Morgunblaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 7. marz 1961
MORGUTSBLAÐIÐ
15
- V.R.
Framh. af bls. 13
átt mætti ná með lækkun skatta
og tolla.
Til að mæta þeim tekju-
missi ríkissjóðs, sem af þessu
imundi leiða, er það álit fundar-
ins, að mjög mikið megi draga
úr opinberri fjárfestingu og
ikostnaði við rekstur ríkisins".
— o —
f lok fundarins skýrði formað
ur frá því, að stjórn félagsins
hefði borizt bréf frá Fjáröflunar
nefnd A.S.Í., þar sem óskað er
eftir fjárframlögum frá verzl-
unarfólki í verkfallssjóð A.S.Í.
Las hann upp á fundinum svar-
hréf stjórnarinnar, sem hljóðar
sem hér segir.
28/2 1961.
Fjáröflunarnefnd A.S.Í.,
Skrifstofu Alþýðusambands
íslands, Reykjavík.
Vér höfum móttekið bréf yðar
dagsett 20. febr. s.l. varðandi
fjársöfnun til stuðnings verka-
lýðsfélögunum 1 kjarabaráttu
þeirra.
Verzlunarfólk hefur fullan
skilning á baráttu annara laun.
þegar og gerir sér vel grein fyrir
þörf fyrir samúð og stuðningi í
erfiðri baráttu. Fáum mun þetta
betur ljóst en einmitt því fólki,
sem hefur á undanförnum árum
burft að heyja erfiða baráttu
fyrir samningsrétti sínum og
stéttarréttindum, en m. a. af síð-
astnefndum ástæðum sótti verzl-
unarfólk um upptöku í Alþýðu-
samband ísland á sl. ári.
Síðasta A.S.Í.-þing, sem mark-
aði stefnu þá í kjaramálum sem
er orsök þeirra verkfalla, sem
launþegar hafa staðið í, sam-
'þykkti einnig að neita verzlunar
fólki um upptöku í Alþýðusam-
bandið og kom þar með í veg
fyrir að verzlunarfólk gæti haft
nokkur jákvæð áhrif á stefnu
samtakanna.
Það er skoðun vor, að fleiri en
eina leið sé unnt að fara til að
tryggja launþegum betri lífs-
kjör. Teljum vér að leið sú, sem
Aðalftindur
Vorboðans
HAFNARFIRÐI: — Sjálfstæðis-
kvennafélagið Vorboðinn hélt
aðalfund í Sjálfstæðishúsinu
mánudaginn 20. febrúar sl. Fund-
urinn var fjölsóttur og gengu 14
konur í félagið.
Þær breytingar urðu é stjórn
félagsins, að frú Soffía Sigurð-
ardóttir og frú Irgibjörg ög-
ir.óndsdóttir, semi átt hafa sæti
í sijórn Vorboðans allt frá 'upp-
hafi, eða rúm 20 ár báðust ein-
dregið undan endarkosningu. Fj'ú
Soffía hefir verið ritari félags-
ins öll þessi ár, og báðar hafa
þær unnið ötullega að félagsstörf
um.
Stjórnina skipa nú: Jakobína
Mathiesen formaður, Laufey
Jakobsdóttir ritari, María Ólafs-
dóttir gjaldkeri. Aðrar í stjórn
eru Sólveig Sveinbjörnsdóttir
varaformaður, Elín Jósefsdóttir,
Ragnheiður Magnúsdóttir, Frið-
rikka Eyjólfsdóttir, Herdís Guð-
mundsdóttir, Hulda Sigurjóns-
dóttir, Ásthildur Magnúsdóttir,
Sólveig Eyjólfsdóttir og Anna
Elíasdóttir.
Trésmiðafélag
Hafnarfjarðar
AÐALFUNDUR Trésmiða-
félags Hafnarfjarðar var hald
inn 30. jan. 1961.
Í stjórn voru kjörnir Jón
Kr. Jóhannesson form. Guð-
björn Guðbergsson, ritari,
Varastjórn: Sigurbjartur
Guðm. Þ. Egilsson, gjaldkeri.
Vilhjálmsson, Karl Stefánsson
Geir Þorsteinsson.
1 félagsstjórn eru bæði
meistarar og sveinar í húsa-
og húsgagnasmíði og eru þeir
nú 82 að tölu.
síðasta þing A.S.f. valdi, hafi
ekki verið sú bezta fyrir laun-
þega eins og þróun efnahags-
mála þjóðarinnar hefur verið
háttað undanfarin ár. Hefðu for
ustumenn A.S.Í. átt að kanna aðr
ar sársaukaminni leiðir fyrir
verkafólk áður en þeir hvöttu
launþega til að fara út í verk-
föll. Leyfum vér oss að benda
á, að tveir af núverandi forustu
mönnum A.S.Í. eiga sæti á Al-
þingi, hefðu þeir t. d. getað beitt
sér fyrir að Alþingi samþykkti
stórkostlegan sparnað í rekstri
og fjárfestingu hins opinbera, en
slíkt hefði m. a. skapað mögu-
leika til mikilla tolla_ og skatta-
lækkanna með þar af leiðandi
verðlækkunum á vörum og þjón
ustu.
Þá viljum vér vekja athygli á,
að vegna útilokunarstefnu nú-
verandi forustumanna A.S.Í.,
stendur verzlunarfólk eitt og
óstutt. Ef til tíðinda dregUr í
kjarabaráttu verzlunarfólks, tel-
| ur það sig ekki geta vænzt stuðn
j ings í því formi, sem hér um
ræði, frá þeim aðilum, sem fyrir
j fáum mánuðum slógu á útrétta
| hönd hinna ungu stéttarsamtaka
verzlunarfólks á íslandi.
Með vísan til framangreinds,
hlýtur stjórn Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur að synja
málaleitan þessari.
Virðingarfyllst,
Staðfesti fundurinn svar stjórn
arinnar með kröftugu lófaklappi.
Mikill einhugur ríkti á fund-
inum og er verzlunarfólk ákveð.
ið í því, að þrátt fyrir hina nein
kvæðu stefnu núverandi forustu
manna A.S.Í., sem birtist á síð-
asta A.S.Í.-þingi, skuli það berj_
ast ótrautt fyrir rétti sínum og
fylgja þeim málum, sem mega
verða íslenzku þjóðinni til heilla.
Hafnarfjarðarbíó er nú með síðustu sýningar á myndinni „Go
Johnny Go“, sem fengið hefir hinar beztu undirtektir. — 1
myndinni eru leikin og sungin 19 vinsæl lög.
Nýtt tan
unarefni
með munnskol-
rju rauðu striki
Signal er fremra öllu öðru tannkremi.
því aðeins það gerir tennur vðar skínandi hvítar
og gefur vður hressandi munnbragð.
Sérhvert gott tannkrem hreinsar
tennurnar, en hið nýja SIGNAL-
gerir miklu meira!
Hvert og eitt hinna rauðu strika
SIGNALS inniheldur Hexa-
Chlorophene. Samtímis því,
sem hreinsunarefni SIGNALS
gætir og verndar tennur yðar,
blandast þetta kröftuga rotvarn-
arefnl munnvatninu og drepur
sóttkveikjur um leið og það
hreinsar munninn.
lega með SIGNAL og njótfð
Burstið því tennur yðar reglulega
þar með bezta fáanlega tann-
kremsins, sem inniheldur hvort-
tveggja í senn, ríkulegt magn
hreinsunar- og rotvarnarefna.
Látið alla fjölskyldu yðar nota
þetta nýja undra-tannkrem, með
munnskolunarefni í hverju rauðu
striki. Byrjið að nota SIGNAL
strax í dag.
X— SIG l/IC 9658
Þetta er ástæðan fyrir því, að SIGNATj
inniheldur munnskolunarefni í hver
rauðu striki.