Morgunblaðið - 07.04.1961, Qupperneq 3
i’östudagur 7. apríl 1961
MORGUNBLAÐIÐ
3
Forysta Framsóknar gengin
kommúnistum á hónd
Ræða Jóns Árnasonar
Hr. forseti, góðir tilheyrendur!
I>egar háttvirtir stjórnarand-
stæðingar gagnrýna þær viðreisn
arráðstafanir, sem núverandi rik-
isstjóm og stuðningsflokkar henn
ar hafa beitt sér fyrir, og sem nú
hafa verið framkvæmdar nokkuð
á annað ár, tala þeir alltaf um að
breyta þurfi um stefnu, það verði
að taka upp nýja og hagstæðari
stefnu í íslenzkum efnahagsmál-
um.
En þessi söngur er ekki nýr, —
þetta er sam.i söngurinn og for-
ustumenn Framsóknar kyrjuðu t.
d. 1956 þegar þeir rufu stjórnar-
samstarfið, og sögðu að ekki væri
unnt að leysa efnahagsmál þjóð-
arinnar með Sjálfstæðisflokkn-
um. — Það sama sögðu þeir um
eamstarfsflokka sína í vinstri-
etjórninni, þegar hún andaðist, —
þá var engin samstaða með þeim,
um nein úrræði, er að gagni
máttu koma, til að leiða þjóðina
út úr þeim ógöngum sem að við
blasti, ef að ekki væri tafarlaust
snúið við.
Úrræðalaus
stjórnarandstaða
En forystumenn Framsóknar
hafa verið hljóðir um eitt, — og
það er, að gefa nokkrar upplýs-
ingar um það hver hún er, þessi
nýja stefna, sem þeir alltaf eru
að tala um, að taka verði upp, —
Ástæða fyrir því er ofur skiljan-
leg, og hún er engin önnur en sú,
að þeir eiga engin úrræði, engar
sjálfstæðar tillögur, eða stefnu,
gagnvart þeim vandamálum, sem
þeir sjálfir og vinstristjórnin átti
ríkasta þáttinn í að skapa og kalla
yfir þjóðina. —
Þegar núverandi ríkisstjórn
tók^úð, var enn í gildi það kerfi,
varðandi útflutningsframleiðsl-
una, að henni var fleytt áfram
með verðuppbótum á útfluttar
afurðir, og ýmsum hliðarráðstöf-
unum, sem komu í veg fyrir að
útgerðin stöðvaðist. Allar slíkar
ráðstafanir sem gerðar voru, ent-
ust sjaldan út árið, og voru því
algjör bráðabirgða úrræði, en
allar áttu þær það sameiginlegt,
að vinda meira «og meira upp á
verðbólguhj ólið.
Stjórnarvöldin í landinu höfðu
valið það hlutskipti, í stað þess að
horfast í augu við raunveruleik-
ann, og spyrna við fótum, var
horft undan vandanum og gripið
til bráðabirgðaúrræða, sem að-
eiris færði ástandið lengra frá því
sem raunhæft var.
Eina lækningin sem að gagni
mátti koma, var því sú, að vald-
hafarnir gerðu sér fulla grein
íyrir ástandinu eins og það var
•— þyrðu að taka á sig áhættuna
af þeim aðgerðum, sem óhjá-
kvæmilegar voru, og hættu að
skjóta sér undan vandanum.
Ríklsstjórnin
vandanum vaxin
Núverandi ríkisstjóm hefur
sýnt það í verki, að hún var þess
um vanda vaxin. — Með efnahags
löggjöfinni var ákveðið að gengi
íslenzku krónunnar skyldi skráð
samkvæmt því, sem eðlilegur til-
ikostnaður útflutningsframleiðsl-
unnar segði til um, og hún hefur
ennfremur beitt sér fyrir. ýmsum
öðrum aðgerðum, er stuðlað gæti
að því, að atvinnuvegirnir gætu
staðið á eigin fótum.
Einn veigamesti þátturinn í
þeim aðgerðum, eru lögin um
Stofnlánadeild sjávarútvegsins,
þar sem ákveðið er að koma á
nýjum lánaflokki við Stofnlána-
deildina. Með þessum nýja lána-
flokki er ákveðið að breyta bráða
birgðalánum og ýmsum skuld-
um, sem hlaðizt hafa á sjávarút-
veginn á undarifarandi árum, í
löng lán, með hagstæðum vöxt.
um.
Það sem háð hefur eðlilegri
uppbyggingu sjávarútvegsins nú
um langan tíma, er lánsfjárskort
urinn sem ríkt hefur í sambandi
við nýjar fjárfestingarfram-
kvæmdir og hverskonar endur-
bætur. Segja má að Fiskveiðasjóð
ur íslands, sé svo til eina láns-
stofnunin í landinu, sem veitt
hefur slík lán, og með hagstæð-
um vöxtum. Mestur hluti þeirra
lána er þó einvörðungu bundinn
við fiskiskip, en þau lán hafa
verið látin ganga fyrir, þar sem
sjóðurinn hefur ekki yfir því fjár
magni að ráða, að hann geti full-
nægt hinni miklu fjárþörf, sem
hér er fyrir hendi.
Arfleifð
vinstri stjórnarinnar
Lánsfjárskortur útvegsins er
ekki nýtt mál, sem orðið hefur til
á einu ári, heldur er það vanda-
mál, eða öllu heldur vandræða-
ástand, sem á mörgum árum hef-
ur verið að þróast, þar til nú,
að svo er komið, að því varð eigi
lengur á frest skotið. — Er þetta
einn hlutinn af arfleifð vinstri-,
stjórnarinnar, sem hún skildi eft-
ir sig, og sem nú kemur í hlut nú-
verandi ríkisstjórnar, að leysa og
ráða bót á.
Því er svo ekki að leyna, að
þegar uppbótakerfinu lauk, á sl.
ári, var þannig ástatt hjá sjávar-
útveginum í heild, að hann átti
enga sjóði til þess að mæta því
verðhruni sem átti sér stað á öllu
lýsi og mjölframleiðslunni, jafn-
hliða aflabresti á síldveiðunum
fyrir Norðurlandi, — en þó er
hinn geigvænlegi aflabrestur sem
átti sér stað hjá togaraflotanum
á sl. ári, og sem enn er fyrir hendi
það sem af er þessu ári, það al-
varlegasta sem hent hefur þenn-
an atvinnuveg og þjóðina í heild,
um langt tímabil.
Því hefur verið haldið fram, að
orsökin til minnkandi afla togar-
anna, sé vegna þess, að togara-
flotinn, hafi að undanförnu stund
að veiðar á heimamiðum, og siglt
með aflann á erlendan markað.
Það fer svo víðs fjarri að slíkur
málflutningur eigi við minnstu
rök i's • styðjast, — því að afla-
brögð togaranna hafa gengið geig
vænlega saman, hvert sem skipin
hafa leitað, jafnt á hinum fjar-
lægari miðum, sem hér heima
við landið. Afleiðing þessa áfalls
er svo það, að einstaklingar og
bæjarfélög, sem togaraútgerð
hafa með höndum, stynja undan
taprekstrinum, sem þegar er að
verða þeim ofviða og óviðráðan-
legur.
Það hafa á 'öllum tímum ver-
ið áraskipti í aflabrögðum sjáv-
arútvegsins, og svo mun enn
verða. Vonandi batna aflabrögð-
in á ný, en það má öllum vera
ljóst, að það er ekki á valdi
neinna venjulegra efnahagsráðs-
stafana, að tryggja reksturinn,
þegar svo árar, sem raun ber
vitni, varðandi afla togaraflot-
ans.
Árangur
efnahagsráðstafananna
Samhliða réttlátri verðskrán-
ingu peninganna, er sjávarútveg
inum lífsnauðsyn, að hafa aðgang
að hagstæðum stofn- og rekstrar-
lánum. — Þessi viðleitni ríkis-
stjórnarinnar, sem felst í lögun-
um um Stofnlánadeild sjávarút-
vegsins, er vissulega spor í rétta
átt.
Með efnahagslögunum voru all-
ir útlánsvetir hækkaðir verulega.
Jón Árnason
Ríkisstjórnin gaf þá fyrirheit um
að, strax og ráðstafanirnar væru
farnar að bera árangur, mætti
vænta þess að vextirnir yrðu
lækkaðir að nýju.
Þegar svo um sl. áramót, að
þótti sýnt, að jafnvægi hafði
skapast í peningamálum þjóðar-
innar, og því unt að lækka vext-
ina nokkuð, mátti lesa það í blöð
um, stjórnarandstöðunnar, að rík
isstjórnin væri að hverfa frá
stefnu sinni, — slíkur er mál-
flutningur þeirra manna, sem
ekki vilja kannast við staðreynd-
ir. Sannleikurinn er hinsvegar
sá, að sú vaxtalækkun sem hér
átti sér stað, var merki þess að
efnahagsstefnan hafði borið ár-
angur, og stefnt var í rétta átt.
Framsóknarforustan hefur
mjög haldið því á lofti, að allar
framkvæmdir landbúnaðarins
hafi dregist verulega saman, og
kenna þar um að núverandi rík-
isstjórn, hafi látið undir höfuð
leggjast að útvega Búnaðarbank-
anum, eða Ræktunar- og Bygg-
ingarsjóðunum nægjanlegt láns-
fé.
Hér er eins og fyrri daginn far-
ið alrangt með staðreyndir, það
sanna er, að vinstri-stjórnin
skildi við liessa stofnsjóði land-
búnaðarins, algjörlega févana og
í kalda koli, með sama úrræða-
leysið að leiðarstjörnu, sem í öll-
um öðrum efnahagsmálum þjóðar
innar. ‘
Erfiðleikar þessara sjóða, stafa
hinsvegar fyrst og fremst af því,
að þeir hafa á undanförnum ár-
um, verið látnir starfa að veru-
legu leyti með erlent lánsfé, og
þess vegna hafa þeir orðið fyrir
miklum skakkaföllum, við allar
þær gengisfellingar sem átt hafa
sér stað, hvort heldur það hefur
verið í formi yfirfærslugjalds
vinstri stjórnarinnar, eða á ann-
an hátt.
Stuðningur
við Iandbúnaðinn
Núverandi ríkisstjórn tókst
hinsvegar að bjarga þessum hags
munamálum landbúnaðarins,
með því að útvega sjóðunum inn-
lent lánsfé, Það er á allan hátt
miklu hagstæðara og tryggara.
Leiddi það tii þess að á sl. ári.
var unnt að veita bændum meiri
lán vegna framkvæmda í sveitun
um, heldur en nokkru sinni fyrr
hafði átt sér stað, samkvæmt
þeim upplýsingum sem fyrir
liggja frá Búnaðarbankanum.
Þar með er að fullu kveðinn nið-
ur sá áróður, sem Framsóknar-
forustan hefur þyrlað upp um
þessi mál, að núverandi ríkis-
stjórn hafi vanrækt sjálfsagðan
stuðning við þessar þýðingar-
miklu stofnanir bændastéttarinn-
ar.
Landhelgismálið
Ekkert mál hefur að undan-
förnu verið meira rætt, utan-
þings og innan en landhelgismál-
ið. Það er því óþarfi að fjölyrða
um málið að þessu sinni. Á það
má þó benda, hversu allur þrótt-
ur smátt og smátt þvarr hjá
stjórnarandstöðunni og fylgi-
flokkum hennar, í andstöðunni
við hina endanlegu lausn málsins.
Þegar Alþingi kom saman á sl.
hausti, skipuðu þessir flokkar
sér í varðstöðu, við ráðherrabú-
staðinn við Tjamargötu og við
dyr Alþingishússins, daginn sem
Alþingi var sett. Höfðu þeir á
lofti kröfuspjöld með ádetrun um
að „samningar í þessu máli væru
svik“ — og það stóð alveg á sama
hvert efni eða innihald samnings
ins væri.
Þetta var þegar enginn vissi
um hvaða samningar mundu tak-
ast um málið, eða hvort þeir yfir
höfuð tækjust nokkuð. En nú
þegar að leikslokum kom, og upp
lýst var hvað hægt var að semja
um, við þá þjóð sem reynst hafði
okkur mestur þrándur í götu,
hjaðnaði fylkingin og hefur
hvergi sést á henni bóla, hvorki
fyrr né síðar.
Þetta sýnir betur en flest ann»
að, hversu vonlaust stjórnarand-
staðan taldi andófið, þegar í ljós
kom hversu hagstæða lausn rík-
isstjórnin gat boðið fram um
lausn deilunnar. Það sem ég tei
hagstæðast í sambandi við lausn
landhelgisdeilunnar nú, eru hin
miklu hafsvæði á auðugustu fiski
miðum við strendur landsins,
sem verða nú innan fiskveiðilög-
sögunnar.
Stjórnarandstaðan hefur svar-
að því til, að með því hafi ekk-
ert annað gerst, en að við höfum
fært út landhelgina, að þeim
mörkum sem við áttum ótvíræð-
an rétt til, án þess að spyrja
nokkurn um.
Samruni Framsóknar
og kommúnista
Ég vil spyrja: er það trúlegt aS
stjórnarandstaðan hafi litið þann
ig á málið, í fullri alvöru. Menn-
irnir sem nú á þess þingi báru
fram frumv. til laga, xmdir for-
ustu Hermanns Jónassonar,
uni að það skyldi lögfesta á AJ-
þingi gömlu grunnlínurnar, og
báðir stj órnarandstöðuflokkarnir
hafa Skilað nefndaráliti um mál-
ið, þar sem þeir mæla eindregið
með þeirri skipan. En það er sama
og afhénda Bretum og öðrum er-
lendum fiskveiðiþjóðum, auðug
fiskimið, sem eru að flatarmáli
rúmlega 5 þús. ferkm.
Það er svo nú fyrst, þegar þeir
sjá, hve hagstæðum samningura
ríkisstjórnin hefur náð, sem þeir
rjúka upp og segja: Við viljum
ennþá meira og það nú strax. —
Ég nefni þetta sem eitt dæmi af
ótalmörgum fleiri, sem ég hefi
því miður ekki tíma til að koma
að, á þessurn fáu mínútum.
Afstaða sú sem Alþýðubanda-
lagsmenn tóku um lausn land-
helgisdeilunnar, kom engum á ó-
vart, það var fyrirfram vitað, að
þeir höfðu það að markmiði, að
spilla öllu samkomulagi um mál-
ið, og reyna með því að reka
fleyg, í samvinnu fainna vestrænu
þjóða. Hitt var öllum meira xmdr
unarefni, að forusta Framsóknar-
flokksins skyldi láta kommúnista
hafa sig til þess að taka þátt í
slíkum skollaleik og verður ekki
aimað séð, en að flokksforusta
Framsóknar sé algjörlega sam-
runnin kommúnistaflokknum.
Módel 600
Model 600 seldist síð-
ast upp. Getum nú af-
greitt þau aftur.
Slankbeltið Model 600
er framleitt hiá okkur
úr 1. flokks amerískri
teygju og sléttu
nælonefni.
Heldur mjög vel að og
gerir vöxtinn mjúkan
og spengilegan
Framleidd bæði krækt
á hliðinni og heil.
Stærðir: Medium —
Large og Extra Large.
Heildsölubirgðir=
Lady hf.
Iíf stykk j averksmið j an,
Barmahlíð 56 — Sími 12-8-41