Morgunblaðið - 30.03.1961, Síða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 30. marz 1961 1
Félag Isl. bifreiðaeigenda
eflt og starfssvið aukið
Aðalfundur F.I.B., var hald-
inn miðvikudaginn 15. marz, var
fundurinn fjölsóttur og ríkti mik
ill áhugi um verkefni og fram-
tíð félagsins.
Stjórnin gaf skýrslu um störf-
in frá síðasta aðalfundi í júlí
1960. Fjölda mörg mál varðandi
bifreiðaeigendur og vegfarendur
almennt höfðu verið tekin til at-
hugunar, en megináherzla lögð
á vegamál, bifreiðaþjónustu, um
ferða- og öryggismál, trygginga-
mál og breytingu á skipulagi fé-
lagsins. Hafa sérstakar nefndir
fjallað um þessi mál. Fer hér á
eftir stuttur útdráttur úr skýrslu
stjórnar F.I.B. ___
Vegaþjónusta o.fl.
Félagið sá um viðgerðaþjón-
ustu, fyrir bifreiðar á fjölförn-
ustu leiðum um Verzlunarmanna
helgina, og var hún innt af hendi
ókeypis fyrir félagsmenn. Vist-
fólki á Grund var hoðið í
skemmtiferð. Haldin var almenn-
ur umræðufundur um vegamál
og sýnd kvikmynd um gerð ný-
tázku vega. Undirbúnir voru sam
ningar við ýms fyrirtaeki um
baetta þjónustu og e.t.v. afslátt
fyrir félagsmenn. . .
Útgáfa Ökuþórs. "*
Ætlunin var að hann kæmi út
um áramótin, en því miður hef-
ur það dregizt nokkuð. En nú er
tímaritið komið í prentun og verð
ur væntanlega sent félögum um
næstu mánaðamót. Ritstjóri
Ökuþórs er Guðmundur Karls-
son. f>á hefur nefndin leitað eft-
ir fræðslukvikmyndum um um-
ferðarmál, bæði hjá Upplýsinga-
skrifstofu Bandaríkjanna og fé-
lagi danskra bifreiðaeigenda.
Umferðafræðsla.
Upplýsingaþjónustan hefur boð
ið tvær gagnlegar kvikmyndir
að láni og var ætlunin að sýna
þær sem aukamyndir í kvik-
myndahúsunum, en til Þess að
— Laos
Framhald af bls. 1.
sem varlega vildu fara og
hinna, sem herskáari voru.
ÁLYKTUNIN
1. Ráðst'efnan litur alvarlegum
augum sókn uppreisnarmanna
í Laos og áframhaldandi
vopnaflutninga til þeirra frá
kommúnistaríkjunum, sem á
þennan hátt svívirða alþjóða-
lög.
2. Ráðstefnan ítrekar það að
SEATO er varnarbandalag,
sem ekki er ætlað til árása.
3. Ráðstefnan vill stuðla að því
að Laos verði sjálfstætt, óháð
og sameinað ríki án þjónkun-
ar við nokkra þjóð eða þjóða-
samtök.
4. Ráðstefnan telur að þessu
marki sé einungis unnt að ná
með samningum og því aðeins
að bardögum verði hætt í
landinu.
5. Ráðstefnan fagnar þeim til-
raunum, sem gerðar hafa ver-
ið til að koma á vopnahléi og
hefja friðsamlegar viðræður
um framtíð Laos.
6. Ef allar tiiraunir verða ár-
angurslausar og áframhald
verður á hemaðaraðgerðum í
því skyni að ná völdum í La-
os, eru meðlimir SEATO hins
vegar reiðubúnir að grípa til
viðeigandi aðgerða.
7. Ráðstefnan lítur einnig alvar-
legum augum tilraunir vopn-
aðs minnihluta, sem eins og
uppreisnarmanna í Laos nýt-
ur erlendrar aðstoðar gegnt
alþjóðalögum, til að steypa
stjóm Vietnam af stóli. Lýsir
ráðstefnan því eindregið yfir
að hún mun ekki láta þessar
tilraunir viðgangast.
8. Að lokum vill ráðstefnan
taka það fram að hún telur
að bandalaginu beri að fylgj-
ast vel með atburðum í Laos
og Vietnam með hliðsjón af
þessari ályktun.
þær komi að fullum notum þarf
að semja við þær íslenzka. skýr-
ingartexta, og hefur ekki unnist
tími til þess. Danska bifreiðaeig
endafélagið hefur látið gera for-
kunnargóða kvikmynd um akst-
ur í hálku, og getur F.I.B. feng-
ið keypt eintak af þeirri mynd.
Tjón af völdum hálku, eru hér
æði mikil. Oft veldur vangá og
vankunnátta í akstri. Kvikmynd
sem þessi, gæti bætt úr þvi og
stuðlað að minkuðum tjónum og
þar með lækkuðum iðgjöldum
bifreiðatrygginga.
Vegamál. ",**1
Athuganir og útreikningar,
sem félagið lét gera, hafa leitt í
Ijós, að hinir sérstöku skattar,
sem bifreiðaeigendur greiða ár-
lega til ríkissjóðs, af bílum og
rekstrarvörum þeirra nema 250-
300 milljóna króna. Árið 1960
var fjárveiting til brúa og vega,
aðeins 110 milljónir. Ríkissjóð-
ur leggur því ekki fram til vega-
mála nema % af þeim tekjum,
sem hann hefur af landfarar-
tækjum og rekstrarvörum þeirra.
Hið lélega ástand vega á fjöl-
förnum leiðum er einn frumstæð
asti þáttur okkar þjóðfélags, sem
kostar þjóðina stórfé í ótímabær
og óþörf skilti og eyðileggingu
ökutækja, jafnframt því, sem
hindrar á margan hátt eðlilega
og vísindalegra framfara. En á
slíkum framförum byggjast allar
kjarabætur þegnannæ Þjóðar-
nauðsyn býður að breytt sé um
stefnu í vegamálum og það er
hlutverk F.Í.B., að stuðla að því
að sú breyting verði gerð sem
fyrst.
Auknar framkvæmdir
við Austurveg.
Á þriðjudaginn í fyrri viku var
kona af íslenzkum uppruna, sem
gift hefur verið í Kaupmanna-
höfn, handtekin vegna gruns um
að hafa orðið tengdamóður sinni
að bana, viljandi eða óviljandi.
Kona þessi, sem hefur verið geð
veil, er fyrir nokkru skilin að
borði og sæng við mann sinn, og
hefur hann síðan búið hjá móð-
ur sinni í Hfóarskeldu.
Á þriðjudaginn heimsótti kon
an tengdamóður sína. Kom til
orðahnippinga milli þeirra og að
öllum líkindum til einhverra
handalögmála. Þegar sonurinn
kom heim, var móðir hans með-
vitundarlitil og sagði tengdadótt-
ur sína hafa slegið sig- Var hún
flutt á sjúkrahús, þar sem hún
andaðist 22 tímum seinna. Engin
ytri merki um líkamsmeiðingar
Þá samþykkti fundurinn að
beina þeim tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar, að nota 15 ára
gamla heimild til 20 millj. kr.
lántöku vegna Austurvegar og
yrði fé þetta notað í Þrengsla-
veg á þessu ári, að svo miklu
leyti sem kostur er á.
Steyptur vegur áð Selfossi,
eftir 80—90 ár. *
1 rökstuðningi fyrir tillögu
þessari var upplýst að sam-
kvæmt lauslegri kostnaðaráætl-
un og þeim fjárveitingum, sem
nú eru veittar til Austurvegar,
myndi taka tæp 90 ár að byggja
vandaðan og steyptan veg frá
Reykjavík að Selfossi. Miðað við
bifreiðaumferð og flutnings-
magn hefur verið full þörf fyrir
þennan veg í fimm ár eða meira.
Að óbreyttum ástæðum er útlit
fyrir að við verðum næstum
heila öld á eftir tímanum í þess-
um efnum.
Breytingar á rekstri félagsins.
Á aðalfundinum var lögum fé
lagsins breytt og stefnt að því að
auka starfssvið þess og efla fé-
lagatölu. Nú er félagið opið öll-
um bifreiðaeigendum og öðrum
áhugamönnum um velferð um-
ferðarmála, með þeirri takmörk-
un að einkabifreiðaeigendur
skuli ætíð skipa 3 sæti í stjórn
þess.
Úr stjóm gengur, samkvæmt
félagslögum gjaldkeri og annar
meðstjórnandi. Stjórn félagsins
skipa nú:
Arinbjörn Kolbeinsson for-
maður, Björn Sveinbjömsson
ritari, Valdimar Magnússon gjald
keri, Haukur Pétursson og Magn
ús Höskuldsson meðstjómendur.
vom sjáanleg.
Þegar málið var tekið fyrir á
föstudag, fór ákæruvaldið fram á
fangelsun konunnar, en dómar-
inn neitaði að taka þá kröfu til
greina, þar sem sönnunargögnin
gegn henni væru of veik, enda
neitaði hún eindregið að eiga
á nokkum hátt sök á dauða hinn
ar látnu.
Krufning hefur leitt í ljós, að
hin látna hafði æðakölkun á háu
stigj og þjáðist af hjartasjúk-
dómi, og að dauði hennar hefur
getað orsakazt af hugaræsingi
eða tiltölulega léttu höggi á
brjóstið eða hálsæðina.
Málið var aftur tekið fyrir í
gær, og var þá ákveðið að svipta
ákærðu frelsi í þrjár vikur, með
an rannsókn færi fram á andlegu
heilbrigði hennar.
Hér er ein stúlkan, sem fór vestur með Esju í gær, að sýna
lögregluþjóni við landgöngubrúna farmiðann sinn. Samanber
mynd á forsíðu.
Völd að dauða
tengdamóður sinnar?
Sýning á frönskum
málverkaprentunum
eftir nútímamálara í Bogasalnum
Forseti íslands og nokkrir alþingismenn við þinglausnir í gær. ,
A LAUGARDAGINN verður
opnuð í Bogasal Þjóðminja-
safnsins á vegum Frakklands-
vinafélagsins Allianee Francaise
sýning á endurprentunum
málverka eftir franska nútíma-
málara. Verða þar til sýnis 93
málverkaprentanir eftir 30 mál-
ara, og hafa myndimar verið
valdar meðal frægustu mál-
verka Frakka allt frá síðustu
aldamótum. — Aðgangur er ó-
keypis.
Á þessu ári á Alliance
Francaise 50 ára afmæli, og er
ráðist í þessa kynningarsýningu
á verkum franskra málara af
því tilefni. Meðal málverka,
sem þarna verða sýnd, eru
mannamyndir eftir Picasso,
blómamyndir eftir Dufy, lands-
lagsmyndir eftir Derain, upp-
stillingarmyrtdir eftir Braque,
Matisse, Juan Gris, nokkrar
dýramyndir eftir Jean Lurcat
og trúðamyndir, borgarmyndir
og fiðrildi eftir Buffet. Mynd-
imar eru til sölu, kosta frá 225
kr. upp í 1200 kr.
Alliance FraFncaise hefur
einu sinni áður efnt til sýning-
ar á málverkaendurprentunum.
Þá voru sýndar myndir frá tím-
um impressionistanna og fram á
þennan dag. Nú eru myndir eft-
ir nútímamálara. Myndirnar af
fyrri sýningunni gáfu frönsk
stjómarvöld íslenzka mennta-
málaráðuneytinu að herini lok-
inni og hafa þær verið sýndar
hér í skólum.
Alliance 50 ára
Frakklandsvinafélagið Alli-
ance Francaise var stofnað 1911
og hefur starfað síðan, nema á
styrjaldarárunum fyrri. Félagið
heldur uppi tveimur námskeið-
um í frönskukennslu og er hér
sendikennari á þess vegum,
Mlle Gagnaire. Er þetta fimmta
árið hennar héma, og vinnur
hún félaginu mikið gagn. I fyrra
fékk félagið bækistöð í tveimur
herbergjum í húsi franska
sendiráðsins undir bókasafn sitt
og einnig liggja þar frammi
blöð og tímarit fyrir félags-
menn. I stjórn félagsins eru nú:
formaður Magnús Jochumsson,
póstmeistari, Björn L. Jónsson,
læknir, Magnús G. Jónsson,
menntaskólakennari, Jón Helga-
son, kaupmaður, og J.óhann
Ágústsson, bankafulltrúi.
Sýningin á málVerkaprentun-
unum verður opnuð boðsgest-
um kl. 2 á laugardag og kl. 4
almenningi, og síðan verður hún
opin kl. 2—10 e. h., til 10. apríl,
nema hvað lokað verður á
páskadag.
Páskaungar
í sýningarglugga
Málarans
f DAG hefst sýning á vegum
Sameinuðu verksmiðj uafgreiðsl-
unnar, SAVA, í sýningarglugga
Málarans í Bankastræti. Eru
þar sýndar nokkrar vörur, sem
SAVA hefur söluumboð fyrir.
Fyrst eru til sýnis herravörur
s. s. skytur, skór, sokkar, bindi,
o. fl. Síðar koma svo vörur fyrir
kvenfólk og börn. SAVA hefur
með höndum sölu á fjölbreyti.
legu úrvali iðnaðarvara. Þeim
sýnishornum sem komið er fyrir
í Málaraglugganum, er ætlað að
gefa nokkra hugmynd um það
vöruva'l.
Yfir hátíðisdagana verða
nokkrir hænuungar frá Jóni
Guðmundssyni á Reykjum i
glugganum til augnayndis böm-
um í höfuðborginni.
Páskavaka Kirkju-
kórs Langholts-
safnaðar
UM nokkurt árabil hefur kirkju-
kór Langholtssafnaðar gengizt
fyrir fjölþættri samkomu í Laug
arneskirkju á skírdagskvöld,
Hafa samkomur þessar orðið vin
sælar og fjölsóttar. Sjötta páska-
vaka kórsins verður í kvöld og
hefst kl. 8,30. Sóknarpresturinn,
sr. Árelíus Níelsson, flytur á-
varp, Grétar Fells, rithöf., flytur
erindi, er hann nefnir Að finna
sál sína, og tvö væntanleg ferm-
ingarbörn þessa árs lesa ljóð eftir
Davíð Stefánsson. Þá leikur Árni
Arinbjarnarson organleikari. —
Kórinn syngur 12 lög, þar af þrjú
eftir íslenzka höfunda. ölium er
heimill ókeypis aðgangur, en
hins vegar eru þakksamlega þeg-
in framlög til orgelsióðs Lang-
holtskirkju.