Morgunblaðið - 04.03.1961, Síða 20
íþróttir eru á bls. 18. ffl01 Ræða fjármálaráðherra Sjá bls. 11.
52. tbl. — Laugardagur 4. marz 1961
Guðjón Sv. Sigurösson
Þorvarður Áki Eiríksson
Ingimundur Erlendsson
Ingibjörg Arnórsdóttir
Jóna Magnúsdóttir
löjukosningin hefst í dag
Steinn Ingi Jóhannesson
Guðmundur Jónsson
Framsóknar-
blaðamennska
í Bretlandi?
í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM talaði einn ritstjóri,
Þórarinn Þórarinsson. Hann sagði, að brezku blöðin
teldu samkomulagið við íslendinga óhagkvæmt Bret-
um, vegna þess að með því ætluðu þau að bæta að-
stöðu brezku stjórnarinnar í framtíðinni. Og orðrétt
segir þessi ritstjóri um málið í ritstjórnargrein gær:
„Bretar miklast ekki af sigri sínum. Þeir láta miklu
fremur eins og þeir hafi tapað. Blöð þeirra eru feng-
in til að skrifa eins og sá, sem hefur orðið undir,
sé sigurvegari".
Þessi ritstjóri heldur því blákalt fram að öll press-
an í Bretlandi sé á mála hjá ríkisstjórninni og falsi
fréttirnar. Engum blaðamanni við nokkurt heiðarlegt
blað gæti dottið í hug að láta sér um munn fara slík
ummæli. Hins vegar er þessi hugsangangur í fullu
samræmi við Framsóknarblaðamennsku, sem bygg-
ist á fölsun frétta, hvenær sem það er talið hag-
kvæmt í pólitískum tilgangi.
En ritstjóri Tímans segir ekki einungis, að brezku
blöðin séu á mála hjá ríkisstjórninni, heldur ráði
Bretar einnig yfir blöðum allra annarra landa, sem
um samkomulagið skrifa, en þau eru sammála um
að íslendingar hafi sigrað.
Með þessum ummælum Þórarins Þórarinssonar er
fengin af hans eigin vörum sönnun fyrir því, sem
Morgunhlaðið hefur haldið fram, að hjá Tímanum
væri það beinlínis markmið í sjálfu sér að falsa frétt-
ir, en alls ekki að reyna að skýra rétt frá atburðum.
Héðan í frá þarf því enginn að efast um það, að
fréttir þessa málgagns séu rangar, hvenær sem það
hentar. Framsóknarmönnum. Enpinn skvldi því fram-
ar láta sér detta það í hug að lesa Tímann til þess
að fá sannar fregnir.
Röksemdarfærslan er svo einnig upp á fram^ókn-
armáta:Brezka stiórnin fær brezku nressuna til þess
að útmála sinn eigin ósigur, segir Þórarinn!!
í forystugrein í dag er fial1í>ð um athyp4!=verðan
lærdóm. sem d*-aga má af máli annars ræðumanns
Framsóknar í útvarpsumræðunum.
Á DAG hefst stjórnarkjör í
Iðju, félagi verksmiðjufólks
í Reykjavík. Kosið er í skrif
stofu félagsins í Skipholti 19
(=Röðull), í dag frá kl. 10
f. hád. til kl. 7 e. hád., en á
morgun kl. 10 árd. til 10 síð-
degis.
B-listinn, listi lýðræðissinna,
er þannig skipaður:
Form. Guðjón Sv. Sigurösson;
Varaform. Þorvarður Áki Eiríks
son; Ritari Ingimundur Erlends-
son; Gjaldk. Ingibjörg Arnórs-
dóttir; Meðstj. Jóna Magnús-
dóttir, Steinn Ingi Jóhannesson,
Guðmundur Jónsson.
Varastj. Þorvaldur Ólafsson,
Klara Georgsdóttir, Ingólfur
Jónasson.
Endursk. Eyjólfur Davíðsson,
Sigurður Valdimarsson.
Varaend. Halldór Christensen.
Uppl. um kosningaskrifstofu
B-listans eru á forsíðu.
— o —
Stuðningsfólk B-Iistans! Mætið
snemma á kjörstað og hindrið
valdatöku Björns Bjarnsonar og
annarra kommúnista!
Kommúnistar
vilja Iðjuverkfall
Varðarkaffi verður
ekki í dag
KOMMUNISTAR leggja nú
slíkt ofurkapp á að ná aftur
völdum í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks, að allt starfslið
flokksins og Þjóðviljans og
allt selluliðið hefur vikum
saman unnið að undirbún-
ingi stjórnarkosnringa í félag-
inu. Á fundi, sem haldinn var
með helztu stuðningsmönn-
um Björns Bjarnasonar í sl.
viku, var gefin skýring á því,
hvers vegna kommúnistar
heyja nú baráttu upp á líf
Landhelgismálið
Á Fundi Sameinaðs þings í
gær var þingsályktunartillaga
ríkissitjórnaninnar um lausaii
landhelgisdeilunnar við Breta
vísað til 2. umræðu að við-
höfðu nafnakalli. Allir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins og
ALþýðuflokksins greiddu at-
kvæði með þeirri málsmeð-
ferð, en þingmenn stjórnar-
andstöðunnar lögðust gegn
henni, utan 2, þeir Björn Fáls
son og Finnbogi Rútur Valdi-
marsson sem voru fjarstaddir.
Atkvæði féllu því 33:25. —
Síðan var samþykkt með 55
samhljóða atkvæðum að vísa
tillögunni til utanríkismáLa-
nefndar.
ísLcmcL kosið í fram-
kvæmdaráh WHO
14. þing Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar, (WHO) sem
hófst í Nýju Dehli í Indlandi
hinn 7. þ.m., er nýlega lokið.
Fyrir þingið var ákveðið fram
boð af íslands hálfu í fram-
kvæmdaráð stofnunarinnar.
Kosningin var undirbúin af ut-
anríkisráðuneytinu og réttum ís-
lenzkum stjórnvöldum.
Á þinginu átti að kjósa 12 lönd
í framkvæmdaráðið og var ís-
land eitt þeirra landa er kjörið
var.
ísland hlaut 87 atkvæði, en
aðildarriki alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, sem tóku þátt í
kosningunni voru 97. Einungis
Bandaríkin fengu fleiri atkvæði
en ísland eða 95.
Önnur ríki, sem kjörin voru
eru þessi:
Pakistan, Ítalía, Nigería, Pól-
land, Spánn Chile, Senegal, Jap-
an, Iraq og ísrael.
Fulltrúar íslands á greindu
þingi Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar í Nýju Delhi
voru prófessor dr. med. Júlíus
Sigurjónsson og dr. med. Óli
Hjaltested.
Ákvörðun um hver verði fúll-
trúi íslanas í framkvæmdaráði
stofnunarinnar verður tekin bráð
lega, en næsti fundur fram-
kvæmdaráðsins mun haldinn í
Genf hinn 29. maí 1961.
(Frá Utanríkisráðuneytinu)
og dauða til þess að ná aftur
valdaaðstöðu í Iðju.
Foringjar kommúnista hafa
komizt að þeirri niðurstöðu
að áhrifamest sé að beita fyr-
ir sig kaupkröfum kvenna til
þess að koma af stað nýrri
verkfallsöldu. Þeir gerðu til-
raun með þetta í Vestmanna-
eyjum þar sem konur voru
látnar halda áfram verkfalli,
eftir að allir aðrir voru búnir
að semja.
Þessi tilraun mistókst, og
þess vegna leita þeir nú eftir
því, hvar hægt sé að byrja
næst. Ef svo ólíklega vildi til,
að þeir nræðu völdum í Iðju,
er ætlunin að hún fari fyrst
í verkfall hér í Reykjavík
undir því yfirskini, að verið
sé að berjast fyrir kaupi
kvenna, en þær eru þrír
fjórðu félagsmanna.
Það vill svo til, að Iðju-
félagar hafa nokkra reynslu
af verkfallsstjórn kommún-
ista, og því gæti svo farið, að
þessi áform þeirra um að
hrinda félaginu út í pólitískt
verkfall á undan öðrum
fengju verðskuldaða útreið í
kosningunum nú um helgina.
Rafmagnsbilun
KLUKKAN um hálfníu í gser-
kvöldi varð rafmagnslaust f
nokkrum af úthverfum í Aust-
urbænum, t. d. Hvassaleiti,
Stóragerði og víðar. Einnig var
um líkt leyti rafmagnslaust á svo
nefndri Lögbergslínu. Frá henni
fá rafmagn Árbæjarbyggðin,
Smálöndin, Selás og fleiri.
Þegar þetta er skrifað, eru
starfsmenn Rafmagnsveitunnar
farnir til að leita að biluninni.
Það var talið að háspennulína
Lögbergslínunnar hefði bilað.
En hvort eða á hvern hátt sam-
band var á milli rafmagnsleys-
ins í Hvassaleiti og Lögbergslínu
var ekki vitað
Sjálfboðaliðar óskast til
starfa fyrir B-lisfann
Sjálfboðaliðar óskast til
starfa í Iðjukosningunum.
Kommúnistar hafa aldrei lagt
sig eins fram og nú í Iðju-
kosningunum, því að von
þeirra er að geta beitt félag-
inu fyrir sig í pólitísku verk-
falli. Því er skorað á sem
allra flesta að gefa sig fram
til starfa í kosningaskrifstofu
B-listans, sem er í Verzlunar
mannafélagshúsinu (V.R.),
Vonarstræti 4, á þriðju hæð.
Mætum öll og vinnum að
sigri lýðræðissinna!