Morgunblaðið - 09.04.1961, Page 5
Sunnudagur 9. apríl 1961
MORGTJTSBLAÐIÐ
5
1 Fimmtugur er í dag Einar
Farestveit, forstjóri hjá G. Helga
son & Melsted. Hann dvelst er-
lendis um þessar mundir.
Á páskadag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Sigríður Gróa
Kristjánsdóttir, Suðurgötu 89,
Akranesi, og Helgi Ingólfsson,
Brekkubraut 17, Akranesi.
Á annan páskadag opinberuðu
frúlofun sína, ungfrú Anna Þ. U.
Ottesen, Bræðraborgarstíg 22 og
Jón Björnsson stud. med. Reyni-
mel 55
Klerkur kom til deyjandi
manns og sagði:
■— Kæri vinur, veiztu hver það
var, sem lét lífið til að frelsa
þig?
— Ó, faðir, faðir, hrópaði hinn
deyjandi maður, er þetta rétti
tíminn til þess að ráða gátur?
Eg veit ekki ráð mitt. Eg veit það eitt:
mitt vesala hjarta berst.
Allt er kalt. Mér einum er heitt.
Tii einskis báii ég verst.
Eg hef þig, einasta, ástþráða mey,
í allan dag ekki séð,
en renni svo sól, að ég sjái þig ei,
þráir sála mín dauðans beð.
Ó, þú, ég elska þig, elska þig meir!
en íslenzkt mál getur sagt,
sterkt eins og þjáning þjakaðs, er deyr,
og þungt eins og forlagamakt.
Ó, þú, min, elskaða, hjarta mitt heitt
reynir halda í stilli sér —
En þúsund eiðar eru’ ekki neitt
mót augnarennig frá þér.
Hannes Hafstein: Astariá*ning ti
(brot).
Árið 1881 var hin frægal
franska leikkona Sarah Bernl
|hardt (1844—1923) á Ieikferð|
um Ameriku og með hennii
var meðal annarra blaðamað-
|urinn Sam Davis, útgefandij
|blaðanna „Carlsons-Appeal“|
og „Examiner".
Á kveðjustundinni faðmaðij
^Sarah hann að sér og kysstij
hann.
— Kossinn á vinstri kinn-J
Jjina er handa „Carlsons-Appe-j
al, sagði hún, en sá á hægrif
|kinnina handa „Examiner“ ogj
á mupjúnn handa yffur j
sjálfum.
Þessu svaraði Davis:
— Já, en þér megið ekkij
£>gleyma, að ég hef einnig veriðf
Ifréttaritari ,Associated Press‘,j
fsem er fulltrúi fyrir 380 dag-j
* blöð.
MENN 06
1= MALEFN!=
ÞEIR, sem staddir voru í sam-
komusalnum í höllinni Marien
lyst, skammt fyrir norðan
Helsingör í Danmörku, kvöld
eitt fyrir skömmu, nutu þar
ágætrar skemmtunar.
Drengir frá uppeldisheimili
í Hellebæk, settu þar á svið
leikrit til ágóða fyrir 20 jafn-
aldra sína og vini frá Tíbet,
sem dvalið hafa í Danmörku
um nokkurt skeið. Leiksýn-
ingin heppnaðist prýðilega og
áhorfendur voru frá sér numd
ir.
Leikritið, sem drengirnir
settu á svið var gamanleikur-
inn Pygmalion, eftir Bernard
Shaw og vakti drengurinn,
sem lék Elízu einna mesta at-
hygli.
Áhorfendur sýndu mikinn
skilning á málefninu með því
að leggja fram um 4000
danskra kr. sem renna óskipt-
ar til drengjanna frá Tíbet, til
þess að þeir geti dvalizt áfram
í Danmörku og haldið áfram
námi þar.
Þegar leikritinu var lokið,
sýndu drengirnir frá Tíbet
þjóðdansa og komu fram í
þjóðbúningum, sem þeir hafa
annaðhvort haft með sér að
heiman eða saumað sjálfir
eftir komuna til Danmerkur.
Vakti dans þeirra mikla hrifn
ingu.
Á myndinni sjást þeir
þakka áhorfenaum góðar und
irtektir.
— Hve lengi hefurðu haft.
þessa vinnukonu I
—Ó, hér um bil þrjá eigin-
menn.
HINN enski stjórnmálamaðurf
|Disraeli (1804—81), var eittl
|sinn í opinberri hádegisverðarl
veizlu, á þeim tímum er til-y
% óveðurs dró milli Englandsl
xog Rússlands. Til borðs hafðix
fhann prinsessu nokkra, seml
|var mjög þjóðernislega sinn-|
uð. y
Á meðan á máltíðinni stóðl
|linnti hún ekki ásökunum á
fjármálaráðherrann, en það||
ivar einmitt Disraeli, og end-l
gaði mál sitt með því að spyrja:|
— Eftir hverju erum viðf
eiginlega að bíða? I
Disraeli svaraði: x
Eftir kartöflunum, yðar há-l>
Itign. I
Bókamarkaðurinn
á mánudaginn bætist enn við fjölbreytt
úrval gamallra góðra bóka á bókamarkað-
inn.
Bóksalafélag íslands
Pólýfónkói inn
Tónleíkar
í Kristkirkju, Landakoti sunnudaginn 9., mánudag-
inn 10., þriðjudaginn 11., föstudaginn 14. og sunnu-
daginn 16. apríl kl. 9 e.h.
Söngstjóri:
Ingólfur Guðbrandsson
Kinleikari :
Haukur Guðlaugsson
Framsögn :
Lárus Pálsson
Efnisskrá:
D. Buxtehude — Mangificat í d-dúr með undirleik
strokhljóðfæra og sembals.
J. S. Bach. — Mótetta: Jesu meine Freud fyrir 5
radda kór án undirleiks. - Sálmaforleikur - Toccata
og fúga — d-moll .
Hugo Distler — Dauðadans fyrir blandaðan kór
og tal.
Aðgöngumiðar að tónleikunum sunnudaginn 16.
apríl fást í Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur,
Vesturveri. Þeir styrktarfélagar, sem ekki hafa
fengið aðgöngumiða, eða þurfa að skipta á miðum,
eru beðnir að snúa sér til verzlunarinnar.
Tekið á móti nýjum styrktarfélögum á sama stað.
Pólýfónkórinn
ForstöBukonu
vantar á barnaheimili Reykjavíkurdeildar Rauða
kross Islands að Laugarási. — Allar upplýsingar á
skrifstofu Rauðakross íslands frá kl. 1—5.
Utanborðsmótor
Johnson Sea Horse 10 hestafla, mjög lítið keyrður,
ný yfirfarinn til sölu. — Upplýsingar að Suðurgötu
8 B (neðri hæð) milli kl. 6—8 næstu kvöld.