Morgunblaðið - 04.02.1961, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. febr. 1961
Ö//ð rætt á Alþingi
FRUMVARP Péturs Sigurðsson-
ar um breytingu á áfengislögun-
um var tekið til fyrstu umræðu
í neðri deild Alþingis í gær.
Fylgdi flutningsmaður því úr
hlaði með ýtarlegri ræðu. Talaði
hann í hálfa aðra klukkustund,
!kom víða við í ræðu sinni og
hafði á ihraðbergi tilvitnanir í
vísindamenn.
menn.
Að máli Péturs loknu talaði
Halldór Asgrímsson, 2. þm. Aust
urlands. Var hann mótfallinn öl-
frumvárpinu og taldi auk þess
marga ágalla á því í núverandi
mynd.
Ræðu Péturs Sigurðssonar og
umræðnanna í gær verður nán-
ar getið í blaðinu á morgun.
Umræðum um ölfrumvarpið
var mikill áhugi sýndur og var
þröngt á þingpöllum í gær. Þá
var fréttaritari Norðurlanda
mættur í blaðamannastúku þings
ins og tók ekki heyrnartækin af
höfði sér meðan fundur stóð. Má
því búast við frásögnum af öl-
málum Islendinga í blöðum
frændþjóðanna á næstunni.
Bondaríkjastjóm íhugar nýjar
leiðir til lausnar Kongómólsins
Washington, 3. febr.
(Reuter-N'ré).
RÍKISSTJÓRN Bandaríkjanna
hefur nú í athugun endurskoðun
afstöðu sinnar til Kongómálsins
og ýmsar aðgerðir stjómmála-
legs efflis, er til bóta kunni að
verða í því vandamáli, að þvi er
talsmaður bandariska utanríkis-
ráðuneytisins, Lincoln White,
sagði í dag. Mun stjórnin hafa
samráð við fulltrúa ýmissa ann-
arra ríkja um þetta mál, en að
því er White sagffi, eru Sovét-
ríkin ekki þar á meffal. Meðal
þeirra aðgerða er í athugun em,
mun vera sú að senda Tshoinbe,
forsætisráðherra Katanga-fylkis
beiðni um að íáta Lumumba laus
an, en hann er nú fangi ein-
hversstaðar í Katanga.
Stjómmálamenn í Washing-
ton segja, að stjórn Kennedys
líti Kongómálið frá nokkrum
öðrum sjónarhól, en stjórn Eis-
enhowers, en lögð er á það á-
herzla, að langt sé frá því að
tekin hafi verið endanleg af-
stöðubreyting — hér sé aðeins
um að ræða undirbúningsskref
tií nýrra leiða. Bent er á, að
Bandaríkjastjórn hafi lengi ver-
Bókauppboð í dag
1 DAG kl. 2 hefst bókauppboð
Sigurðar Benediktssonar í litla
salnum í Sjálfstæðisihúsinu, og
verða bækurnar til sýnis frá kl.
9—1. 1 gær var hér getið nokk-
urra bóka, sem fara undir harn-
arinn í dag, en af misgáningi
féllu niður nöfn ými&sa, sem ein-
mitt mætti þó ætla að hefðu
truflað svefn bókavina í nótt.
Meðal þeirra mætti nefna:
Lovsamling for Island, allt, sem
út kom, vandað eintak í góðu
skinnibandi. Sveinn Sölvason:
Tyro Juris eður Barn í Lögum,
Khöfn 1799. Sv. Sölvason: Jus
Criminale, Khöfn 1776. (Eins og
getið var í gær er tímaritið
Lögfræffingur, sem Páll Briem
amtmaður gaf út á Akureyri
1697—1901, einnig á uppboðs-
skránni — complet —, svo að
líklegt er, að lögfræðingar og
laganemar, sem eru meðal á-
hugasömustu bókasafnara, láti
sig ekki vanta í dag). Ný Félags-
rit, allt, sem út kom, í skinn-
bandi. Fornmannasögur I.—XIII.,
Khöfn 1825—’37. Klaustur-Póst-
urinn, Beitistöðum og Viðey
1618—’27. Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson. Reise igennem
Island, I.-II., Sorþe 1772. Ol.
Olavius: Oeconomisk Reise ....
L-H., Khöfn 1780. Annálar
Bjöms á Skarðsá (ísl. texti),
Hrappsey 1774. Hallgr. Péturs-
son: Sálmar og kvæffi I.-II., Rvík
1£87—90. Guðm. Magnússon
(Jón Trausti): íslandsvísur no.
25/150, Rvik. 1903. Þórb. Þórðar-
son: fslenzkur aðall, Rvík. 1938.
ið þeirrar skoðunar, að mynda
beri sérstaka miðstjóm fyrir
allt ríkið og eigi svo margir
stjórnmálaaðilar, sem tök eru á,
aðild að þeirri miðstjórn og
einnig flokksmenn Lumumba.
White lagði áherzlu á, að stjóm-
in leitaði þeirra leiða, sem mesta
möguleika veittu til einingar
utan Kongóríkis sem innan.
Talið er líkíegt að varautan-
ríkisráðherra hinnar nýju Banda
ríkjastjórnar, Williams, sem er
séfræðingur í málefnum Afríku,
verði innan tíðar sendur til
hinna ýmsu Afríkuríkja, þar á
meðal Kongó.
ítalskir stúdentar
mótmæla
RÓM, 3. febr. (Reuter). — Átján
manns særðust í átökum milli
lögreglu og mörg hundruð stúd-
enta, er söfnuðust saman frammi
fyrir austurríska sendiráðinu í
Róm til þess að mótmæla tilkalli
Austurríkis til Suður Týról. Er
það mál nú til umræðu í ítalska
þinginu. Fimmtán hinna særðu
voru lögreglumenn en þrír stúd-
entar. Álíka mótmælaaðgerðir
urðu í mörgum öðrum ítölskum
borgum í dag. Hefur nú verið
komið upp öflugum herverði við
byggingu austurríska sendiráðs-
ins í Róm.
Brosað í bœjarstjórn
Söluskatturinn
í S&vét
Á FUNDI bæjarstjómar í
fyrradag gerði Alfreð Gisla-
son, læknir, sér alltíð rætt um
söluskattinn, og fann honum
flest til foráttu.
Meðal annars
sagðist h a n n
halda sig fara
rétt með það,
að sá a r m i
skattur h e f ð i
verið eitt af
því sem ýtti af
JGÍslason s t a ð stjórnar-
byltingunni miklu í Frakk-
landi árið 1789. Væri því var-
hugaverð sú afturhaldsstefna
að innleiða skatt þennan hér,
þó að það væri svo sem ekki
nema eftir öðru ráðslagi nú-
verandi stjórnarflokka.
Kenningunni gaumur gefinn
Þessari nýstárlegu kenningu
um orsök stjómarbyltingarinn
ar frönsku 1789, var að sjálf-
sögðu talsverður gaumur gef-
inn af bæjarfulltrúum. Litu
þeir flestir hver á annan og
Þórður Björnsson, bæjarfull-
trúi Framsóknar, sem sjaldan
þykir fróðleikurinn slakur, ef
hann kemur úr þessari átt,
hallaði sér brosandi í áttina til
Alfreðs og kallaði svo að
heyrðist um allan salinn:
„í hvaða mannkynssögu
stendur nú þetta?“.
Er bylting í aðsigi?
Gunnar Thoroddsen tók til
máls rétt á eftir og vék þá m.
a. að ummælum Alfreðs. Sagði
hann að þau gæfu tilefni til að
minna bæjarfulltrúana á það,
að sennilega væri söluskatt-
ur hvergi eins
í hávegum hafð
ur og í Sovét-
ríkjunum. Það
mætti til dæm-
is nefna, að á
íslenzku síld-
ina sem seld
v æ r i austur
þangað, væru
ekki 1 a g ð u r
3%, eða 7% eða 8%, eins og
söluskatturinn næmi gjarna
hér, heldur alls um 1900% í
söluskatt og álagningu. „Ef að
söluskatturinn hefur verið or-
sök frönsku byltingarinnar“,
sagði Gunnar að lokurri, „þá
er ég hræddur um að stjórnin
þar eystra megi fara að vara
sig“.
Frásögn af umræðum í bæj-
arstj. að öðru leyti er á bls. 9.
Gunnar
Thoroddsen
Knattspyrnumenn Hafn-
arfjarðar vilja leika hér
Safna fé til að svo geti orðið
SL. haust unnu Hafnfirðingar
sér rétt til þátttöku í I. deild
í knattspyrnu. Það er að vonum
mikill hugur í knattspymu-
mönnum að búa sig sem bezt
undir sumarstarfið.
Eitt af stærstu áhugamálum
Hafnfirðinga, er að leikir þeir,
sem þeir eiga rétt til að leika
heima geti farið fram heima í
'/" NA/Shnúhr Íf#SVS0knútor X Snjófcomo * OSism* \7 Skúrír K Þrumur wx KuUatkH Hitaoki/ HAHm$ 1 L0Lmq$ 1
_ _
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 síðd
Verður á norðaustan
SUÐUR af Islandi er allmikil SV-mið og SV-Iand tii
lægð á hreyfingu aust-norð- Breiðafjarðarmiða: Hægvirði
austur eftir. Verður hún senni í nótt én norðaustankaldi á
lega komin austur um Skot- morgun. Bjartvirði.
land um hádegi á laugardag, Vestfirðir og V-fjarðamið:
og verða veður þá yfirleitt Vaxandi norðaustanátt. Elja-
orðin á norðaustan hér á landi. veður.
Allhvasst er á sjálfu lægðar- Norðurland og N-mið, NA-
svæðinu, en að öðru leyti er land og NA-mið: Breytileg átt
stilliveður á því svæði, sem og hægvirði í nótt, en norð-
kortið nær ýfir og víða tals- austangola á morgun. Sums
vert frost. — A flugvellinum staðar snjóél.
í Goose Bay er 16 stiga frost Austfirðir og Austfjarðamið:
2ja stiga hiti í Brattahlíð og 20 Norðaustangola í nótt en norð-
st. frost í Scoresbysundi. Hins austanstinningskaldi á morg-
vegar er 5—6 stiga hiti í un og dálítil snjókoma.
Lundúrium og París, frostlaust SA-land og SA-mið: Vax-
í Kaupmannahöfn en 4ra stiga andi norðaustanátt. Allhvasst
frost í Osló. til hafsins. Snjókoma austan
Veðurhorfur kl. 10 í gær- til.
kvöldi:
Hafnarfirði. En öllum er jafn-
framt ljóst að þetta krefst mik-
ils og fjárfreks undirbúnings.
Næstu daga munu hafnfirzkir
knattspymumenn því heim-
sækja bæjarbúa með beiðni um
fjárframlag til stuðnings starf-
semi sinni.
Hafnfirðingar! Munið að korn
ið fyllir mælirinn.
,Hreinsanir4
á Kúbu
HAVANA, 3. febr. (NTB/Reut.)
— Yfirmenn sex kúbanskra dóm-
stóla, einn hæstaréttardómari, 25
héraðsdómarar og 100 fulltrúar
hafa verið leystir frá embættum
sínum. Eru þeir allir sakaðir um
andbyltingarstarfsemi og siðlausa
hegðun.
Uppsagnir þessar eru framhald
þeirra hreinsana í röðum starfs-
manna réttvísinnar á Kúbu, sem
hófust í desember sl. með upp-
sögn 13 hæstaréttardómara.
Vinningar
hjá D.A.S.
f GÆR var dregið í 10. fl. Happ-
drættis DAS um 50 vinninga og
féllu vinningar þannig:
2ja herb. íbúð, Kleppsveg 26
kom á nr. 36149. Eigandi Niels
Ingvarsson, Neskaupstað.
2ja herb. íbúð, Kleppsveg 30,
tilbúin undir tréverk kom á nr.
42965. Eigandi Tómas Vilhjálms-
son, Bröttukinn 14, Hafnarfirði.
Starfsmaður hjá Rafha.
Opel Caravan bifreið kom á nr.
30717. Eigandi Stella Gísladóttir,
Patreksfirði.
Moskvitch fólksbifreið kom á
nr. 62310. Eigandi Ástbjörg Geirs
dóttir, Hæðargarði 8.
Eftirtalin númer hlutu húsbún
að fyrir kr. 10 þús. hvert: 1368,
1937, 13182,~ 23481, 23568, 40577,
Boriletti saumavél kom á nr.
4583.
Eftirtalin númer hlutu húsbún
að fyrir 5 þús. kr. hvert: 127, 3598,
5167, 7491, 10808, 11443, 11706,
12463, 13930, 14068, 15857, 16156,
19157, 21006, 21453, 24432, 27512,
30469, 31338, 35630, 37210, 38630,
39842, 41355, 42103, 42369, 42614,
43634, 43870, 44392, 44892, 47449,
48245, 49622, 54428, 56655, 56840,
59449, 63657.
Tónlistar-
kynning
Á MORGUN, sunnudaginn 5.
febrúar kl. 5 stundvíslega, verð-
ur tónlistarkynning í hátíðasal
háskólans. Flutt verður
af hljómplötutækjum skólans
„Linz“-sinfónían eftir Mozart
(nr. 36, í C-dúr, K. 425). Tón-
skáldið samdi hana á fáum dög-
um, 27 ára að aldri, og má þar
bæði kenna áhrifin frá Haydn
og hina sérstæðu sköpunar-
gáfu Mozarts.
Columbia-sinf óníuhl j ómsveit-
in leikur, stjórnandi Bruno
Walter. En hér er um næsta
einstæðar hljómplötur áð ræða,
því að fyrst heyra menn æfingu
hjá hljómsveitinni, sem hljóð-
rituð var án vitundar stjórn-
andans, þótt síðar gæfi hann
samþykki sitt til útgáfunnar.
Hann talar á ensku, lætur endur
taka, setur út á, segir fyrir og
raular jafnvel sum stefin. Að
æfingu lokinni er svo sinfónían
fíutt í heild sinni. Hér er þvi
fágætt tækifæri til að kynnast
vel merku tónverki og vinnu-i
brögðum mikils hljómsveitar-
stjóra.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
JAKARTA, Indónesíu, 2. febr.
(Reuter) — Þrjátíu og sex
manns grófust lifandi í miklu
skriðufalli er varð fýrir
skömmu á Lewobatang, einni af
eyjum Indónesíu, eftir «tórfelld-
ar rigningar.
TÓKÍÓ, 3. febr. (Reuter). — Tvö
þúsund manns urðu heimilislaus
ir af völdum jarðskjálfta í borg-
inni Nagaoka. Síðustu fregnir
herma, að fimm hafi látizt og 19
særzt í jarðskjálftanum.
Mállundanámskeið
Heimdaliar
SL. fimmtudag hófst í Valhöll
málfundanámskeið Heimdallar
með ágætu erindi Þorvalds G.
Kristjánssonar framkvæmdastj.
Sjálfstæðisflokksins um ræðu-
mennsku. Sú breyting verður á
námskeiðinu í næstu viku, að
fundur verður haldinn á miðviku
dag 8. febrúar í stað þriðjudags,
eins og ákveðið hafði verið. Þá
gefst þátttakendum námskeiðs-
ins kostur á að hlýða á erindi
Ævars Kvaran leikara um fram-
sagnalist.
Á fimmtudag 9. febrúar verður
síðan málfundaæfing. Þá verður
sá háttur á hafður, að menn tala
inn á segulband og hlýða síðan á
rödd sína og fá leiðbeiningu um
það, sem betur mætti fara.
Þriðjudag 14. febr. mun Bragi
Hannesson lögfræðingur ræða
um fundarsköp.
Tilkynnt verður í Morgunblað-
inu og Vísi síðar um framhald
námskeiðsins. Eru Heimdellingar
eindregið hvattir til að fjölmenna
á málfundanámskeiðið.