Morgunblaðið - 31.01.1961, Síða 24
JAMAICAjj
EYJAR
«UAPSLOU?^Í«í\ ^^S/ÉRBIR SETTIR U.AHO i/
X fltláfAð ^*—*’*í«ANTA ll’irÍA > \V __
"‘"' JSANTA LUCIA >> „ , 'V
• \ C PORTl/ÖALSK^
>T*»NlftA*V ÖumtA
...
VtH£2UlU
, i
Ij,! jA^
íBIiEM
mm
*•
(H».)
Vel leit út með síld-
veiði ■ nótt sem leið
(Kortið hér að ofan sýnir leiðina, sem portúgalska skipið
Santa Maria hefur siglt frá því að uppreisnarmenn náðu
því á sitt vald hinn 22. janúar sl. Var um tíma talið að
skipinu yrði sigit til portúgölsku nýlendunnar Angola,
eða til Kap Verde-eyja, en svo tókst bandaríska flotanum
að ná samningum við Galvao, fyrirliða uppreisnarmanna,
um viðræður um borð í skipinu skammt utan við land-
helgi Brasilíu, út af borginni Recife. Þær viðræður áttu
að hefjast í morgun.
Fjdldi báta var að kasta. Síld
lestað í f jóra togara
JSiiur sáttaíundir
í sjómannadeilunni
mikil hreyfing væri a síldinni
eins og sjá má af því hve víða
lóðar á henni. Línuveiðari hafði
tilkynnt um lóðningar austur í
Meðallandsbugt. Svo að víða er
síldina að finna.
Fréttir berast einnig norðan af
Akureyri um að góður síldarafli
sé á Eyjafirði.
Leitarskipin Ægir og Fanney
haga störfum sínum þannig að
Ægir leitar lengra frá flotanum
en Fanney aðstoðar bátanna og
er innan um þá.
Síld í fjóra togara
Hér í Reykjavík er nú verið
að lesta síld í tvo togara.
Þjarka um bjórinn
UMRÆÐURNAR um sterka bjór
inn hafa ekki farið fram hjá Há-
skólastúdentum. Stúdentafélag
Háskólans hefur boðað til um-
ræðufundar um málið og verður
hann miðvikudaginn 1. febrúar
kl. 8,30 í 1. kennslustofu Háskól-
ans.
Framsögumenn verða af hálfu
formælenda ölsins: Jón E. Ragn-
arsson, stud. jur. og Asmundur
Einarsson, stud. jur. Andmælend-
ur ölsins verða: Björn Friðfinns-
son, stud. jur. og Bolli Gústafs-
son, stud. theol.
Bræður slasast
í bílaárekstri
BRÆÐURNIR Páll arkitekt og
Gestur ljósmyndari Einarssyn-
ir, Pálssonar bankaútibússtjóra,
slösuðust í bílaárekstri, á leið
austur að Selfossi á laugardags-
kvöld. Eru þeir í sjúkrahúsi, ann-
ar lærbrotinn, en hinn með mjög
mikinn heilahristing.
Þetta slys varð um kl. 9, um
2 km fyrir ofan Lækj-
arbotna. Hálka var á veginum
og rétt í sama mund og bíll sá
sem bræðurnir voru farþegar í,
VW-bíll og Chevrolet fólksbíll,
voru að mætast, snarsnerist litli
bíllinn. Lenti vinstri framendi
hans á hægri framenda ameríska
bílsins. Við áreksturinn hafði
hurðin hrokkið upp og féll Gest-
ur út úr bílnum niður á götuna,
milli bílanna. Höggið var mjög
þungt er bílarnir skullu saman
og hafði Páll lærbrotnað. I
Chevroletbílnum voru ein hjón
og sluppu bæði ómeidd. Einnig
hafði ökumaður VW-bílsins
slopvið lítið meiddur.
Bílstjórinn á Kópavogsbílnum
hljóp alla leið niður að Lögbergl
til þess að síma eftir hjálp frá
Reykjavík. Þeir sem komu að
slysstaðnum meðan beðið var eft
ir sjúkrabíi höfðu eftir föngum
reynt að hlúa að hinum slösuðu
bræðrum.
Ástæðan til þessa óhapps
er talin vera sú, að rétt áður
en bílarnir mættust, hafði öku
maður VW-bílsins, sem
snöggvast stigið á hemlana á
flughállri götunni, með þeim
afleiðingum að hann missti al-
veg valdið yfir bílnum.
Brotizt inn -
Akranesi, 30. janúar.
AÐFARANÖTT sl. laugardags
var brotist i annað sinn á skömra
um tíma inn í stöðvarhús Sigurð-
ar Hallbjarnarsonar h.f.
Engu var stolið svo að sjáan-
legt væri, og hafa þjófarnir ekki
fundið peninga, því skrifstofu-
stjórinn hafði tekið þá á brott um
kvöldið. — Oddur.
Jeppi fellur 70-80 m niður
í fjöru af Bolungarvíkurvegi
Tveir, sem i bílnum voru, slasast
mikið, Hinn þriðji slapp
U M kl. 10 í gærkvöldi átti
blaðið tal við Jakob Jakobs-
son, fiskifræðing, um borð í
Ægi og spurðist fyrir um
síldveiðihorfur og hvernig
veiðarnar hefðu gengið um
helgina. 30 bátar höfðu feng-
ið um 10 þús. tunnur síldar
í fyrrinótt og gærmorgun. —
Yfirmenn fella
heimild til
verkfalls
1 — Vestmannaeyjum 30. jan. I
SÁTTAFUNDIR voru haldnir
í dag milli fulltrúa deiluaðila,
atvinnurekenda og Verkalýðs
félags Vestmannaeyja. Ekk-
ert samkomulag náðist og er
fundur boðaður á ný á morg-
un kl. 1 e.h.
Allsherjar atkvæðagreiðsla
fór fram í dag í skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Verðanda
um það, hvort stjórn félagsins
skyldi heimilað að boða til
verkfalls, ef samningar ekki
næðust. Var fellt að heimila
stjórninni það.
— Bj. Guðm.
HEILD ARSAMNIN GURINN, er
gerður var milli fulltrúa sjó-
manna og útgerðarmanna fyrir
milligöngu sáttasemjara ríkisins,
var sem kunnugt er ekki sam-
þytkktur í nokkrum sjómanna-
félögum. Er deilan um kaup og
kjör bátasjómanna ekki að f-ullu
leyst og áfórmar Torfi Hjartar-
son, sáttasemjari, að boða deilu-
aðila til fundar kl. 9 í kvöld.
1 sunnudagsiblaðinu var frá
því skýrt, að sjómenn og út-
gerðarmenn f Neskaupstað hefðu
gert sérsamning, eftir að heild-
arsamningurinn var felldur af
sjómönnum í Neskaupstað. Einn
Sumir fóru tvær veiðiferðir,
þ. á .m. Víðir II. og fékk
hann samtals 1000 tunnur.
Sigurvon frá Akranesi fékk
einnig um 1000 tunnur, en í
einni veiðiferð.
í gærdag var ekkert kastað,
ekki fyrr en um kl. 6 í gær-
kvöldi. Var bátaflotinn þá 10—15
sjómílur vestur af Eldey. í gær-
morgun fékkst síldin hins vegar
um 10 mílur vestur af Reykja-
nesi. Einnig lóðaði Ægir á síld
um 20 mílur vestur af Eldey.
Veiðiveður gott
Síldin stóð í gærkvöldi fremur
djúpt og gekk því á ýmsu með
að ná henni. Nú er fullt tungl og
mjög bjart á miðunum og stend-
ur síldin því dýpra.- Hins vegar
er veiðiveður á þessum slóðum
gott, en aftur á móti ófært í
Grindavíkursjó, en þar hefir
einnig verið lóðað á síld.
í gærkvöldi hafði aðeins eitt
skip tilkynnt um veiði og hafði
haldið heim á leið. Var það
Sveinn Guðmundsson frá Akra-
nesi og hafði 600 tunnur. Önnur
skip voru að veiðum og því ekki
búin að tilkynna um afla. Jakob
sagði hins vegar að áreiðanlega
myndu margir vera í allmikilli
síld.
Mikil hreyfing á síldinni
Þá sagði fiskifræðingurinn að
ig símaði fréttaritari blaðsins á
Eskifirði í gær að þar hefðu tek-
izt sérsamningar milli sjómanna
og útgerðarmanna og að útilegu-
bátarnir færu nú út.
Þá samninga telur Landssam-
band ísl. útvegsmanna ólögmæta.
Skrifað var undir heildarsam-
komulagið af fulltrúum beggja
aðila, þannig að það gilti fyrir
allt landið nema Vestfirði. Úr
því það fæst ekki samþykkt í
öllum félögum telja þeir að taka
verði aftur upp áframhaldandi
samningaumleitanir á sama vett-
vangi og fyrr, þ. e. a. s. hjá sátta-
semjara.
ísafiröi, 30. jan.
ÞAÐ slys vildi til á Bolung-
arvíkurveginum aðfaranótt
sunnudags sl. að bíll með
þremur mönnum valt út af
veginum og 70—80 metra nið
ur í f jöru og mölbrotnaði. —
Tveir mannanna slösuðust
mikið.
Nánari tildrög eru þau að jeppa
bifreið úr Bolungarvík, 1-611 und
ir stjórn Guðmundar Hafsteins
Benediktssonar var á leið frá
Isafirði til Bolungarvíkur milli
kl. 12 og 1 aðfaranótt sunnu-
dagsins. I bílnum voru tveir far-
þegar.
Hríð og blinda
Veður var vont, NA hríð og
blinda. Þegar bíllinn var kominn
út fyrir Hnífsdalsnálar, nánar til-
tekið milli Hnífsdals og Selja-
dals, eru þrengsli á Oshlíðarveg-
inum. Skiptir það engum togum
að bíllinn fer út af veginum og
veltur allt niður í fjöru, um
70—80 m. fall.
Annar farþeganna slapp
Annar farþeganna, Kristján
Kristjánsson komst strax út úr
bílnum, en hinir tveir ultu með
honum alla leið. Kristján hljóp
þegar til baka til Hnífsdals, en
þangað er stutt, til þess að leita
mannhjálpar. Fékk hann jeppa
til fararinnar. Á leiðinni á slys-
staðinn mættu þeir bifreiðar-
stjóranpm og skömmu siðar hin-
um farþeganum, Halldóri Hall-
dórssyni. Voru báðir mikið
meiddir og fluttir í sjúkrahús til
ísafjarðar. Halldór er höfuðkúpu
brotinn. Liggja þeir enn í sjúkra
húsinu og er líðan þeirra eftir
atvikum sæmileg. Kristján meidd
ist lítið, og var ekki fluttur i
sjúkrahús. Allir voru þeir félag-
ar úr Bolungarvík.
Bíllinn er sem fyrr segir möl-
brotinn þar sem hann liggur 1
fjörunnL — Guðjón.