Morgunblaðið - 16.02.1961, Side 24
Alþingi
Sjá blaðsíðu 8.
Rússar og Kínverjar
Siá blaðsíðu 13.
38. tbl. — Fimmtudagur 16. febrúar 1961
Eyjólfur K. Jónsson
Valdimar Kristinsson
Lóðar á mikilEi síld, en
hún er stygg
<ír-
UM kl. 22 í gærkvöldi náði
blaðið samtali við Jakob Jak
obsson, fiskifræðing, um borð
í Ægi þar sem skipið var á
siglingu vestur í Grindavík-
ursjó og var þá að leita síld-
ar. Þar fannst þó engin síld.
Flest síldveiðiskipanna eru nú
vestur af Snæfellsnesi, en vél-
báturinn Runólfur frá Grundar-
firði tilkynnti þar um torfu uppi
Fulltrúaráðsfundur um a’menn.ngs-
hlutafélög og erlent fjármagn
í KVÖLD kl. 8,30 verður
haldinn í Sjálfstæðishúsinu
fundur fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Á fundinum ræðir Eyjólfur
Konráð Jónsson, ritstjóri,
um almenningshlutafélög, og
Valdimar Kristinsson, við-
skiptafræðingur, um erlent
fjármagn.
Bæði þessi mál eru nú of-
arlega á baugi. Allmiklar
umræður hafa orðið um al-
menningshlutafélög og þátt-
töku alls fjölda manna í at-
vinnurekstri. Fleiri og fleiri
telja líka nauðsynlegt, að ís-
lendingar fari sömu leið og
aðrar þjóðir, sem skortir
fjármagn, og greiði fyrir
Garnaveiki í Skaga-
firði og Ólafsfirbi
BLAÐIÐ átti í gær tal við
Guðmund Gíslason lækni
vegna fréttar, sem því hafði
borizt um garnaveikifaraldur
norður í Skagafirði.
Guðmundur tjáði blaðinu að
nýlega hefði verið slátrað 14
kindum frá Sólheimagerði og 2
kindum frá Réttarholti í Akra-
hreppi.
Fjárskiptasvæði
Á þessu svæði fóru fyrir
nokkrum árum fram fjárskipti,
en garnaveiki mun hafa leynzt
í kúm og eru árlega nokkur
dauðsföll á þeim hér á landi af
þessari veiki. Kýrnar hafa hins
vegar mikið mótstöðuafl og
geta verið smitberar án þess að
vera sjúkar. Geta þær gengið
með veikina frá 3 upp í 10 ár.
Rannsókn á fyrrgreindum kind-
um hefur leitt í ljós að allar
kindumar voru meira og minna
sýktar, sumar fárveikar.
Bólusetning
Bólusetning hefur verið lög-
leidd gegn garnaveiki en mis-
brestur verið á framkvæmd
hennar. Þarna nyrðra hefur hún
þó verið regluleg síðustu 4 ár-
in, en hins vegar eru eldri kind
ekki bólusettar.
1 Ólafsfirði
Þá teljast það mikil tíðindi að
Það var handagangur í öskj-
unni niðri við höfn í gaermorg
un. Bátarnir flykktust á mið-
in um leið og verkfallið var
leyst. Aðrir bjuggust á líntu-
veiðar og hreinsuðu síldar-
hreistrið af lestarborðum. —
Þessi mynd er tekin í einum
bátanna hér í Reykjavíkur-
höfn í gærdag. Er þar verið
að búast á línu.
Afli er nú góður eins og seg-
ir frá á öðrum stað hér í blað-
inu. — Ljósm.: Ól. K. M.
garnaveiki hefur orðið vart í
Ólafsfjarðarkaupstað, en þar
hefur hún ekki verið áður. Er
veikin þar talsvert útbreidd. —
Þar hafði veikinnar lítið sem
ekkert orðið vart fyrir fjár-
skipti. Guðmundur sagði að lok-
um að gaumgæfilega yrði fylgzt
með þessum veikindatilfellum
með því að herða á bólusetn-
ingu og reyna að uppræta og
einangra þá staði þar sem veik-
innar verður vart.
flutningi erlends einkafjár-
magns til landsins.
Að loknum umræðum um
þessi mál verða félagsmál
rædd.
Bjðrn hneyksl-
nst enn
LESENDUR blaðsins minnast
þess sjálfsagt, að Framsóknar
þingmaðurinn Björn Pálsson
hneykslaðist mjög á því á
þingfundi fyrir skömmu,
hve stjórnarandstaðan væri
ábyrgðarlaus í afstöðu sinni til
þýðingarmikilla mála og hve
málflutningur hennar allur
væri neikvæður.
Birni hefur sjálfsagt þótfÁ
samherjar sínir í andstöðunni
láta lítið segjast við þessa
ádrepu, því að á fundi sam-
einaðs þings í gær býsnaðist
hann enn yfir^ ábyrgðarleysi
stjórnarandstöðunnar. Er nú
vonandi, að Björn þurfi ekki
oftar að hirta flokksbræður
sína og þeir láti segjast og
taki upp jákvæðari andstöðu.
Sjá að öðru leyti um um-
ræðurnar inni í blaðinu.
á 12 föðmum í gær. Annars hef-
ir síld verið þar vestur frá í all-
an vetur, en jafnan staðið svo
djúpt að ekki hefir verið unnt
að ná henni. Nú er hins vegar
dimmt, þar sem tungl er nýtt,
og eru þá mun meiri vonir til
að síldin grynni á sér.
• Þrjú skip kasta
í gærkvöldi hafði Jakob frétt
um þrjú skip, sem höfðu kastað.
En síldin var mjög stygg. Guð-
mundur Þórðarson fékk ekkert,
Heiðrún fékk 50 tunnur og Víð-
ir II. eitthvað meira. Of snemmt
var þó að fullyrða nokkuð um
frekari aflabrögð, en þess var
vænzt að eitthvað fengist í nótt.
• Mikil síld í Meðallandsbugt
Tveir bátar eru enn suður í
Meðallandsbugt, þar sem síldin
var mest um daginn. Þar lóðar
á mikilli síld, en hún er stygg og
mjög erfitt að eiga við hana.
Jakob Jakobsson sagði að lok-
um að þeir myndu á Ægi lóna
vestur fyrir Reykjanesið og leita
þar í nótt. Veður var ágætt á
miðunum í gær.
• Fékk 400 tunnur
Skömmu áður en blaðið fór i
prentun, fréttist að Víðir II. hafði
fengið 400 tunnur í fyrsta kasti
og var að háfa úr öðru góðu kasti.
Einnig hafði Bergvík fengið gott
kast.
Góðurafli
ínubáta
FYRSTI róðrardagurinn
eftir verkfallið var í
gær Fengu bátarnir yf-
irleitt góðan afla og
sumir ágætan. Keflavík-
urbátarnir höfðu frá 6
og upp í 12 tonn. Svip-
aður afli var hjá Sand-
gerðisbátum, eða 6—13
tonn, nema 1 bátur fékk
3 tonn. — Muninn var
hæstur með 13 tonn.
Féll úr 7 m stiga
eftir raflost
ÞAÐ slys vildi til um kl. 2 í
gær, að maður féll niður úr
7 m háum stiga og meiddist
alvarlega. Var hann fluttur
í Slysavarðstofuna og síðan
í Landsspítalann, þar sem
hann liggur nú. Maðurinn er
ekki talinn í lífshættu.
Nánari tildrög þessa slyss eru
þau að Helgi Eggertsson, til heim
ilis að Hólmgarði 41, var að vinna
uppi í 7 m. háum stiga í nýbygg-
ingu við Þjóðleikhúsið. Ólafur
Pálsson byggingameistari sér um
framkvæmd þess verks.
Fékk raflost
Einn vinnufélaga Helga rétti
íýýýýyyyýy/yyyyyyy/yyyyyyyy/yy.
honum vinnuljós þar sem hann
stóð í stiganum og hélt í steypu-
styrktarvír, sem stóð út úr veggn
um. Rafstraumur hljóp þegar í
gegnum Helga er hann tók við
vinnuljósinu og var hann svo
sterkur að hönd hans, er hélt um
vírinn, brenndist illa. Fljótt tókst
að rjúfa strauminn og féll Helgi
þá niður á steingólfið.
Tveir hryggjaliðir brákaðir
Tveir hryggjaliðir hans munu
brákaðir og hann eitthvað meira
meiddur auk brunasársins.
Helgi er fjölskyldumaður óg
vildi svo til að kona hans var að
eiga 4. barnið í gærmorgun. Helgi
hefir undanfarin 3 ár verið heilsu
veill. Hefir stöðugt grafið í hrygg
hans eftir uppskurð við ískías.
Um 10 tonn
í lögn
VÉLSKI^IÐ Helga kom hing-
að til Reykjavíkur í gærdag
eftir 6 sólarhringa útivist, en
skipið var að veiðum á meðan
á yfirmannaverkfallinu stóð.
Fór það héðan sama dag og
það skall á.
Ármann Friðriksson skip-
stjóri sagði í samtali við blað-
ið í gærkvöldi að aflabrögð
hefðu verið góð. Fékk skipið
um 10 tonn í lögn, en alls
lagði það línuna 5 sinnum, 4
lagnir í bugtinni austur við
Hjörleifshöfða og 1 lögn Norð
vestur af Vestmannaeyjum.
Alls var afli Helgu milli 50 og
60 tonn, blandaður fiskur,
mest stór ýsa og langa, en
minna af þorski. Fiskurinn
fer til frystingar, að minnsta
kosti ýsan og þorskurinn.
Ármann sagði að útilegubát-
arnir hefðu yfirleitt styttri
línu en landróðrarbátarnir
þetta 35 bjóð, en landróðrar-
bátar hafa allt upp í 45 bjóð.
Helga mun halda áfram útileg
unni. Annað er ekki fært, þar
sem svo langt er á miðin.