við leiðréttinguna á
gengisskráningunni breyttist
þetta verulega og nú hefur skiln
ingur manna á hótelþörfinni ver-
ið vakinn. Þetta er m.a. ástæðan
til þess, að Cook ferðaskrifstof-
urnar hafa nú skipulagt og aug-
lýst 12 daga ferðalag til íslands
í sumar — til reynslu.
— Þessi ferð hefur verið undir
búin í samráði við Ferðaskrif-
stofu ríkisins hér heima og Jó-
hann Sigurðsson, framkvstj. í
Londón. Flogið verður til og frá
íslandi, farið til Akureyrar og
Mývatns auk þess sem litazt verð
ur um hér sunnan lands.
ísland er sem sagt aftur komið
á blað.
Og nú er málum svo komið, að
ég beiti mér fyrir athugun á því,
hvort hægt yrði að setja hér upp
Geir H. Zoéga,
— En ekki verður neitt úr
þessu nema nýskipan komist á
ferðamálin hjá okkur, því enn er
varla grundvöllur fyrir slíka
starfsemi hér. Ferðaskrifstofa
ríkisins hefur einkarétt á mót-
töku erlendra ferðamanna. Slík
einokun þekkist hvergi nema í
einræðisríkjunum austan járn-
tjalds ,enda sízt fallin til þess að
ýta undir ferðamannastraum.
Þetta fyrirkomulag er beinlínis
til skammar.
—■ Ég er ekki að álasa stjórn-
endum ferðaskrifstofunnar hér,
síður en svo, og Ferðaskrifstofa
ríkisins á e.t.v. tilverurétt, en
ekki í þeirri mynd sem hún er
nú. Hún gæti verið til eftirlits
og aðhalds fyrir þá, sem önnuð-
ust ferðamálin. Og hún gæti sam
ræmt aðgerðirnar.
— Stjórnendur Ferðaskrifstofu
ríkisins hafa sýnt dugnað, en það
er hins vegar ekki á fárra manna
færi að gera ísland að ferða-
mannalandi. Þar verður að koma
til samkepni hæfra manna, sam-
keppni ferðaskrifstofa — og full
komið frelsi á sama hátt og ferða
málunum hefur verið búið í ná-
grannalöndum okkar.
Geir H. Zoéga hefur um margra
ára skeið greitt fyrir erlendum
skemmtiferðaskipum, sem hing-
að koma að sumarlagi og stanza
yfirleitt í einn dag eða svo í
Reykjavík. Hann segir, að þegar
sé ákveðið, að í sumar komi hing
að Caronia, Gripsholm, Bergens-
fjord, Brail og Andes — og e.t.v.
fleiri. Nú verður lögð áherzla á
að gefa fólkinu nægan tíma til að
skoða sig um í Reykjavík og
verzla, ef það hefur hug á. Ferð-
irnar út úr bænum verða styttar,
því reynsla undanfarinna ára hef
ur sýnt, að lítið hefur mátt út
af bregða svo að ekki hafi verið
komið fullseint aftur í bæinn.
★
— Eg er viss um það, að mik-
ill hluti þeirra Islendinga, sem
farið hafa út fyrir landsteinana,
hafa einu sinni eða oftar notið
fyrirgreiðslu Cooks, enda þótt
þeir hafi sjálfir ekki vitað um
það. Og það var einmitt hug-
mynd Cooks að greiða fyrir öll-
um ferðamönnum, sem þess ósk-
uðu í smáu og stóru.
— Hann fæddist í Melbourne,
Derbyshire í Englandd árið 1808.
Hann var fátækur og 10 ára að
aldri fór hann að vinna, fyrst
garðyrkjustörf. Síðar réðist hann
til prentsmiðjueiganda og bóka-
útgefanda. Cook var mikill bind
indismaður. Hann var mjög virk
ur í samtökum bindindismanna
og eitt sinn datt hoflum í hug að
full þörf væri á að greiða fyrir
bindindismönnum, sem ætluðu
að sækja bindindismót eitt, sem
haldið var í fjarlægum bæ. Þann
ig atvikaðist það, að fyrstu ferða
mennimir, sem fóru á vegum
Cooks, keyptu sér shillings far-
miða frá Leicester til Loughbor-
ough og aftur til baka. Og það,
sem merkara var: Með sérstök-
um samningum við járnbrautar-
félagið gat Cook veitt afslátt
vegna þess, að farmiðinn var tvö
faldur, gilti fram og til baka. Síð
an hefur afsláttur af tvöföldum
farmiða verið viðtekin regla á
öllum samgönguleiðum.
★
— Það voru 570 manns, sem
fóru á bindindismótið í Lough-
borough þann 5. júlí 1841, og
þetta var upphafsdagur Cook-
ferðaskrifstofunnar. — Næstu
tvö ár var Cook önnum kafinn að
skipuleggja hópferðir fyrir bind
indissamtök og barnaverndarfé-
lög. Árið 1845 skipulagði hann
svo fyrstu skemmtiferðina til
Liverpool, Norður Wales, eyjar-
innar Mön og Dublin. Þetta þóttu
slík tíðindi að farmiðarnir gengu
kaupum og sölum manna á meðal
á tvöföldu verði.
— Starfsemi Cooks óx hröðum
skrefum og hann varð heims-
frægur, er honum var falið að
greiða fyrir 165 þús. ferðamönn-
um af öllum Bretlandseyjum, er
sóttu Lundúnasýninguna miklu
árið 1851. Hann færði stöðugt út
kvíarnar og hann var upphafs-
maður „Alþjóða ferðamanna-mið
anna“. Árið 1872 skipulagði hann
fyrstu hnattferðina, sem tókst
vel — og frægð hans jókst hröð-
um skrefum. Fjöldi manna um
allan heim fetaði brátt í fótspor
Cooks. Hann hafði skapað nýjan
og vaxandi atvinnuveg.
★
— En Cook hefur fengið mörg
önnur verkefni en að greiða fyr-
ir ferðamönnum. Stofnun hans
var í slíku áliti hjá brezku stjórn
inna, að honum var falið að
skipuleggja leiðangurinn upp
með Níl, Gordon hershöfingja til
hjálpar, árið 1884. í þessum leið-
angri voru 18.000 hermenn, 130.
000 tonn af vistum og 65.000 tonn
af kolum. Og það var mál manna
að enginn hefði getað leyst þetta
betur af hendi en einmitt Cook.
— Annað merkilegt afrek
mætti nefna: Óskapleg ringulreið
var jafnan í Mekka vegna píla-
grímsferða Múhameðstrúar-
manna þangað. Horfði þetta til
slíkra stórvandræða, að engin
leið virtist til að koma einhverju
skipulagi á pílagrímsferðirnar.
Cook var falið að athuga málið
og kom hann því í það horf, að
menn undu vel við.
★ 1
— Cook skrifstofurnar hjálp-
uðu hundruðum þúsunda manna
heim við upphaf beggja heims-
styrjaldanná. Ekki aðeins Bret-
um, sem voru erlendis, heldur
og annarra þjóða fólki, sem statt
var fjarri heimalandinu. Um alla
Evrópu leituðu menn til Cooks.
Ef hann fann ekki smugu, þá var
hún engin til, sögðu menn.
— Cook var fengið það mikil-
væga hlutverk í siðari heims-
styrjöldinni, segir Geir, að ann-
ast allan bréfapóst til fólks í
þeim löndum, sem nazistar höfðu
lagt undir sig. Sem umboðsmað-
ur ferðaskrifstofunnar var ég
beðinn að annast þetta hér á
landi og gerði ég það öll stríðs-
árin, tók við bréfum, sem héð-
an voru send til fólks hinum meg
in víglínunnar — og svo tók
Cook að sér að koma þeim áleið-
is. Aðalvinnan í þessu sambandi
var að lesa öll bréf yfir, því á
styrjaldartímum eru jafnan regl-
ur um það hvað má skrifa og
hvað ekki til ættingja í landi ó-
vinanna. Unga fólkið, sem nú er
að vaxa upp man ekki eftir stríðs
tímimum. Það er líka ágætt.
★
—Thomas Cook lézt 1892, 84
ára að aldri. En hann lifði að sjá
draum sinn rætast, sjá fólkið fara
allra sinna ferða, án þess að hafa
áhyggjur af því hvort það kæm-
ist með þessari lest eða hinni,
hvort það næði skipinu, eða
hvort það fengi inni á hóteli,
þegar komið yrði á áfangastað.
Cook sá fyrir öllu — og gerir
það enn í dag.
Gefur 25 þús. kr,
í sjúkraflugvélina
ÍSAFIRÐI, 21. jan. — Kvenna-
deild Slysavarnafélagsins á ísa-
firði hélt aðalfund hinn 12. þ. m.
Var fundurinn v*l sóttur. — Úr
stjóm áttu að ganga frú Sigríð-
ur Jónsdóttir, formaður, Guðrún
J ónsdóttir, varaforinaður, og
Þuríður Vigfúsdóttir, ritari, en
voru allar endurkosnar. Með-
stjómendur eru frúrnar Lára
Edvarðsdóttir og Anna Sigfús-
dóttir.
Á fundinum var ákveðið að
gefa 25. þús. krónur til björgun-
arflugvélar Björns Pálssonar. í
félaginu eru um 300 meðlimir og
hefur það á undanförnum árum
unnið mikið og fórnfúst starf í
þágu björgunar- og líknarmála.
Félagið var stofnað fyrir 27 ár-
um. — G. K.
rir öllu