Morgunblaðið - 31.01.1961, Page 1

Morgunblaðið - 31.01.1961, Page 1
24 síður Seðlabanki Islands verði sjálfstæður Xveir íslenzkir togarar seldu Faxa-síid í síðustu viku í Bremerhaven og Cuxhaven í Þýzkalandi. Fiskikaupmönnum líkaði mjög vel við hina íslenzku síld og fékkst gott verð fyrir hana. Mynd þessi var tekin af togaranum Röðli í Cuxhaven. Fleiri mynd- ir af síldarsölunni eru á bls. 10—11. Nú munu a. m. k. fjórir togarar vera að leggja af stað til Þýzkalands með síldarfarm. Gagnryiiir harðlega arfleifð sljórnar Eisenhoivers Kennedy hvetur til samvinnu Kemst loks á kajupþing á íslandi ? Jóhann Hafsteín ræddi bankamálin á Varðar-fundi i gærkvöldi A VARÐARFUNDI í gær- kvöldi vék Jóhann Hafstein, bankastjóri, nokkuð að breyt ingum þeim, sem ráðgert er að gera á löggjöfinni um Seðlabanka. Þar segir m. a., að Seðlabankinn skuli hafa samvinnu við ríkisstjórnina og skýra skoðanir sínar fyrir henni, en verði um ágreining að ræða milli bankans og stjórnarinnar, sé bankanum rétt að skýra skoðanir sínar opinberlega. Þó skal hann telja það eitt meginhlutverk sitt að vinna að því, að sú stefna, sem ríkisstjórnin kann endanlega að marka í peningamálum, nái að lokum tilgangi sínum. Slíkur ágrein ingur gæti leitt til þess, að bankastjóri yrði að víkja úr starfi, og eru sérstök ákvæði um, hvernig þá skuli með fara. Tengsl þau, sem Seðla- bankinn hefur við viðskipta- banka Landsbankans skuli rofin að fullu. Hann skal bafa með höndum seðlaút- gáfu og myntsláttu, eftirlit með bönkum og sparisjóðum, annast viðskipti við ríkis- sjóð, ákvarða vexti, hafa áhrif á peningamagn og út- lán bankakerfisins, fara með gengis- og gjaldeyrismál og annast hagskýrslugerð. Þá er gert ráð fyrir að á vegum Seðlabankans verði stofnað kaupþing, þar sem heimilt sé að verzla með vaxtabréf og hlutabréf eftir reglum, sem bankastjórnin setur og ráðherra staðfestir, en heilbrigð verðbréfa- og London, SO. )an. Einkaskeyti til Mbl. Stjórnmálafréttaritari stór- blaðsins Daily Telegraph í London segir í blaðinu í dag að ef ekki náist samkomu- lag milli Breta og Íslendinga é næstu vikum, muni kröf- urnar fara vaxandi um her- akipavernd fyrir brezku tog- arana við veiðar innan tólf- mílnamarkanna við ísland. Washington, 30. jan. — (NTB/Reuter) — J O H N F. Kennedy, forseti Blaðið segir að brezku togar- arnir hafi undanfarið aflað vel á öðrum norðlægum miðum. Nú sé vertíðin hinsvegar að hefjast á miðunum við Island og nái hámarki í vikunni fyrir páska, einmitt þegar markaðurinn er beztur í Bretlandi. Islenzk nefnd kom til London fyrir jólin og afhenti utanríkis- ráðuneytinu tillögur sínar. Svo hélt nefndin heim með breyting artillögur Breta, en síðan hefur ekkert frá henni heyrzt. Bandaríkjanna, sagði í dag, að ríkisstjórn hans mundi kanna nú þegar öll þau svið, þar sem hugsanlegt er að skapa samvinnu við Sovét- ríkin og önnur lönd, og skor- aði á allar þjóðir, þeirra á meðal Sovétríkin, að vinna að því með Bandaríkjunum að koma á fót bættu veður- eftirliti, nýrri áætlun um fjarskiptahnetti, og undir- búningi að fcrðum til Mars og Venusar, ferðum, sem eiga eftir að varpa ljósi á mestu leyndardóma veraldar innar. En forsetinn lagði einnig áherzlu á það er hann flutti þinginu fyrsta boðskap sinn um ástand og horfur í land- inu, að það væri enn höfuð- markmið Sovétríkjanna og annarra kommúnistaríkja að ná heimsyfirráðum. — Þess vegna væri það Verkefni Bandaríkjanna að sannfæra Sovétríkin og Kína um það að árásaraðgerðir og undir- róður væri ekki heppilegar starfsaðferðir. Gagnrýni Bandaríkin hafa sjaldan orðið fyrir jafn mikilli gagnrýni og fram kom í þessu ávarpi Kenne- dys. Notaði forsetinn tækifærið til að rekja fjölda mála, sem hann taldi hafa verið algjörlega vanrækt af ríkisstjórn Republik- ana. Meðal þess sem Kennedy benti á var: Borgir, sem eru að kafna í óþrifnaði og fátækt ófullnægj- andi menntunármöguleikar of lág laun vísindamanna og verkfræð- inga, ófullnægjandi tryggingar- löggjöf, afbrot unglinga, kyn- þáttaofsóknir, og illir viðskipta- siðir. Eftir að hafa bent á allt þetta, lýsti Kennedy því yfir að Frh. á bls. 23. I nánu sambandi við íslendinga LONDON, 30. jan. (NTB). — Edward Heath, innsiglisvörður konungs, skýrði frá því í neðri málstoíu brezka þingsins í dag, að Home lávarður, utanríkisráð- herra Breta, hefði nýlega átt við ræður við utanríkisráðherra ís- lands um landhelgisdeiluna. — Við erum í nánu sambandi við íslenzku ríkisstjórnina og bíð um eftir áliti hennar, sagði Heath. Friðrik teflir f jöltefli Birkeröd, 30. jan. Einkaskeyti til Mbl. I GÆR lék Friðrik Olafsson fjöl- tefli, sem Taflfélag Kaupmanna- hafnar gekkst fyrir. Margir sterk- ir taflmenn Voru meðal hinna 44 andstæðinga hans. Tók keppnin alls fimm og hálfa klukkustund og lauk með því að Friðrik hlaut 34% vinning í 44 skákum. Frið- rik vann 29 skákir, tapaði fjórum og gerði 11 jafntefli. Vinnings- •tala Friðriks var rúmlega 78%. Nýlega tefldi Friðrik Olafsson fjöltefli í Hollandi og hlaut haim þá 90% vinninga. Framihald á bls. 23, Vilja herskipavernd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.