Morgunblaðið - 31.01.1961, Side 1
24 síður
Seðlabanki Islands verði sjálfstæður
Xveir íslenzkir togarar seldu Faxa-síid í síðustu viku í Bremerhaven og Cuxhaven í Þýzkalandi. Fiskikaupmönnum líkaði mjög
vel við hina íslenzku síld og fékkst gott verð fyrir hana. Mynd þessi var tekin af togaranum Röðli í Cuxhaven. Fleiri mynd-
ir af síldarsölunni eru á bls. 10—11. Nú munu a. m. k. fjórir togarar vera að leggja af stað til Þýzkalands með síldarfarm.
Gagnryiiir harðlega arfleifð
sljórnar Eisenhoivers
Kennedy hvetur til
samvinnu
Kemst loks á
kajupþing á
íslandi ?
Jóhann Hafsteín
ræddi bankamálin
á Varðar-fundi
i gærkvöldi
A VARÐARFUNDI í gær-
kvöldi vék Jóhann Hafstein,
bankastjóri, nokkuð að breyt
ingum þeim, sem ráðgert er
að gera á löggjöfinni um
Seðlabanka. Þar segir m. a.,
að Seðlabankinn skuli hafa
samvinnu við ríkisstjórnina
og skýra skoðanir sínar fyrir
henni, en verði um ágreining
að ræða milli bankans og
stjórnarinnar, sé bankanum
rétt að skýra skoðanir sínar
opinberlega. Þó skal hann
telja það eitt meginhlutverk
sitt að vinna að því, að sú
stefna, sem ríkisstjórnin
kann endanlega að marka í
peningamálum, nái að lokum
tilgangi sínum. Slíkur ágrein
ingur gæti leitt til þess, að
bankastjóri yrði að víkja úr
starfi, og eru sérstök ákvæði
um, hvernig þá skuli með
fara. Tengsl þau, sem Seðla-
bankinn hefur við viðskipta-
banka Landsbankans skuli
rofin að fullu. Hann skal
bafa með höndum seðlaút-
gáfu og myntsláttu, eftirlit
með bönkum og sparisjóðum,
annast viðskipti við ríkis-
sjóð, ákvarða vexti, hafa
áhrif á peningamagn og út-
lán bankakerfisins, fara með
gengis- og gjaldeyrismál og
annast hagskýrslugerð.
Þá er gert ráð fyrir að á
vegum Seðlabankans verði
stofnað kaupþing, þar sem
heimilt sé að verzla með
vaxtabréf og hlutabréf eftir
reglum, sem bankastjórnin
setur og ráðherra staðfestir,
en heilbrigð verðbréfa- og
London, SO. )an.
Einkaskeyti til Mbl.
Stjórnmálafréttaritari stór-
blaðsins Daily Telegraph í
London segir í blaðinu í dag
að ef ekki náist samkomu-
lag milli Breta og Íslendinga
é næstu vikum, muni kröf-
urnar fara vaxandi um her-
akipavernd fyrir brezku tog-
arana við veiðar innan tólf-
mílnamarkanna við ísland.
Washington, 30. jan.
— (NTB/Reuter) —
J O H N F. Kennedy, forseti
Blaðið segir að brezku togar-
arnir hafi undanfarið aflað vel
á öðrum norðlægum miðum. Nú
sé vertíðin hinsvegar að hefjast
á miðunum við Island og nái
hámarki í vikunni fyrir páska,
einmitt þegar markaðurinn er
beztur í Bretlandi.
Islenzk nefnd kom til London
fyrir jólin og afhenti utanríkis-
ráðuneytinu tillögur sínar. Svo
hélt nefndin heim með breyting
artillögur Breta, en síðan hefur
ekkert frá henni heyrzt.
Bandaríkjanna, sagði í dag,
að ríkisstjórn hans mundi
kanna nú þegar öll þau svið,
þar sem hugsanlegt er að
skapa samvinnu við Sovét-
ríkin og önnur lönd, og skor-
aði á allar þjóðir, þeirra á
meðal Sovétríkin, að vinna
að því með Bandaríkjunum
að koma á fót bættu veður-
eftirliti, nýrri áætlun um
fjarskiptahnetti, og undir-
búningi að fcrðum til Mars
og Venusar, ferðum, sem
eiga eftir að varpa ljósi á
mestu leyndardóma veraldar
innar.
En forsetinn lagði einnig
áherzlu á það er hann flutti
þinginu fyrsta boðskap sinn
um ástand og horfur í land-
inu, að það væri enn höfuð-
markmið Sovétríkjanna og
annarra kommúnistaríkja að
ná heimsyfirráðum. — Þess
vegna væri það Verkefni
Bandaríkjanna að sannfæra
Sovétríkin og Kína um það
að árásaraðgerðir og undir-
róður væri ekki heppilegar
starfsaðferðir.
Gagnrýni
Bandaríkin hafa sjaldan orðið
fyrir jafn mikilli gagnrýni og
fram kom í þessu ávarpi Kenne-
dys. Notaði forsetinn tækifærið
til að rekja fjölda mála, sem
hann taldi hafa verið algjörlega
vanrækt af ríkisstjórn Republik-
ana.
Meðal þess sem Kennedy benti
á var: Borgir, sem eru að kafna
í óþrifnaði og fátækt ófullnægj-
andi menntunármöguleikar of lág
laun vísindamanna og verkfræð-
inga, ófullnægjandi tryggingar-
löggjöf, afbrot unglinga, kyn-
þáttaofsóknir, og illir viðskipta-
siðir. Eftir að hafa bent á allt
þetta, lýsti Kennedy því yfir að
Frh. á bls. 23.
I nánu sambandi
við íslendinga
LONDON, 30. jan. (NTB). —
Edward Heath, innsiglisvörður
konungs, skýrði frá því í neðri
málstoíu brezka þingsins í dag,
að Home lávarður, utanríkisráð-
herra Breta, hefði nýlega átt við
ræður við utanríkisráðherra ís-
lands um landhelgisdeiluna.
— Við erum í nánu sambandi
við íslenzku ríkisstjórnina og bíð
um eftir áliti hennar, sagði
Heath.
Friðrik teflir
f jöltefli
Birkeröd, 30. jan.
Einkaskeyti til Mbl.
I GÆR lék Friðrik Olafsson fjöl-
tefli, sem Taflfélag Kaupmanna-
hafnar gekkst fyrir. Margir sterk-
ir taflmenn Voru meðal hinna 44
andstæðinga hans. Tók keppnin
alls fimm og hálfa klukkustund
og lauk með því að Friðrik hlaut
34% vinning í 44 skákum. Frið-
rik vann 29 skákir, tapaði fjórum
og gerði 11 jafntefli. Vinnings-
•tala Friðriks var rúmlega 78%.
Nýlega tefldi Friðrik Olafsson
fjöltefli í Hollandi og hlaut haim
þá 90% vinninga.
Framihald á bls. 23,
Vilja herskipavernd