Morgunblaðið - 07.03.1961, Qupperneq 10
10
MORGl’NBLAÐIÐ
Þriðjudagur 7. marz 1961
A 3. hundrað manns
fræddu 1352 unglinga
um starfsgreinar sjdvarútvegsins
Á SUNNUDAGINN var í fyrsta
skipti efnt til starfsfræðsludags
sjávarútvegsins og gaf það mjög
góða raun. Þrátt fyrir fremur ó-
hagstætt veður komu 1352 í Sjó-
mannaskólann, þar sem starfs-
fræðslan fór fram. Meirihluti gest
anna voru unglingar, en þar
mátti einnig sjá fullorðna menn,
sem komnir voru til að fræðast
um þessa stærstu atvinnugrein
okkar, og húsmæður, sem komu
til að fá fræðslu um það hvernig
fiskurinn ætti að vera þegar þær
keyptu hann í soðið. Ólafur Gunn
arsson sálfræðingur annaðist
skipulagningu dagsins í samráði
við allar helztu stofnanir og
skóla, sem tengdir eru sjó-
mennsku og siglingum.
Verður að sýna krökkunum
— Krakkarnir voru ákaflega á-
hugasamir sagði Bergsteinn A.
Bergsteinsson fiskmatsstjóri, en
hann, 4 yfirfiskmatsmenn og
skrifstofustjórinn hjá Fiskmat-
inu voru til staðar á merkilegri
sýningu á fyrstu hæð og svöruðu
spurningum. Þar var fiskur á
fimm borðum. Fremst ferskfisk*
ur, tveir glænýir fiskar, fiskur
sem hafði verið geymdur of lengi
í ís og einn sem hafði kafnað í
netjunum og var hægt að bera þá
saman. Á öðrum borðum var
skreið í þremur gæðaflokkum,
saltfiskur, þurrkaður og óverk-
aður, frosin og uppþýdd síld og
hraðfryst fiskflök. Var aðaltil-
gangurinn með þessari sýningu
að sýna fram á að þegar fisk-
urinn er lélegur í upphafi, þá
verður hann það einnig eftir
verkum, énda kom fram gæða-
mismunur á skreiðinni og salt-
fiskinum, sem þarna var til sýn-
is.
— Þessi dagur sannaði okkur
áð það verður að sýna krökkun-
um það sem verið er að útskýra
fyrir þeim, sagði Bergsteinn. Um
Ieið og farið var að sýna ein-
hverju þeirra eitthvað í sam-
bandi við það sem spurt var um,
þá komu krakkarnir aðvífandi
eins og flugur.
Ljósmyndari frá blaðinu fylgdi
tveimur strákum eftir skamma
stund. Ætlið þið að verða sjó-
menn? spurði hann.
— Nei, vélamenn, svöruðu þeir
um hæl, enda lögðu þeir leið sína
inn í vélasal skólans, þar sem gef
ur að líta alls kyns tegur.dir af
„svakastórum vélum“, eins og
þeir orðuðu það. Þar fengu þeir
Strákunum finnst sýnilega ákaflega skemmtilegt að vita
hvernig eigi að finna sýrumagn í ketilvatni, sem Jón Sig-
urðsson nemandi í rafmagnsdeild Vélstjóraskólans sýnir þeim.
P II I L C O
PHILCO
P H I L C O
AÐEINS
P H I L C O
P H I L C O
10%
ÚTBORGUN
EFTIRSTOÐVAR A 9 MANUÐIJM
Hagkvæmir greiðsluskilmálar sem gera flestum
kleift að eignast þessi vinsælu heimilistæki
PHILCO-BENDIX
þvottavélar
— 8 gerðir —
Árs ábyrgð
PHILCO - FRYSTAK
Frystiskápar
8 — 11 cub. fet.
Frysti kistur
8,4 cub. fet.
5 ára ábyrgð
PH.ILCO 1478
PHILCO kæliskápar
— 10 gerðir —
Stærðir: 4,5, — 6, — 7 —
8 — 8,4 — 10,5 — 11 — 12
cub. fet
5 ára ábyrgð
Raftækjadeild 0. Johnson & Kaaber hf.
Sími 24000
Hafnarstræti 1
Magnús Karlsson og Karl Karlsson skoða með áhuga gufu-
ketil í skip, sem Sveinn Sigurðsson, vélvirkjanemi er að
sýna þeim.
Sveinbjörnssönar, þar sem m.a.
gaf að líta nýtt tæki til að stöðva
spil í þeim tilgangi að koma í veg
fyrir að lína slitni þegar lína er
dregin og alda ríður undir bát.
Allmargir menntaskólanemar
leituðu sér fræðslu um skipaverk
fræði í stofu 4. Iðnfræðingar
voru til taks fyrir þá mörgu sem
áhuga sýndu þeirri grein og
nokkrir piltar úr efstu bekkjum
Verzlunar- og Menntaskólana
fengu áð skoða rannsóknarstofur
Fiskifélagsins kl. 17 á sunnudag.
Álíka margir lögðu leið sína 1
Fiskideildina, til að spyrja um
sjórannsóknir og fiskirannsókn-
ir. Um 600 manns heimsóttu full-
trúa Landhelgisgæzlunnar óg
margir fengu leyfi til að heim-
sækja flugstöð Landhelgisgæzl-
unnar á Reykjavíkurflugvelli.
Ingimar Einarsson, fulltrúi LÍÚ
úthlutaði aðgöngumiðum að hin-
um ýmsu vinnustöðum sjávarút-
vegsins, en þar eð aðsókn varð
meiri en við hafði verið búizt
voru strætisvagnaferðir þangað
helzt til fáar.
Þá spurðu á þriðja hundrað
manns um vélstjóranám og 170
um loftskeytanámskeiðin og all-
margir vildu fræðast- um félags-
mál sjémanna. Fjöldi unglinga
skoðuðu siglingartæki í Stýri-
mannaskólanum og 150 spurðu
um stýrimannanám, og margir
um mótornámskeið Fiskifélags-
ins. Fiskifélagið hafði gefið út
fræðslurit um nám sjómanna og
var mikil eftirspurn eftir því.
Þessar upplýsingar fékk blaðið
hjá Ólafi Gunnarssyni í gær.
Allir lögðust á eitt.
f holtinu fyrir utan skólann
gaf tvisvar síðdegis á sunnudag
að líta björgun úr sjávarháská.
Skipið vár klettur og sjóhetjurn-
ar unglingar úr Hugprýði, sem
er deild í Slysavarnafélaginu.
Á þriðja hundrað manns lögðu
hönd að verki við undirbúning og
framkvæmd starfsfræðsludags-
ins, sem talinn er hafa tekizt
mjög vel í alla staði. Öll vinna
var unnin ókeypis. Skólastjórar,
kennarar og nemendur fagskól-
anna, starfsmenn Fiskimatsins,
Fiskifélag fslands, Landhelgis-
gæzlan, Æskulýðsráð Reykjavík-
ur, Slysavarnafélagið, Tækni-
fræðingafélag fslands, starfsfólk
vélsmiðju Sig. Sveinbjörnssonar,
Fiskimjölsverksmiðjunnar á
Kletti, Fiskverkunarstöðvar Júpi
ters og Marz og skipsmenn á tog
aranum Úranusi lögðust þarna á
eitt um að fræða unglingana um
hin ýmsu störf, sem vinna þarf
í þágu þessa merka atvinnuvegar
þjóðar okkar.
útskýrðar dieselvélar og gufuvél
ar og í rannsóknardeild Vélskól-
ans Uppi á lofti virtust augun
ætla út úr þeim af hrifningu,
meðan þeir lærðu hvernig ætti
að fyrirbyggja sýrumagn í ketil-
vatni. — Ætlið þið að vera á stór
um skipum? var spurt. Ekki voru
þeir vissir um að þeir yrðu nægi-
lega góðir vélamenn til þess, en
þá langar til þess.
Verkstjórar þurfa undirbúning
Tiltölulega fáir krakkar leit-
uðu upplýsinga um verkstjórn, en
þeir sem það gerðu fengu |reið
svör hjá Einari Bergmann, verk-
stjóra. Hann sagði þeim m.a. að
til að vera verkstjóri þyrfti fyrst
og fremst að vera stundvís, að
hafa góða þekkingu á allri starfs-
greininni, sem ætti að stjórna, að
vera brot af sálfræðingi á sína
vísu, þ.e.a.s. að kunna að umgang
ast fólk og átta sig á því, geta
gefið glögga skilagrein yfir verk
in sem unnin eru o.s.frv. — Með
nokkrum dæmum má sanna, að
þetta er rétt sagði Einar. Afkoma
ekki sízt fiskiðnaðarins, byggist
svo mikið á því að verkstjórar
vinni sitt verk rétt. Og ég tel að
þetta sé svo mikilvægt starf að
verkstjórar þurfi meiri undirbún
ing en nú er, að þetta verði 4 ára
nám eftir að viðkomandi kann
verkið og fær þrozka.
Vinnustaðir heimsóttir
Ekki er rúm til að telja upp
allar þær greinar sjávarútvegsins
sem þarna var frætt um. Búið
var að undirbúa daginn í öllum
unglinga- og framhaldsskólum
Reykjavíkur. Á föstudag sóttu
700—800 ungmenni kvikmynda-
sýningu Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna um fiskveiðar og
fiskverkun í Austurbæjarbíói.
Og þar var einnig sýnd „Björg-
unin við Látrabjarg", sem Slysa-
varnafélagið lánaði. Á laugardag
sóttu um 900 manns sýningu á
mynd, sem Fiskmat ríkisins hef-
ur látið gera og á ýmiskonar
tæknimyndum.
Sjóvinnunámskeiðin höfðu
starfs- og fræðslusýningu sem
um 900 manns sóttu. Fulltrúi
Matsveina- og veitingaþjónaskól
ans ræddi við 40—50 ungmenni
um menntun og störf matsveina,
og 45 stúlkur ræddu við skips-
þernu. í stofu á fyrstu hæð var
merkileg fræðsludeild fyrir járn-
iðnaðinn og tækifæri gafst til að
heimsækja vélsmiðju Sigurðar
Ný fiugelsolög
FBUMVÖRP ríkisstjórnarinn-
ar um ríkisfangelsi og vinnu-
hæli og héraðsfangelsi voru
afgreidd sem lög frá Alþingi
í gær eftir 3. umræðu í neðri
deild. — Áður hefur verið
gerð rækileg grein fyrir efni
frumvarpanna hér í blaðinu,
cn við framkvæmd þeirra er
óhætt að segja, að mjög þýð-
ingarmiklar úrbætur fáist í
fangelsismálum þjóðarinnar.