Morgunblaðið - 19.02.1961, Qupperneq 1
24 siður
ttmttttMðfrife
48. árgangur
41. tbl. — Sunnudagur 19. febrúar 1961
Prentsmiðja Morgurblaðsin*
Landhelgisráðstefnan
í Kaupmannahöfn
Ræðir samstöðu um landhelgistillogur
Kanada
Kaupmannahöfn.
Frá Páli Jónssyni.
FISKIMÁLARÁBHERRAR
Danmerkur, Noregs og Sví-
l>jóðar koma saman til fund-
ar í Kaupmannahöfn á
sunnuöag til að ræða um
fiskveiðilögsögu. Þar verður
rædd afstaða landanna
þriggja á Óslóarráðstefnu,
sem haldin verður í næstu
viku, um það hvort Dan-
mörk, Noregur og Svíþjóð
vilja eiga aðild að hugmynd
Kanada um sáttmála allra
þeirra ríkja er studdu land-
Prestur
myrtur
prestum og nunnum
misþyrmt
Leopoldville, Kongó,
17. febr. (Reuter)
SAMEINUÐU þjóðirnar
hertu á öllu eftirliti í
Kongó í dag af ótta við
vaxandi hefndaraðgerðir
vegna morðsins á Patrice
Liumumba.
Skýrðu fulltrúar SI» frá
því í dag að um 50 ungl-
ingar, stuðningsmenn Lum
umba, hefðu myrt og lim-
lest belgískan prest eftir að
hafa kveikt í kaþólskri trú-
boðsstöð í borginni Bukavu
í Kivu-héraði. Unglingarn-
ir, sem voru vopnaðir kylf
um og spjótum, misþyrmdu
einnig tíu öðrum prestum
og nunnum. Meðal hinna
misþyrmdu voru þrír inn-
fæddir prestar. — Tveim
prestum var bjargað úr
annarri trúboðsstöð í horg-
inni eftir að uppþotsmenn
höfðu gert árás á hana.
Starfsmenn SÞ segja að
stuðningsmenn Lumumba
hafi undanfarið gert árás-
ir bæði á hvíta og svarta
og telja að um 20 manns
hafi verið drepnir síðustu
dagana.
helgistillögu Kanada á Genf-
arráðstefnunni sl. vor.
Þá er talið að ráðherrarnir
ræði fiskveiðitakmörkin í
Skagerak, og vonast fulltrúar
Dana og Svía til þess að ná
samningum um fjögurra mílna
landhelgi við Skageráksströnd
Noregs.
Kaupmannahafnarblaðið In-
formation telur að Danir muni
bíða árangurs af viðræðum
Breta og íslendinga áður en
þeir færi út fiskveiðitakmörkin
við Grænland eða gangi inn í
landhelgissamninga Breta og
Norðmanna.
Islands-karfi dseljan-
legur í Þýzkalandi
í GÆRMORGUN seldi tog-
arinn Haukur frá Reykjavík
í Cuxhaven. Var hann með
fisk héðan af heimamiðum.
Landaði hann alls rúmlega
177 tonnum.
Fiskur togarans var sagð-
ur hafa verið í bezta gæða-
flokki.
Þing Norð-
urlandaráðs
Kaupmannahöfn, 18. fébr.
í DAG hófst í Kaupmanna-
höfn níunda þing Norður-
landaráðs. Verður það haldið
£ Kristjánshorgarhöll.
Forseti ráðsins er Gísli
Jónsson, alþingismaður, og
setti hann þingið. Setningar-
ræðan er birt á bls. 8.
Óe/rð/r í Jakarfa
■r Jakarta, Indónesíu, 18. febr.
— (Reuter) —
F I M M hundruð stúdentar
brutust í dag inn á heimili
Howards Jones, sendiherra
Bandaríkjanna í Jakarta,
b'-utu upp hurðir en drógu
búugögn út og kveiktu f
þ‘?m. Gerðu stúdentarnir
þetta til að mótmæla morð-
inu á Patrice Lumumba, fyrr
v-'randi forsætisráðherra
Kongó. Þegar stúdentarnir
ruddust inn í heimilið, hróp-
uðu þeir: „Rífum niður
heimsvaldastefnuna“.
Hermenn komu á vettvang og
handtóku fjölda stúdenta. Einn
stúdentanna særðist í átökum við
lögregluna.
Bandaríski sendiherrann og
fjölskylda hans voru fjarverandi
úr borginni er árásin var gerð
á heimili þeirra.
Áður höfðu stúdentarnir ráð-
izt gegnum vopnaðan lögreglu-
vörð við belgíska sendiráðið,
ruðzt inn í bygginguna og rifið
niður belgiskan fána.
Þegar uppboðinu á afla
skipsins var lokið, lágu eftir
óesld um 50 tonn af karfa.
Ekki var það vegna þess að
ástand hans væri ekki gott
— því um hann var tekið
fram að hann hefði líka ver-
ið í gæðaflokki. En hann
reyndist óseljanlegur á upp-
boði. Taka varð hann og
selja utan við hið venjulega
uppboð, til frystingar, fyrir
miklu lægra verð.
Haukur var eini togarinn á
markaðnum í Cuxhaven í' gær-
Síldarafli
Norðmanna
bregzt
í BUAÐINU „Bergens Tid
' ene“ þann 11. þ.m. er skýrt
frá því, að vegna söltutregðu
muni aðeins unnt að salta
tæplega þirðjung (Sl%) þess
magns, sem saltað hefur verið
árle-ga síðustu árin fyrir vöru
skiptalöndin, en lang mestur
hluti norsku síldarinnar hef
ir farið til beirra landa. Seg
ir blaðið að bessi samdráttur
sé alvarlegt áfall fyrir norsku
síldarútgerðina.
Blaðið skýrir frá því, að
fersksíldarverð til söltunar
hafi verið ákveðið N. kr.
0/2487 fyrir kílóið af stórsíld
eða ísl. kr. 1/32. Ekkert verð
hefir verið ákveðið fyrir „vor
síld“ til söltunar, þar sem
engir sölumöguleikar eru fyr
ir hendi í ár á þeirri síld
saltaðri. „Vorsíld“ kalla Norð
menn vetrarsildina eftir miðj
an febrúar.
morgun. Þegar búið var að losna
við karfann til frystingar og
söluverð aflans alls lá fyrir, kom
í ljós að Haukur hafði í þessari
söluferð selt fyrir 108.000 mörk.
Er það ágæt sala, ekki slzt þegar
tekið er tillit til þess að karfa-
markaður brást. Nú er togarinn
Þormóður góði á leið til Þýzka-
lands með karfafarm af Ný-
fundnalandsmiðum.
Á Vínarborg. — Julius Raab, for
sætisráðherra Austurríkis hefur
tilkynnt að hann láti af embætti
í apríl n.k. af heilsufarsástæðum.
Raab m;un þjást af sykursýki.
Síðastliðinn miðvikudag, þeg-
ar Adlai Stevenson fulltrúl
Bandaríkjanna var í ræðustól,
urðu óeirðir miklar og stymp-
ingar á áheyrendapöllunum
hjá öryggisráði SÞ. Var það
hópur svertingja sem stofnaði |
til óeirðanna, og muna menn j
ekki eftir að fundur hjá SÞ,
hafi orðið fyrir jafn miklum'
truflunum fyrr. Myndin sýnir \
starfsmenn SÞ fjarlægja óróa-
seggi. Sjá grein á bls. 10.
Tvö þýzk flögg
valda deilum
GAUTABORG, 18. febr. Einka-
skeyti til Mbl. — Bæjarstjóm
Gautaborgar hélt þátttakendum í
heimsmeistarakeppni í skauta-
hlaupi veizlu í gær í kauphöH
borgarinnar. Þar skeði það að
vestur-þýzki ræðismaðurinn
gekk út vegna þess að austur-
þýzka flaggið var á borðum
ásamt því vestur-þýzka.
Bæjarstjórnin afsakaði sig með
því að það væri ekki sannur
íþróttaandi að skilja eitt flagg
eftir.
Álitið er að til greina
komi að vestur-þýzku kepp-
endurnir neiti að keppa í kvöld.
Friðarhorfur
í Laos
— (Reuter) —
HÆGRISTJÓRN Boun
Oums prins hefur ákveðið
að gera nú enn eina tilraun
til að binda endi á borgara-
styrjöldina í landinu. — Á
fundi ríkisstjórnarinnar í
gær var ákveðið að senda
háttsettan fulltrúa til við-
ræðna við Souvanna Phouma
fyrrverandi forsætisráðherra.
í tilkynningu stjórnarinn-
ar segir að Savang Vathana
konungur hafi samþykkt að
flytja þjóðinni útvarpsávarp
einhvern næstu daga og
skora á hana að koma á
friði.
Bouvan Norasing upplýsinga-
málaráðherra sagði að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að senda
Phoumi Nosavan herforingja,
sem er aðstoðarforsætisráðherra
og varnarmálaráðherra, til fund
ar við Souvanna í Kambódíu.
Souvanna var forsætisráð-
íerra hlutleysisstjórnarinnar,
sem tók við völdum í Laos í
ágústmánuði sl. En hann flýði
til Kambódíu- í desember, þegar
her Phoumi hershöfðingja sótti
að höfuðborginni og hrakti her
hlutleysisstjórnarinnar til að
ganga í lið með Pathe Lao
kommúnistum.
Þeir, sem málum eru kunn-
ugir, telja þetta benda til þess
að hægristjórnin sé nú reiðu-
búin til stjórnarsamstarfs við
vinstrimenn.