Morgunblaðið - 28.01.1961, Síða 1
16 siður og Lesbók
48. árgangur
22. tbl. — Laugardagur 28. janúar 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
_ •>
Æflaði að annast varðgæzEu a Islandi:
Er eftirlýstur af Vestur-
þýzku lögreglunni
LÖGREGLAN handtók í
gær, að því er blaðið hefur
öruggar heimildir fyrir, Þjóð
verja þann, Frank Franken,
sem í haust skýrði blaðinu
frá því, að hann væri í þann
veginn að stofna fyrirtæki til
að gæta eigna manna í
Reykjavík. Ástæðan fyrir
handtökunni mun vera sú, að
hann er eftirlýstur af vestur-
þýzku lögreglunni fyrir inn-
hrot. Fregnaði Mbl. enn-
fremur að í gær hafi borizt
beiðni frá vestur-þýzku lög-
reglunni um að maður þessi
verði framseldur henni. —
Þjóðverjinn verður leiddur
fyrir rétt í dag. Blaðinu tókst
ekki í gærkvöldi að afla
frekari fregna af málinu í
einstökum atriðum.
Ætlaffi að annast varðgæzlu
Maður þessi mun hafa komið
til landsins sumarið 1959, ráðinn
til starfa í sælgætisgerð og kall-
aði sig efnafræðing.
Hann kom i ritstjómarskrif-
stofu blaðsins snemma í haust.
Var hann mjög kurteis og kom
vel fyrir. Sagði hann þá frá því,
að hann væri í þann veginn að
stofna nýstárlegt fyrirtæki í
Reykjavík, sem sniðið væri eft-
ir erlendum fyrirmyndum. Bað
hann blaðið um að geta þess,
en þó ekki fyrr en fyrirtækið
væri komið meira á rekspöl. —
Seinni hluta nóvembermánaðar
skýrði hann svo nánar frá starf-
semi fyrirtækisins, sem átti að
heita Varðgæzlan s.f. Hafði
hann þá þegar sent til margra
hugsanlegra viðskiptavina skjal,
þar sem hann bauðst til að gæta
eigna fyrirtækja að næturlagi.
Nafngreindi hann íslenzkan
mann, sem hann kvað vera fram
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Ætlaði fyrirtækið að láta
varðmenn líta eftir eigum við-
skiptavinanna með stuttu milli-
bili alla nóttina. Sagði Franken
að ráða ætti áreiðanlega menn
til þess starfa. Ættu þeir að
líta eftir því að ekki væri brot-
izt inn, ekki yrði tjón af vatns-
skaða eða eldi og mundu jafn-
vel slökkva á ljósum og vélum,
ef þess yrði óskað.
Þá kvaðst Frank Franken enn
fremur hafa sótt um að fá að
flytja inn varðhunda, sem nota
mætti til að hafa upp á þjófum
strax eftir innbrot. Kvaðst hann
mundu vinna með lögreglunni
eftir því sem henta þætti, í
þess þó að vera undir hennar
stjórn.
Framh. á bls. 15
Salazar smeyk-
ur við Calvao?
Uppreisnarforinginn kveðsf nú vilja
þiggja bandaríska flotavernd gegn
portúgölskum herskipum
'San Juan, Puerto Rico, Lissa-
bon og Washington, 27. jan.
— (Reuter) —■
t KVÖLD barst skeyti frá
Galvao, foringja porúgölsku
uppreisnarmannanna um
borð í skipinu „Santa Maria“,
til bandarísku flotastöðvar-
innar í San Juan, þar sem
hann kveðst gjarna vilja
hljóta bandaríska flotavernd
gegn hugsanlegum afskipt-
um portúgalskra herskipa —
með vissum skilyrðum þó. —
Galvao kvaðst vilja setja
hina 560 farþega á land, í
Buður-amerískri eða vestur-
afrískri höfn — og þó frem-
ur í Vestur-Afríku. — Skil-
yrðip, sem hann setti fyrir
handarískri aðstoð voru fyrst
og fremst: að litið verði á
hann og menn hans sem
„pólitíska uppreisnarmenn“,
og að engin tilraun verði
gerð til að taka af þeim skip-
ið eða hafa afskipti af þeim
á annan hátt.
— • — o i
í frétt frá Washington segir
hins vegar, að fyrrverandi fram-
bjóðandi til forsetaembættisins í
Portúgal, Humberto Delgado hers
Frh. á bls. 15.
Reimleikar í Kreml
Mótmælt þungum refsingardómi
yfir vinkonu Pasternaks
E I N S og frá hefir verið
skýrt hér í blaðinu, var
einn nánasti vinur og sam
starfsmaður rússneska
skáldsins Boris Paster-
naks, rithöfundurinn Olga
Ivinskaya nýlega handtek-
in og dæmd í átta ára
fangelsi, en 23 ára gömul
dóttir hennar hlaut þriggja
ára fangelsisdóm. Afsökun
sovétstjórnarinnar fyrir
hinni þungu refsingu er
meint gjaldeyrissvik.
Mál þetta hefir vakið
mjög mikla athygli og
andúð víða um heim —
og hefir m. a. fjöldi lista-
manna og menntamanna á
vcsturlöndum og ýmis sam
tök þeirra sent sovétstjórn
inni harðorð mótmæli
vegna meðferðarinnar á
þeim mæðgum, og krafizt
þess, að þær verði látnar
Iausar.
Mbl. hefir borizt ein slík
ályktun nokkurra frægra
rithöfunda, og birtist hún
hér í þýðingu:
„Vér höfum tekið oss
mjög nærri fregnirnar um
handtöku frú Olgu Ivin-
skayu og dóttur hennar,
Irinu, og hin leynilegu
réttarhöld yfir þeim. —
Einkum blöskrar oss ó-
samræmið milli hinnar
ströngu refsingar, sem
þær skulu liljóta, og af-
brotsins, sem þær eru tald
ar sekar um. Það er von
vor, að því verði lýst yf-
ir að hér hafi verið um
réttarfarsleg mistök að
ræða og að dómurinn
verði ógiltur án tafar.
I minningu Boris Past-
ernaks, höfundar, sem rit-
að hefir verk, er ávallt
munu skipa virðingarsess
í rússncskum bókmennt-
um, — og í nafni þeirrar
sáttastefnu í sambúð mis-
munandi menningarfosma,
sem sovétstjórnin hefir
gerzt talsmaður fyrir —
en þessar óskiljanlegu
réttaraðgerðir hljóta að
tefla í voða — beinum við
þessu alvarlega ákalli, um
að mildi verði sýnd í máli
þessu, til Nikita Krúsjeffs
forsætisráðherra og til
æðstu yfirvalda Sovétríkj-
anna.“
Undir þetta skjal skrifa
eftirtaldir erlendir rithöf-
undar nöfn sín: — Ignazio
Silone, Stephen Spender,
Rcinhold Niebuhr, Denis
de Rougemount, Lionello
Venture, Pierre Emmanu-
el (eitt af þekktustu Ijóð-
skáldum Frakka af yngri
kynslóðinni. Kemur hing-
að í febrúarlok), Nicole
Chiaromonte og Jean
Bloch Michel. — Auk þess
er Mbl. kunnugt um, að
a.m.k. eitt íslenzkt skáld,
Gunnar Gunnarsson, hefir
skrifað undir fyrrgreint
skjal.
í „Vettvangi“ blaðsins,
sem birtist á bls. 9 í dag,
er fjallað um þetta nýja
„Pasternak-mál“.
Rœðast Krúsjeff og
Kennedy við í marz?
Adlai Stevenson segir, að Kennedy
mundi fagna slikum fundi
New York, 27. janúar. —
ADLAI STEVENSON, hinn
nýi aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðun-
um hélt fyrsta blaðamanna-
fund sinn í dag, eftir að hann
tók við því embætti. Lét
hann að því liggja, að allar
líkur væru til þess, að þeir
Kennedy og Krúsjeff myndu
ræðast við innan vébanda
SÞ, þegar Allsherjarþingið
kemur aftur saman í byrjun
marz n. k. — og að Kennedy
mundi fagna slíku tækifæri.
Hér yrði ekki um að ræða
neinn eiginlegan „toppfund“,
en slíkar óformlegar viðræð-
ur gætu verið heppilegt upp-
haf að kynningu þessara
valdamiklu manna, og gætu
Framh. á bls. 15.
Dagsbrúnarmenn!
Athugid!
AUKAMEÐLIMIR, sem vilja
gerast fullgildir féiagar og
neyta kosningaréttar síns nú,
geta það fram til hádegis á
laugardag, með því að fara í
skrifstofu Dagsbrúnar í AI-
þýðuhúsinu og greiða inntöku-
og skírteinisgjald.
Skuldugir félagar geta
greitt gjöld sín og hlotið kosn
ingarétt allan timann, meðan
kosning stendur yfir.