Morgunblaðið - 19.02.1961, Side 12
12
MORGVNBLAÐlh
Sunnudagur 19. febr. 1961
wgttttMðMfr
Utg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
' Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðabtræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
CÖÐIR VEGIR ERU ÞJÓÐAR-
NAUÐSYN
|> jartmar Guðmundsson og
fimm aðrir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa á
yfirstandandi Alþingi flutt
tillögu til þingsályktunar um
endurskoðun á lögum um
vegi. Er í greinargerð henn-
ar vakin athygli á því, að 6
ár séu nú liðin síðan vegalög
hafa verið opnuð, eins og það
er kallað. Hins vegar liggja
fyrir Alþingi og hafa legið
undanfarin ár fjöldi breyt-
ingatillagna við vegalögin,
sem allar g&nga í þá átt að
faera þjóðvegakerfið út frá
því sem nú er.
í greinargerð tillögunnar
er m. a. komizt að orði á
þessa leið:
„Eins og nú hagar háttum
manna er sæmilegt akvega-
samband lífsnauðsyn hverju
byggðu bóli. Margir eldri
vegir, þótt sæmilegir þættu
á sínum tíma, þurfa endur-
bóta við, jafnvel endurbygg-
inga. Aðkallandi verkefni
blasa við hvarvetna. Aðstaða
landsmanna hvað samgöngur
varðar, er mjög misjöfn eftir
því, hvar þeir eru búsettir.
I>ann aðstöðumun verður að
jafna eftir föngum, jafnhliða
því að eldri vegir verða end-
urbættir smátt og smátt“.
Þessi ummæli flutnings-
manna hafa vissulega við
fyllstu rök að styðjast. Ak-
vegir um landið allt og ak-
vegasamband við alla lands-
hluta er frumskilyrði þess að
haldið verði uppi framleiðslu
störfum um land allt og
gæði landsins hagnýtt eins
og efni standa til.
En ísland er stórt og þjóð-
in fámenn. Þess vegna er til-
tölulega mjög dýrt að leggja
vegi um þetta stóra og strjál-
býla land. En í þessum efn-
um hefur mikið áunnizt á
undanförnum árum. Þó brest
ur mikið á það að allir lands
hlutar geti talizt í sæmilegu
akvegasambandi við megin-
akvegakerfi landsins.
Þau verkefni, sem nú
blasa við á sviði vegamál-
anna eru fyrst og fremst
þessi:
Skapa þarf fullkomið ak-
vegasamband við þá lands-
hluta, sem ennþá eru verst
settir í þessum efnum.
í öðru lagi þarf að endur-
bæta marga eldri vegi, og
ekki hvað sízt þá sem mest
umferð er um og liggja um
fjölbýlustu hluta landsins.
Þegar að slíkum endurbót-
um kemur, er æskilegt að
geta hafizt handa um steypu
eða malbikun fjölförnustu
veganna. Eru þegar uppi
ráðagerðir um steypu fjöl-
förnustu veganna í nágrenni
höfuðborgarinnar.
En til þess að unnt sé að
vinna markvisst að nauðsyn-
legum umbótum í vegamál-
um þjóðarinnar, þarf mjög
aukið fjármagn til vegagerða.
Hinsvegar blæs ekki byrlega
í þeim efnum. Vega- og
brúagerðum eru því miður,
eins og svo mörgum nauð-
synlegum framkvæmdum í
landinu, settar þröngar skorð
ur af hinni naumu fjárhags-
getu þjóðarinnar. Eðlilegt
virðist, að að því sé stefnt að
meginhluti bensínskattsins
verði notaður til samgöngu-
bóta í landinu. í bili lítur þó
út fyrir að ríkissjóður geti
ekki misst af þessum tekju-
stofni.
Vonandi verður tillaga
Bjartmars Guðmundssonar
og félaga hans um endur-
skoðun vegalaganna sam-
þykkt og síðan lokið endur-
skoðun laganna á næsta
þingi. Er þá æskilegt að tek-
in verði upp í vegalög
ákvæði, eins og bent er á í
greinargerð tillögunnar, sem
tryggja þjóðvegakerfinu fast-
ar tekjur og aukin fjárráð,
miðað við það sem verið
hefur. Góðar samgöngur eru
ekki aðeins lífsnauðsyn
strjálbýlisins. Þær eru engu
síður nauðsyn fyrir þéttbýl-
ið, sem hefur margvísleg og
nauðsynleg viðskipti við
framleiðslubyggðalögin úti
um allt land.
ÞEIR BERA
ÁBYRGÐINA
11/| eginhluti línuvertíð-
ar Vestmannaeyinga er
liðinn hjá án þess að þeir
hafi komizt á sjó. Kommún-
istar og fylgilið þeirra hafa
haft forystu um allsherjar-
verkfall í Vestmannaeyjum,
sem hindrað hefur alla fram-
leiðslustarfsemi þar um há-
bjargræðistímann.
Það sætir vissulega engri
furðu, þótt tekið sé að
þreingjast í búi hjá ýmsum,
bæði sjómönnum og land-
verkafólki í Vestmannaeyj-
um um þessar mundir. Þetta
mikla athafnabyggðalag hef-
ur verið lamað vegna árása
kommúnista á bjargræðisvegi
þess.
Það eru kommúnistar og
Framsóknarmenn, sem bera
alla ábyrgð á því tjóni, sem
Vestmannaeyingar og þjóðar
Ný kenning um myndun
alheimsins við sprengingu
Próf. Ryle telur öll sólkerfi mynd
uð úr einu risatómi
S E X vísindamenn í Bret-
landi hafa borið fram nýja
kenningu um það, hvernig
alheimurinn hafi orðið til. —
Þeir halda því fram að sól-
kerfin hafi myndazt úr einu
gríðarlega stóru atómi, sem
hafi sprungið fyrir 10 millj-
örðum ára. — Þeir telja að
áhrifanna frá þessari spreng-
ingu gæti enn og muni
búið hafa þegar orðið fyrir
af verkföllum þar nú eftir
áramótin. Takmark þessara
verkfalla er ekki að bæta
kjör almennings í Vest-
mannaeyjum, heldur að
hrinda af stað nýrri verð-
bólguskriðu og eyðileggja
þar með árangur þeirra mik-
ilvægu viðreisnarráðstafana,
sem gerðar hafa verið til
þess að reisa íslenzkt efna-
hagslíf úr þeim rústum, sem
úrræðaleysi og upplausnar-
stefna vinstri stjórnarinnar
skapaði. Það er vissulega
kaldhæðni örlaganna að
mennirnir, sem höfðu for-
ystu í vinstri stjórninni og
öllu komu út á yztu þröm
skulu nú leggja höfuðkapp á
að eyðileggja þær raunhæfu
viðreisnarráðstafanir, sem
núverandi stjórn hefur gert.
SKRÍLMENNSKA
F'rá því var skýrt nýlega hér
* í blaðinu, að Strætisvagn-
ar Reykjavíkur hafi orðið að
kosta tugum þús. kr. til við-
halds farþegaskýlanna, vegna
þess, hve umgengni er slæm
um þau. Er nú svo komið, að
í athugun er að flytja skýli
í burtu af nokkrum biðstöðv-
um, þar sem þau eru meira
og minna skemmd, nærri því
um leið og lagfæring hefur
farið fram.
íslendingar vilja láta telja
sig í hópi mestu menningar-
þjóða, en menningin er ekki
aðeins fólgin í því að kunna
að lesa og skrifa, og hafa
áhuga á fögrum listum. —
Fólk verður líka að haga sér
eins og siðaðir menn. — Á
þennan þátt menningarinnar
skortir verulega hér á landi,
og þyrftu skólarnir, einkum
barna- og unglingaskólar, að
taka það til rækilegrar at-
hugunar.
Þjóðinni hefur að nokkru
leyti farið fram á þessu sviði
að undanförnu, og oft er um
fámennan hóp að ræða, sem
spjöllum veldur. — En hinir
mörgu gjalda hinna fáu,
eins og sést á því, ef taka
þarf niður strætisvagnabið-
skýli vegn ómenningarbrags
nokkurs hluta borgaranna.
krafturinn frá henni haldast
í minnsta kosti 100 milljarða
ára enn.
Kenningar vísindamann-
anna styðjast við rannsóknir
og mælingar gerðar frá risa-
stórri radíóstjörnuathugunar-
stöð við Cambridge, sem er
svo öflug, að hægt hefur
verið að gera mælingar á
svonefndum radíó-stjörnum
í þriggja og allt upp í 8
milljarða Ijósára fjarlægð
frá jörðu. Stjörnur þessar
sjást ekki í neinum stjörnu-
kíki, en hins végar tókst vís-
indamönnunum að nema
radíómerki frá þeim.
Eftir níu ára rannsóknarstarf
þykjast vísindamennirnir geta
sagt með nokkurri vissu, að al-
heimurinn hafi, eins og fyrr
segir, myndazt við eina feikn-
lega sprengingu — eins konar
atómsprengingu — og síðan það
gerðist hafi allar stjörnur, sól-
kerfi og vetrarbrautir geimsins
þotið með ógnarhraða út frá
miðju þessarar sprengingar.
Sprengikrafturinn er enn að
verki, en smám saman dregur
úr honum — og líður að heims-
endi. Hann verður, þegar allt
er staðnað í geimnum, að áliti
vísindamannanna. En 100
milljarðar ára er býsna langur
tími, svo að við, sem nú lifum,
ættum ekki að láta bugast af
áhyggjum við þessa nýju heims-
endisspá.
Langar deilur
Forystumaður þessa hóps vís-
indamanna er prófessor Martin
Ryle í Cambridge, 42 ára gam-
al! — viðurkenndur vísindamað-
ur. — Hann gerði nýlega grein
fyrir kenningunni og rannsókn-
arstarfinu sem að baki liggur, á
fundi í konunglegu stjarnfræði-
stofnuninni í Lundúnum.
Um langt skeið hafa staðið
yfir deilur milli eðlisfræðinga
og stjarnfræðinga um það,
hvemig heimurinn hafi skap-
azt. Hafa sumir verið þeirrar
skoðunar, að hann hafi myndazt
smámsaman, eða alltaf verið til,
Próf. Martin Ryle — 9 ára
rannsóknir.
— og muni standa um alla
framtíð. Aðrir hafa haldið því
fram, að hann hafi myndazt
skyndilega. Þótt rannsóknir
Ryles og félaga hans sé enginn
endanlegur dómur í málinu
hafa þær mjög styrkt aðstöðu
þeirra sem álíti að heimurinn
hafi myndazt skyndilega.
1 hópi hinna fyrmefndu er
m. a. annar kunnur Cambridge-
prófessor, Fred Hoyle, sem fyrir
13 árum setti fram kenningu
sína um „varanlegt ástand al-
heimsins“ — þ. e. að hann sé
óumbreytanlegur og eilífur. —-
Hann sagði m. a. um kenningar
starfsbróður síns, að enda þótt
hann væri mjög vantrúaður,
þættu sér niðurstöður Ryles
mjög athyglisverðar. Kvaðst
hann ekki vilja segja neitt
ákveðið um þær fyrr en hann
hefði haft tækifæri til að kynna
sér þær til fulls og gera eigin
athuganir á grundvelli þeirra.
Fleiri frægir stjörnufræðingar
hafa tekið svipaða afstöðu.
„Gat“ í miðju geimsins
Eins og fyrr segir, byggja
Ryle prófessor og félagar hans
niðurstöður sínar á mælingum
radíóstjarna óravegu úti í
geimnum. Þeir mældu og „kort.
Framih. á bls. 23
V'f'iHHtHfi
- :i‘ iL
W//0
Fimm hinna sex brezku vísindamanna, sem telja sig hafa
leyst gátuna um myndun alheimsins. Frá vinstri: Paul
Scott, dr. Graham Smith, próf. Martin Ryle, Rupert
Clarke og dr. Anthony Hewish. — Auk þessara manna,
starfaði 25 ára gömul stúlka að rannsóknunmn, eu hún
hefur ekki verið nafngreind í fréttum.