Morgunblaðið - 15.03.1961, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 15. marz 1961
MORCV1SBLAÐ1Ð
23
Málfundur
í Valhöll
NÆSTI málfundur Verka-
lýðsráðs Sjálfstæðisflokks-
ins ogr Málfundafélagsins
Óðins verður haldinn í Val
höli í kvöld kl. 8,30. —
Fundarefni: Kjaramál og
verkalýðsmál. Framsögu- ,
maður: Ingimundur Guð-
mundsson. Þátttakendur 1
eru beðnir að mæta stund- I
víslega. I
Hafnarfjörðiir
HAFNARFIRÐI. — Stef nir
fél. ungra Sjálfstæðismanna,
heldur mál-
fund í Sjálf-
stæðishúsinu
í kvöld kl.
8,30. P é t u r
Sigurðsson,
alþm. flytur
e rin di um
sjávarútvegs-
mál. S í ð a n
verða umræð
ur um þau mál og frummæl-
endur þeir Jóhann Karlsson,
Jens Jónsson og Sigurður Þórð
arson. Stefnisfélagar eru hvatt
ir til að f jölmenna.
Vorboða-bazar
HAFNARFIRÐI. _ Sjálfstæð-
iskvennafélagið Vorboðinn
heldur bazar í Sjálfstæðishús-
inu n.k. föstudagskvöld. Eru
félagskonur góðfúslega beðnar
að koma munum á hann í
Sjálfstæðishúsið eftir klukkan
eitt sama dag.
ViIIijálmur Hjálm-
arsson tekur sæti
á |)ingi
EITT mál var á dagskrá sam-
einaðs þings í gær, rannsókn
kjörbréfs Vilhjálms Hjálmars-
sonar, sem tekur nú sæti á AI-
þingi sem varamaður Eysteins
Jónssonar. Páll Metúsalemsson,
er setið hefur í forföllum Ey-
steins, hverfur nú af þingi.
Fimmtán nýjar
hjúkrunarkonur
EFTIRTALDAR hjúkrunarkon-
ur brautskráðust frá Hjúkrun-
arkvennaskóla Islands um miðj-
an marz 1961:
Álfhildur Svala Sigurðardótt-
ir frá Isafirði, Dóra Reiners frá
Blönduósi, Emilía Jónasdóttir
írá Flatey á Skjálfanda, Gréta
Aðalsteinsdóttir frá Isafirði,
Hólmsfriður Geirdal Jónsdóttir
frá Akureyri, Hólmfríður Hanna
Magnúsdóttir frá Votmúla, Sand
víkurhr., Árn., Ingunn Sigur-
björg Þórðardóttir frá Litla-
Fjarðarhorni, Strandasýslu, Lára
Lárusdóttir frá Sauðárkróki,
Lyndis Gunnhild Hatlemark frá
■Reykjavík, Margrét Sæmunds-
tíóttir frá Reykjavík, Ragna
Guðmundsdóttir frá Patreks-
firði, Ragnheiður Kristrún
Stephensen frá Reykjavík, Rík-
ey Ríkarðsdóttir frá Reykjavík,
Sigríður Sigurjónsdóttir frá
Meiri-Tungu, Holtahr., Rang.,
og Þuríður Jónsdóttir frá Graf-
ardal, Skorradalshr., Borgarfjs.
Indversku hermennirnir
lagðir af stað til Kongó
NÝJU DELHI, 14. marz. — (Reut
er): — Fyrstu hermennirnir af
þeim fimm þúsundum, sem Ind-
verjar senda til aðstoðar herliði
Sameinuðu þjóðanna í Kongó,
fóru flugleiðis frá Nýju Delhi í
dag. Flugferðin til Leopoldville
tekur þá um 25 klst., ef allt fer
eftir áætlun, en alls mun taka
tíu daga að flytja allt herliðið
og búnað þess, annan en hinn
þyngsta, svo sem brynvarðar bif
reiðar o. fl., sem flutt verður sjó
leiðis.
Indverjar senda, sem fyrr seg-
ir, fimm þúsund manna lið. Þar
af eru þrjú þúsund hermenn og
tvö þúsund manns þeim til að-
stoðar.
Hermennirnir, sem nú fara til
Kongó, eru hinir fyrstu sem ind-
verska stjórnin sendir til her-
starfa í öðrum löndum, síðan
árið 1947, er landið varð sjálf-
stætt.
Kristhna Menon, varnarmála-
ráðherra Indlands ávarpaði her-
mennina við brottförina frá
Aðalfundur Félags
ísl. bifreiða-
eigenda
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda verður haldinn í
kvöld (miðv.d.) í Storkklúbbn-
um við Fríkirkjuveg. Síðasti aðal
fundur var haldinn í júlí sl., og
tók þá ný stjórn við. Á þessum
skamma tíma hefur félagið látið
mörg stórmál til sín taka, sem
miklu varða bifreiðaeigendur og
landsmenn í heild. Má þar nefna
vegamál, og hefur stjórn félagsins
ítrekað bent á hve mikil þörf er
vandaðri vega hérlendis, einkum
á fjölfömustu leiðum, og sýnt
fram á, að fjárveitingar til vega
hérlendis eru óeðlilega lágar, mið
að við það sem gerist hjá öðrum
menningarþjóðum, og þegar til-
lit er tekið til þeirra fjárhæða,
sem hið opinbera innheimtir af
bifreiðum og rekstrarvörum
þeirra.
Einnig hefur félagið tekið til
athugunar tryggingamál, og vinn
ur nú meðal annars að því að ís-
lenzkar bifreiðatryggingar verði
teknar gildar erlendis og gagn-
kvæmt. Ennfremur hefur F.f.B.
áætlanir á prjónunum um aukna
umferðafræðslu í þeim tilgangi
að draga úr tjóni af völdum bif-
reiða, sem er óeðlilega mikið hér
á landi. Tímarit félagsins, öku-
þór hefur göngu sína á ný í lok
þessa mánaðar, eftir að hafa leg-
ið í dvala alllangan tíma.
Athugasemd
f ALÞÝÐUBLAÐINU 2. þ. m.
birtist smágrein, með fyrirsögn-
inni: „Tollvörður drukkinn í
starfi“, þar sem frá því segir,
að ég undirritaður hafi þá
fyrir skömmu, er Vatnajökull
lá við bryggju á Sauðárkróki,
verið svo ölvaður við toll-
gæzlustörf, að ég hafi mátt
„varla á löppunum standa“,
eins og svo smekklega er að
orðið komizt í blaðinu.
Út af þessu vil ég taka fram,
að þar sem hér er um að ræða
fullkomin ósannindi, sem eru
freklega móðgandi fyrir mig,
mun ég gera viðeigandi ráð-
stafanir til þess að ummæli
þessi verði dæmd dauð og ó-
merk og blaðið eða heimildar-
maður þess látinn sæta ábyrgð
að lögum.
Öðru því, sem í nefndri grein
birtist, tel ég ekki svaravert.
Sauðárkróki í marz 1961
Sæmundur Ilcrmannsson.
Nýju Delhi. Hann sagði, að þeir
væru ekki sendir til þess að
heyja stríð, heldur til að varð-
veita friðinn. Hann sagði að þessi
för þeirra gæti tekið þrjá daga,
— þrjá mánuði eða jafnvel enn
lengri tíma.
Píanósónötur
Mozarts
ÍSLENZKIR píanistar leika á
næstunni í Ríkisútvarpinu allar
píanósónötur Mozarts. Þessi tón-
leikaflokkur hefst föstudag 17.
marz kl. 20.50 með því að Björn
Franzson flytur erindi um Wolf
gang Amadeus Mozart og Jón
Nordal leikur píanósónötu í C-
dúr, er Mozart í Salzburg 18 ára
gamall samdi í stíl föður síns. Á
næstunni verða svo aðrar píanó-
sónötur Mozarts leiknar. Auk
Jóns Nordals annast flutning:
Ásgeir Beinteinsson, Gísli Mágn-
ússon, Guðmundur Jónsson, Guð-
rún Kristinsdóttir, Jórunn Viðar,
Ketill Ingólfsson, Kristinn Gests-
son, Magnús Blöndal Jóhannsson
og Rögnvaldur Sigurjónsson.
— V'isindi
Framhald af bls. 10.
Kjarnorkuver í geimnum
Draumur geimferðamanna er
sá, að þeim takist að nota kjarn-
orkuna í geimferðunum. Enn hef
ur ekki tekizt að búa til eldflaug,
sem knúin er af kjarnorku, og er
það fyrst og fremst vegna hins
mikla rýmis, sem venjulegir
kjarnaofnar þurfa. Vegna hinnar
miklu geislahættu, sem öllum
kjarnakljúfum er sameiginleg,
þarf að útbúa þá með þykkum
vamarveggjum úr blýi eða stein-
steypu til þess að hindra útgeisl-
unina. Eins og gefur að skilja, er
slíkt mjög erfitt út í rúmmu,
fyrst og fremst vegna efnisskorts.
Nú minnkar geislunarhættan
því meir sem lengra dregur frá
orkuverinu, og það var þess
vegna sem vísindamönnum datt í
hug að hafa kjarnorkuverið að-
skilið frá geimfarinu í togi, og
raforkan sem verið framleiddi
yrði leidd eftir leiðslum milli
versins og geimfarsins. Þannig
þyrfti ekki að byggja varnar-
veggi utan um kjarnorkuofninn,
ef fjarlægðin væri bara nógu mik
il.
• Þetta eru þó varla enn meira
en hugleiðingar, en þær miða þó
að því, að gera draum mannsins
að veruleika, að einn góðan veð-
urdag verði hann herra geimsins
eins og hann er núna herra Jarð-
arinnar.
— Portúgalar
Frh. af bls. 1
lútandi. Dadet kvaðst vilja hylla
Breta og Frakka fyrir þá leið,
er þeir hefðu farið við að veita
nýlendum sínum sjálfstæði og
hann skírskotaði til Bandaríkj-
anna sem hins „stóra bróður
Vesturheims" að reyna að koma
vitinu fyrir Portúgali.
Sérstök nefnd
Þegar Dadet hafði lokið máli
sínu, báru Ceylon, Líberíu og
Arabalýðveldin fram tillögu
um, að Öryggisráðið komi á fót
nefnd, sem rannsaki ástandið í
Angóla og gefi ráðinu skýrslu
um það svo fljótt sem unnt er.
í tillögunni eru Portúgalir hvatt
ir til að athuga möguleika á end
urskoða afstöðu til Angola í sam
ræmi við samþykkt allsherjar-
þingsins frá 14. desember sl. um
afnám nýlendustjórnar.
Fulltrúi Ghana lagði til, að
Öryggisráðið kæmi á fót sams
konar nefnd til þess að fjalla
um málefni Angóla eins og fjall-
að hafi um málefni Suð-vestur
Afríku.
Skíðalyfta og
skíðakennsla
MÖRG hundruð börn og fullorðn
ir voru á skíðum í gærdag. M. a.
voru á 2. hundrað við skíðaskála
KR. Skíðalyftan verður í gangi
næstu daga og verða ferðir dag-
lega kl. 1,30 frá afgr. skíðafélag-
anna.
Einnig verður starfandi skíða-
kennari er leiðbeinir almenningi.
Gjald fyrir kennsluna er kr. 5 á
klukkustund. Ásgeir Úlfarsson
skíðakappi sér um kennsluna.
Ferðir frá Skálafelli til Reykja-
víkur eru kl. 6.30.
Hjartans þakkir til allra, fjær og nær, sem á margvís-
legan hátt heiðruðu mig á 70 ára afmæli mínu, þann 8. þm.
Jón Hafliðason.
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig
á afmælisdaginn minn 9. marz með heimsóknum,
skeytum og gjöfum og gjörðu mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnheiðnr Erlendsdóttir, Hverfisgötu 108.
Kæru vinir.
Þakka ykkur hjartanlega alla ástúðina, sem þið sýnduð
mér sjötugum með ánægjulegum heimsóknum, höfðing-
legum gjöfum og öðrum vinarkveðjum.
Ingvar Eiríksson, Efri-Reykjum.
Móðir, tengdamóðir og amma okkar
ÁSLAUG FREÐJÓNSDÓTTIR
lézt að Elliheimilinu Grund, 8. marz síðastliðinn.
Útför hefur farið fram.
Gísli T. Guðmundsson,
Einar Karlsson,
Sigurður lsfeld Karlsson
Birgir Karlsson,
Kristín Björnsdóttir,
Kristfn Gísladóttir,
Orn Gíslason,
Björn Gislason
Móðir okkar og tengdamóðir
ÁGtíSTA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
Lækjargötu 5, Hafnarfirði,
andaðist í St. Jósepsspítala 11. þessa mánaðar.
Börn og tengdabörn.
Eiginkona mín og móðir okkar
STEFANlA MARlA SIGURÐARDÓTTIR
lézt að heimili sínu Stýrimannastíg 10 að morgni 13. þ.m.
Karl Ásgeirsson og börn.
Útför mannsins míns
EINARS PJETURSSONAR
stórkaupmanns,
fer fram frá, Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
16. marz kl. 2 e.h.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast
bent á líknarstofnanir.
Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna.
Unnur Pjetursdóttir.
Faðir okkar
EINAR RUNÓLFSSON
trésmiður,
sem andaðist 10. þessa mánaðar verður jarðsettur
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. þ.m. og hefst
athöfnin kl. 13,30.
Trausti Einarsson,
Hákon Einarsson,
Guðrún Einarsdóttir,
Þórhaliur Einarsson.
Athöfn til minningar um manninn minn
GARÐAR HALLDÓRSSON
alþingismann,
fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
16. þ.m. og hefst kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður
útvarpað.
Hulda Davíðsdóttir.
Þökkum af alhug okkur sýnda samúð og hlýhug vegna
andláts mannsins míns, föður okkar og rnágs
LUCIEN EDUWAERE
Hulda Eduwaere,
Ronald og Eric Eduwaere,
Sigríður Ásbjörnsdóttir, Úlla Ásbjörnsdóttir.