Morgunblaðið - 29.01.1961, Page 2
2
MORCVyBL AÐIÐ
Sunnudagur 29. Janúar 1961'
VarÖgœzlu - fyrirtækiB
var farið út um þúfur
Samtal við fyrrverandi samstarfsmann
Þjóðverjans
FREGN Morgunblaðsins af hand
töku Frank Franken kom mér
gjörsamlega á óvart. Ekki hafði
ég minnstu hugmynd tun að
hann aetti sökótt við lögreglu
heimalands síns og þaðna af síður
að hann hefði gerzt sekur um
innbrot. Að vísu var mér kunn
ugt um fádaema frekju hans og
hvers kon ar yfirgang í viðskipt-
um. Leiddi þessi framkoma
hans til þess m.a. að ég sleit
öllu sambandi við hann í ársbyrj
un. Hann hafði í blaðasamtölum
skýrt frá því að ég væri fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis þess er
hann hugðist stofna hér í bæn-
um „Varðgæzlan verndar", en
það var algjör misskiiningur.
Það var hans hugmynd að kalla
mig framkvæmdastjóra, en ekki
mín ósk. Eg hafði heitið honum
því að leiðbeina honum um ýmis
legt varðandi stofnsetningu fyr-
irtækis þessa, en marglýst því
yfir að ég kærði mig ekki um
neina beina ábyrgð á rekstri
þess.
Þannig komst Oddgeir Þ. Odd
geirsson bókhaldari, Hverfisgötu
106 að orði í samtali við Mbl í
gær.
Eitt af því fyrsta sem ég gerði
er ég hafði heitið Frank Franken
aðstoð, var að leggja fyrir hann
tillögu um að fyrirtækið yrði
skráð og öllum lagalegum ákvæð
um um stofnun fyrirtækisins
framfylgt. Þetta var ein af mörg
um tillögum mínum þetta fyrir-
tæki varðandi, sem honum fannst
algjört aukatriði. Um leið og
varðgæzlustarfið byrjaði myndi
vera sótt um leyfi til starfsem-
innar.
Oddgeir Þ. Oddgeirsson sagði
að það sem öll viðskipti þeirr
hefðu einkennzt af, hefði verið
fádæma yfirgangur og frekja. En
Oddgeir kvaðst þó fyrst framan
af hafa talið glíkt yrirtæki sem
Varðgæzlan. gæti starfað hér í
bænum, í nánu samstarfi við
apimbera aðiia, og hefði hann því
ekki kippt sér upp við framkomu
Frank Franken.
Varðgæzlan sendi svo mörg-
um fyrirtækjum og stofnunum
boðsbréf, þar sem gerð var grein
fyrir áformum fyrirtækisins. —
Mér er það minnisstætt hve hann
brást æstur við, er boðsbréfun-
um skyldi ekki öllum svarað um
hæl. Og taldi forráðamenn fyr-
irtækjanna ekki kunna gott að
meta og væri seinir og silalegir
í hugsim. En eftir nokkra daga
bárust fimm eð sex bréf.
Auglýsingin mikla eftir mönn
Hvor er skrif-
stofa komm-
únisto ?
í DAGSBRÚNARKOSNING-
UM auglýsa lýðræðissinnar í
félaginu ævinlega kosninga.
skrifstofu, sem opin er öllum,
sem vilja vinna fyrir lista
þeirra.
Enda þótt vitað sé, að allt
fylgi kommúnista í Reykja-
vík sé á fleygiferð í þessum
kosningum, hvílir einkenni.
leg leynd yfir því, hvaðan
starfemi þessari er stjórnað.
Þessi leynd er þó með öllu
óþörf, því hvert manns-
barn veit um aðalbækistöðv.
ar kommúnistaflokksins að
Tjarnargötu 20.
Því til viðbótar má geta
þess, að hver sellustjóri hef.
ur fengið nöfn 20 Dagsbrún-
armanna, sem hann er skyld-
ugur til að smala frá heimili
\ sínu. "*
um til starfa við gæzlustörfin,
sem sett var í Mbl., kom tií
minna kasta. Mér var sjálfum þá
er ég þýddi hana fyrir Franken,
Ijóst að á henni voru margir
gallar og færði það í tal við
hann. Hann taldi aðfinnslur mín
ar blátt áfram móðgandi eða
allt að því.
Þegar ljóst var hve litlar und
irtektir voru meðal atvinnurek
enda og forstöðumanna fyrirtækj
anna um starfsemi Varðgæzlvmn
ar urðu enn árekstrar. Sýnt
væri að þjónusta fyrirtækisins
myndi verða svo kostnaðarsöm
að ekki væri neinn grundvöllur
til að reka fyrirtækið, það væri
rniiklu kostnaðarminna fyrir fyr
irtækin að kaupa sér þjófnaðar
tryggingu hjá vátrygginga-
félögunum.
En Franken sem er um marga
hluti vel að sér, taldi allar mín-
ar aðfinnslur tóma vitleysu. Það
væri hann sem réði fyrirtækinu
og hann einn sæti inni með alla
þekkingu og getu til þess sem
gera þyrfti. Það endaði svo með
því að skömmu eftir áramótin
ákvað ég að slíta öliu sambandi
við Frahk Franken og fyrirtæk
ið Varðgæzlan. Hann tók allt sitt
dót og flutti það á brott, — hvert
veit ég ekki.
Þar að ég tel mig vera heiðar-
legan mann, sem ekki tortryggi
menn, taldi ég enga ástæðu til
þess þó svona hefði farið milU
ofckar Franken, að gefa neina
yfirlýsingu um endalok viðskipta
ökkar. Eg vissi að hann hafði hug
á því að fá einhvern annan í
kompaní við sig. Eg vildi ekki
leggja stein í götu hans og ákvað
að bíða átekta.
Franken virtist hafa allgóð f jár
ráð, en aldrei grunaði ég hann
um óheiðarlegheit, og aldrei
spurði ég hann um hans pen-
ingamál. — Eg vissi að hann
hafði fullan hug á að setjast að
hér á landi, þrátt fyrir það að
hann hefði mjög lítið áUt á ís-
lendingum. — En það var hans
mál. En nú virðist ljóst vera af
hverju sá áhugi hafi stafað, en
það er ekki mitt að dæma mann-
inn. Hvað sjálfan mig áhrærir þá
harma ég það, að heiðarleiki
minn og í blóð borið traust til
náungans skuli hafa dregið mdg
inn í þetta leiðindamál, sagði
Oddgeir Þ. Oddgeirsson bókari
að lokum.
Verkamenn í Dagsbrún;
Kjósum gegn pólitísku
verkfalli kommúnista
Þ A Ð liggur nú opinberlega
fyrir af hálfu kommúnista,
að þeir telja stjórnarkosning-
una í Dagsbrún eins konar
skoðanakönnun um það,
hversu margir verkamenn
(af þeim sem félagsréttinda
njóta) vilja fylgja þeim út í
pólitískt stórverkfall á næst-
unni. Skrif Þjóðviljans í gær
taka af öll tvímæli um þetta
atriði. —
Einnig hefur greinilega komið
fram, sérstaklega á Dagsbrúnar-
fundinum, að kommúnistar ótt-
■ast, að margir verkamenn hræð-
Verkamenn:
Athugið
ÞEIR, sem skulda félagsgjöld,
geta fengið að borga með því
að greiða áíallin gjöld á kjör.
stað.
I Z' NA /S hnúiar 1 / SV 50 hnútar X SnjHoma » ún •me V Slrúrir K Þrumur mts KuUalkil Hitaski! H HaS L LagS
allar taldar fram í veðurfrétt-
um útvarpsins, enda hefði það
orðið stagLsamt á að hlýða.
Horfur eru á að vindur
gangi til norð-austurs og veð-
ur stillist heldur sunnan
lands. Lægðirnar eru farnar
að leggja leið sína sunnar en
áður. Má búast við, að sú sem
er á kortinu austan við Ný-
fundnaland, verði komin aust
ur að Skotlandi í kvöld. Verð-
ur hún þá efalaust orðin
stærri og komin nógu nálægt
Islandi til að verða efni í veð-
urspá.
Veðurspáin í gærdag:
SV-mið: Allhvass austan og
Faxafl.mið og Breiðafj.mið:
NA kaldi og síðar stinnings-
kaldi, léttskýjað, kaldara.
Vestfirðir og miðin: Vax.
andi NA átt, víða hvasst í
nótt, snjókoma norðan til.
Norðurland og miðin:: NA
gola og bjart fyrst, stinnings-
kaldi og víða snjókoma í nótt.
NA-land, Austfirðir og
Austfj.mið: Hægviðri og úr-
komulaust fyrst en.NA kaldi
og dálítil rigning eða slydda
í nótt.
SA.land, Austfj.mið og SA-
mið: Vaxandi austan og NA
átt, stinningskaldi og rigning
í kvöld og nótt.
xst hinar miklu verkfallsáætlan-
ir þeirra og hafi meiri trú á þeirri
ábyrgu kjarabótastefnu, sem B-
lista menn hafa sett fram.
Sú óhrekjanlega staðreynd,
að það tók verkamenn 4 ár
að vinna upp TAPIÐ frá
verkfallinu mikla 1955, er
versti Þrándur í Götu komm
Frh. á bls. 23.
LEIKURINN „Þjónar drott-
ins“ eftir norska skáldið Axel
Kielland var frumsýnt í Þjóð
leikhúsinu sl. fimmtudag við
mjög góðar viðtökur leikhús.
gesta.
Eins og lesendum er kunn-
ugt er þetta leikrit byggt á
hinu svo kallaða Helander-
máli, sem mikið var rætt á
sínum tima og ennr þann dag
í dag er ekki vitað hvort Hel-
ander biskup var saklaus eða
sekur, aftur á móti gefur höf.
undurinn svar við þeirri
spurningu. Mikil spenna er í
leiknum og hann er umfram
allt gott leikhúsverk.
Myndin er af Val Gísla-
syni og Önnru Guðmundsdótt-
ur í hlutverkum biskups
hjónanna.
Næsta sýning verður í
kvöld.
Reglur Fersk-
fiskeftirlitsins
AÐ gefnu tilefni vill Ferskfisk-
eftirlitið koma á framfæri eftir-
farandi:
Að morgni 25. jan. sl. lögðu eft-
irtaldir þrír útilegubátar upp
afla í Reykjavík: Akraborg EA
50, Pétur Sigurðsson RE 331 og
Helga RE 49.
Þegar aflanum var landað,
voru eftirlitsmenn Ferskfiskeftir
litsins viðstaddir og athuguðu,
hvernig meðferð fiskurinn hafði
fengið, eins og þeim bar, jafn-
framt því sem þeir flokkuðu
hann eftir gæðum. Ferskfiskeftir
litið flokkar nýjan og ísaðan fisk
í 3 gæðaflokka, í samræmi við
nýútkomna reglugerð, og eru
flokkarnir þessir:
1. fl.: Fiskur, sem er gallalaus,
hæfur til frystingar.
2. fl.: Fiskur, sem ekki er hæf
ur til frystingar, en hæf-
ur til saltfisks- og skreið
arverkunar.
3. fl.: Óvinnsluhæfur fiskur.
Matsniðurstöður voru sem hér
segir:
Pétur Sigurðsson: 1. fl.: 25 tn.,
2. fl.: 12 tn. veiðiferð 7 dagar.
Akraborg: 1. fl.: 10 tn., 2. fl.: 7
tn., veiðiferð 10 dagar.
Helga: 1. fl.: 9 tn., 2. fl.: 23 tn.,
veiðiferð 7 dagar.
Augljóst er, að gæði fisksins
hjá einum bátanna voru áber-
andi verst. Að dómi Ferskfisk-
eftirlitsins eru fleiri en ein á-
stæða fyrir þessu: Aflinn var að
miklu leyti smáýsa, sem þolir
illa geymslu, og verður því að
vanda mjög til meðferðar hennar,
Við skoðun kom í ljós, að með-
ferðinni hafði verið í ýmsu ábóta
vant. Má í því sambandi nefna,
að fiskuriinn hafði ekki verið
lagður í stíur og of mikið sett
í hverja stíu, enda var ýsan krami
in. Aðalástæðan mun þó vera
sú, að um of litla ísnotkun var að
ræða, þar sem 1 tonn af ís var
notað í 6 tonn af fiski, samfcv.
þeim upplýsingum, sem Fersk.
fiskeftirlitið hefur fengið. Hæfi-
legt mun vera að nota 1 tonn af
ís í 4 tonn af fiski við sömu að-
stæður og hér var um að ræða.
Það skal tekið fram, að flokk-
unin var framkvæmd af mönn-
um með mikla reynslu í þessum
málum.
F.h. Ferskfiskeftirlitsins,
Njáll Þórðarson.
Dagskrá Alþingis
FUNDIR eru boðaðir í báðum
deildum Alþingis kl. 1,30 á morg
un: — Á fundi efri deildar eru
fjögur mál. — Á fundi neðri
deildar 10 mál.