Morgunblaðið - 19.02.1961, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. febr. 1961
*'
„Mosfellsheiði".
Sýníng Kjarvals
hvergi gefa eftir, þvi er hann en virðast í fljótu bragði hvorki
I. O. G. T.
Víkingur.
Farið verður í heimsókn til
St. Morgunstjarnan í Hafnar-
firði annað kvöld.
Félagar fjölmennið og mætið við
Góðtemplarahúsið kl. 8,15 stund
víslega.
Hafnarfjörður.
St. Morgunstjarnan no. 11.
Munið fundinn annað kvöld.
St. Víkingur heimsækir.
Templarar fjölmennið.
ÆT.
Barnastúlkan Jólagjöf nr. 102.
Fundur í dag kl. 3. Kvikmynda
sýning o. fl.
Ath. breyttan fundartíma.
Gæzlumaður.
Barnastúlkan Æskan nr. 1
heldur fund í G.T.-ihúsinu kl.
2 í dag.
Leikþáttur.
Nefndu lagið. — Verðlaun.
Spurningaþáttur. — Verðlaun.
Litm yndasýn in g frá síðasta
grímudansleik.
Tekin ákvörðun um næsta grímu
dansleik.,
Gæzlumenn.
St. Dröfn nr. 55
Fundur annað kvöld. Félagsvist
Æ. T.
Félagslíl
Víkingur knattspyrnudeild
4. og 5. flokkur
Fjöltefli verður í félagsheim-
ilinu kl. 3 á sunnudag. Munið að
taka með ykkur töfl. Kvikmynda
sýning á eftir. Fjölmennið.
Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnudeild.
4. og 5. flokkur. Munið æfing-
rnar í dag. Skemmtifundur í Fé-
lagsheimilinu kl. 3.
Stjómin.
Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnudeild.
Meistara- I. og II. flokkur.
Fjölmennið á útiæfinguna í dag
kl. 10.
Mætið tímanlega og notið góða
veðrið.
Stjómin.
Knattspyrnufélagið Fram 3. fl.
Áríðandi æfing á Framvellin
um sunnudaginn 19. febr. kl.
1045. Mætið hlýlega klæddir.
Knattspymufélagið Fram 4. fl.
Áríðandi æfing á Framvellin
um sunnudaginn 19. febr. kl.
9,45. Mætið hlýlega klæddir.
Knattspymufélagið Fram 5. fl.
Æfing verður í Valsheimilinu
sunnudagirvn 19. febr. kl. 2,40. —
Mætið vel og stundvíslega.
Samkomur
Hjálpræðisherinn.
Sunndaginn kl. 11. Helgunar-
samkoma, kl. 14: Sunnudaga-
skóli, kl. 16: Almenn samkoma
kl. 18: Bamasamkoma, kl. 20,30:
Samkoma í Dómkirkjunni, kl.
22,15: Samkoma í Hersalnum. —
Cand. theol, Erling Moe og söng
prédikarinn Thorvald Fröytland
tala og syngja. Þátttaka foringja
og hermanna.
Mánudaginn kl. 16: Heimila-
samband. /
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins
Sunnudagur — Austurgötu 6
Hafnarfirði kl. 10 fjh. Hörgs-
hiíð 12, Hvík. — Bamasamkoma
kl. 4 Litskuggamyndir). Sam-
koma kl, 8,
Fíladelfía.
Sunnudagaskóli kl. 10,30 á
sama tíma að Herjólfsgötu 8
Hafnarfirði. Bænastund kl. 4.
Almenn samkoma kl. 8,30. Ræðu
menn: Haraldur Guðjónsson og
Garðar Ragnarsson.
Allir velkomnir.
Bræðraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1. Almenn
samkoma kl 8,30. Allir velkomn
ir. —
ÞAÐ er gestkvæmt í Lista-
mannaskálanum þessa dagana.
Engin furða. Jóhannes Sveins-
son Kjarval er þar á ferð með
sýningu á nýjum verkum, sem
ekki hafa áður komið fyrir al-
mennings sjónir. Megnið af
óeim verkum er meistari Kjar-
val sýnir að sinni hefur hann
unnið síðustu ár, en einstaka
málverk er frá eldri tíma. Það
er ætíð mikill viðburður í lista-
lífi Reykjavíkur, þegar Kjarval
heldur sýningu, og þótt hann
hafi alveg nýlega átt 75 ára
merkisdag, verður ekki séð á
þesari sýningu, að aldur skipti
nokkru máli fyrir þennan ein-
staka listamann. Hann er langt
frá því að losa hald á penslinum,
og sum þeirra verka, er hann
hefur nýlokið við, eru með því
bezta, er hann hefur gert.
Um mosa og hraunmyndir
Kjarvals er óbarft að spjalla.
Hann hefur ekki yfirgefið þetta
viðfangsefni sitt. Nú sýnir hann
nokkrar slíkar myndir, sem
hefur áður gert, jafnvel freist-
i ast maður til að halda því fram,
að hann hafi ekki áður verið
eins tilþrifaríkur í mosa og
hraunum og nú. Kjarval kann
þá list að láta gróður, smásteina
og heljarbjörg spila saman á
léreftinu, eins og honum þókn-
ast, og notfærir sér ótal tilbrigði,
er hann sér í landi og ljósi.
Eitt eftirtektarverðasta verk
þessar sýningar er samt ekki
mosamynd eða hraunmynd, að
mínu áliti, heldur málverkið,
sem er númer 4, og heitir
„Mosfellsheiði". Þar hefur Kjar-
val tekizt óvenju vel að færa
íslenzkt Fjall á léreft. Þetta
verk er málað af miklum eld-
móð og sterkum tilfinningum.
Listamaðurinn hefur fyrir fram-
an sig heldur algenga fyrir-
mynd, sem honum tekst að
hemja á léreftinu samkvæmt
þeim lögmálum, er hann sjálfur
setur. Litirnir í þessu verki eru
margslungnir og áhrifamiklir,
aðlaðandi né skáldlegir. Kjarval
hefur náð í þessu verki að yrkja
út frá fyrirmynd sinni á ein-
faldan en samt óvenju slunginn
og grípandi hátt. Það er engu
líkara en hann hafi málað þessa
mynd með sjálfu fjallinu, ef svo
má að orði kveða. Pensilförin
eru ákveðin, sterk og skapmikil,
og það er sterkur persónuleiki
falinn að baki þessu magnaða
verki. Málarinn skapár hér
heim, sem er nátengdur sálar-
lífi hans sjálfs, en samt innan
þess ramma, er léreftið sjálft og
fyrirmyndin markar. Þetta verk
er nátengt að eðli einni af beztu
myndum Kjarvals, „Skagastrand
armálverkinu", sem margir
muna frá yfirlitssýningu á verk-
um listamannsins, er haldin var
í Listasafni ríkisins fyrir fimm
árum, er Kjarval varð sjötugur.
Það er ekkert verk á þessari
sýningu, sem nær eins sterkum
tökum á þeim er línur þessar
ritar. Það hefur lengi verið grun
ur minn, að Kjarval leggi meir
frá eigin brjósti í beztu verk
sín en hann sjálfur vill stundum
viðurkenna. Hvað um það, hér
er listaverk, sem vel gæti borið
nafnið „Sannsögli úr stæði“,
ekki síður en það málverk, sem
nefnt er svo á sýningunni.
Annar sá þáttur sýningar
Kjarvals, sem einna mest vekur
athygli mína, eru þau verk, er
Árni Guðjónsson
hæstaréttarlöqmaður
Garðastræti 17
Kennsla
Læriff ensku í Englandi
á mjög hagkvaáman hátt og á
sem stytztum tíma að
The Regency
. . . á eina sameiginlega mála-
skólanum og hótelinu við sjávar-
ströndina (100 herbergi). Fá-
mennum bekkjum kennt af Ox-
ford-kandidötum. Mikil einka-
kennsla tryggir góðan árangur.
Ekkert aldurstakmark. Starfar
allt árið. Frá 10 £ á viku, allt
innifalið.
The Regency
Ramsgate, England
Látið dætur yffar læra aff sauma
5 og 6 mánaða námskeið byrja
4. maí og 4. nóv. Sækið um ríkis-
styrk. — Atvinnumenntun. —
Kennaramenntun tvö ár. — Biðj-
ið um skólaskrá. 4ra mánaða
námskeið 4. jan., 3ja mánaða 4.
ágúst. G. Hargböl Hansen. Simi
Tlf. 851084. — Sy og Tilskærer-
skolen, Nyköbing F, Danmark.
hann málar af giljum og þá
einnig þær myndir, þar sem
hann tekur lítinn hluta um-
hverfisins og byggir úr því á
léreftinu. Ég man ekki eftir að
hafa séð eins greinilega og nú,
hvað listamaðurinn er að fara á
þessu sviði. Sem dæmi má nefna
málverkin „Hvíthamrar“ og
„Sannsögli úr stæði“. í báðum
þessum verkum spilar Kjarval
á einkennilega mjúkan og að-
laðandi litastiga, og honum
tekst að gæða þessi verk ein-
hverjum tÖfrum, sem eru ofnir
fyrst og fremst á léreftinu
sjálfu. Það er bygging litar of
forms, sem honum liggur á
hjarta, er hann gerir þessi mál-
verk, og maður hugsar hvorki
um stað né stund, er þessi verk
eru skoðuð. f þessum flokki má
einni" nefna málverkin „Upsin“
og „Úr Borgarfirði eystra", hið
síðarnefnda er mjög sérkenni-
legt og eftirtektarvert verk. ■ j
Það yrði of langt mál að fjalla
hér um hvert einstakt verk þess
arar sýningar, og skal því stikl-
að á stóru. Ein blómamynd skal
nefnd, og ber hún heitið „Blóm
og bókmenntir". Það er mikið
málverk í þessari mynd, og það
mætti segja mér, að hér sé að
finna eina af beztu blómamynd-
um, sem Kjarval hefur málað.
Af teikningum vel ég mynd-
ina af Ólafi á Hellulandi. Þar
er gott dæmi um hvernig Kjar-
val teiknar sterka, svarta línu,
áhrifamikla og einfalda i senn.
„Stúlka með fisk“ er einnig
eftirtektarverð teikning, gerð f
ferskum og spilandi línum, og
hefur þann svip, að ehginn get-
ur hafa lagt þar hönd á nema
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
„Úr spádómsbók" heitir eitt
af þeim verkum, er listamaður-
inn málar frá hugmyndaheimi,
sem maður kannast við frá
hendi Kjarvals. Þetta er fagurt
verk, unnið 1 mjúkum sam-
rímdum tónum, og er gott sýn-
ishorn af þeim þætti í list Kjar-
vals, sem ekki er hvað minnst
forvitnilegur.
Eins og fyrr segir, er hér
stiklað á stóru og hef ég valið
þann kost að nefna eingöngu
það, er mest áhrif hefur haft á
mig af þessum verkum Kjar-
vals. Það eru að vísu sum verk
á þessari sýningu, sem mér
finnast ekki falla vel inn í heild-
arsvip sjálfrar sýningarinnar, og
ég er ekki alveg ánægður með
frágang og upphengingu sýíl-
ingarinnar í heild. En hvað um
bað, Kjarval er ekki við eina
fjölina felldur og hann er sí-
ungur og merkilega afkastamik-
ill í list sinni. Hann hefur sjálf-
ur af miklu að taka og það er
engu líkara en hann hafi stund-
um ekki undan sínum eigin hug-
myndaheimi. í þessari sýningu
Kjarvals liggur ótrúlega mikil
vinna. Kjarval er einn þeirra
manna, er lifir og hrærist í lisfc
sinni og vinnu, hann er ekki að-
eins hluti af listaverkinu, held-
ur er hann það allt. Það má
ekkj milli sjá, hvort er sterkara
landið sjálft eða listamaðurinn.
Ekki get ég að því gert, að allt-
af finnst mér Kjarval komast
lengst i verkum sínum, er hann
hefur gert af íslenzkri náttúru.
Mosinn, hraunin, fjöllin og blóm
in allt eru þetta sterkir þættir
í list Kjarvals. Hann er sérstæð-
ur landslagsmálari, sem hefur
náð feikna árangri.
Aðsóknin að sýningu Kjarvals
sýnir vel, hverjum vinsældum
hann á að fagna meðal almenn-
ings. Kjarval hefur verið vin-
samlegur við okkur öll samtíðar
fólkið, að halda þessa sýningu
og lofa okkur að sjá árangur
síðustu ára. Kerling Elli á enga
samleið með Jóhannesi Sveins-
syni Kjarval. Hann er í þvl
hjónabandi eins og fleiru bæði
einþykkur og fylginn sér, fer
sínar eigin leiðir og lætur kellu
sitja eftir eina og yfirgefnr
Svona eiga málarar að vera.
Valtýr Pétursson.
N
&
HOTEL BORG
Eftirmiðdagsmúsík
frá kl. 3,30.
Kvöldverðarmúsík
frá kl. 7,30.
Dansmúsík
Björn K. Einarssonar
ásamt hinni vinsælu söngkonu VALERIE SHANE
frá kl. 9.
Kynnið ykkur matarkosti í síma 11440.
Samvinnutryggingar
vilja ráða nú þegar nokkra duglega tryggingarmenn
í Reykjavík og nágrenni. Þeir sem hafa áhuga og
getu til slíkra starfa, sendi nöfn sín og helztu
upplýsingar í pósthólf 969 fyrir 25. febrúar merkt:
„Tómstundavinna".
SAIHVINNtTRYGGINGAR