Morgunblaðið - 14.03.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.03.1961, Blaðsíða 1
24 síður 18. árgangur 60. tbl. — þriðjudagur 14. marz 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsins Máttvana málflutningur um vantráust Þakkarefni öllum góð- um mönnum að ófríðn- um er lokið (JTVARPSUMRÆÐURNAK I gærkvöldi voru um van- trauststillögu þá, sem stjórnarandstæðingar hafa flutt. Hefði því átt að' mega búast við, að þeir kæmu fram með einhverjar nýjar og alvarlegar sakir á hendur núverandi ríkisstjórn, en svo var ekki. Kom berlega í ljós, að þessi tillöguflutningur þeirra var mjög vanhugsaður og málflutn- ingur þeirra allur máttlaus og tilþrifalítill. Talsmenn stjórnarflokkanna sýndu fram á það með skýrum rökum, að lausn ríkisstjórnarinnar á fiskveiðideil- unni við Breta var skynsamleg og að þar var svo vel á málum okkar haldið sem bezt mátti verða. Benti síra Gunnar Gíslason m.a. á, að með samkomulaginu hefðum við ekki látið neitt, sem við áður höfðum, heldur einungis fengið það, sem við ekki höfðum — og að fyrir mestu væri, að við hefðum fengið frið. Viðkvæmt deilumál leyst Guðlaugur Gíslason sýndi fram á, að vinstri stjórnin hefði tekið við blómlegu búi eem henni hefði á skömmum tíma tekizt að koma á barm gjaldþrots. Mesta gagn, sem Hermann Jónasson hefði gert þjóð sinni, var þegar hann við- urkenndi mistök sín og gafst upp við stjórn þjóðarbúsins 1958. Um lausn landhelgisdeilunn- er sagði Guðlaugur, að með henni væri úr sögunni erfitt og viðkvæmt deilumál. Ríkis- stjórnin hefði unnið mikið og þarft verk fyrir þjóðarheildina og um leið áunnið sér traust hennar og virðingu. Sigur hins íslenzka málstaðar Gunnar GislaSon taldi við- brögð þjóðarinnar sýna, að mik- ill meiri hluti hennar fagnar sigri hins íslenzka málstaðar, enda hefðu vonbrigðin yfir und- irtektum þjóðarinnar ekki leynt sér í ræðum stjórnarandstæð- inga að undanförnu. Um sam- komulagið í heild mætti segja, eð við hefðum ekkert látið, sem við hefðum áður haft, heldur hefðum við þvert á móti fengið margt, sem við hefðum ekki haft óður. Og þýðingarmest væri, að við hefðum fengið frið. En stjórn erandstaðan virtist ekki leggja mikið upp úr því, að endir hef- ur verið bundinn á þennan ófrið. Sjónarmið kommúista væri öllum skiljanlegt, sagði Gunnar, (það væri rússneska sjónarmiðið. Þeirra æðsta ósk væri sú að kynda undir ófrið milli okkar og annarra vestrænna ríkja. En að (þetta skuli einnig vera sjónar- mið Framsóknarflokksins kæmi meir á óvart, og á því fyndist ekki önnur skýring en hið inni- lega samband fHrystuimanna Framsóknar og kommúnista, því eð engu væri líkara en að for- ystumenn Framsóknarflokksins hefðu gengið kommúnistum al- gerlega á hönd. Pjölmörg verkefni leyst Jónas G. Rafnar gerði grein fyrir nokkrum þeim verkefnum, sem núverandi ríkisstjórn vinnur nú að því að leysa. Unnið væri að því að tryggja fjárhag rækt- unarsjóðs og byggingasjóðs og koma þeim á réttan kjöl eftir þá óreiðu, sem vinstri stjórnin hefði skilið þá eftir í; gerðar hefðu ver ið ráðstafanir til þess að koma upp nýjum lánaflokkum við stofnlánadeild sjávarútvegsins og stuttum lánum breytt í löng lán. Frh. á bls. 2 Picasso kvœnfur 44 ára aldursmunur CANNES, Frakklandi, 13. marz. (Reuter) — Hinn heimsfrægi málari Pablo Picasso, sem er 79 ára að aldri, hefur kvænzt fyrir- sætu sinni, hinni 35 ára Jacqueline Roques. Hjóna- vigslan fór fram fyrir 11 dögum í smábænum Vall- auris við Miðjarðarhafið Hana framkvæmdi bæjar- stjórinn í Vallauris, Paul Derigon. Haft er eftir málaran- um, að hann sé ákaflega ánægður yfir því að hafa haldið þessu leyndu allan þennan tima. — Picasso hefur verið ekkjumaður síðan 1955, er kona hans, Olga Koklova, lézt — en þau voru gift í 38 ár. 11 »- 1 ið. Hætta að sigla * ef Islendingar landa í Grimsby SakaruppgjÖf breytir þar engu um, segir Welch Einkaskeyti til Mbl. frá Grimsby. SKIPSTJÓRAR, stýrimenn og vélstjórar í Grimsby hafa ákveðið að hætta að sigla, ef íslenzkir tog- arar landa eða gera tilraun til að land þar í höfn. Ef löndunarbann verður sett, mun það haldast þar til ákærur íslendinga gegn skip- stjórum um ólöglegar veiðar hafa verið felldar niður og deila skipa eigenda og skipstjóra, stýrimanna og vélstjóra í Grimsby hefur ver- ið leyst með samningum. Dennis Welch formaður félags yfirmanna á togurum í Grimsby sngði mér, að hér væri átt við kærur, sem íslendingar hefðu borið fram eftir að gefnar voru upp sakir fyrir sex mánuðum. í orðsendingum þeim, sem ríkis- stjórnir Bretlands og Islands hafa skipzt á, hefur hvergi verið minnzt á þessar síðustu kærur íslendinga. Framh. á bls. 23. Næsti áraiugur verði frægur af framgangi lýöræðisins Kennedy vill að lýðveldi S-Ameríku vinni sameiginlega að tíu ára áætlun Washington, 13. marz (Reuter) KENNEDY, forseti bar í dag fram þá uppástungu, að lýðveldin í Ameríku vinni sameiginlega að viðtækri tíu ára áætiun í því augnamiði, að næsti áratugur verði frægur í sögunni vegna framgangs lýðræðisins. Forsetinn hafði móttöku í Hvíta húsinu fyrir sendifulltrúa hinna ýmsu ríkja Suður-Ameríku og þingmenn Bandaríkjaþings og lagði þar fram áætlun í tíu lið- um. Fulltrúar Kúbu og Dómini- kanska lýðveldisins voru ekki við staddir, þar sem Bandaríkin hafa slitið stjórnmálasambandi við þau lönd. Kennedy minntist á hið slæma samband við þau, og sagði, að bandamenn Bandaríkj- anna í framförum og framgangi væru bandalög frjálsra ríkis- stjórna sem ynnu að því að fjar lægja harðstjórn frá þessum hluta heimsins, þar sem hún ætti sér engan rétt. Sagði Kennedy, að því skyldu Ameríkuríkin tjá Kúbu og Dominikanska lýðveld- inu einlæga vináttu sína með von um, að þau ríki gætu brátt snúið aftur til samfélags frjálsra manna. Með starfi frjálsra þjóða Forsetinn sagði, að Bandaríkin stæðu nú frammi fyrir því sama afli, sem í aldaraðir hefði stefnt heimsfriðnum í voða — því afli, sem reyndi að færa harðstjórn Frh. á bis. 23 í LEOPOLDVILLE hefur ver- ið haldið áfram samningavið- ræðum um að hermenn Sam- einuðu J’jóðanna fái að hverfa aftur til hafnarbæjarins Mat- adi, en þaðan voru þeir hrakt- ir fyrir viku siðan eftir all- harða bardaga. f dag ræddust þeir við Miki Abþas, staðgengill Dayals að- alfulltrúa Hammarskjölds og Bomboko, utanríkisráðherra Kongó. Er talið, að samkomu- lag hefi nú náðst um, að evr- ópskir hermenn úr liði SÞ fái að koma þangað og fylgjast með hafnarvinnu og uppskip- un, en fái að öðru leyti ekki nein völd í bænum. Endanlegt samkomulag mun ekki nást fyrr en þeir Kasavubu og Ileo eru komnir til Leopoldville. 300 Evrópumenn í Kivu Tíu Evrópumenn, þar af þrjár nunnur voru fluttar til Leopoldville og komið beint á sjúkrahús. Hafði fólk þetta sætt misþyrmingum af stuðn- ingsmönnum Lumumba í Kivu héraði. Um það bil 300 Evrópu menn eru enn í Kivu og hefur því fólki verið neitað um að fara þaðan. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar hinir súdönsku hermenn SÞ fóru frá Mat adi. Fremst er danskur læknir, Finn Behrendt i viðræðum við Delvaut ráð herra í stjórn Kasavubus. Fundur utanríkis- málaráðherra f DAG og á morgun stendur yfif í Stokkhólmi fundur norrænna utanríkismálaráðherra. Utanríkis málaráðherra, Guðmundur f. Guð mundsson, og ráðuneytisstjóri ut anríkisráðuneytisins, Agnar Kl. Jónsson, sitja fund þennan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.