Morgunblaðið - 18.02.1961, Page 1
16 síður og Lesbók
40. tbl. — Laugardagur 18. febrúar 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
í landhelgi
Ölaíur Thors fer á þing
Norðurlandaráðs
FTTNDIR Norðurlandaráðs hefj-
ast i Kaupmannahöfn um há-
degisbilið í dag. Mbl. þóttist hafa
ffyrir því öruggar heimildir, að
Óiafur Thors forsætisráðherra
myndi sitja fundi' ráðsins, en
vegna fregna í Þjóðviljanum og
útvarpinu í gær þess efnis að
hann hefði hætt við það, sneri
blaðið sér til ráðherrans og spurði
hvort nokkur breyting væri á
orðin um för hans.
— Nei, svaraði forsætisráðherra
Ég fer til Hafnar á morgun (laug-
ardag) með flugvél frá Flugfé-
lagi Islands. É-g hef frá öndverðu
setlað mér að fara utan og sitja
málum, sem ráðið hefir rætt
fram að þessu, snerti íslendinga
lítið, þá skulum við hafa í huga
að sum þeirra koma okkur bein-
línis við, en hitt er mikilvæg-
ara að íslandi, sem liggur milli
hinina enskumælandi stórvelda,
er mikil nauðsyn á því að hafa
sem allra nánust tengsl við
frændur sína og vini á Norður-
löndum. J>ó við getum margt
gott lært af stórveldunum,
skiptir mestu máli, að okkur tak
ist að varðveita sameiginlega
norræna menningu, og á þetta
ekki sizt við um okkur íslend-
inga, sagði forsætisráðherra að
lokum.
Belgíustjórn
segir af sér
Þessa mynd tók Sveinn
Þormóðsson í gærmorgun
suður á Hafnarfjarðarvegi,
skömmu eftir að þar hafði
orðið hið hörmulegasta
slys. Hjón voru í litia bíln
um og beið konan bana
samstundis. — Sagt er frá
slysinu í frétt á bls. 16. —
Ólafur Thors
þing þetta, en þó hef ég kosið
að eyða sem minnstum tíma í
fferðalagið. Eins og þér kannski
vitið, bauð Erlander, forsætis-
ráðherra Svía, öllum forsætisráð
Iherrum Norðurlanda ásamt for-
mönnum allra deilda Norður-
landaráðsins til Svíþjóðar á s.l.
hausti, en þá kom ég þvi ekki
við að fara. Af þeim sökum
finnst mér nú enn þá meiri nauð
syn að sækja þingið í Kaup-
mannahöfn.
— Hvert er álit yðar á störf-
um Norðurlandaráðs? spurði
fréttamaður blaðsins.
Forsætisráðherra svaraði:
— Enda þótt mörg af þeim
Brussél, 17. febr. — (Reuter)
RÍKISSTJÓRN Belgíu sagði
í dag af sér vegna ágreinings
stjórnarflokkanna tveggja
um sparnaðarfrumvarp stjórn
arinnar. Hafði ríkisstjórnin
setið að völdum í 27 mánuði.
Talsmaður ríkisstjórnarinn
ar sagði að Eyskens forsætis-
ráðherra mundi afhenda
Bauduin konungi lausnar-
beiðni fyrir sig og ráðuneyti
sitt á morgun. Samkvæmt
hinni nýju stjórnarskrá
landsins mun konungur fela
Eyskens að mynda bráða-
birgðastjórn.
• Kosningar framundan
Ríkisstjórnin var samsteypu-
stjórn frjálslyndra og kaþólskra
og er Eyskens flokksmaður hinna
síðarnefndu. Það voru níu ráð-
herrar frjálslyndra, sem töldu
sig ekki geta fylgt stefniu Eysk-
ens varðandi sparnaðarfrum-
varpið og sögðu af sér.
Samsteypustjórnin hafði áður
samþykkt að leysa upp þingið í
næstu viku og efna til nýrra kosn
inga í landinu hinn 26. marz n.k.
Ekki er að vita hver áhrif stjórn
arslitin hafa á þessa ákvörðun.
• Atvinnuleysisbætur
Rene Lefebvre, sem var að-
stoðar forsætisráðherra og þing-
maður frjálslyndra-, segir að þrátt
fyrir fyrri samþykktir hafi Ey-
skens viljað draga það fram yfir
Framh. á bls. 15
Styðjo
Hammurskjöld
Brússel, 17. febrúar
ALÞJÓÐASAMBAND frjálsra
verkalýðsfélaga, (ICFTU),
sem í eru milljónir verka-
manna um allan hin frjálsa
lieim hefur lýst „fullum og ó-
takmörkuðum stuðningi“ sín-
um við aðgerðir Hammar-
skjölds í Kongó.
Stjórn sambandsins hafði sent
Hammarskjöld eftirfarandi
símskeyti:
Á þessum hættulegu tíma-
mótum viljum við fullvissa
yður um fullan og ótakmark-
aðan stuðning hinna mörgu
milljóna verkamanna hins
frjálsa heims við aðgerðir
yðar yfirieitt og við tilraunir
yðar tii að hjálpa Kongólýð-
veldinu að vinna bug á mikl-
um erfiðleikum þess. Við von
umst þess innilega að þér
haldið áfram aðgerðum yðar
til að forða Kongó frá stjórn-
leysi og eymd.
segir Dennis V/eleh
Grimsby, 17. febrúar.
Einkaskeyti til Mbl.
BREZKIR togaramenn hót-
uðu því í dag að skip þeirra
stælust inn fyrir 12 mílna
mörkin við ísland til að ná
í afla fyrir páskamarkaðinn.
Þriggja manna ráð togara-
manna lýsti því yfir I
Grimsby í dag að þeir væru
reiðir vegna sífellds dráttar
á samkomulagi í deilunni, og
að verið gæti að brezku tog-
ararnir færu inn fyrir mörk-
in án verndar, ef brezka
stjórnin neitaði að senda
herskip með þeim.
í þessu þriggja manna ráði
eiga sæti tveir fulltrúar
brezku togarasamtakanna og
Dennis Welch, formaður yf-
irmannamélagsins í Grims-
by. —
Seinna tilkynnti Welch
fréttamönnum: „Ef engan
fisk er að fá utan markanna,
munu skipin að öllum líkind
um fara inn fyrir. Það er til
of mikillar þolinmæði ætlazt
að búast við því að þau
haldi sig fyrir utan. Það
gæti bitnað á páskamarkað-
inum og á brezku þjóðinni,
ef skipin gerðu það“.
Fulltrúar brezku togara-
eigendasamtakanna neituðu
því í dag að þeir hefðu sett
brezku stjórninni úrslitakosti
og ákveðið að Ioforð þeirra
um að halda skipum sínum
utan 12 mílna markanna
meðan á samningum stendur
renni út hinn 15. marz.
Fimmtíu tórust
Ghoghardiha, Indlandi, 17. febr.
(Reuter). — Að minnsta kosti 50
manns, aðallega konur og börn,
drukknuðu í gær er tvær ferjur
sukku á ánni Kisi skammt frá
Ghoghardiha.
Ásiglingar og skiptapar
Dover, Englandi, 17. febrúar
(Reuter)
MIKIL þoka lá yfir Ermasundi
síðastliðna nótt og varð til þess
að sex skip Ientu í ásiglingum
og eitt strandaði.
Einn maður lét lífið og annar
slasaðist er norska olíuflutninga-
skipið Raila, sem er 12.700 lest-
ir og vestur-þýzka skipið Bochum
sem er 7.200 lestir rákust saman
um fimm mílum frá Dover.
Þýzka skipið var dregið til
haínar, en norska skipið gat hald
ið siglingu sinni áfram.
— • —
Tveir menn særðust er banda-
ríska olíuskipið Ocean Evelyn og
hollenzka skipið Amstel Hoek
rákust saman um 20 mílum frá
Dover. Litlar skemmdir urðu á
skipunum.
— • —
Þá rákust tvö brezk skip sam-
an skammt undan Dungeness.
Herskip úr landhelgisgæzlunni
brezku var sent til að aðstoða
annað skipið ef með þyrfti.
Eitt smáskip úr brezka flotan-
um strandaði við Dungeness
Foint í nótt. Beðið er eftir flóði
til að reyna að ná skipinu á
flot.
í fréttum frá Haag segir að tvö
skip hafi rekizt á í Katte-
gat. Finnska vélskipið Berny,
sem var rúmar 600 lestir, söfck
eftir áreksturinn, en áhöfnin
bjargaðist í hitt skipið, sem var
írá Liberíu.