Morgunblaðið - 07.04.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.04.1961, Blaðsíða 5
Föstudagur 7. apríl 1961 MORGUDiBLAÐlÐ 5 Ríkisstjdrnin viil stuðla að tryggari kjðrum og öruggari afkomu Ræða RagiihiEflar Helgadóttur Herra forseti. Góðir hlustíndur. Eldhúsdagsumræður eru til iþess ætlaðar, að þar verði brugð ið upp heildarmynd af störfum 'Alþingis. Bera þær svip af reikn ingsskilum milli stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga. Rísa þá oft hátt öldurnar og eru lítt spöruð lofsyrði um samherja og lastsyrði um andstæðinga. Öil hljótum við að vera sammála um, að aldrei er ástandið í þjóð félaginu alfullkomið, hvorki nú né endranær. Allir stjórnmála- menn, — ef þeir eru á annað borð góðir menn — vilja þó að því vinna, hver eftir sinni sann færingu, að ástandið verði jafn fullkomið og aðstæður frekast leyfa. ' Alþingi hefur setið á rökstól- um síðan 10. október í haust, og lýkur að öllum líkindum störfum á morgun. Eru ekki líkur til, að það muni koiha aftur samán fyrr en í október á næsta hausti. Ég mun nota það tækifæri, sem ég hef hér í kvöld, til að stikla á því stærsta, sem áunn- izt hefur í nokkrum sérstökum málum, síðan núv. stjórnarsam- starf Sjálfstæðisfl. og Alþýðufl. hófst, — í þeirri von, að sú upprifjun geti orðið til þess að gera mynd áheyrenda af stjóm arstarfinu nokkru fyllri en ella. Félagslegt öryggi stórvaxið Vík ég þá fyrst að nokkrum atriðum, sem félagsmál varða. Ríkisstjómin hefur haft for- ystu um, að félagslegt öryggi borgaranna hefur vaxið stór- lega með auknum almanna- tryggingum. Sú aukning kemur glögglega fram, ef borin er saman heildarupphæð bóta- greiðslna síðasta ár vinstri stjómarinnar svokölluðu og áætl uð upphæð á þessu ári. Árið 1958 var upphæðin 136,6 millj., en á þessu ári 396,1 — þ.e. ekki langt frá því að vera þrisvar sinnum hærri. Þegar í fyrravetur komu til framkvæmda stórauknar fjöl- skyldubætur, hækkun barnalíf eyris og mæðralauna, en hvort tveggja eru greiðslur til ein- stæðra mæðra, svo og hækkun elli- og örorkulífeyris. Næsta skref var stigið um síðustu Sramót. Réttur margra bótaþega hefur til skamms tíma verið háður því, að tekjur þeirra færu ekki fram úr vissu hámarkl. Þau ákvæði höfðu margvíslega ókosti í för með sér, eins og mörgum yðar, áheyrendur góðir, mun vafa- laust vera kunnugt af eigin raun. Þessi svokölluðu skerð- ingarákvæði leiddu m. a. til þess, að lítil háttar tekjur, sem fullorðið fólk vann sér inn með atroku og iðjusemi, urðu til þéss, að það missti ellilífeyri sinn. Sama var að segja um ýmsar aðrar tegundir bóta. Ákvæðin um þessa skerðingu voru felld niður um síðustu áramót. Jafnframt voru settar nýjar reglur, sem auka fríðindi þeirra, sem fresta töku ellilíf- eyris. Þrátt fyrir þessar umbætur á sviði almannatrygginga er enn unnið að frekari lagfæringmn á löggjöfinni um þessi efni. Koma þar til athugunar ákvæð- in um skiptingu landsins í verð lagssvæði, afstaðan milli al- mannatrygginganna og ýmissa sérstakra lífeyrissjóða, sem er vaxandi vandamál — svo og lagfæringar á ýmsum atriðum er varða mæðralaun, fjölskyldu bætur og barnalífeyri. Verulegar kjarabætur í þeim endurbótum í trygg- ingarmálunum, sem gerðar hafa verið, síðan núverandi stjórnar- samstarf hófst, er fólgin mikil réttarbót fyrir allan almenning og af þeim leiðir verulegar kjarabætur fyrir fjölda fólks. Það verður því ekki talinn góð- ur málflutningur, þegar þessa atriðis er að engu getið, í ýms- um ræðum háttvirtra stjórn- arandstæðinga hér á Alþingi, þegar þeir ræða kjaramálin. Fjölskyldumaður fær fjölskyldu- bætur, sem nema 2.600,00 krón- um á ári með hverju bami. Maður, sem fær kaup eftir alm. Dagsbrúnartaxta og nýtur ekki eftirvinnu, og á t. d. þrjú börn fær því 650 kr. á mánuði í fjölskyldubætur, eða um 16% uppbót á umrætt kaup. Málflutn ingur ýmissa hv. stjórnarand- stæðinga hefði verið vandaðri, ef þessa hefði verið getið — og að auki hefði mátt geta um skattalækkun þá, sem gerð var að frumkvæði ríkisstjórnarinnar. Auðvitað dettur samt engum ann- að í hug en brýn þörf sé á að bæta kjörin verulega frá því sem nú er og við það er stjórn- arstefnan miðuð. Húsnæðismálin Tveir háttvirtir þingmenn stjórnarandstöðunnar viku að öðrum þætti félagsmála, hús- næðismálunum, í umræðunum í gærkvöldi. Vissulega er þar við mikinn vanda að fást og margir eiga í erfiðleikum með íbúðir sínar. Þann vanda vill ríkisstjórnin leysa á grundvelli þeirrar meginstefnu, sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur jafnan lagt áherzlu á, að fólk geti sjálft komið sér upp húsnæði, og hefur núverandi ríkisstjórn tek- izt að afla mikilla fjárhæða til þessara mála. Á síðasta ári hafði húsnæðismálastjórn 72 milij. kr. til útlána. Þó að sú upphæð nægði ekki til að leysa vanda allra, var hér um meira en hélmingi hærri upphæð að ræða en árið 1958 ,síðasta ár vinstri stjómarinnar. Nær því engri átt, að sú fullyrðing fái staðizt, sem sett var fram í gær kvöldi af háttvirtum þingmanni Geir Gunnarssyni úr Hafnar- firði, að sú fjármagnsaukning, sem orðið hefði, dygði ekki til að mæta hækkun þeirri, sem orðið hefur á byggingarkostnaði síðan. Á árinu 1955 var áætlað, að byggja þyrfti um 900 íbúðir árlega.' Síðan hafa um 1460 íbúðir verið byggðar á ári að meðaltali, — og er áætlað, að lokið verði við um 1500 íbúðir á þessu ári. Á sex árum hefur þá verið byggt yfir um 40.000 manns, ef gert er ráð fyrir, að 4—5 búi í hverri íbúð, og er það tvöföld tala fólksfjölgunar í landinu á sama tíma. Ástæða er því til að gera sér vonir um, að vandinn í húsnæðis- málum fari minnkandi. 1 ríkis- Ragnhildur Helgadóttir stjórninni er nú unnið að því að tryggja, að á þessu ári verði til útlána til íbúðabygginga a.m.k. jafnmikið fé og var á síðasta ári. Mig langar þessu næst. til að víkja að tveim málum, sem sér staklega varða konur, og sam- þykkt hafa verið á þessu þingi. Launajöfnuður kvenna og karla Annað fjallar um breytingu á lögum um fjármál hjóna og hitt um launajöfnuð kvenna og karla. Háttvirtur þingmaður Auður Auðuns beitti sér fyrir fyrra málinu og flutti það ásamt þing mönnum úr öllum flokkum. Um fjármál hjóna hafa um áratuga skeið gilt tvenn lög hér á landi. Konur, sem gengu í hjónaband 1923 eða fyrr hafa flestar verið mun lakar settar en aðrar konur að þessu leyti. Nú í vetur voru hin eldri lög afnumin og gilda því nú sömu lög um þessi efni fyrir alla borgara. Lögin um launajafnrétti voru samþykkt í gær. Stuðnings flokkar ríkisstjórnarinnar stóðu saman um að lögfesta þessa frumvarpið var flutt í Ed. snemma á þessu þingi af nokkr- um þingmönnum úr Alþýðu- flokknum. Skv. hinum nýsamþykktu lög um skal á árunum 1962—1967 hækka laun kvenna til sam- ræmis við laun karla í almennri verkakvennavinnu, verksmiðju- vinnu og verzlunar- og skrif- stofuvinnu. Samkvæmt þessu verður fullu launajafnrétti náð 1967. Talið er, að kaup kvenna sé nú um 23% lægra að meðal- tali en kaup karla í þeim at- vinnugreinum, sem um er að tefla. Þegar litið er til þess, hve kostnaðarsamt mál hér er um að ræða, er augljóst, að sú lausn, sem lögfest hefur verið, hefur margvíslega kosti. Eins og oft vill verða, taldi ‘háttvirt stjórnarandstaða sig þó kunna betri ráð til lausnar þessu málL Er af því allmikil saga, eins og drepið var á í umræðunum í gærkvöldi. Hirði ég ekki að rekja þá sögu, en vil aðeins minna á, að þeir, sem mest hafa haft sig frammi af hálfu stjómarandstæðinga nú, hafa haft eins góða aðstöðu og hugs- azt getur til að koma málinu í höfn, en ekki gert það. Sú leið, sem nú hefur verið val- in, hefur ekki í för með sér þá hættu á röskun á vinnu- markaðnum, sem óneitanlega gæti af því hlotizt, að jafn mikilíi greiðslubyrði og hér er um að ræða, væri velt á atvinnu vegina í einni svipan. Ef svo væri gert, gæti það og Ieitt til þess, að einhverjar konur kynnu að missa atvinnu sína eða gengið væri fram hjá konum við ráðningar og að upp kæmu aðrir erfiðleikar, sem orðið gætu konum til tjóns. Aukin námslán Góðir áheyrendur. -- Full ástæða hefði verið til að minnast á ýmis fleiri mál, ekki sízt mál, sem varða menntun hinnar uppvaxandi kynslóðar. Til dæmis voru á þessu þingi settar nýjar reglur um náms- lán, sem eiga að tryggja, að miklu meira fé verði handbært til að létta ungu fólki nám þess, en verið hefur. Vegna gengisbreytinga var þörf á ný- skipan á þessu sviði og hefur fengizt mikil úrbót með hinum nýju lögum. Örar breytingar á þjóðfélagsháttum kalla á nýja hætti í uppeldis og skólamál- um og er vafalaust, að ýmsu þarf að breyta á þessu sviði á næstu árum, ekki sízt að því er varðar menntun stálpaðra unglinga og þeirra, sem ena eldri eru. 1 þessari* ræðu hef ég, herra forseti og góðir hlustendur, leit- azt við að benda á nokkur atriði, sem ég tel að hafa verði í huga, þegar gerðir eru upp reikningar og litið á árangur stjómarstefnu síðustu missera. Mér virðist mega fullyrða, að í þessum efnum, eins og á fjöl- mörgum öðrum sviðum, sem aðrir stjómarsinnar hafa gert að umræðuefni í þessum út- varpsumræðum, hafi verið vel unnið og góður árangur náðst. Mun því þjóðinni bezt fam- ast, ef hún sér til þess, að unnt verði að halda enn lengra áfram á þeirri braut til trygg- ari kjara og öruggari afkomu sem gengin hefur verið í tíð núverandi ríkisstjómar. Olíuofnar Höfum til sölu notaða olíuofna, sem eru tilvaldir til upphitunar á húsum í bygg- ngu í verkstæðum o .fl. G. Helgason & Melsled hf. Rauðarárstíg 1 — Sími 11647 ALLT A SAMA STAÐ CHAMPION KRAFTKERTIM fáanleg í alla bíla Öruggari ræsing, — Meira afl og allt að 10 % eldsneytissparnaður Egill Vilbjóímssin hf. Laugavegi 118 — Sími 2-22-40

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.