Morgunblaðið - 04.03.1961, Síða 1
20 siður
Vorum ekki í rússneskri lofthelgi
segja bandarísku flugmennirnir af RB-47 vélinni
Hvað eftir annað færðu þeir
okkur yfirlýsingar, sem við
áttum að skrifa undir
Topeka, 3. marz — (NTB-Reuter).
BANDARÍSKU flugmennirnir tveir, John Mackone og Freeman
Olmstead, sem fyrir skömmu voru látnir lausir úr fangelsi i So-
vétríkjunum og sendir heim, sögðu á fundi með fréttamönnum
i kvöld, að flugvél þeirra af gerðinni RB-47, sem skotin
var niður 1. júlí sl. yfir Barentshafi hefði ekki verið yfir
rússnesku yfirráðasvæði.
Á fundinum, sem haldinn var í Forbes flugstöðinni í Kansas,
sögðu fiugmennirnir að þeir hefðu svarað skotárás sovézku orr-
ustuflugvélarinnar er skaut vél þeirra niður.
Flugmennirnir tveir voru látnir lausir 25. janúar sl., eftir nær
sjö mánaða dvöl í fangelsi i Sovétríkjunum og þetta er í fyrsta
sinn eftir heimkomuna, að þeir skýra opinberlega frá tildrögum
þessa umdeilda atburðar.
Þess má geta, að Moskvu útvarpið skýrði frá þvi 11. júli sl.
að bandarísk könnunarflugvél hefði verið skotin niður yfir
Barentshafi — yfir rússnesku yfirráðasvæði — 1. júlí. Þá voru
liðnir tíu dagar frá því tilkynnt var, að vélarinnar væri saknað
og víðtæk leit stóð yfir alla þá daga. 1 leitinni tók þátt rúss-
neskt skip, að sögn Moskvu útvarpsins, en aldrei heyrðist neitt
frá því skipi.
Ekki er annað vitað en þessir tveir menn séu hinir einu sem
eftir lifa aí sex mánna áhöfn flugvélarinnar. Stjórn Sovétrikj-
ann hefur afhent eitt lík en kveðst ekki hafa fundið hina þrjá.
Flugmennirnir skýrðu frá því,
að RB-47 hefði lagt upp frá Brize
í Norður Englandi 1. júlí og flog-
ið eftir fyrir fram gerðum upp-
drætti. Ferðinni var heitið norð-
ur — og norðaustur af Englandi
— en síðan yfir svæði, sem ekki
var nær Rússlandi en 80 kíló-
metra,
Um það bil fimm klst. eftir
eð þeir lögðu af stað, kom í ljós
rússnesk orrustuflugvél, nokk-
ur þúsund fetum fyrir ofan og
cftan bandarísku flugvélina, sem
flaug í um það bil 30 þúsund feta
bæð, eða um 9,150 metra yfir
Barentghafi.
Olmstead, sem er 25 ára, var
ennar flugmaður vélarinnar, en
Mckone, sem er 28 ára, var loft-
eiglingafrœðingur. I>eir segjast
ekki vita hvað hafi komið fyrir
þá þrjá, sem enn ex saknað.
Þeir segjast hafa fylgt stefnu,
eamsíða strandlínu Rússlands.
Sovéska orrustuvélin flaug í átt
ina til bandarísku flugvélarinnar
Vel heppnað
„geimskot"
Canaveralhöfða, 3. marz
(NTB-Reuter)
BANDARÍKJAMENN skutu í
dag á loft frá Canaveralhöfða
eldflaug aF gerðinni „Blue
Scout“. Eldflaugin fór í tvö
þúsund kílómetra fjarlægð og
ferðin tók 40 mínútur. Flaugin
kom niður á tilætluðum stað.
Eldflaugin var 23 metrar að
Iengd, hafði meðferðis ýmis
tæbi svo sem radiostjörnukíki
og sneið af mannshúð. Tilgang
ur tilraunarinnar, sem tókst
prýðilega, var að kanna þá
geislunar hættu, sem bíður
manna sem sendir verða út í
geiminn.
en hvarf svo. Þá tóku þeir radío-
miðun og komust að raun um,
að þeir voru á réttri leið. Loft-
siglingatækin voru í fullkomnu
lagi.
Rétt áður en við ætluðum
að sveigja í norður, sögðu flug
mennirnir, sáum við sovétska
MIG orrusnUiþotu nálgast á
hægri væng. Þegar við byrj-
uðum að sveigja, flaug þotan
bak við okikur og hóf skot-
hríð. Við svöruðum skothrið-
inni. Þá tókum við eftir
glampa í hríðskotabyssu orr-
ustuvélarinnar og sáum brátt
að þeir höfðu hitt í mótor nr.
tvö og þrjú svo og vinstri
væng vélar okkar. Það byrjaði
að loga í mótorunum og við
misstum stjórn á vélinni.
Major Palm gaf allri áhöfn-
inni aðvörun um, að við kynn
um að verða að stökkva út.
Og þar sem ekki tókst að ná
valdi á vélinni aftur, var gef-
in skipun um að stökikva út
i fallhlíf.
Framh. á bls. 19.
John R. McKone
Freeman B. Olmstead
Vfirmenn á togurum i Hull
Hótalöndunarbanni
Flutningaverkamenn styðja ekki
slíkt bann
Eirikaskeyti til Mbl. frá HuU
Englandi, 3. marz —
SAMTÖK yfirmanna á tog-
urum í Hull báru í dag fram
þá kröfu, að trygging yrði
fengin fyrir því, að íslend-
ingar færðu ekki frekar út
Reiðubúinn oð fljúga
hvert sem er —
Moskva, 3. marz (Reuter-NTB)
LIEWELLYN Thompson, sendi-
herra Bandaríkjanna í Rússlandi,
skýrði frá því í dag, að hann hefði
tjáð rússnesku stjórninni, að
hann vildi sem fyrst nú fundi
Krúsjeffs forsætisráðherra, til
þess að flytja honum hina per-
sónulegu orðsendingu Kennedys,
Bandaríkjaforseta. Kvaðst hann
vera reiðubúinn að fljúga hvert
sem væri og hvenær sem væri,
til fundar við forsætisráðherrann.
Thompson, skýrði fréttamönn-
um frá þessu í Moskvu í dag og
sagðist hafa átt fund með Gromy-
ko í gær um þetta og önnur mál,
sem hann kvaðst ekki geta skýrt
frá að svo stöddu. Hefði honum
Framh. á bls. 19.
fiskveiðilandhelgi sína, þegar
12 mílna mörkin hefðu geng-
ið í gildi eftir þrjú ár. Segja
þeir, að verði þeim ekki
veitt slík trygging muni þeir
koma á löndunarbanni á ís-
lenzkan fisk í Bretlandi.
Rohert, formaður Hull-
deildar samhands flutninga-
verkamanna segir, að sam-
tökin muni ekki styðja vinnu
stöðvun, sem gerð verði til
þess að hindra landanir á
íslenzkum fiski. Hann sagði
að þótt félagsmönnum sín-
um mislíkaði mjög skilmálar
þeir, sem gengið væri að með
samkomulaginu í fiskveiði-
deilunni, yrðu þeir þó að sam
þykkja þá. Væri nú undir
hverjum og einum starf-
manni innan fiskiðnaðarins
komið að tækist að vinna
að farsælum framgangi máls
ins.
Skrifstofa
B-listans
í Iðju
Kosningaskrifstofa B-list-
ans við stjórnarkjörið í
IÐJU er í Verzlunarmanna
félagshúsinu V.R.), Von-
arstræti 4, þriðju hæð.
Símar: 10-6-50 og 18-5-66.
Viðtal við formann Iðju, Guðjón Sv. Sigurðsson
IVIeð kjarabótum, móti verkföllum
stefna hefur reynzt Iðju vel
Kommúnistar vilja verkfall nu
I DAG hefjast stjórnarkosningar
í Iðju. Eins og kunnugt er, hafa
lýðræðissinnar haft stjórn félags
ins xneð höndum síðan 1957, en
þá var félagið komið í öldudal
undir stjórn Björns Bjarnasonar
og kommúnistafélaga hans.
Launasamningar félagsins voru
þá verri en nokkurs annars verka
lýðsfélags í landinu, enda hugs-
aði stjórnin einungis um pólitísk
an ábata af verkum sínum, með
an hagsmunamálin sátu á hakan-
um. Iðnverkafólki var att út i
verkföll, sem urðu beinlínis til
að rýra kjör þess Endalok komm
únistastjórnarinnar voru með
slíkum ósköpum, að einsdæmi
er í sögu islenzkrar verkalýðs-
hreyfingar, sem betur fer. Sök
Bjöms í því máli var mikil, eins
og lýðræðissinnar sýndu þá fram
á. Bjöm lézt saklaus, þótt sann-
anir lægju á borði, og höfðaði
meiðyrðamál. Tapaði hann því,
og er það í eina skiptið í íslenzkri
réttarsögu, sem málshefjandi
slíks máls tapar því.
Björn að baki kvenna
Björn hefur engu að síður ver-
ið í efsta sæti kommúnista und-
anfarin ár, en nú hafa þeir loks-
ins gefizt upp á því að bjóða
þennan ólánsmann íslenzkrar
verkalýðssögu fram í því sæti. Nú
liggur nefnilega mikið við, og því
þykir vænlegra að hafa tvær
stúlkur fyrir ofan þann, sem raun
verulega á að stjórna, ef komm-
únistar yrðu ofan á. Stúlkurnar
eru báðar algerlega reynslulaus-
ar í félagsmálum, eins og þær
hafa reyndar viðurkennt, en
Björn að baki kvenna á að leggja
ráðin. Hann kann ekki nema ein
ráð: Æsa til pólitísks verkfalls,
þótt þau skaði launþega.
Blaðinu þótti hlýða að spyrja
formann Iðju, Guðjón Sv. Sig-
urðsson ,sem verið hefur formað
ur síðan 1957 nokkurra spurn-
inga í tilefni kosninganna.
Framh. á bls. 9.