Morgunblaðið - 04.03.1961, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. marz 1961
MORGVISBL AÐIÐ
9
ANNAÐ kvöld verður 10. orðið mjög vinsælir á hinum
sýnlng á leikritinu „Þjónar Norðurlöndunum. Sýningin í
drottins“ í Þjóðleikhúsinu. Þjóðleikhúsinu hefur hlotið
Ekkert leikrit hefur verið ágæta dóma fyrir góða leik-
sýnt jafn oft í þjóðleikhúsi stjórn og túlkun á hlutvcrk-
Norðmanna á síðari árum. unum.
Leikurinn var sýndur þar 68 Myndin er af Val Gíslasyni
sinnum á sama leikárinu. og Önnu Guðmundsdóttur í
„Þjónar drottins“ hafa einnig hlutverkum biskupshjónanna.
Námskeið í amerískum
bókmennfum
- IÐJA
Frh. af bls. 1
Flokksvél Framsóknar
— Sú saga hefur gengið um
bæinn, að kommúnistar hafi
aldrei lagt annað eins ofurkapp
og nú á að ná Iðju. Hvað segir
þú um það?
•— Það er hverju orði sannara.
Æskulýðsfylkingin, Sósíalista-
félag Reykjavíkur o. fl. komm_
únistafélög hafa starfað af geysi
legu kappi að undanförnu við að
undirbúa kosningarnar. Þá má
ekki gleyma því, að flokksvél
Framsóknar hefur verið sett í
gang kommúnistum til stuðn-
ings.
•— Láta Framsóknarmenn í
Iðju skipa sér að kjósa Björn og
hans félaga?
— Flokkurinn hefur beitt sér
fyrir mjög náinni samvinnu við
Björn & Co., en allur þorri Fram
sóknarmanna hefur vitanlega
verið því samstarfi mjög mót-
fallinn. Þeir kæra sig ekki um
að efla kommúnista til valda,
þótt flokksforystan skipi þeim
það. Þeim er enn í minni mis_
notkun Björns á félaginu og við-
skilnaður háns við það. Ég þekki
inárgt af félagsþroskuðu og lýð-
ræðissinnuðu Framsóknarfólki í
Iðju, sem myndi aldrei láta hafa
sig að ginningarfíflum kommún-
ista í tækifærissinnaðri verka-
lýðsbaráttu méð pólitískt skaða-
vérkfall í huga.
Kvennakaupið
— Ég sé í viðtali Þjóðviljans
við formannsefni kommúnista,
að það segist einkum ætla að
beita sér fyrir hækkun kvenna-
kaups, enda segir það, að hvergi
vinni fólk fyrir eins lágu kaupi
og í Iðju. Hvernig hefur Iðja
haldið á þessum málum?
— Þessi ummæli eins og
margt annað, t. d. endaleysan
um ákvæðisvinnutaxtana (merki
legt annars, að fylgjandi Björns
Bjarnasonar skyldi leggja út í
að ræða það mál, en konan hef
ur ekki verið nema 3 ár í Iðju
og veit því ekki um meðferð
Björns á þeim málum), sýna vel,
hve lítið kona þessi þekkir til
félagsmála Iðju.
Eins og félagsmenn vita flest-
Ir, var kaup Iðjukvenna hið
lægsta á öllu fslandi, þegar
Björn hrökk úr sessi. Síðan hef
ur mikið unnizt á, tvívegis 6%
Iaunahækkanir, þegar önnur fé
lög fengu engar, og tilfærslur
kvenna til hækkunar milli
flokka. Kaup Iðjukvenna er t. d.
hærra en kaup stúlkna í ASB,
sem kommúnistar ráða. Sama
máli gegnir um starfsstúlkur í
veitingahúsum.
Þegar lýðræðissinnar tóku
við í Iðju, var kaup kvenna 65%
af kaupi karla. Nú er það 76%.
Kjarabætur án verktfalla
— Gerði Björn aldrei neitt
til að rétta kaup og kjör Iðju-
kvenna?
— Nei, tími hans fór allur
1 pólitíska ævintýramennsku
með félagið, því var sigað út
í verkföll, sem sköðuðu Iðjufólk,
enda leit hann fyrst og fremst
á sig sem fulltrúa hins alþjóð-
lega kommúníska verkalýðssam
bands. Hann fór árlega utan á
kostnað félagsins og síðasta ár-
ið til ítaliu, þar sem hann sat
þing kommúnistaflokksins! Nú,
þegar kommúnistum skilst, að
óvinsældir hans eru svo mikl-
ar, að vonlaust er að stilla
honum upp í formannsstól,
er hann falinn bak við tvenn
pils. En Iðjufólk sér við því,
ekki sízt þegar haft er í huga,
hve fáfrótt fólk er í efri sæt-
unum, eins og fram hefur kom-
ið í Þjóðviljanum og á fund-
inum á fimmtudag. Hann á greini
lega að hafa stjórn á þeim.
Nú á að gera tilraun
til að hafa Iðju fyrir
straumbrjót eins og Snót í -Vest-
mannaeyjum, láta Iðju fara í
verkfall, sem félagsmönnum yrði
til tjóns. Við höfum fengið okk-
ar kjarabætur án verkfalls. Það
er sú leið, sem við treystum bezt
og hefur gefizt okkur bezt. -—
Kommúnistar þykjast nú bera
fram sérstakan „kvennalista".
Við höfum haft í stjórn okkar
tvær dugmiklar og ötular konur,
sem njóta trausts allra og hafa
haft mikil áhrif á stjórn félags-
ins. Þær eru enn á lista okkar,
og við höfum engan Björn. Þær
hafa líka langa reynslu af félags-
málum.
Verkföll — Vinstri stjórn —
Verðbólga
— Þú heldur að Björn myndi
leggja út í verkfall, ef hann réði?
— Ég held ekkert um það. Ég
veit það. „Verkföllin herða fólk-
ið“, sagði Björn í Afmælisriti fé-
lagsins. Okkar skoðun er sú, að
verkföll séu algert þrautaúrræði.
Við þekkjum skoðun Björns:
Verkföll, — vinstri stjórn. Við
vitum hvað kemur svo: Verð-
bólga. Það var yfirlýstur vilji fé-
lagsmanna á fundi í janúar, þeg-
ar við lögðum kjarakröfur Iðju
fram, að í engu skyldi rasað um
ráð frarn. Félaginu á ekki að
steypa út í verkföll nema allar
leiðir séu þrautkannaðar. Það var
eftirtektarvert, að Björn fór í
kringum þetta eins og köttur í
kringum heitan graut á fund-
inum síðastliðinn fimmtudag.
Hann þekkir vilja fólksins, og
því sagðist hann ekki myndu
geta ráðið því sem formaður, né
stjórn hans, að lagt yrði út í
verkföll. En hann gætti þess, að
vera nógu loðinn og óákveðinn.
— f öllum verkalýðsfélögum,
sem lýðræðissinnar stjórna, hef-
ur tvímælalaust tekizt að ná
beztu kjarasamningum á íslandi.
Þetta veit verkafólk, að er stað-
reynd, því að ekki þarf annað
en að fylgjast með samningum
félaganna til að sarmfærast um
það. Ástæðan er aðallega sú, að
þessi félög hirða meira um hags
munabaráttuna en pólitiskt
glæfraspil.
Björn stórskemmdi lífeyris-
sjóðinn
— Hvað um lífeyrissjóðinn?
— Sú sorgarsaga er öllum
Iðjufélögum kunn, og nú er svo
komið, að margir kommúnistar
blygðast sín, þegar þeir minnast
þess, hvernig Björn eyðilagði
sjóðinn að mestu, annað hvort
af ást á atvinnurekendum, sem
hafa til þessa dags grætt 7—8
milljónir á skemmdarstarfsemi
Bjöms, eða þá af einskærri öf_
und í garð núverandi stjórnar
fyrir að fá tækifæri til að hrinda
þessu nauðsynjamáli í fram^
kvæmd .
-— Hvað um skipulagsmál?
— Þau voru eitt aðalmál síð-
asta þings ASÍ og hafa einnig
verið rædd hjá Iðju. Hugmyndir
kommúnista um þau eru okkur
j stórhættulég. Þeir vilja helzt
skipta Iðju upp í 5 hluta. Fer
! þá lítið að verða eftir af skraf-
inu um að konur eigi að ráða
því. Kvenfélög, eins. og t- d.
Verkakvennafél. Framsókn, yrðu
notuð til uppfyllingár í stærri
heildum, þar sem kommúnistar
hefðu tögl og hagldir. Skipulags
breytingar kommúnista hér mið
ast auðvitað fyrst og fremst við
væntanlega valdaaðstöðu.
Réttarþjónusta Iðju
— Hefur Iðja ekki rekið réttar
félagsmanna?
— Jú, við sjáum um að inn-
heimta vangoldið kaup og reka
réttar þeirra að öðru leyti, t. d.
vegna uppsagna o. fl. Á síðustu
tveimur árum hefur Iðja inn-
heimt á annað hundrað þús. kr.
af vangoldnu kaupi og gert margt
annað fyrir félaga, sem níðzt hef-
ur verið á. Þetta var með öllu
óþekkt þjónusta í tíð Björns.
Traust beggja
— Formannsefni' kommúnista
fjargviðrast yfir því, að þú njót-
ir trausts atvinnurekenda. Er ein
hver skömm að því?
— Ekki heyrist mér nú allir
atvinnurekendur vera hrifnir af
umskiptunum. Þeir voru vanir
afskiptaleysinu í tíð Björns. Ann
ars er útilokað annað en að unn
ið sé að bættu samkomulagi iðn-
rekenda og iðnverkafólks. Það
er beggja hagur. Það hefur held-
ur aldrei verið talinn ókostur á
manni, ef hann getur unnið sér
traust þess, sem hann þarf að
semja við. Þetta gildir ekki hvað
sízt um jafn mikilvæg og við-
kvæm mál og samningar um
kaup og kjör eru. Ég óska mér
einskis betra en að njóta trausts
bieggja aðila, verkafólksins og
atvinnurekendanna. Með því
móti vinn ég félaginu mest og
bezt gagn.
Dr. David R. Clark, sem í ár
er Fulbright sendikennari við
Háskóla íslands, heldur þetta há
skólamisseri námskeið í Modern
Poetic and Experimental Drama
og annað námskeið í Contempor-
ary Ameriean Literature. Fyrr_
nefnda námskeiðið mun einkum
fjalla um írska skáldið og leik-
ritahöfundin Willian Butler
Yeats. önnur ljóð- og leikrita-
skáld, ensk, amerísk og evópsk,
verða jafnframt tekin til með-
ferðar.
Námskeiðið í amerískum sam-
tíðarbókmenntum fjallar m.a.
um Robert Frost, „aldursforseta“
amerískra skálda; E. E. Cumm-
ings, tilraunaljóð- og leikskáld,
og skáldsagnahöfunda, þ.á.m.
Nóbelsverðlaunaskáldin Emest
Hemingway og Willian Faulkn-
er.
Þeir, sem óska að taka þátt í
leikritanámskeiðinu, eru beðnir
að koma til viðtals mánudaginn
6. marz kl. 8,15 e.h. í IX.
kennslustofu háskólans.
Þeir, sem taka vilja þátt í nám
skeiðinu í samtíðarbókmenntum
amerískum, eru beðnir að koma
til viðtals miðvikudag. 8. marz
kl. 8,15 e.h., einnig í IX. kennslu
stofu (uppi til hægri þegar kom
ið inri um aðaldyr).
Dr. Clark er Associate Profess
Or í ensku við Háskólann í
Massachusetts í Amherst, Massa
chusetts. Hann hefir M.A. próf
og doktorspróf frá Yale háskóla.
Kvæði og greinar eftir hann hafa
birzt í The Kenyon Review,
Threshold, Transatlantic Review
IVEinnisblað
um kjarabardttu núverandi Iðjustjórnar
1957
1. Þá var samið um 6% grunn-
kaupshækkun, á sama tima sem
önnur verkalýðsfélög héldu að
sér höndum og fengu ekkert.
2. Margir launaflokkar voru
lagðir niður og þeir, sem í þeim
voru, færðir upp, þannig að marg
fr fengu stórfellda kauphækkun.
3. Orlof fékkst greitt á eftir-
vinnu og var það nýmæli í samn
ingum verkalýðsfélaga.
4. Mörg önnur atriði voru lag-
færð og færð til betri vegar.
1958
1. Samlð var um 6% almenna
frunnkaupshækkun.
Z. Samiff var um stofnun líf-
eyrissjóðs fyrir iðnverkafólk og
skuldbundu iðnrekendur sig til
að greiða 6% ofan á kaup hvers
og eins einasta Iðjufélaga í sjóðn
um. (Það var þessi sjóður, sem
Björn Bjarnason reyndi að eyði-
leggja og tókst að stórskemma).
3. Samið var um nýjan taxta
fyrir konur, sem unnið hafa 4 ár
á sama stað og jafngildir það
eitt 3.500 króna árlegri kaup-
hækkun.
4. Einnig í þetta skipti náðust
margar aðrar lagfæringar og
breytingar.
Minnisit þess Iðjufélagar, að
öllum þessum kjarabótum náði
núverandi stjórn Iðju ÁN VERK-
FALLS!
Hvítárvellir
í DAG fer fram opinbert uppboð
á jörðinn Hvítárvöllum í Anda-
kílshreppi í Borgarfirði. Er jörð-
in, sem er meðal hinna meiri í
Borgarfirði eign dánarbús Maríu
Sæmundsdóttur, er var síðasti
ábúandi þar. Eru það nánir ætt-
ingjar hennar, sem leitað hafa
til sýslumannsins í Borgarnesi,
um að hann bjóði jörðina upp á
opinberu uppboði. Fer það fram
að Hvítárvöllum í dag kl. 2. Hvít
A F M Æ L I
Kristján Bjartmarz fyrrum
oddviti í Stykkishólmi er 75 ára
í dag.
á uppboði
árvellir er mjög stór jörð, og
landgæði talin mikil. Hún er með
al stærri laxveiðijarða í Borgar-
firði. Stangaveiði er þó engin,
en jörðinni fylgja leyfi fyrir
fimm netalögnum í Hvítá, fyrir
neðan brúna. Gamalt íbúðarhús
er á jörðinni, og útihús. — Þessi
mynd er tekin úr Árbók Ferða-
félagsins. Frægustu nöfn sem
tengd eru Hvítárvöllum eru
„Baróninn á Hvítárvöllum",
Frakkinn Boilleau og svo Hvít-
árvallaskotta sem talin var hafa
valdið bruna þeim að Hvítár-
völlum árið 1751, er varð sjö
manns að bana.
o. fl. Hann á sæti í ritstjórn The
Massachusetts Review.
Sjötugsafmæli
ARI Bergmann Einarsson, Ólafs-
vík verður sjötugur í dag. í
gamla daga var hann sjómaður
á áraskipum og formaður í mörg
ár, og varð brátt formaður á þil-
skipum þegar þau komu til sög-
unnar á Vestfjörðum. Loks lá
svo leið hans á togara og sjó-
mennsku hætti hann 1947. í dag
samfagna ættingjar og vinir
honum á heimili dóttur og tengda
sonar að Eskihlíð 13 hér í bæ.