Morgunblaðið - 15.03.1961, Qupperneq 3
Miðvikudagur 15. marz 1961
MORGUNBLAÐIÐ
3
Floyd heimsmeistari
eftir tvísýnan leik
FLOYD Patterson er enn
heimsmeistari í hnefa-
leikum í þungavigt. — Á
mánudagskvöld hittust
þeir Ingemar Johansson
í þriðja sinn til að berj-
ast um heimsmeistaratit-
ilinn, og sigraði Patterson
á rothöggi í 6. Iotu. Hélt
hann því titlinum, sem
hann vann af Ingemar í
júní í fyrra.
• Ingo fór vel af stað
Keppnin var að þessu sinni
mjög spennandi og mátti um
tíma ekki milli sjá hvor bæri
sigur úr býtum. Snemma í
fyrstu lotu kom Ingo þungu
höggi á Floyd, sem féll við, og
skömmu síðar í sömu Xotu lá
Floyd aftur á gólfinu. En hann
náði sér og náði að slá Ingo
niður áður en lotunni lauk. í
annarri lotu sótti Patterson
nokkuð á, en Ingo kom á óvart
með vinstri handar höggum,
sem hann hefur ekki áður sýnt
og hélt Patterson í hæfilegri
fjarlægð. Lotan var jöfn, en
í þriðju lotu sýndi Patterson
nokkra yfirburði. í fjórðu lotu
voru báðir keppendur með
blæðandi augnabrúnir og ann
að auga Ingos tekið að bólgna
allmikið.
• Umdeild úrslit
Úrslitalotan hófst með því
að Ingo kom þungu vinstri
handar höggi á Floyd, sem
hörfaði undan. Megnið af lot-
unni var Ingo í sókn og Floyd
á undanhaldi. En rétt fyrir lok
Ílotunnar kom Floyd tveim
hægri handar höggum á Ingo,
sem riðaði og féll. Dómarinn
hóf að telja yfir Ingo. Þegar
hann var kominn upp að fimm
reyndi Ingo að standa á fæt-
ur, en féll aftur og Floyd var
dæmdur sigurinn. Einhver á-
greiningur varð um það að
dómarinn héldi áfram að telja
meðan Ingo var að standa upp,
en það breytti ekki úrslitun-
um. Floyd hafði sigrað þegar
15 sekúntur voru eftir af lot-
unni.
• Nærri búinn að tapa
Að leiknum loknum sagði
Patterson: Ingo er mjög, mjög
góður hnefaleikari, Ég álít
það hafi verið alrangt að telja
sigurlíkur mínar 4:1. Vegna
þess að ég var, eins og sjá
mátti, nærri búinn að tapa
keppninni.
Aðspurður um fyrstu lotu,
þegar Ingo sló hann niður,
sagði Floyd: Ég bjóst ekki við
að hann mundi nota hægri
höndina svona snemma, en
eins og ég hefi sagt, Ingo er
mjög, mjög góður hnefaleik-
ari. Kvaðst Floyd hafa verið
miklu verr leikinn nú en í
keppninni í fyrrasumar.
Patterson hafa nú verið
boðnir 600.000 dollarar fyr-
Ingcmar Johanson
ir að mæta bandaríska hnefa-
leikaranum Mike Dejohn í
keppni um titilinn. En Mike
þessi er sjötti maður á lista
væntanlegra áskoi-enda í
þungavigt og á að berjast við
Eddie Maehen 10. apríl n.k.
Auk þessarar upphæðar fengi
Floyd upp undir eina milljón
dollara í greiðslu frá útvarpi,
sjónvarpi og kvikmyndafélög-
um.
• Ingo skuldar skatta
Segja má að þeir Ingo og
Floyd hafi fengið sæmilega
þóknun fyrir þennan átján
mínútna bardaga þeirra á
mánudagskvöldið. Patterson
fær um 912.500 dollara kr.
34.8 milljónir) en Ingo um
712.500 dollara -kr. 27,2
milljónir).
En óvíst er um það hvort
Ingo fær að halda sínum hluta,
því þegar hann kom í búnings-
herbergi sitt að keppni lok-
inni, biðu hans þar skatt-
heimtumenn, sem afhentu
honum stefnu. Heldur banda-
ríska stjórnin því fram að
Ingo skuldi um eina milljón
dollara í skatta af tekjum
þriggja keppna við Floyd.
• Eins og smákrakki
Fyrir keppnina voru flestir
sérfræðingar í hnefaleik á því
að Patterson yrði sigurvegari
að nýju, og stóðu veðmálin
4:1 honum í vil. Sjálfur sagði
Floyd fyrir keppnina: Ég segi
aðeins það að ég læt Ingo
aldrei framar koma hægri-
handarhöggi á hökuna á mér.
I fyrstu keppninni slóst ég
eins og smákrakki. Eins og ég
héfði aldrei barizt í hringn-
um fyrr. f fyrra var það eins
með Ingo. í þetta sinn lofa ég
að gera mitt bezta, hvort sem
það nú nægir. í>ví Ingo er
vissulega góður hnefaleikari.
Ég met hann mikils, það er
ykkur óhætt að bóka.
• I Gautaborg
í Reutersfréttum frá Gauta
borg er sagt að meðborgarar
Ingos hafi tekið ósigri hans
betur en búizt hefði mátt við.
Keppninni var útvarpað þar
og var klukkan 4,45 um morg
un þegar útsending hófst. Þótt
tíminn væri óheppilegur,
hlustuðu mjög margir á lýs-
inguna. Ýmsir stærstu sam-
komusalir Gautaborgar opn-
uðu um miðja nótt og þar safn
aðist fólk saman til að fylgj-
ast með.
• Fögnuður í fyrstu lotu
Mikið var um unglinga á
samkomustöðunum. Ungling-
arnir tóku að safnast saman
á einum dansstaðanna um kl.
eitt um nóttina. Þar hófst sam
koman með hnefaleikasýningu
sem vakti mikla kátínu. Þegar
keppnislýsingin hófst þyrpt-
ust unglingarnir að hátölurun-
um. Svo var það í fyrstu lotu
að Ingo sló Patterson niður
og ætlaði þá fagnaðarlátunum
aldrei að linna. En svo fór að
smá draga úr fagnaðarlátun-
um og að lokinni keppni héldu
Aldrei meiri 09 betri mjdlk
MBL. hefur borizt skýrsla Kára
Guðmundssonar, mjólkureftir-
litsmanns ríkisins, um mjólkur-
framleiðslu ársins 1960. Segir í
henni að meiri og betri mjólk
hafi verið framleidd á því ári
en nokkru sinni áður.
1 skýrslunni segir að I I. og
II. flokki hafi farið 97,11%
mjólkurinnar.
í samtali við blaðið sagði
Kári að svo góð flokkun mjólk-
urinnar, sem raun ber vitni, sé
fyrst og fremst að þakka bættri
meðferð framleiðenda á mjólk-
inni' kæling hennar sé nú mikl-
um mun betri en áður var, en
það er eitt þýðingarmesta
atriðið í sambandi við geymslu
mjólkurinnar.
Alls eru mjólkurbúin í land-
inu nú 14 að tölu. Mjólkin í
einstökum búum flokkast í I.
og II. flokk, sem hér segir:
Mjólkurstöðin í Reykjavík: I.
fl. 82,18%, II. fl. 15,98%.
Mjólkurstöð Kaupfélags Suð-
ur-Borgfirðinga: I. fl. 68,02%,
II. fl. 28,20%.
Mjólkursamlag Borgfirðinga,
Borgarnesi: I. fl. 83,32%, II. fl.
13,99%.
Mjólkurstöð Kaupfélags ís-
firðinga: I. fl. 88,44%, II. fl.
6,96%.
Mjólkursamlag Kaupfélags V-
Húnvetninga og Kaupfélags
Hrútfirðinga: I. fl. 71,11%, II.
fl. 18,43%. í þessu búi hefur
hlutfallsmagnið orðið mest í
III. fl. eða 8,93%.
Mjólkursamlag Húnvetninga:
I. fl. 70,59%, II. fl. 26,81%.
Mjólkursamlag Skagfirðinga:
I. fl. 58,91%, II. fl. 38,54%,
Mjólkursamlag Kaupfélags Ól-
afsfjarðar: I. fl. 88,49%, II. fl.
10,46%.
Mjólkursamlag Kaupfélagá Ey
firðinga: I. og II. fl. 95,20%.
Mjólkursamlag Þingeyinga: I.
fl. 85,65%, II. fl. 12,02%.
Mjólkursamlag KBH, Egils-
stöðum: I. fl. 83,49%, II. fl.
II, 18%.
Mjólkurbú Kaupfél. „Fram“,
Neskaupstað: I. fl. 99,81%, II.
fl. 0,19%.
Mjólkurbú Kaupfélags A-
Skaftfellinga: I. fl. 85,33%, II.
fl. 12,02%.
Mjólkurbú Flóamanna: I. og
II. fl. 98,05%
I tveimur stærstu mjólkurbú-
um landsins hefur ekki verið
sundurliðuð flokkun í I. og II.
flokk.
Floyd Patterson
flestir heim. Sumsstaðar var
þó sigri Floyds fagnað, enda
er hann vinsæll í Svíþjóð frá
því hann var þar á ferðalagi
á síðasta ári.
• „Ekki vonsvikin-'
Margir af ættingjum Ingos
eru í Bandaríkjunum, en einn
af þeim sem heima sitja er
Gunnar Karlsson. Gunnar er
skipstjóri á fiskiskipinu
„Ingo“, sem Johannsson á og
hafði hann boð inni fyrir ætt-
ingja og vini til að fylgjast
með keppninni. Þegar keppn-
in hófst voru tveir synir Gunn
ars ellefu og þrettán ára
gamlir, vaktir til að sjá hvern
ig „Ingo frænda“ gengi.
Eftir keppnina sagði kona
Gunnars við blaðamenn: „Við
erum svo fegin því að Ingemar
skuli vera ómeiddur. Okkur
fannst þetta góð keppni. —
Nei, við erum ekkert vonsvik-
in yfir úrslitunum“.
• Tíminn er liðinn
Flest dagblöðin í Stokk-
hólmi og öll dagblöðin í Gauta
borg gáfu út aukablöð með
lýsingu ,á keppninni. Voru
blöðin öll sammála um að
keppnin hafi verið ein hin
bezta, sem sézt hefur, og að
Ingo hafi barizt eins og hetja.
Stockholms-Tidningen segir
„Það er engin skömm að því
að tapa góðri keppni". Göte-
borgs-Posten sem gefinn er
út í heimaborg Ingos, segir:
„Irigemar féll með heiðri", en
bætir svo við „Tími Ingemars
er liðinn. Nafn hans verður
skráð í sögu hnefaleikanna,
en hefur tapað gildi sínu í
hringnum . . . Timinn er lið-
inn. Ingemar getur og ætti að
draga sig í hlé. Hann hefur
komið fjármunum sínum vel
fyrir svo þeir fara vaxandi.
Hann hefur nóg til að lifa af“.
STAKSIUNAR
Kjaraskerðingin
af austurviðskiptum
Nýlega birtist grein hér í
Morgunblaðinu eftir Hauk Egg-
ertsson um sykurinnflutning. Er
þar sýnt fram á það með ljósum
rökum og upplýsingum um verð
sykurs í hinum ýmsu löndum,
að íslenzkir neyteirdur greiða að
minnsta kosti 50% hærra verð
fyrir sykur, sem keyptur er frá
Jjárntjaldslöndunum, heldur en
hægt væri að fá sömu og sjálf-
sagt betri vöru fyrir annarsstað-
ar. Þetta litla dæmj sýnir hve
gífurlegt tjón hefur af því hlot-
izt, þegar beztu markaðir hafa
ekki verið hagnýttir við innkaup
til landsins heldur höfum við
verið bundnir á klafa vöru-
skiptasamninga, þar sem skefja-
laust okur er oft viðhaft gagn-
vart okkur.
Það leikur ekki á tveim tung-
um, að ein af ástæðunum til
þess, að íslendingar hafa ekki
öðlazt kjarabætur á sama tíma
og þær hafa orðið miklar í öllum
frjálsum löndum, er sú, hve
mikil viðskipti við höfum orðið
að hafa við Austur-Evrópulönd-
in.
Annað lítið dæmi
Annað dæmi mætti nefna, sem
allir þekkja af eigin raun. Þeg-
ar úmflutningur á ljósaperum
hófst að ráði frá Austir-Evrópu,
lét nærri að gjaldeyrir sá, sem
notaður var til þeirra kaupa,
tvöfaldaðist. Þessi vara, eins og
svo margt annaö sem keypt hef-
ur verið frá járntjaldslöndunum,
er hreint rusl, sem oft á tíðura
eyðileggst eftir nokkurra klukku
tíma eða daga notkun. Þegar
innflutningsfyrirtæki það sem
flytur innr ljóisai»erurnar hafði
selt þær um nokkurn tíma, aug-
lýsti það í ríkisútvarpinu eitt-
hvað á þessa Ieið:
„6 milljón ljósaperur hafa þeg-
ar verið seldar hér.“
Einhver hinna hyggnari í röð-
um kommúnista mun hafa bent
fyrirtækinu á að þetta væri ef
til vill ekki sem heppilegust
auglýsing, því að menn sæju þá
hve mikið þyrfti að nota af slík-
um perum og var þessi auglýs-
iirgaherferð þá. felld niður. Hitt
stendur aftur á móti óhaggað,
að við verjum helmingi meiri
fjármunum til kaupa á þessari
vöru en við þyrftum, ef hún væri
keypt frá Vestur-Evrópulöndum.
Þessu mætti líka snúa við ©g
segja: Við seljum fisk okkar á
helmingi lægra verði í Austur-
Evrópu en við getum fengið fyr-
ir hann á frjálsum mörkuðum.
þegar við verjum andvirðinu til
kaupa á ljósaperum.
Kj arasker ðingar stef nan
Utanríkisráðherra
Norðurlanda
ræðast við
STOKKHÓLMI, 14. marz. (NTB)
— Hafinn er í Stokkhólmi ut-
anríkisráðherrafundur Norður-
landaráðs. Fundir eru haldnir í
utanríkisráðuneytinu sænska og
er utanrikisráðherra Svía, Und-
en, formaður fundarins.
Ráðherrarnir hafa rætt ýmis
mál varðandi Sameinffðu þjóð-
irnar, þar á meðal Kongómálið.
Einnig hafa þeir rætt hvernig
bezt verði samrýmd aðstoð Norð-
urlandanna við vanþróuð lönd
og geimrannsóknir.
Ráðherrarnir sátu hádegisverð
arboð sænsku konungshjónanna
í dag, en í kvöld heldur ssenska
ríkisstjórnin þeim veizlu.
Kommúnistar berjast sem
kunnugt með odd og egg fyrir
því, að viðhalda og auka austur-
viðskiptirr. Meginástæðan fyrir
hinni hamslausu baráttu í land-
helgismálinu er einmitt sú, að
þeir vilja reyna að koma í veg
fyrir að við getum á.tt eðlileg
viðskipti við Vestur-Evrópuþjóð-
ir. Með þessari afstöðu eru þeir
um leið að berjast fyrir því að
launþegar og neytendur almennt
verði að kaupa dýrari vöru en
þeir annars gætu fengið og jafn-
framt í mörgum tilfellum lélegri.
Þeir eru með öðrum orðum að
berjast fyrir kjaraskerðingar-
stefiru. En það er líka í fullu
samræmi við alla afstöðu þeirra
í verkalýðsfélögunum. Þar berj-
ast þeir fyrir verkfallastefnunni,
sem þeir sjálfir hafa lýst yfir að
alls ekki hafi fært launþegum
neinar kjarabætur í hálfan ann-
an áratug, en vilja alls ekki á
það hlýða að fara þær leiðir,
sem færar eru til raunhæfra
kjarabóta.