Morgunblaðið - 04.02.1961, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. febr. 1961
E ggjaframleiðendur
Almennir fundir eggjaframleiðenda verða haldnir
sem hér segir:
Tryggvaskála, Selfossi, sunnud. 5. febr. kl. 2 e.h.,
fyrir framleiðendur Austanfjalls.
Samkomuhús Garðahrepps, mánud. 6. febr. kl. 8 e.h.,
fyrir framleiðendur á Suðurnesjum, í Hafnar-
firði og Garða- og Bessastaðahreppi.'
Hlégarði, Mosfellssveit, þriðjudaginn 7. febr. kl. 1 e.h.
fyrir framleiðendur í Mosfellssveit, Kjalar-
nesi og Kjós.
Aðalstraeti 12, Reykjavík, þriðjudaginn 7. febr.
kl. 8% e.h., fyrir framléiðendur í Reykja-
vík, Kópavogi og Seltjarnarnesi.
Stjórn S.E.
Hafnarfjörður Nágrenni
pökkunarstúlkur
óskast strax.
Hraðfrystihúsið Frost hf.
Hafnarfirði — Sími 50165.
Verzlunarpláss
í Miðbænum til leigu. 30 ferm. Tilboð
óskast send afgr. Mbl. fyrir 10. þ.m. merkt:
„Miðbær — 1180“.
Fyrirliggjandi
Útidyrahurðir járnaðar m/3 rúðum,
Teak kr. 7.843.—
Afzelia — 6.231.—
Afromosia — 5.690.—
Sölusk. innifalinn.
Byggir hf.
Sími 36485.
R eykvíkingar
takið eftir
Úrvals bólstruð húsgögn. Sófasett o. fl. höfum vér
aftur fyrirliggjandi.
Seljum öll okkar húsgögn með jöfnum afborgunum
mánaðarlega.
Takið eftir. Við tökum enga vexti af því, sem við
lánum í húsgögnunum.
Bólsturgerðin hf.
Skipholti 19 (Nóatúnsmegin) sími 10388.
Dr. Finnur Guðmundsson
Sjódýrasafn
I NYUTKOMNUM Náttúrufræð-
ingi (4. hefti 30. árg.) er greinar
korn eftir ritstjórann, Sigurð H.
Pétursson, gerlafræðing, sem
nefnist Safn sjódýra, og er efni
þess rakið í Morgunblaðinu í
dag.
í grein þessari gerir höf. það
að tillögu sinni, að það sem
Náttúrugripasafnið á af sýningar
hæfum munum sjódýra, æðri
sem lægri, verði flutt í húsa-
kynni Fiskideildarinnar að Skúla
götu 4 og haft þar til sýnis í
rúmgóðum sal, þangað til Nátt-
úrugripasafnið hafi eignazt sóma
samlegt hús. Eg geri ráð fyrir,
•að höf. hafi rætt um þessa hug-
mynd við forstöðumann og sér-
fræðinga Fiskideildar, áður en
hann kom henni á framfæri á
prenti, en hann hefði getað spar
að sér mikið ómak ef hann hefði
líka rætt hana við starfsmenn
Náttúrugripasafnsins. Sannleikur
inn er nefnilega sá, að Náttúru-
gripasafnið á engin sýningarhæf
sjódýr, sem ekki verða höfð til
sýnis í sýningarsal safnsins á
Hverfisgötu 116, sem nú er unn-
ið að að koma upp. Það er því
mesti misskilningur hjá höf., að
loka eigi safn slíkra dýra niður
í kössum eða sýna það undir svo
slæmum skilyrðum, að engum
verði að gagni.
Um sýningarskilyrði í hinum
nýja sýningarsal Náttúrugripa-
safnsins verður dæmt þegar sal-
urinn verður opnaður almenn-
ingi og væri því heppilegra að
bíða með hrakspár um það efni
77/ sölu
Enskir skór, kjólar 6g kápur,
lítið notað. Einnig tvö lítil
sófaborð, gólfteppi og Singer
saumavél, o. fl. — í dag milli
kl. 2 og 6 e.h. Grundarstíg
15B, uppi.
Ferffafélag Islands heldur
Kjalarkvöldvöku í Sjálfstæð
ishúsinu þriðjudaginn 7. þ.m.
Húsið opnað kl. 8.
Fundarefni:
1. Jón Eyþórsson, veðurfræð
ingur talar um Kjöl og
Kjalveg — sýnir litskugga-
myndir.
2. Kvæðalestur.
3. Jóhannes úr Kötlum, minn-
ingar frá Kili.
4. Hallgrímur Jónasson, kenn
ari, vísur og frásagnir.
5. Myndagetraun, verðlaun
veitt.
6. Dans til kl. 24.
(Ath. breyttan skemmtana
tíma).
Affgöngumiffar seldir í Bóka-
verzlunum Sigfúsar Eymunds
sonar og ísafoldar.
Verff kr. 35,00.
í bili. Það veltur fyrst og fremst
á þeim, sem að uppsetningu slíks
sýningarsafns vinna, hvernig til
tekst að gera sýningarefnið að-
gengilegt almenningi, og gildir
það jafnt, hvort sem slíku safni
væri komið upp á Hverfisgötu
116 eða Skúlagötu 4.
Höf. getur þess í grein sinni,
að tilkynnt hafi verið, að tvö ár
muni líða þangað til hægt verði
að opna hinn nýja sýningarsal
Náttúrugripasafnsins. Það er
rétt, að þetta var tilkynnt haust-
ið 1960, en ég held að höf. sé oF
bjartsýnn, ef hann hyggur að
hægt verði að koma upp boðlegu
sýningarsafni sjódýra í húsakynn
um Fiskideildarinnar á skemmri
tíma. Hugmyndin um sýningar-
safn að Skúlagötu 4 myndi því
ekki flýta fyrir opnun sýningar-
safns náttúrugripa.
Að lokum langar mig til að
minnast á eitt atriði, sem ef til
vill skiptir mestu máli í þessu
sambandi. Eins og mörgum mun
kunnugt er megnþorri sjódýra
mjög illa fallinn til sýningar
vegna þess hve miklum vand-
kvæðum það er bundið að varð-
veita upprunalegt og náttúrlegt
útlit þeirra. Aður fyrr voru sjó-
dýr varðveitt í vínanda í gler-
krukkum eða glösum, sem raðað
var í hillur eins og niðursuðu-
krukkum í búri. Slík sýningar-
tækni er nú úr sögunni sem bet-
ur fer, en í þess stað eru nú í æ
ríkari mæli gerð líkön af þeim
sjódýrum, sem ekki verða sett
upp eða þurrkuð. Auk þess hafa
Samkomur
Ytri-Njarffvík og Keflavík
„Kristur einn er vegurinn! —
snúum frá eigin vegum til hans? “
— Velkomin á samkomurnar í
skólanum, Ytri-Njarðvík mánu-
dagskvöld og í Tjarnarlundi
fimmtudagskvöld kl. 8,30.
Kristniboffshúsið Betanía
Laufásvegi 13. Á morgun:
Sunnudagaskólinn kl. 2 e.b. —
Öll börn velkomin.
Zion, Austurgötu 22. Hafnarfirffi
Á morgun sunnudagaskóli kl.
10,30. Almenn samkoma kl. 4. —
Allir velkomnir.
Ileimtrúboff leikmanna.
Kristniboffssambandiff
Cand theol. Erling Moe og
söngvarinn Thorvald Fröytland
tala á samkomu í Betaníu, Lauf
ásvegi 13, sunnud. 5. febr. kl. 4.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
K. F. U. M. á morgun
Kl. 10,30 f.h. sunnudagaskól-
inn, kl. 1,30 e.h. drengjafundir,
kl. 8,30 e.h. samkoma fellur nið
ur vegna 50 ára afmælisins í
Hafnarfirði.
Hjálpræffisherinn
Laugardaginn kl. 20,30: Sam-
koma í Laugameskirkju. Sunnu
daginn kl. 20,30: Samkoma í Frí
kirkjunni, cand. theol. Erling
Moe og söngprédikarinn Thor-
vald Fröytland syngja og tala. —
Verið velkomin.
fjölmörg söfn — og það meira
að segja lítil söfn í smáborgum
— komið sér upp söfnum lifandi
sjódýra í sjóbúrum. Slíku safni
er ekki hægt að koma upp í hin-
um nýju húsakynnum Náttúru-
gripasafnsins, en hér virðist vera
tilvalið verkefni fyrir Fiskideild-
na, ef hún á annað borð hefur
ráð á húsnæði og fé til slíkra
hluta. Kostnaður við að koma
upp litlu og snotru safni lifandi
sjódýra þarf ekki að vera ýkja-
mikill ef hagsýni er gætt. Til
fyrirmyndar mætti taka sjó-
dýrasöfnin í Málmey og Gauta-
borg, en þáu eru af þeirri stærð,
sem okkur myndi henta bezt, og
auk þess er allt fyrirkomulag
þeirra mjög einfalt. Ég tel bæði
tímabært og mjög æskilegt, að
slíku safni lifandi sjódýra verði
komið upp í Reykjavík og það
myndi gleðja mig mjög ef Sig-
urður Pétursson beitti sínum
alkunna dugnaði til að hrinda
því máli í framkvæmd. Það skal
ekki standa á mér, að styðja hann
í þeirri baráttu.
1. febrúar 1961
Finnur Guðmundsson,
Athugasemd
Framh. af bls. 6.
skipun lauk. Þá var gengið f
bynginn, allt látið upp á vöru-
bifreið, keyrt inn á öskuhauga og
þar var kveikt í öllu saman!
Er þetta nú ekki alveg ný að«
ferð í sparnaði, að brenna hátt á
fimmta þúsund krónum?
Máske framleiðendur á freðsíld
færi sér þetta „lærdómsríka
dæmi í nyt“ samanber það, sem
saltfiskframleiðendur eiga að
gera með koksofnana.
Haraldur segir í upphafi grein-
ar sinnar:
„Það væri sannarlega ástæða
að stinga á fleiri kýlum en gert
hefur verið“.
Eg er honum sammála i því og
er reiðubúinn að hjálpa honum,
en hann má þá ekki kveinka sér.
Að kveða niður „autólýsu
grýluna“ eins og hánn kemst að
orði, er ég honum einnig sam-
mála, en það verður ekki gert
með svona skrifum, þar þarf ann
að og meira til. Það er hægt, ef
rétt er að farið, t. d. með því að
leggja síldina í kassa um borð I
bátunum og ísa hana, og kem ég
kannske að því síðar, þó það
verði ekki gert hér.
Freðsíldarmatið byggt á röng.
um forsendum, segir H. B.
Eg vil leyfa mér að mótmæla
því algerlega. Við, sem metum
síld til útflutnings, verðum að
sjálfsögðu að halda okkur við
gerða samninga milli kaupanda
og seljanda. Þar segir meðal ann-
ars: Síldin skal vera „góð og
heilnæm til útflutnings" o. s. frv.
Hingað til hafa kaupendur lítið
kvartað, og sýnir það, að matið
er nokkuð rétt. Hins vegar veit
ég vel, að sumir útgerðarmenn
eru alltaf óánægðir, ef þeir geta
ekki komið allri sinni vöru t*l
útflutnings á hæsta verði, hversu
léleg, sem hún er. Til að fyrir.
byggja slíkt er Fiskmatið, hvort
sem þeim háu herrum líkar betur
eða verr.
Læt ég svo útrætt um þetta
mál, nema frekari tilefni gefist.
Akranesi, 23. janúar 1961
Lýffur Jónsson,
yfirfiskmatsmaður
BÚTASALA
Við opnum á mánudaginn nýja gólfteppaverzlun
með hin óviðjafnanlegu Axminster gólfteppi, að
Skipholti 21. Það hefur spurzt um landið allt,
hve frábærlega vel þau reynast. Axminster teppin
á þúsundum heimila og fjölda skrifstofa, verzl-
ana, veitingahúsa, félagsheimila og kirkna.
Nú getið þér aflað yður ódýrra dregla, motta
og smáteppa, á stofur, ganga og smáþerbergi.
Verðlækkunin er einstæð, komið og sjáið sjálf
á mánudaginn.
N ý b Ú ð
Verzlunin Axminster
Skipholti 21 við Sælacafé
AXMIIMSTER
BIJTAR
REIMIMIIMGAR