Morgunblaðið - 23.03.1961, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 23. marz 1961
ei, ég elda ekki eft
ir matreiðsiubdkum
segir María Gísladóttir
var að ráða
í síldarkeppn-
ÚR VÖNDU
hvaða réttur
inni ætti að hljóta verðlaun,
því svo óheppilega vildi til að
engin síld fékkgt í verzlun-
um um þær mundir þegax
prófa skyldi síldarréttina.
Othar Ellingsen, kaupsýslu-
maður, sem gaf verðlaunin,
treysti sér ekki til að dæma,
þar eð hann hafði ekki hragð
hún um leið og við afhentum
henni peningana. „Ég var
sannast sagna alveg búin að
steingleyma þessu, enda hef
ur blaðið sem uppskriftirnar
birtust í, einhvemvegin farið
fram hjá mér“.
Kaffi og rjúkandi pönnukökur
María brá sér síðan fram í
eldhús og kom að vörmu spori
Frú María við eldavélina
að á öllum réttunum, og varð
það að samkomulagi að dreg
ið yrði um verðlaunin að
þessu sinni. ,En mér finnst
ástæða til að efna til nýrrar
síldarsamkeppni um síldartím
ann“, bætti Othar við, „og þær
konur ekki útilokaðar frá
keppni, sem sendu uppskrift
ir núna“.
Númer 4 kom upp, soðin
síld í karry og hrísgrjónum.
Sú, sem sendi þá uppskrift, var
María Gísladóttir, Hverfis-
götu 42. Hún er fædd og upp
"lin á Hellissandi, gift Ásgeiri
* ’narssyni og á tvö böm,
Katrínu 5 ára og Svein 3ja
ára.
Enn ég h' ipin . . .
Frú María varð alveg undr
andi þegar við hringdum til
hennar og tilkynntum úrslit-
in. Við báðum um leyfi til að
mega heimsaekja hana og var
það auðsótt mál.
„Enn ég heppin að númerið
mitt skyldi koma upp“, sagði
aftur með rjúkandi pönnukök-
ur og kaffi.
„Þetta er alltof mikil fyrir-
höfn“, segjum við.
„Nei, nei“, segir hún ákveð
in. „Ég hef aldrei neitt fyrir
neinum. Hingað koma margir
gestir og það verður að ráðast
hvernig móttökur þeir fá
hverju sinni. Og heitar pönnu
kökur eru alltaf vel þegnar;
það er fljótlegt að bregða
þeim á pönnuna þegar gesti
ber óvænt að garði.
Síðan tókum við að spjalla
saman um síld og matartilbún
ing.
Eftir smekk
„Er þessi síldarréttur yðar
hugmynd“, spyrjum við frú
Maríu.
„Ja, ég veit ekki hvað skal
segja“, svarar hún. „Ég breyti
flest öllum réttum eftir mínu
bragðskyni. Nei, ég elda ekki
eingöngu eftir matreiðslubók
um. Það getur vel verið að
svipaðan síldarrétt og þann
sem ég sendi sé að finna í ein
hverri kokkabók en hann er
kryddaður og bragðbættur
eftir mínum smekk“.
„Eruð þér snjöll elda-
buska?“
Nú hlær María:
„Mér þykir gaman að matar
tilbúningi“.
„Eitthvað lært í matar-
gerð?“
„Já, ég var eitt ár við nám
í húsmæðraskólanum á
Blönduósi. Það eru nú 11 ár
síðan“.
f þann mund kemur dóttir
in, Katrín, inn í stofuna og
spyr: „Mamma hefurðu séð
servéttumar mínar?“
Mamma hennar réttir henni
öskju fulla af servéttum en
forvitnin vaknar í Katrínu.
Hún sezt við hlið okkar og
segir um leið og hún krækir
sér í eina pönnuköku:
„Hvað eruð þið að skrifa?“
Við segjum henni það, en sú
stutta er engu nær:
„Af hverju eruð þið að
skrifa?“ spyr hún aftur og
krækir sér í aðra pönnuköku.
Þá var hún búin að fá nóg og
yfirgefur herbergið með serM
éttukassann undir hendinni.
Svona er hún
Við höfðum nýlokið við að
drekka kaffið, þegar eigin-
maður Maríu, Ásgeir kemur
inn. Hún segir honum frá því
að hún hafi unnið fimm hudr
uð króna verðlaun.
„Nú, jæja“, segir Ásgeir,
,,og ég sem kom til að vita
hvort þig vantaði ekki pen-
inga. Fyrir hvað vannstu
þetta eiginlega?"
„Þú manst, þegar við vor
um að lesa um síldarsam-
keppnina í Morgunblaðinu, og
ég settist strax niður um
kvöldið og sendi blaðinu nokkr
ar uppskriftir. Og ég vann
verðlaunin“.
,,Svona er hún“, segir Ás-
geir hlæjandi, „hún fram-*
kvæmir allt á stundinni sem
henni dettur í hug“
Hg.
Meiri síld
Hér koma síldaruppskriftir,
sem okkur bárust í síðustu
viku:
Steikt síld með skarpri sósu.
1 kg. síld.
3 tsk. salt.
114 dl. rúgmjöl eða tvíbökur.
3 msk. smjör olía til helm.
persilja og sítrónusafi. Síld
in hreinsuð og flökuð. Sax-
aðri persilju og sítrónusafa
dreift yfir hvert flak þau
lögð saman tvö og tvö söltuð
og velt upp úr mjölinu og
steikt á velheitri pönnu.
Sósan.
1 soðið egg.
1 eggjarauða.
1 tsk. sinnep.
V\ tsk. salt — pipar.
2 tsk. edik.
114 dl. rjómi.
Hrærið saman eggjarauður
og allt krydd. Þeytið rjómann
og blandið honum saman við,
hákkið eggjahvítuna og bland
ið henni síðast í sósuna.
Steikt síld í pappír.
Gott ráð til þess að losna
við brælu frá steiktum fisk,
er að steikja hann í pappír,
málm- eða smjörpappír, sem
klipptur er hæfilega stór fyr
ir hyert stykki.
Síldin er hreinsuð og flök
uð. Leggið hvert síldlarflak
á velsmurðan pappír, kryddið
með salti og papríku og söx-
uðum lauk. Brjótið saman í
pakka og steikið þá á vel
heitri pönnu (án feiti). Til
öxyggis opnið þá einn pakk
ann og stingið í fiskinn. Ber
ið pakkana á borð óopnaða.
Síldarbúðningur.
% kg. síld.
114 tsk. salt.
gaffalbitar.
14 1. soðnar kartöflur.
3 tsk. sinnep.
2 msk. tvíbökur.
1 msk. smjör.
1 dl. rjómi.
3 msk. tómatsósa.
Síldin er hreinsuð og flök-
uð. Flökin eru söltuð og á
hvert þeirra er látin gaffal
biti og þeim rúllað saman.
Skerið kartöflurnar í sneiðar
og raðið þeim í vel smurt eld
fast form og smyrjið yfir þær
með sinnepinu. Síldarrúllun-
um er raðað yfir kartöflurnar
og tvíbökum og smjöri dreypt
yfir. Bakað í meðalheitum
ofni í ca. 10 mín. þá er rjóma
og tómatsósu hellt yfir og
bakað í annan jafn langan
tíma.
I sumarláyfi
Með útsýn
Edinborg — London: 24. júní — 6. júlí
Kaupmh. - Hamborg - Rínarlönd - Sviss
París: 5.—29. ágúst.
Ítalía og Frakkland: 8.29. sept.
I ferðum þessum gefst kostur á að kynnast mörg-
um eftirsóttustu stöðum álfunnar í fylgd þaulkunn-
ugs íslenzks fararstjóra. Munið, að ferðir þessar hafa
verið fullskipaðar löngu fyrirfram undanfarin sum-
ur. —r Kjörorð félagsins er: Fullkomin þjónusta og
mest fyrir farareyrinn. — Ferðir, sem þér getið
notið og sem þér getið treyst.
Ferðafélagið Útsýn
Nýja Bíói, Lækjargötu 2.
Skrifstofutími kl. 5—7 síðdegis.
Jafnvel þeir sem lifa í sínum
„fílabeinsturni“ •— verða að
viðurkenna ágæti fegrunar-
varanna frá
LANCÖME
" /e parfumeur de Paris