Morgunblaðið - 04.02.1961, Side 15
Laugardagur 4. febr. 1961
MORCXJTSBLAÐIÐ
15
— Bjóst vid
Framh. af bls. 16
og þetta. öldurnar voru fjall-
háar.
■— Hvaðan ertu að norðan?
— Eg er af Sauðanesi. Við
hjónin erum af sínu nesinu
hvort, beggja megin Sigiu-
fjarðar. Einar er frá SigiU
nesi.
— Varstu viss um að hann
væri dáinn?
— .Tá, ég var það.
— En svo kom góða fréttin.
Það má kannske segja að hlát
ur og g’átur hafi gripið þig
4 sömu klukkustundinm?
■— Eg veit það ekki.
★
Og frú Helga lítur á okkur
raunamæddum augum. Við
forðumst því að ganga iengra
með nærgöngúlar spurningar
að svo komnu.
— Og börnin, hvað heita
þau og hvað eru þau gömul?
— Sú elzta er 6 ára og heit-
ir Jóna, þá kemur Jón Ivar 4
ára, Ólöf Sigurbjörg þriggja,
Meyvant tveggja og Gunnar
eins árs.
Foreldrar Helgu eru Jóna
S. Jónsdóttir og Jón Ivar
Helgason og búa nú á Háteigs-
vegi 8 í Vestmannaeyjum.
★
— Sagðirðu börnunum hvers
vegna presturinn hefði kom-
ið?
— Nei. Mér fannst það ó-
þarfi. Þetta eru líka svoddan
óvitar.
— Við ætluðum raunar að
fá að taka mynd af ykkur.
— Mynd! Hamingjan hjálpi
mér! Og á hún líka að koma
í blaðinu? Eruð þið kannske
búnir að mynda Einar?
Við héldum það nú.
— En við erum alveg ótil-
höfð.
— Það gerir ekkert til, seg-
ir kunningjakonan.
— Ég skal hjálpa þér til að
laga krakkana svolítið til.
Greiða þeim og snurfusa.
Helga stenzt ekki þessa á-
rás, þegar vinkona hennar er
líka gengin í lið með okkur.
Jón Ivar vill hafa axlaböndin
utan yfir peysunni og Mey-
vant litli er ekki á þeim bux-
unum að láta mynda sig. En
þegar hann sér blossann frá
myndavélinni er barnsleg for-
vitnin vakin.
Síðan setjumst við aftur
fram í eldhúsið og drekkum
brennheitt kaffið.
Jóna litla segir okkur að
pabbi sinn sé á spítala, en
komi heim á morgun.
★
— Ætlarðu ekki að heim-
sækja manninn í kvöld, spyrj
um við Helgu.
— Ég á nú ekki heiman-
gengt. Og ég hef einhvern veg
inn ekki treyst mér til að hitta
hann enn.
— Þegar þú varst búin að fá
fréttirnar í gærkvöldi, um að
hann væri úr allri hættu,
gaztu þá ekki farið að sofa?
— Nei ég svaf sáralítið í
nótt. Alltaf þegar ég dottaði
sá ég ölduna taka bátinn.
— En var ekki búið að að-
vara þá um að koma ekki inn.
— Jú, það mun hann Sig-
urður á stöðinni hafa gert.
Þeir voru búnir að biða hérna
fyrir utan höfnina í meira en
fclukkutíma.
— Og nú verður haldin fagn
aðarhátíð, þegar maðurinn
fcemur heim? spyrjum við.
Frú Helga og vinkona henn-
ar brosa hógværlega. Við
fcveðjum þetta heimili sem í
einni svipan breyttist í hús
sorgarinnar og siðan gleð-
innar á ný.
tJr eldhúsglugganum sáust
Grindavíkurbátarnir sigla inn
á höfnina. Okkur sýndist öld-
urnar miklar, en þetta kalla
Grindvíkingar aðeins froðu.
- Sá ölduna taka
Framh. af bls. 1
er ólagið reið á bátinn ykk-
ar?
— Ég stóð £ lúkarsopinu.
Það var óskaplegt brimið.
Báturinn var á réttri leið í
Djúpsundinu og allt gekk
vel. Svo sá ég hvar ægilegt
brot reis fyrir aftan bátskel-
ina. Ég gerði mér þá strax
grein fyrir því að þetta brot
myndi í það minnsta fylla
bátinn, já, jafnvel sökkva
honum, svo ægilegt var það.
Ég snaraði mér inn fyrir op-
ið skellti lúkarnum aftur.
Það var þó alltaf von í því,
að báturinn gæti haldist eitt-
hvað á floti, meðan lúkarinn
væri að fyllast í versta falli.
Og á næsta augnabliki finn
ég að báturinn er að sökkva.
Ég snaraði mér úr stakk og
bússum, gríp tvö björgunar-
belti og set á mig. Það var
nóg loft í lúkarnum hjá mér
og ég var hinn rólegasti.
Ekki heyrði ég neitt til fé-
laga minna, né gerði mér
nokkra grein fyrir því hver
hefðu orðið örlög þeirra. —
Þegar lúkarinn var orðinn
það fullur af sjó að ég gat
auðveldlega opnað hlerann
fyrir lúkarsopinu, stakk ég
mér þar út um þegar ég
fann að lag var.
★
— Mér skaut strax upp.
Hvergi sá ég félaga mína. Og
taldi ég sýnt hvað orðið hefði
um þá. Ég sá engan bát og
engar mannaferðir í landi.
Fyrst ætlaði ég að reyna að
synda út úr rennunni. En bár-
an hreif mig og bar mig í
burtu. Ég ákvað þá að reyna
að ná landi syndandi. Ég átti
enga von á björgun úr landi
og ég synti og synti. Vonleysi
náði ekki eina mínútu taki á
huga mínum. Ég hugsaði um
það eitt að bjarga mér. — Og
þó. — Mér var hugsað heim til
konunnar og barnanna, — að-
allega konunnar. Þegar ég var
kominn í sjóinn dofnaði ég
állur upp, og ég fann aldrei
til kulda. Og allt í einu sá ég
ljósstöngina í höfninni. Þá datt
mér í hug að ég skyldi synda
og klifra upp stigann sem er
utaná henni. Og ég þrælaðist
áfram í áttina að henni. Ég
I.O.G.T.
Barnastúkan Díana
Fundur á morgun. Leikrit o.fl
Svava nr. 23
Munið fundinn á morgun. Inn
taka, leikrit o. fl.
Gæzlumenn
EINAR ASMUNDSSON
hæstaréttarlögmaður
HAFSTEINN SIGURÐSSON
héraðsdómslögmaður
Skrifstofa Hafnarstr. 8 II. liæð.
|P»
M.s. ANDERS
fer frá Reykjavík þann 13.
febr. til Færeyja og Kaupmanna
hafnar. Flutningur óskast til-
kynntur sem fyrst.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen
NÝJA LJÓSPRENTUNAR-
STOFAN, Brautarholti 22 (geng
ið inn frá Nóatúni) Sími 19222.
Góð bílastæði.
átti eftir svo sem 20—30
faðma að stönginni, er ég sá
hvar vélbáturinn Ólafur kom
öslandi að mér. Þeir renndu
upp að mér, köstuðu til mín
tveimur bjarghringum og ég
synti að öðrum þeirra og
greip hann eins föstum tökum
og ég mátti.
— Mér varð ofsalega kalt,
þegar ég kom upp úr sjónum
og þá missti ég méðvitund-
ina, og þó aldrei alveg, minn-
ir mig. En mér ætlaði aídrei;
að hlýna aftur. Ég svaf illa íj
nótt. Hugsaði stöðugt um það
sem kom fyrir á bátnum, um
félaga mína þar. í morgun
var ég orðinn óskaplega
svangur.
★
— Og þú þarft að jafna
þig í nokkra daga?
— Nei, ég vildi fá að fara
heim í dag, en læknirinn
bannar það, segist vilja halda
mér hér í rúminu í nokkra
daga. En ég fer nú samt heim
á morgun.
Við kvöddum Einar.
— En meðal annarra orða,
eigum við ekki að skila
kveðju til foreldra þinna á
Siglufirði. Nei þau eru ekki
á Siglufirði. Jón faðir minn
Oddsson og móðir mín Bára
Tryggvadóttir búa á Sauða-
nesi og þið megið bera þeimi
kveðju mína.
Við kvöddum þá stofufé-j
laga á stofu 3 og Einar tók
aftur til að lesa bókina „Á
Dalamýrum“, eftir Helga
Valtýsson, sem hann hafði
lagt frá sér, er við komum
inn til hans.
Félagslíf
Víkingur, knattspyrnudeild
4. og 5. flokkur.
Skemmtifundur verður í Fé
lagsheimilinu nk. sunnudag kl.
16.30. Meðal skemmtiatriða verð
ur kvikmyndasýning o. m. fl.
Fjölmennið. Stjórnin
Víkingar — skíðadeild
Farið verður £ skálann um helg
ina. Farið verður frá B.S.R. —
'laugardag kl. 2 og 6. Stjórnin
Jósefsdalur
Farið verður í Dalinn um helg
ina. Skíðakennsla og Ólafsskarð
ið upplýst. Drengjamót verð hald
ið. Allir velkomnir. Ferðir frá
B.S.R. á laugardag kl. 2 og 6.
Stjórnin.
Skíðaferðir um helgina
Laugardag kl. 2 og 6. Sunnu
dag kl. 9,30 f.h. og kl. 1 e.h. —
Á laugardag verður skíðakennsla
í Hamragili við Kolviðanhól og
á sunnudag í Jósepisdal. — Af-
greiðsla hjá B.S.R.
Skíðafélögin í Reykjavík
Knattspyrnudeild Vals
Meistara- I. og H. flokkur.
Munið æfinguna á sunnudags
morgun kl. 10. Klæðið ykkur vel
og mætið tímalega. Stjórnin
Stórsvigsmót Ármanns
verður haldið í Jósefsdal sunnu
dag 5. þ.m. Keppenda fjöldi tak
markaður við 10 frá hverju félagi
Keppt verður £ karla og kvennafl
Skráning keppenda fer fram á
staðnum.
Knattspyrnumenn Þróttar
Æfingatafla félagsins er sem
hér segir í KR-húsinu:
M. 1. og 2. fl. miðvikud. kl. 9,25
til 10,15, M. 1. og 2. fl. sunnud.
kl. 3,30 til 4,20 3. fl. laugard. kl.
7,45 til 8,35, 3. fl. sunnud. kl. 4,20
til 5,10, 4. og 5. fl. laugard. kl.
6,55 til 7,45. Menn eru beðnir að
klippa út töfluna og geyma.
Stjórnin
— Galvao
Framh. af bls. 1
komast út úr höfninni með
„Santa María“ þar sem hans biðu
mörg herskip. Enda hefur komið
í ljós, að þeir uppreisnarmennirn-
ir voru aðeins um þr játíu en ekki
I sjötíu eins og fyrr var talið. Öll
* áhöfn skipsins að undanteknum
sex mönnum kaus að fara í land
I með farþegum, svo að uppreisn-
armenn áttu þess engan kost að
sigla hinu stóra skipi á brott.
Nokkur stjórnborðsslagsíða mun
vera á skiþinu, sem talin er stafa
af því að þeir uppreisnarmenn
hafi ekki haft lag á að koma
kjölfestunni rétt fyrir.
# Vopnin falin í líkkistu
Eigendur skipsins vona enn að
þeir fái það afhent sem fyrst.
Skýrði Botelho fulltrúi þeirra 1
Brazilíu fréttamönnum svo frá I
dag, að skipstjóri skipsins, Maria
Maia, mundi kæra Galvao og
menn hans fyrir skipsrán, morð
og margt fleira og jafnframt yrði
Delgado kærður fyrir að eiga sið-
ferðilega sök á öllu þessu. Mun
mál það líklegast rekið fyrir
brazilískum dómstólum. Botelho
sagði, að uppreisnarmenn hefðu
smyglað vopnum út í „Santa
María“ á mjög kænlegan hátt.
Hefðu þau verið falin í líkkistu,
sem nokkrar spánskar og portú-
galskættaðar konur fylgdu, sorg-
mæddar mjög, enda kváðust þær
vera að fylgja látnum ástvini, er
flytjast skyldi til greftrunar i
heimahögum. Reyndist ástvinuc
sá vopn þeirra Galvaos.
Trésmíðavel
Til söiu sambyggð trésmíðavél sem er afréttari,
hjólsög, bandsög, fræsari og bor.
Þykktarhefill 60 cm. breiður, getur fylgt.
Uj.pl. í síma 36300 eftir klukkan 1. í dag.
Skrifstofustúlka óskast
Opinbert fyrirtæki vill rá,ða skrifstofustúlku með
kvennaskólaprófi eða annari hliðstæðri menntun.
Umsóknir sendist afgr. Mbl. merkt: „1502“ fyrir
7. þ.m.
KEFLAVÍK — SUÐURNES
Leikfélag Vestmannaeyja
sýnir söngleik eftir Gandrup undir stjórn Eyvindar
Erlendssonar í Félagsbíói Keflavík í kvöld kl. 9.
Önnur sýning kl. 2 sunnudag. — Barnasýning.
Aðgm. seldir í Félagsbíói i dag og á morgun.
Leikfélag Vestmannaeyja.
Sendiráð Bandarikjanna
óskar eftir að ráða karl eða konu til starfa. Ensku-
kunnátta nauðsynleg, æskilegt er að umsækjandi
hafi reynslu í bókhaldi. Upplýsingar í Sendiráðinu
Laufásvegi 21, mánudag 6. febr. kl. 9—6.
Hjartans þakkir til allra þeirra, er heimsóttu mig,
sendu mér gjafir og heillaóskir á 80 ára afmæli mínu
30. jan. sl. — Guð blessi ykkur öll.
Sigurjón Jóhannsson,
Kirkjuvegi 18, Hafnarfriði.
Innilegt þakklæti til þeirra mörgu fjær og nær, sem
heimsóttu mig á 60 ára afmæli mínu 23. janúar, bæði
með gjöfum, skeytum og heimsóknum og gerðu mér
daginn ógleymanlegan.
Hjörleifur Sveinsson,
Landagötu 22, Vestamannaeyjum.
Mágur minn,
DR. ÓLAFUR LÁRUSSON
prófessor
lézt í gær, 3. febrúar
Fyrir hönd vandamanna.
Lára Magnúsdóttir
Sonur minn
INGIBERGUR KARLSSON
Karlsskála Grindavík,
lézt af slysförum fimmtudaginij 2. febrúar.
Fyrir hönd ættingja.
Guðrún Steinsdóttir og systkini hins látna.
Litli drengurinn okkar
BJÖRN VÍKINGUR
lézt á dr. Louises börnehospital í Kaupmannahöfn 2. febr.
Guðrún Einarsdóttir, Gunnar Víkingur Þórarinsson