Morgunblaðið - 07.04.1961, Blaðsíða 8
8
MORCVNBLAÐIÐ
Föstudagur 7. apríl 1961
Hagsmunir þjóöarinnar við það tengdir
aö uppbyggingín fái fram að ganga
Ræða Ingólfs Jónssonar
HERRA forseti!
Góðir áheyrendur!
Umræðum þessum er að
verða lokið. Hafa hlustendur
átt kost á að fylgjast með mál-
flutningi manna. Hannibal Valdi
marsson sagði hér áðan, að nú
hafi slagbrandur verið sleginn
fyrir þann möguleika, að land-
helgin verði færð frekar út.
Vitnar hann til sjávarjtvegs-
málaráðherra Breta til stuðn-
ings þessari fullyrðingu. Langt
er gengið í rakaleysum og full-
yrðingum lun landhelgismálið,
eins og flest önnur. Sem betur
fer hefur Island sigrað í þessu
máli og mun halda útfærslu
landhelginnar áfram að alþjóða-
lögum. — Stjórnarandstæðingar
hafa í fáu talað meira af sér
en í sambandi við landhelgis-
málið og alþjóðadómstólinn.
Þeir ganga út frá því sem
gefnu, að Bretar geti þar öllu
ráðið, enda þótt reynslan sanni
annað, t d. 1951, þegar dóm-
stóllinn hafði forustuhlutverki
að gegna og dæmdi á móti
Bretum. Ólafur Jóhannesson lét
að því liggja, að það hefði ver-
ið samningsbrot, ef Hermann
Jónasson hefði leitað til Al-
þingis haustið 1958 í stað Al-
þýðusambandsþings. Þetta eru
eftirtektarverð ummæli. Var
samið um það að sniðganga Al-
þingi, þegar efnahagur þjóðar-
innar var kominn á heljar-
þröm?
Hafa reynsluna af því að
gefast upp
Önnur merkileg ummæli
Ólafs Jóhannessonar er ráð-
leggingar til ríkisstjórnarinnar
um það að gefast upp. Senni-
lega af því, að aflaleysi og
verðfall hefur skapað nokkra
erfiðleika í bili. Framsóknar-
menn hafa reynsluna af því að
gefast upp, en var það til fyrir-
myndar? Verða málin leyst, ef
þeir, sem ábyrgðina bera gef-
ast upp, þegar á móti blæs?
Verður þjóðinni þjónað á þann
hátt? Tvímælalaust hafa þessar.
umræður verið ríkisstjóminni
og stjómarstefnunni hagstæðar.
Mikilverðast er, að þjóðin hef-
ur átt þess kost, betur en
nokkru sinni áður, að kynnast
stefnuleysi og uppgjöf stjórnar-
andstöðunnar. Fram hefur kom-
ið á augljósari hátt en áður,
að stjómarandstaðan hefur eng-
in úrræði, enga raunhæfa
stefnu, en hefur í þess stað
tekið til þess ráðs að vera á
móti öllu, sem stjórnin ber
fram, hversu gott sem málefnið
er. Segja má, að stjórnarand-
staðan sé samhent, enda því
líkast, að aðeins sé um einn
andstöðuflokk að ræða. Þeir,
sem fylgzt hafa með málflutn-
ingi stjómarandstöðunnar, hafa
heyrt þær fullyrðingar, að
ástand þjóðmálanna og hagur
atvinnuveganna hafi verið sér-
staklega góður í árslok 1958,
þegar vinstri stjómin fór frá.
Má merkilegt heita, að slíkt
skuli hafa verið borið á borð
fyrir hlustendur. Frá yfirlýs-
ingum fráfarandi forsætisráð-
herra, Hermanns Jónassonar, og
vitnisburði efnahagsmálasér-
fræðings ríkisstjórnarinnar, hef-
ur verið margsinnis sagt
og skal ekki farið nánar út í
það að þessu sinni, en aðeins á
það minnt, að með áframhald-
ándi vinstri stefnu hefði vísi-
talan hækkað um a. m. k. 5
stig á mánuði. Var ekki að/
imdra, þótt Hermann Jónasson
og efnahagsmálasérfræðingar
hans gerðu sér grein fyrir af-
leiðingum þessa.
Vinstri stjórnin réð ekki
við vandann
Það er ekki rétt að dæma
menn hart, þótt þeir gefizt upp
við að leysa erfið verkefni. En
það er lágmarkskrafa, að þeir
sömu menn leggi ekki stein í
götu þeirra, sem taka að sér að
leysa það, sem hlaupið var frá.
Ríkisstjómin hefur tekið að sér
að leysa þann vanda, sem
vinstri stjómin réð ekki við. í
útvarpsumræðum þessum hefur
stjórnarandstaðan talað um
kjaraskerðingu. Fulltrúar Fram-
sóknarflokksins hafa m. a. talað
um, að kostur bænda hafi verið
þrengdur. Jafnframt hafa þeir
fullyrt, að ekki hefði síður ver-
ið þrengt að öðrum stéttum og
jafnvel enn þá meira. Sigurvin
Einarsson fullyrti, að fleiri jarð-
ir færu nú í eyði en fyrr. —
Þarna fer þingmaðurinn rangt
með. Nú eru færri jarðir aug-
lýstar en áður. Sveitafólkið
treystir þvi, að hlutur þess
verði ekki lakari en annarra
stétta. Þannig mun á málum
haldið að ræktun aukist og
sveitimar byggist.
Mermimir, sem skildu eftir
sig rústir einar í árslok 1958,
tala nú um lömunarstefnu ríkis-
stjórnarinnar og leyfa sér að
fullyrða, að verið sé að níðast á
öllum almenningi. Bændur,
verkamenn, útvegsmenn, iðnað-
armenn, verzlunarmenn, sjó-
menn og aðrir landsmenn munu
ekki taka slíkar fullyrðingar
gildar. Menn munu heldur
spyrja, hvemig hagur atvinnu-
veganna og almennings í land-
inu væri nú, ef stefna vinstri
stjórnarinnar hefði verið ráð-
andi lengur. Allir, sem hugsa
um þjóðmál, vita, að sú stefna
hefði leitt til stöðvunar alls
atvinnureksturs í landinu. Það
er augljóst, að af því hefði leitt
atvinnuleysi og örbirgð. Verð-
bólga sú, sem Hermann Jónas-
son kallaði óða-verðbólgu, hefði
leitt hrun yfir íslenzkt atvinnu-
líf. Það mátti ekki seinna vera,
að spymt yrði við fótum.
Erfiðleikar í bili
Aðgerðir þær, sem gerðar
voru með efnahagsmálalöggjöf-
inni fyrir rúmlega ári síðan
hafa vitanlega leitt til þess, að
ýmsir hafa fundið til nokkurra
erfiðleika í bili. En eins og
komið var, var aðeins um
tvennt að velja, annað hvort
láta hmnið koma og innleiða
hér varanlega kjaraskerðingu
og fátækt yfir þjóðina eða taka
upp nýja stéfnu, sem leiddi tiL
þess, er sumir kalla kjaraskerð-
ingu, en verður, þegar frá líður,
til þess að mögulegt reynist að
byggja upp atvinnulífið og
skapa almenningi varanlegar
kjarabætur, ef íslendingar vilja
haga sér skynsamlega, líkt og
aðrar menningarþjóðir gera. —
Reynslan hefur sýnt, að víxl-
hækkanir og minnkandi verð-
gildi krónunnar hefur í för með
sér kjaraskerðingu fyrir þá,
sem helzt skyldi hlífa og minnst
hafa að missa. Síðan stríði lauk,
hafa mörg verkföll verið háð
hér í landi, verkalýðsforingj-
arnir hafa hrósað sér af sigri
eftir verkföllin. Rétt er það, að
kaupgjald hefur hækkað í
krónutölu, en vegna víxlhækk-
ana á verðlagi og kaupgjaldi,
hafa launþegar ekki, þrátt fyr-
ir hækkað kaup, fengið kjara-
bætur á þessum árum. Það er
játað, að kaupmáttur launa er
nú jafnvel minni en hann var
fyrir 12—15 árum. Augljóst er,
hvað þessu veldur. Hverjum
manni ætti að vera ljóst, að til
þess að launþegar geti fengið
raunhæfar kjarabætur, verða
atvinnuvegirnir að starfa á heil-
Ingólfur Jónsson
brigðum grundvelli og geta
staðið undir þeim kostnaði, sem
launahækkunin hefur í för
með sér. Það er markmið
stjórnarvaldanna að bæta kjör
launþega og annarra lands-
manna. Launþegar eiga að njóta
aukins afraksturs og bættrar
afkomu þjóðarbúsins, en sé
hagur atvinnuveganna bágbor-
inn, er útilokað að fá varan-
legar kjarabætur með þvi að
hækka kaupgjald í krónutölu.
Láti atvinnuvegimir meira af
hendi en afraksturinn leyfir,
eru launabæturnar teknar aftur
af launþegunum eins og reynsl-
an sýnir áþreifanlega.
Víxlhækkanir og verðbólga
festi hér ekki rætur á ný
Nauðsynlegt er, að þjóðin
geri sér grein fyrir þessum ein-
földu staðreyndum og fylki sér
um að halda þá stefnu, sem
miðar að því að bæta lífskjörin
varanlega, með því að byggja
upp fjölbreytt og traust atvinnu
líf. Nauðsyn ber til að hefja
ýmiss konar framkvæmdif í
landinu, svo að tryggt verði, að
allir, sem vilja vinna, hafi
nægilega atvinnu. Atvinnulífið
þarf að vera fjölbreyttara og af-
rakstur þjóðarbúsins verður að
aukast. En skilyrði til þess að
vel megi takast í uppbyggingar-
starfinu gr það, áð verðlagið
megi, verða stöðugt, að þjóðin
hafi traust á gjaldmiðlinum,
að víxlhækkanir og verðbólga
festi hér ekki rætur á ný. At-
vinnuvegimir þurfa að standa á
eigin fótum og vera þær stoðir
í þjóðlífinu, sem ekki bila, þótt
nokkuð blási á móti. Ástæða er
til að ætla, að þjóðin hafi lært
af reynslunni og skilið til fulln-
ustu, á hvern hátt verði stefnt
að raunhæfum kjarabótum og
bættum lífskjörum. Þjóðin þarf
að eiga trausta og fjölbreytta
atvinnuvegi, sem skila arði í
þjóðarbúið. Þannig verður þjóð-
in efnalega sjálfstæð.
Alhliða uppbygging
og framfarir
Til þess að vinna að þessu
marki, mun ríkisstjórnin láta
gera áætlun fram í tímann um
alhliða uppbyggingu og framfarir
í ýmsum greinum atvinnulífsins.
Gerð verður heildaráætlun um
vegamál og samgöngur á landi.
Gerðar verða ráðstafanir til, að
ýmsir aðalvegir, sem fjölfarnir
eru, wrði gerðir úr varanlegu
efni. Gerð hafa verið drög að
alsherjaráætlun um sjálfvirkan
síma um landið allt, sem veitir
betri þjónustu og verður ódýrari
í rekstri en er með gamla fyrir-
komulaginu. Gerð verður athug-
un á hafnarmálum og hafnarskil
yrði bætt eftir því, sem nauðsyn
ber til miðað við aukinn skipa-
stól landsmanna. Gerð verður á-
ætlun um aukna rækturf og fram-
farir í landbúnaði, þannig að
tryggt megi verða, að landbún-
aðarframleiðslan aukizt í hlut-
falli við þarfir þjóðarinnar og
einnig athugað með útflutning á
landbúnaðarvörum, svo sem kjöti
og iðnaðarvörum úr landbúnað-
arframleiðslunni. Leitast verður
við að koma stoðum undir lána-
sjóði landbúnaðarins og útvega
þeim aukið fjármagn. Gerð verð-
ur íramhaldsáætlun um rafvæð-
ingu þeirra sveita, sem ekki eru á
tíu ára áætluninni. Gera þarf ráð-
stafanir til að auka sandgræðslu
og skógrækt. Gera þarf ráðstaf-
anir til að koma á fót kornrækt
í landinu. Hafizt verður handa
um ræktun fisks í ám og vötnum
og gæti það áður en langur tími
líður orðið til þess að auka tekj-
ur þjóðarbúsins með útflutningi
á lax og sjóbirtingi. Ráðstafanir
verða gerðar, til að auka tekjur
þjóðarinnar af erlendum ferða-
mönnum með því að bæta aðstöð-
una til þess að taka á móti þeim
með auknum gistihúsakosti og I
annarri fyrirgreiðslu, sem sjálf-
sögð þykir í ferðamannalöndum.
Gerð verður áthugun í sambandi
við sjávarútveginn og nýtingu
sjávaraflans, fiskirannsóknum og
fiskiðnaði. Er enginn vafi á því,
að þar er mikið verkefni óunnið,
sem gæti aukið þjóðartekjurnar,
ef rétt er á haldið. Athugun verð-
ur látin fara fram um siglinga-
og kaupskipastólinn, þannig að
kaupskipaflotinn verði sem bezt
nýttur og að því keppt, að íslend-
ingar fullnægi ekki aðeins sínum
eigin þörfum hvað siglingar snert
ir, heldur taki að nokkru hætti
frænda okkar, Norðmanna, og
auki þj óðartekj urnar m'eð því að
sigla fyrir aðrar þjóðir. Gerð
verður athugun á flugmálum ís-
lendinga og að því unnið að end-
urnýja og auka flugvélakostinn.
Gerð verður athugun á húsnæðis-
málunum og að því keppt að
gera húsbyggingar ódýrari en ver
ið hefur með bættum vinnuað-
ferðum, svo að almenningi gefizt
kostur á að eignast eigin íbúðir
á hagkvæmari hátt en verið hef-
ur. Athugun verður gerð á því
á hvern hátt jarðhitinn verður
bezt hagnýttur.
Virkjanir fallvatna
Verkefnin eru mörg, sem vinna
ber að og til þess að koma þeim
í framkvæmd þarf mikið fjár-
magn, sem afla verður með auk-
inni framleiðslu eða á annan hátt.
Stærstu framkvæmdirnar og jafn
vel þær þýðingarmestu eru þó
enn ótaldar. En það eru virkjanir
fallvatna okkar og iðnaður, sem
hagnýtir orkuna, eftir að fossarn-
ir hafa verið beizlaðir. Það er rétt
sem sagt var hér í kvöld, að
virkjunarrannsóknir fallvatn-
anna eru dýrar og hefði tekið
a. m. k. 10 ár, ef ekki hefði ver-
ið tekið á því öðru vísi en í tíð
vinstri stjórnarinnar. En nú hafa
ráðstafanir verið gerðar til þess
að flýta undirbúningi, svo að
áætlanir gætu legið fyrir, bæði
með virkjanir og stóriðnað. Rík-
isstjórnin mun vinna að því, aS
ráðizt verði í stórvrkjanir fall*
vatna óg komið á stofn stóriðju,
sem notar afl hinna stóru virkj-
ana. Um þessi mál hefur oft ver-
ið talað á undanförnum árum, en
úr framkvæmdum hefur lítið orS
ið. Segja má, að nú sé tíminn
kominn til þess að hefjast handa
og láta ekki langur sitja við orð-
'in tóm. Þessi mál verður því aS
taka með festu og vinna að fram-
kvæmdum með þeim hraða, sem
mögulegt er. Með því að not-
færa sér afl fossanna og koma
upp stóriðnaði til útflutnings, get
ur þjóðin tryggt atvinnumögu.
leika ört vaxandi þjóðfélags og|
skapað skilyrði til efnalegs sjálf-
stæðis og hagkvæms greiðslujafrt
aðar við útlönd. Gjaldeyrisskort.
ur og greiðsluhalli er algengt um-
ræðuefni fjármála- og stjórnmála
manna.
Samkvæmt skýrslu Seðlabank.
ans má segja, að nokkur bati sé
sjáanlegur í þeim málum síðart
núverandi stjórn markaði stefn-
una í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar. Það er líkt öðru, sem framl
kemur hjá stjórnarandstæðing.
um við þessar umræður, að þeir,
bera fram ýmsar villandi tölur,
sem eiga að afsanna, að skýrsla
seðlabankans um fjármál og gjald
eyrismál sé rétt. Jafnvel Ólafur
Jóhannesson, sem er í stjórn
Seðlabankans virðist taka undir
þetta. Þegar þessir sömu menn
eru að því spurðir, hvort skýrsla
Seðlabankans sé röng, hvort þar
sé farið með rangar tölur, er
reynt að komast hjá því að svara,
Staðreyndirnar geta verið óþægi-
legar og það hefur stjórnarand-
staðan orðið að reyna að þessu
sinni.
Viðrelsnin fái fram að ganga
Lúðvík Jósefsson talaði um
það hér áðan, að fjárhagsörðug-
leikar togara og bóta væru mikli
ir. Vildi hann láta að því liggja,
að aflaleysi togaranna værii
stjórninni að kenna og verðfalL
á lýsi og mjöli, en fjárhagsörð-
ugleikar útgatrðarinnaar stafa
fyrst og, frémst af þessu. Hér að
framan hefur verið rætt um al-
hliða uppbyggingu og fjölbreytnjl
.í atvinnulífinu, sem ríkisstjórn-
in áformar að koma í fram-
kvæmd. Áform þessi verða þvi
aðeins fljótlega að veruleika, að
víxlhækkanirnar byrji ekki &
nýjan leik. Hagsmunir þjóðar-
innar eru við það tengdir, að upp
byggingin og viðreisnarstefnam
nái fram að ganga. Leiðin til
bættra lífskjara verður því að-
eins fær, að þjóðin láti ekki á-
byrgðarlaus yfirboð stjórnarand
stæðinga glepja sig. Leiðin verð
ur greið, ef allir, sem geta unn.
ið, gera skyldu sína, og gera
ekki hærri kröfur hverju sinnil
en hægt er á heilbrigðan hátt að
verða við. Enginn má láta upp-
gjafarboðskap stjórnarandstöð-
unnar draga úr sér kjark og
starfsþrek. íslenzka þjóðin hef-
Framhald á bls. 7. ;