Morgunblaðið - 11.04.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVISBZ'AÐIÐ
Þriðjudagur 11. april 1961
■v
Korrænn dagur á ftmmtudag
A FIMMTUDAGINN verður
Norrænn dagur hátíðlegur
haldinn um öll Norðurlönd.
Er þetta í fjórða sinn sem
sérstakur dagur er helgaður
almennri kynningu á nor-
rænu samstarfi, að því er
Magnús Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Norræna fé-
lagsins, sagði fréttamönnum
í gær.
Fyrsti dagur Norðurlanda var
haldinn 27. okt. 1936 og var þá
í ráði að helga einn dag fimmta
favert ár norrænni samvinnu á
þennan hátt. Heimsstyrjöldin
gerði þessar fyrirætlanir ófram-
kvæmanlegar. Að styrjöldinni
lokinni, var hugmyndin tekin
upp að nýju og Norrænn dagur
faaldin öðru sinni. Það var 29.
sept 1951. Þrðji dagurinn var svo
haldinn 30. okt. 1956. Ætlunin er
að halda Dag Norðurlanda á
fimm ára fresti framvegis.
Sjónvarp frá fslandl.
Megintilgangur dagsins er að
vekja og auka áhuga almennings
á Norðurlöndum á víðtæku og
nánu samstarfi norrænu frænd-
þjóðanna.
í tilefni dagsins flytja allar
norrænu útvarps og sjónvarps-
stöðvarnar fjölbreytta dagskrá,
m.a. verður kvikmyndum frá fs
landi sjónvarpað um öll Norður-
lönd.
Á miðvikudagskvöldið 12. ap-
ríl n.k. flytja þjóðhöfðingjar
allra Norðurlanda ávörp í út-
varpið. Þau verða flutt af hljóm
böndum sámtímis frá öllum út-
Á FUNDI bæjarráðs á föstudag
var samþykkt að semja við einn
af þeim aðilum sem boðið hafa
í Hótel Heklu við Lækjartorg til
niðurrifs, Sigurjón Kjartansson.
Tvær kindur
heimtast af fjalli
Valda'stöðum 3. apríl.
NÚ ÞESSA síðustu daga, fundust
2 kindur, á öðrum vetri, sem ekki
höfðu komið fram í haust.
Fundust þær neðst í svonefndum
Blefkdial, eða á þeim slóðum.
Fyrst er þeirra varð vart, náðist
ekki nema önnur kindin. Talið
er fullvíst, að eingandi þeirra sé
Einar Ólafsson bóndi í Bæ í
Kjós. Er mér sagt, að sú kindin
sem náðist, sé allmikið aflögð,
en þó ekki horuð. Að sjálfsögðu
verður reynt að ná hinni kind-
inni síðar.
Hér er snjór yfir allt, en þó
ekki mikill. Eru flestir vegir
færir um sveitina. Veðrið hefur
Verið bjart og skemmtilegt nú
um Páskahelgina. Allmargt fólk
hefir dvalið í Vindáshlíð nú um
þessa helgi. — S*. G.
Leikið
í Neskaupstað
NESKAUPSTAÐ, 10. apríl. —
Undanfarin kvöld hefur verið
leikið héma leikritið „Leynimel-
ur 13“. Aðsókn hefur verið mikil
og undirtektir áhorfenda ágætar.
Það, sem einkum vekur athygli
við sýningu þessa, er að það er
Fjáreigendafélag Neskaupstaðar,
sem að henni stendur. Leggja
fjáreigendur, sem eru hér orðnir
allmargir, þar með góðan skerf
til félagslífs í bænum. Stærstu
hlutverkin fara þeir með Guðni
Þorleifsson og Þorlákur Friðriks-
son. Leikstjóri er Jóhann Jónsson.
Allur ágóði af sýningunni rennur
til félagsheimilisins. — S.L.
Gunnar Knudsen fiðluleikari.
varpsstöðvunum. Formenn Nor-
rænu félaganna tala í útvarpið
á fimmtudagskvöldið 13. apríl
og verður þá gengizt fyrir fjöl-
breyttri dagskrá, sem helguð
verður Norrænni samvinnu.
í Sjálfstæðishúsinu
í tilefni dagsins efnír Norræna
íélagið til hátíðahalda í Sjálf-
stæðishúsinu á fimmtudagskvöld
kl. 20,30. Þar flytur Bjami Bene-
diktsson dómsmálaráðherra á-
varp, Tómas Guðmundsson skáld
Það á að fjarlægja húsið sem
kunnugt er og er ætlunin að hús-
ið verði horfið af sjónarsviðinu
í síðasta lagi 1. ágúst n.k. en þó
á ekki að hrófla við því fyrr en
eftir þjóðhátíðina, til að va'da
ekki óprýði á bænum.
Fjójir aðilar buðu í húsið til
n'ðurrUs. En ekki voru tilb .ó n
há. Hæsta var frá Sigudúni
Kjartanssyni, sem bauðst til að
greiða kr. 21.450 og fjarlægja hús
ið.
Hótel Hekla er eitt af kunn-
ustu stórhýsum bæjarins. Þar
var hið fræga fyrirtæki Thom-
sens á sínum tíma. En síðan
1943 hefur Reykjavíkurbær átt
það og haft þar skriístofur. Bær-
inn keypti húsið á uppboði.
(Birt án ábyrgðar)
Hæstu vluningar
happdrættis
Háskólans
MÁNUDAGINN 10. apríl var
dregið í 4. flokki Happdrættis
Háskóla íslands. Dregnir voru
1,050 vinningar að fjarhæð
1,960,000 krónur. Hæstu vinn-
ingarnir komu upp á eftirtalin
númer:
200,000 krónur komu á númer
14445. Eru það fjórðungsmiðar.
Tveir fjórðungar voru seldir í
Keflavik, einn á Akureyri og
annar í Vestmannaeyjum.
100,000 krónur komu á númer
47334, sem eru hálfmiðar. Voru
báðir hálfmiðamir seldir í um-
boði Arndísar Þorvaldsdóttur,
Vesturgötu 10.
10,000 krónur: 858 4149 7661
9524 10957 11072 13748 14444
14446 20287 21795 23930 24194
31250 31441 35037 36223 39224
39332 40439 41178 50150 50263
53723 54251 57482 58265 59428.
Auk þess voru dregnir út 90
vinningar með 5,000 krónum og
930 vinningar með 1,000 kr.
les upp, Þjóðdansafélag Reykja-
víkur sýnir norræna þjóðdansa
og karlakórinn Fóstbræður syng
ur undir stjórn Ragnars Björns-
sonar. Þar koma einnig fram
tveir erlendir gestir, Gunnar
Knudsen fiðluleikari frá Osló og
Axel Nielsen yfirkennari, sem
flytur kveðju frá Danmörku.
Kyxmir Ole Bull
Gunnar Knudsen kemur hing-
að sérstaklega á vegum Norræna
félagsins í tilefni dagsins. Hann
er vel þekktur fiðluleikari og fyr
irlesari um öll Norðurlönd. og
mun ferðast um milli félags-
deilda Norræna félagsins hér á
landi og kynna norska tónlist. í
Sjálfstæðishúsinu mun Knudsen
leika einleik á fiðlu og flytja er
indi um Ole Bull, norskan fiðlu-
leikara og tónsmið, sem lézt árið
1880 eftir nærri fimmtu ára
frægðarför víða um heim. Sjálf-
ur hefur Knudsen ferðast víða
frá því hann kom fyrst fram sem
fiðluleikari árið 1928, m.a. um
Bandaríkin, þar sem hann var í
þrjú ár skömmu eftir síðustu
heimstyrjöld. Hann hefur lengi
verið hljómsveitarstjóri í heima
landi sínu, bæði í Stavanger og
Osló. Árið 1944 vur Knudsen tek
in fastur af Þjóðverjum og var
síðan fangi, fyrst í „Gestapo-
kjelleren" í Stavanger og síðan
í Grini til stríðsloka.
★
Norræna félagið hér á landi
er í mjög örum vexti. Árið 1956,
þegar síðast var hér haldirin Nor-
rænn dagur, voru félagsdeildir
átta, en eru nú 22 með samtals
2,500 meðlimum, þar af um 1,000
í Reykjavík. En alls eru í félags-
samtökunum á Norðurlöndum
130 þúsund meðlimir.
Evrópufrímerki
1961 komið út
HINN 29. marz 1961 komu full-
trúar níu af nítján aðildarríkj-
um Evrópusambands pósts og
síma saman í London til þess að
velja mynd á Evrópufrímerki
það, sem mörg aðildarríkjanna
munu gefa út á þessu ári.
Valin var teikning eftir hol-
lenzka listamanninn Theo Kur-
pershock og sýnir hún nitján
dúfur á flugi.
Þá var og á sama fundi valið
merki eða tákn íyrir sambandið
og varð teikning eftir Bretann
Michael Goaman fyrir valinu.
Sýnir hún póstlúðra utan um
stafina CEPT (skammstöfun
sambandsins).
Þau lönd, sem taka munu
þátt í þessa árs Evrópuútgáfu
munu hefja sölu merkjanna 18.
Efri myndin er af frimerkinu,
en sú neðri af merki Evrópu-
sambands pósts og síma.
september 1961, en þó er heim-
ilt að gera það laugardaginn
næsta á undan. (Póst- og síma-
málastjórnin).
Hótel Hekla hverfur
KuUaski!
f NA /5 hnitor X Snjiki
17 Siúrir
K Þrumur
, nu/uariw/ rrb nmo
Hilaskit L '•* Lttqi
SV 50hnutor * ÚÍi
V.sraii
ENN er lægðarsvæði, A-'tt og
hlýindi suður á hafinu, en há-
þrýstisvæði og kuldi norðan
undan. T.d. er 10 st. hiti á
veðurskipinu India, um 400
km suður af Vestmannaeyjum,
en 19 st. frost norður í Scores-
bysundi. Lægðarsvæðið þokast
ofurhægt norður á bóginn,
enda er komið A-hvassviðri á
Stórhöfða. Hiti er þar 5 st.,
en norðaustanlands er 2—4
stiga frost.
Veðurhorfur kl. 10 í gærkvöidi
SV-mið: Austan hvassviðri, 7
rigning með köflum. ■
SV-land: Vaxandi austanátt, 1
allhvass á morgun, skýjað. í
Faxaflói og miðin: Austan i
kaldi og síðar stinningskaldi, ,1
skýjað. I
Breiðafjörður til Norður- f
lands og miðin: Austan gola, l
léttskýjað. Í
NA-land, Austfirðir og mið- 7
in: Austan gola, skýjað. I
SA-land og miðin: Austan- 1
átt, hvassviðri og rigning vest- |
an til. I
Fimm togarar í
brezkum höfnum
BLAÐIÐ hafði í gærkvöldi tal
af Lofti Bjamasyni, formanni
FÍB, og spurði hann um sölur
íslenzkra togara í Bretlandi nú
í vikunni.
Loftur minnti á, að togara-
eigendur í Bretlandi hefðu lagt
rnikla áherzlu á það, að ekki
sigldu allt of mörg íslenzk skip
með afla sinn á brezkar hafnir
fyrst um sinn. Beðið hefði verið
um, að gætni yrði sýnd fyrst eft-
ir að togararnir hæfu landanir
og markaðurinn yrði ekki offyllt
ur, því að það myndi hafa óheppi
legar afleiðingar.
Með tilliti til þessa ákvað FÍB
að senda tvö skip í vikunni á
hvora höfnina um sig, Grimsby
og Hull. Til Grimsby Þorkel
mána, sem átti að landa í gær,
en komst ekki að vegna fjölda
Góður afli
AKUREYRI, 7/4. — Þrir bát-
ar hafa róið frá Hauganesi und-
anfarinn mánuð með net. Afli
þeirra hefur verið mjög góður.
Aflahæstur er nú Níels Jónsson,
og hefur hann fengið um 200
skippund. Á bátunum eru 5—6
menn, og auk þess hefur hver
bátur einn starfsmann í landi,
en sjómennirnir gera sjálfir að
aflanum, þegar í land kemur.
Fiskur virðist vera mikill á mið-
unum, en gæftir hafa verið stirð-
ar. Bátamir róa aðallega út af
Ólafsfirði.
Hauganes er ungt og upp-
rennandi þorp og stendur vestan
Eyjafjarðar, skammt innan yið
Árskógssand. — St. E. Sig.
skipa í höfninni, og mun landa 1
dag, og Ágúst, sem landa mun
á morgun. Til Hull Karlsefni,
sem átti að landa í dag, en mun
ekki geta landað fyrr en á morg-
un vegna skipafjölda, og Harð-
bak, sem átti að landa á morg-
un, en ekki er vitað með vissu
hvort af því getur orðið fyrr
en á fimmtudag.
öll eru þessi skip með góðan
afla. Verðið hefur verið gott að
undanförnu, en það gæti lækk-
að eitthvað ef mikið framboð
verður á fiski.
Blaðið hefur frétt, að Víkingur
hafi komið til Hull í gær og
mundi landa þar í dag.
Firmakeppni
í Kópavogi
T VÆ R umferðir hafa verið
spilaðar í firmakeppni í bridge
í Kópavogi og er staðan riú
þessi:
Vibro hf. (Jóhann Lúthers-
son) 218 st., Skattsofan (Guð-
mirndur Vernharðsson) 204,
Bílaverkstæði Eymundar Aust-
manns (Gylfi Gunnarsson) 203,
Saltfiskverkunin hf. (Jón Her-
mannsson) 201, Sparisjóðurinn
(Björgvin Guðmundsson) 199,
Trésmiðja Sigurðar Eilíassonar
& Co. (Einar Eysteinsson) 196,
Verzlunin Vogur (María Sigfús-
dóttir) 196, Askur hf. (Knút
Helland) 195 og Kópavogsapó-
tek (Ólafur Friðbjárnarson)
193. — Næsta umferð verður
spiluð miðvikudaginn 12. apríl
kl. 20.
Rjúpur off rauðmagi
á Hoisósi
Hofsósi, 6. apríL
TÖLUVERÐ snjóalög eru orð
in hérna, svo að ferðir mjólk-
urbíla hafa verið tregar. í
gær var hyrjað að ýta á
veginum til Sauð'árkróks, og
hlýtur þá að rakna úr.
Sóknarprcsturinn okkar hefur
haft nóg að gera um páskana.
Hann þjónar sex kirkjum, og
er auk þess kcnnari heima á
Hólum.
Rétt áður en hríðin byrjaði,
varð mjög mikið vart við rjúp-
ur í tvo til þrjá daga, en þær
hurfu, þegar snjórinn kom.
Sjósókn er að hefjast. Hrogn-
kelsaveiði er töluverð, sérstak-
lega rauðmagaveiði, og menn
eru að byrja að draga fyrir
grásleppu, en þorskveiði er litiL
Þó hafa bátar frá Sauðárkróki
farið í ágæta róðra hér inni 1
firðinum og fengið allt upp í 10
tonn. Loðna virðist gengin J
fjörðinn.
I dag er sólskin og blíðviðri.
— B.