Morgunblaðið - 28.03.1961, Qupperneq 17
Þriðjudagur 28. marz 1961
MORGUTVBLAfílÐ
17
— Útvarpsumræður
Framh. af bls. 1
Benediktsson nokkuð rætt land-
íhelgismálið og sagði þá m. a.:
Möguleikarnir hagnýttir
En hvernig stendur þá á hinum
mikla sigri okkar?
E. t. v. sannfærðust Bretar um,
að kommúnistar ginntu þá eins
og þursa, þegar þeir létu ögra sér
til herhlaupsins að íslands strönd
um. Þeir sáu sennilega, að engu
stórveldi er til sæmdar að tak-
ast svo bersýnilega á hendur
hlutverk Goliats gegn hinum ís-
lenzka Davíð.
En úrslitum réði örugglega, að
íslenzka stjórnin ákvað nú að
nota til hins ítrasta það vinsam-
lega samband, sem vist beggja
ríkja í Atlantshafsbandalaginu á
að hnýta og hlýtur að hnýta, ef
rétt er á haldið. Með veru okkar
þar opna æðstu valdamenn ís-
lands sér beinan aðgang til æðstu
valdamanna bandalagsþjóða okk-
ar. Það hefur ætíð verið sannfær
ing mín, að hinir ómetanlegu
möguleikar til að gera landi okk-
ar gagn, sem með þessu eru fyrir
íhendi, hafi engan veginn verið
nýttir til fulls 1958. Þess vegna
fór þá eins o& fór. Nú voru þess-
ir möguleikar hagnýttir. Það réði
úrslitum um sigur okkar.
Upplausnarstefna
kommúnista
1 Matthías Á. Mathlesen sagði
m. a.: Ein sá baráttuaðferð, sem
kommúnistar víða um heim nota
með góðum árangri fyrir upp-
'lausnarstefnu sína, er að skapa
stjórnmálaþreytu og þar af leið-
andi afskiptaleysi almennings af
stjórnmálum. í þeim efnum hafa
þeir m. a. notað málþófstækni
sína, samfara vísindalegum sál-
fræðibrögðum og hefur þeim orð
Sð furðu ágengt, svo sem heims-
Ikortjð ber sannarlega með sér
5 dag. Það er því i alla staði rétt
og skylt, að aðvörun sé borin
fram i áheyrn alþjóðar.
> Vissulega er málfrelsi og prent
’frelsi einn af hyrningarsteinum
lýðræðisins og ekki munum við,
stuðningsmenn núverandi ríkis-
stjórnar, biðjast undan gagn-
rýni né óttast Þá gagnrýni, sem
íháttvirt stjórnarandstaða hefur
ffram að bera, svo burðug sem
hún er.
Eigi að síður skal þjóðin að-
Vöruð. Barátta kommúnista,
eðli þeirra og innræti er alls
staðar hið sama. Aðferðirnar dá-
lítið mismunandi eftir aðstæð-
um.
Ábyrg stjórnarandstaða
Gísli Jónsson sagði m.a.: Þar
sem þingræðið á dýpstar raetur,
þykir það engu minni vandi né
virðing að vera í stjórnarand-
stöðu en hitt, að bera fulla á-
ibyrgð á stjórnarathöfnum. Á-
byrg stjórnarandstaða gegnir
þeim vanda, að gagnrýna af sann
igirni, vizku og fullu drenglyndi
anisfellur í stjómarfari. Hún leit-
ar jafnan samvinnu við þing-
I meirihluta tun framgang mála,
i sem varða heill þjóðarinnar. Þyk
Sr það jafnan bera vott um ábyrgð
artilfinningu, þegar stjórnarand-
etaða sýnir fullan vilja í verki til
samstöðu um lausn vanda, sem
enerta utanríkismál og efnahags-
mál. Enda ávallt mikið imdir þvl
Ikomið fyrir þjóðina, hversu þess-
um tveimur höfuðmálum er skip-
að. Á því veltur oft traust hennar
og virðing út á við og inn á við.
Slík stjórnarandstaða er jákvæð
og ræður ávallt nokkru um af-
greiðslu mála.
Neikvæð og ábyrg stjórnarand-
etaða gagnrýnir allar stjórnarat-
hafnir, góðar jafnt sem illar, tor-
veldar framgang mála eftir mætti
og sýnir meiri hluta í engu trún-
að.
Ríkisstjórnin leysir vanda
.vinstri stjórnarinnar
Jón Árnason sagði m.a.: Nú-
verandi ríkisstjórn hefur sýnt í
verki, að hún er þessum vanda
vain (þ.e. að greiða úr vandamál-
Minnispeningur (
Jóns Sigurðssonar
FRUMVARP ríkisstjórnarinnr
ar um minnispening Jóns
Sigurðssonar var afgreitt sem
lög frá Alþingi sl. laugardag.
í hinum nýju lögum er rík-
isstjórninni heimilað að láta
gera gullpening í tilefni af
150 ára afmæli 17. júní nr.k.
Gerir frv. ráð fyrir því, að
■MMltfliUhMa
MMkMa
gullpeningurinn geti skv. for
setaúrskurði verið gjaldgeng
mynt, og ennfremur, að
heimilað verði að selja hann
með allt að 50% álagi.
Ágóðanum af sölu penings-
ins er ætlað að verja til um
bóta á fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar, Rafnseyri við
Arnarfjörð.
um útflutningsframleiðslunnar).
Með efnahagslöggjöfinni var á-
kveðið, að gengi íslenzku krón-
unnar skyldi skráð skv. því, sem
eðlilegur tilkostnaður útflutnings
framleiðslunnar segði til um, og
hún hefur ennfremur beitt sér
fyrir ýmsum öðrum aðgerðum, er
stuðlað gætu að því, að atvinnu-
vegirnir gætu staðið á eigin fót-
um.
Einna veigamesti þátturinn í
þeim aðgerðum eru lögin um
Stofnlánadeild sjávarútvegsins,
þar sem ákveðið er að koma á
nýjum lánaflokki við Stofnlá,na-
deildina. Með þessum nýja lána-
flokki er ákveðið að breyta bráða
birgðalánum og ýmsum skuldum,
sem hlaðist hafa á sjávarútveg-
inn á undanförnum árum í löng
lán með hagkvæmum vöxtum.
Og nokkru síðar:
Lánsfjárskortur útvegsins er
ekki nýtt mál, sem orðið hefur
tii á einu ári, heldur er það vanda
mál, eða öllu heldur vandræða-
éstand, sem á mörgum árum hef-
ur verið að þróast þar til nú, að
svo er komið, að því varð eig'i
lengur á frest skotið. Er þetta
einn hlutinn af arfleifð vinscri
stjórnarinnar, sem hún skildi eft-
ií sig og, sem nú kemur í hlut
núverandi ríkisstjórnar að leysa
og ráða bót á.
Engin samstaða
í vinstri stjórninni
Ingvar Gíslason ræddi í upp-
hafi ræðu sinnar um áhrif Fram
sóknarflokksins á undanförnum
áratugum, og sagði m. a., að eng-
inn stjórnmálaflokkur hefði haft
ríkari tök á landsstjórninni á
uppgangstímabili þjóðarinnar en
einmitt Framsóknarflokkurinn,
hann hefði leitt sóknina.
Þá gerði Ingvar nokkurn sam-
anburð á stefnu núverandi ríkis-
stjórnar og vinstri stjórnarinnar,
sem hann kvað gerólíka í öllum
höfuðmálum, þar sem allt hefði
snúizt öfugt í höndum núverandi
valdamanna.
Halldór E. Sigurðsson ræddi í
upphafi um efnahagsmálin og slit
vinstri stjórnarinnar, sem stafað
hefðu af því, að ekki hefði náðzt
samstaða um úrlausn vandamál-
anna, er þá lágu fyrir, en hins
vegar hefði efnahagsástandið í
landinu ekki verið svo slæmt,
að það hefði valdið stjórnarslit-
unum. Taldi hann stefnu núv. rík
isstjórnar í efnahagsmálum mjög
slæma. Greiðsluhalli væri stór-
legur á viðskiptum við útlönd og
greiðsluþröng ríkisins aldrei
meiri en nú. Þá sagði hann að nú
væri minnkandi þjóðarfram-
leiðsla og minnkandi þjóðartekj-
ur.
Samdráttur
í landbúnaðarmálum
Jón Skaftason taldi, að fram-
kvæmdir í landinu hefði goldið
mikið afhroð af efnahagsráð-
Stöfunum og þá einkum vaxta-
hækkuninni, er hefði þýtt sam-
drátt í atvinnulífinu.
Um land'helgismálið sagði
hann, að fiskimálaráðherra
Breta vitnaði til þess í samræð-
um sínium við breaka togara-
menn, að samkvæmt samningum
gætu íslendingar ekki fært ein-
hliða út landhelgi sína án sam-
ráðs við Breta og með því að.
Ieggja málið undir alþjóðadóm-
stól, en aðeins 3 þjóðir af 60—70
innan Sameinuðu þjóðanna
hefðu fallizt á að leggja lífs-
hagsmunamál sín undir þann
dómstól.
Þá kvað hann að síðustu stjórn
arflokkana hafa stráfellt allar til-
lögur til stuðnings við húsbygg-
endur.
Vilhjálmur Hjálmarsson sagði
framkvæmdir í landbúnaðarmál-
um hafa á undanförnum árum
verið stórstígar, en nú væri kom
inn í þær mikill samdráttur, er
sýndi sig m.a. í minnkandi skurð-
greftri. Sagði hann að lömunar-
stefnan legðist eins og mara á
ísl. landbúnað. í landhelgismál-
inu kvað hann stjórnina hafa
svikið öll gefin loforð og nú væri
svo komið, að bátar væru hrakt-
ir af miðum sínum. Sagði hann,
að yrði sama stjórn við lýði eftir
þrjú ár, myndi samningurinn um
undanþágu um veiðar innan 12
mílna, verða framlengdur.
Karl Guðjónsson sagði, að það
hefði svo sem ekki vantað, að
viðreisnin hefði verið mikill boð
skapur í upphafi, en nú hefði
þjóðin búið við hana í 1 ár, og
þá væri mesti glæsibragurinn
farinn af henni. Dómur þjóðar-
innar yfir viðreisninni væri
kaldur og miskunnarlaus. Við-
reisnarstefnan væri vasaútgáfa
af stefnu Eisenhowerstjórnarinn
ar, sem jafnvel Bandaríkjamenn
legðu nú allt kapp á að losa sig
við.
Samdráttur
í byggingarframkvæmdum
Gunnar Jóhannsson sagði, að
efnahagsmálaráðstafanir ríkis-
UM 9 leytið á sunnudags-
kvöld kom Garrant sendibif-
reið niður Skólavörðustíginn
Niður undir gatnamótunum
við Laugaveg steig bílstjór-
inn á hemlana, en bíllinn rann
áfram í hálkunni, lenti fyrst á
umferðarskilti og lagði það
stjórnarinnar á sl. ári hefðu mik-
il og alvarleg samdráttaráhrif í
byggingarframkvæmdum og
mundu þannig valda mikilli
hækkun á húsaleigu vegna skorts
á húsnæði.
Þá sagði Gunnar, að allt tal
um, að forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar vildu aðeins
verkföll, en létu sig engu skipta
raunhæfar kjarabætur án verk-
falla, væri hreinn uppspuni. Hins
vegar sannaði saga verkalýðs-
hreyfingarinnar, að atvinnurek-
endur létu ekki í té kjarabætur
fyrr en í fulla hnefana og verka-
lýðurinn hefði alltaf orðið að
berjast fyrir þeim harðri baráttu.
Geir Gunnarsson ræddi nokk-
uð áhrif efnahagsráðstafananna
á húsbyggingar. Sagði hann, að
beinar kauplækkanir, 135%
gengislækkun, gífurlegar verð-
hækkanir á byggingarefni og
stórhækkaðir vextir og styttur
lánstími gerði alþýðu manna nú
ókleift að eignast eigið hús-
næði. Verst væru þeir þó sett-
ir, sem hefðu hafið byggingu
áður en ráðstafanirnar dundu
yfir, því að þeir gætu í raun og
veru hvorki haldið áfram né
hætt.
Kommúnistar skipa
Framsókn
Guðmundur f. Guðmundsson
kvað efnahagsmálin og landhelg
ismálið þýðingarmestu málin, er
núverandi rikisstjórn hefði feng-
ið til úrlausnar. Hann sagði enga
samstöðu hafa verið innan vinstri
stjórnarinnar um vanda efnahags
málanna, váð hefði blesað 17
stiga vísitöluhækkun, er hún fór
frá, og stórhækkun hennar inn-
an skamms. Nú væri svo komið
að Framsókn léti Alþýðubanda
lagið segja sér fyrir verkum,
enda hefði Framsóknarflokkur-
inn ekki viljað taka til greina
tillögur Alþýðuflokksins í þeim
málum, er m. a. áttu þátt í slit-
um vinstri stjórnarinnar.
Um landhelgismálið sagðí Guð
mundur, að landsmenn almennt
myndu ekki gera sér ljóst, hve
þýðingarmikil lausn þeirra
væri. Hi-ns vegar sagði hann, að
innlendar vinnuaðferðir í því
máli hefðu verið vel á veg komn
ar með að valda því, að við næð
um þar engum árangri. Þá rakti
hann viðbrögð kommúnista við
öllum aðgerðum í landhelgismál
inu og benti á, að nú væri svo
komið, að Framsókn væri undir
niður og síðan á umferðarljósa
staur, „sem tók ofan“, eins og
sést á myndinni. Bifreiðastjór
inn ók niður á lögreglustöð og
sagði sínar farir ekki slcttar.
Lögregluþjónar brugðu skjótt
við og komu og sóttu „ljósa-
kolIinn“.
Ljósm. Sv. Þorm.
gefin kommúnistum í þessM
máli og kæmi þar fram gjör-
breyting á afstöðu þeirri, er
þeir hefðu áður haft.
Merk löggjöf
Birgir Finnsson var síðasti
ræðumaður í umræðunum. —
Hann gerði í upph:.fi málþóf
stjórnarandstæðinga að um-
ræðuefni, sem hann taldi til
þess- eins að tefja þingstörf og
stjórnarsinnar vildu ekki taka
þátt í. Hann fagnaði þó einni
tillögu stjórnarandstæðinga, er
væri um bætt húsakynni Al-
þingis.
Þetta þing hefði til dagsins í
dag afgreitt 65 lög og meðal
þeirra merkustu væru lögin um
launajöfnuð karla og kvenna.
Landhelgismálið væri stórsigur
fyrir íslendinga, en í því sam-
bandi vildi hann benda á þjónk
un Framsóknar við kommúnista
svo og þjónkun þeirra við þá í
verkalýðsfélögunum, sem fram
hefði komið við kosningar í
þeim. Þá ræddi hann um af-
greiðslu fjárlaga og auknar
framkvæmdir samkvæmt þeim
og auknar bætur almenningi
til handa samkvæmt tryggingar-
löggjöfinni.
- SEATO...
Frh. af bls. 1
ríki eru ekki fær um að verjast
utanaðkomandi ágangi eða
íhlutun í málefni sín. Þar til
ríkin á þessu svæði geta verið
þess fullviss, að þau þurfi ekki
að óttast ógnanir erlendra afla,
munum við halda áfram að að-
stoða þau við að verja hendur
sínar. — Aðrir fulltrúar lýstu
svipaðri eindreginni afstöðu í
ræðum sínum.
- ★ —
Á fundinum í dag var sam-
þykkt að halda tvo lokaða
fundi með hernaðarsérfræðing-
um til þess að skipuleggja hern
aðaraðgerðir bandalagsins í La-
os, ef talið verður, að til slíks
þurfi að grípa.
★ VONIR KENNEDVS
OG GROMYKOS
Eins og fyrr segir, ræddust
þeir Kennedy og Gromyko við
í Washington í dag, að viðstödd
um ýmsum ráðgjöfum sínum.
Báðir lýstu því yfir eftii^ fund-
inn, að þeir vonuðust til, að hið
fyrsta mætti nást friðsamleg
lausn á Laosmálinu, svo að land
ið geti framvegis verið alger-
lega sjálfstætt og hlutlaust. —
Talið er, að Gromyko hafi flutt
Kennedy persónuleg skilaboð
frá Krúsjeff um Laos.
★ GÓÐS VITI
Sovétstjórnin hefur annars
ekki opinberlega svarað orð-
sendingu brezku stjórnarinnar á
dögunum, þar sem hún bar
fram tillögur, er miðuðu að
vopnahléi í Laos og alþjóðleg-
um fundarhöldum um framtíð
landsins. — Hins vegar var tals
vert ritað um málið í dag í
„Pravda“, málgagn rússneska
kommúnistaflokksins. Lét blaðið
í ljós þá skoðun, að unnt ætti
að vera að leysa Laosmálið á
grundvelli fyrrgreindra tillagna
Breta og fyrri tillagna Sovét-
ríkjanna, sem ekki greindi svo
mjög á. Blaðið taldi einnig góðs
vita þau ummæli Kennedys, að
leysa bæri málið við samninga-
borð en ekki á vígvelli — en
varaði hann jafnframt við því,
svo og SEATO-bandalagið í
heild, að gera nokkuð, sem
spillt gæti ástandinu í Laos og
samkomulagshorfum um það.
— ★ —• I
Við umræður í brezka þing-
inu í dag, lét Edward Heath, að-
stoðarutanríkisráðherra, svo um
mælt, að hann vonaðist til
þess, að umrædd grein í Pravda
merkti það, að „vænta mætti
hagstæðs svars“ við tillögum
brezku stjórnarinnar.