Morgunblaðið - 11.04.1961, Síða 5
Þriðjudagur 11. apríl 1961
MORGVISBLAÐIÐ
5
^<»<Sxíxéx^<þ<^<*xíxSX«x^<£<5x«x^<»<SxSxSx^KS><j><$x«xs><$X5XíxSxSxtx3><íx«><s><!><íX«x«x«><S>3xS><í<!xSx«x«x«xíXíxS><j,<S><«><ixj><J><5X«><sxSxsxíx«x$><
andarískir
ÞEGAR flugrvél Loftleiða kom
frá New York á páskadags-
morgun, var meðal farþega
hópur bandarísks skólafólks,
sem var hingað kominn ásamt
enskukennara sínum, farar-
stjóra og tveimur ljósmyndur
um frá tímariti þar vestra, til
þess að eyða páskaleyfi sínu
hér á landi.
Unglingar þessir 15 að tölu,
7 stúlkur og 8 drengir á aldr
inum 15—18 ára eru öll nem
endur í efstu bekkjum Wapp-
ingers Central School í bænum
Wappingers Falls í New York
ríki. Þau eru meðlimir í félagi,
er nefnist „Icelandic club“ og
var stofnað við skólann fyrir
ári, með ferð til fslands fyrir
augum. f því enu 30 meðlimir,
sem valdir voru með prófum.
Meðlimir „The Icelandic
club“ gáfu út bækling, þar sem
segir frá tilgangi ferðalagsins,
sem er fyrst og fremst að sjá
sig um í heiminum, en þar sem
þeir töldu líklegt, að marga
myndi undra hvers vegna þau
veldu ísland, svara þau þar
einnig þeirri spurningu. f svar
inu við henni segir m.a.: í hlut
falli við stærð, er ísland það
Iand í heiminum, sem er mest
töfrandi og sérkennilegast. Og
á eftir fer stutt lýsing á land
inu, sem á að sanna þetta
Unglingarnir dvöldust hér á
heimilum nemenda í Verzlun-
ar- og Menntaskólanum. Þau
skoðuðu skóla og söfn í Reykja
vík, fóru austur fyrir fjall og
út á Keflavíkurflugvöll. Næst
síðasta dag dvalar sinnar, s.l.
föstudag fór hópurinn upp á
Akranes til að skoða ýmis fyr
irtæki þar í bænum og heim-
sækja bændaskólann á Hvann
eyri. Lagði hann af stað kl. 8
f.h. með Akraborginni. Þegar
fréttamaður blaðsins kom nið
ur á bryggju rétt fyrir 8, varð
þar fyrir honum broshýr og
eftirvæntingarfullur, en dálít
ið syfjulegiur hópur, ásamt far
arstjórum sínum, ljósmyndur-
unum tveimur og Gísla Guð-
mundssyni, en hann var leið-
sögumaður hópsins hér.
Hár, ljóshærður piltur dró
ýsur og sagðist hafa verið að
skrifa póstkort til kl. 3,30. Ég
vatt mér að homirn og spurði,
hvort ekki væri heldur seint
að senda póstkort daginn áður
en hann færi heim. Nei, nei,
var svarið, það þykir öllum
svo gaman að fá póstkort frá
íslandi
Ég varð samferða unglingun
um upp á Akranes og var með
þeim, þar til þeir lögðu af
stað upp að Hvanneyri og
unglingar
gafst gott tækifæri til þess að
ræða við þá.
Tók ég enskukennarann tali
og spurði hana, hvernig ungl-
ingarnir hefðu fyrst fengið á-
hruga á íslandi.
— Þau lásu söguna „Journey
to the Center of the Earth“ eft
ir Jules Verne, sem á að hefj
ast á islandi, þetta vakti a-
huga þeirra. Þar sem ég hafði
lagt stund á íslenzkar bók-
menntir við Cornell skólann
gat ég frætt þau nokkuð um
ísland. Kom okkur saman um,
að skemmtilegt væri að heim-
sækja fsland. Þetta var fyrir
rúmu ári. Unglingarir urðu
náttúrlega að afla sér fjár til
fararinnar sjálfir en það óx
þeim ekkert í augum, þeir hóf
ust strax handa og sýndu mik
inn dugnað.
— Hvað gerðu þau helst í
þessum tilgangi?
fara til íslands, höfðum við
einnig notað til þess að fræð
ast um land og þjóð.
— Hvernig hefur ykkur svo
likað dvölin hér?
— Það hefur verið alveg dá
samlegt, sagði Bob Ohlerking,
en það er nafn formannsins.
Á þeim heimilum þar sem við
dveljumst erum víð eins og
einn af fjölskyldunni og fólk
ið, sem við höfum kynnst hér
er sérstaklega elskulegt. Nátt
úrufegurð landsis hefur töfr
að okkur og ég held að flest
okkar óski þess, að hann
snjói á laugardagskvöldið, svo
við verðum veðurteppt, okkur
Iangar svo til að vera lengur.
Bob leit á félaga sína, sem
stóðu í kringum okkur, þau
kinkuðu öll kolli til samþykk
is og brosth út undir eyru.
Ég spurði þau hvað þeim
hefði þótt athyglisverðast hér,
þau sögðust yfirleitt ekki geta
tiltekið neinn einn hlut, það
væri allt svo dásamlegt Fólk-
ið væri svo vingjarnlegt, og
ekkert öðruvísi, en það sem
í páskaíeyfi hér
— Ég skal ná í formanninn,
hann getur leyst betur úr þess
ari spurningu.
Ég þakkaði fyrir, og meðan
ég beið eftir honum, gaf ég
mig á tal við ljósmyndarana.
Þau létu mjög vel af dvöl sinni
hér og rómuðu hve skilyrði til
myndatöku hefðu verið góð.
Nú hafði hópur unglinga
safnast í kringum mig og ég
spurði hver væri formaður-
inn. Það reyndist vera ljós-
hærði pilturinn, sem hafði eytt
nóttinni í að skrifa póstkort.
Ég spurði hann hvað þau
hefðu aðallega gert til fjár-
öfhinar.
— Við seldum fána, því að
það vildi svo vel til að eitt
ríki bættist við Bandaríkin og
þá um leið ein stjarna í fán-
ann Við keyptum fánana í
heildsölu, gengum síðan í hús
og seldum þá og gekk salan
mjög vel. Einnig söfnuðum við
tómum flöskum og seldum
þær, söfnuðum við alls yfir
5000 stykkjum. Auk þessa héld
um við nokkrar skemmtanir
og voru ýmsir aðilar okkur
hjálplegir við þær. Á þessu
græddum við nægilegan farar
eyri handa 15 manns, en þeir
meðlimir klúbbsins, sem komu
til greina voru 22, hinir 8
höfðu fallið úr. Úr þessum 22
voru 15 valdir með prófum í
sögu fslands og einnig var
vinna hvers og eins í þágu mál
efnisins metin. Árið, sem leið
frá því að við ákváðum að
þau eiga að venjast heima fyr
ir. Áður en þau komu höfðu
þau nefnilega haldið að þjóðin,
sem byggði þetta sérkennilega
og f jarlæga land hlyti að vera
eitthvað framandi
Á Akranesi heimsóttu ungl
ingarnir frystihús Haraldar
Böðvarssonar & Co. Ein stúlk
an trúði mér fyrir því, að hún
hefði aldrei komið í frystihús
áður og hafði mjög mikla
ánægju af þessari nýju
reynslu. Einnig hcimsóttu þau
byggðasafnið og gert var ráð
fyrir að sementsverksmiðjan
yrði skoðuð, en af því varð
ekki nema að litlu Ieyti því
hún var ekki í gangi þennan
dag. Hópurinn borðaði hádeg
isverð í boði sementsverksmiðj
unnar, en þaðan var haldið til
Gagnfræðaskóla Akraness og
höfðu þá nemendur úr einum
bekk skólans bætzt í hópinn.
Skólinn var skoðaður og í
einni stofunni hékk kort af fs
landi og sýndi Gísli ungling
unum þar, það svæði landsins,
er þeir hefðu séð og létu ýmsir
þá í ljós áhuga sinn á þvi að
sjá meira af Iandinu og þótti
bersýnilega leitt, að af því
yrði ekki í þetta sinn. Ég
skildi við hópinn, er hann
lagði af stað upp að Hvann-
eyri og ég er sannfærð um
að þessir unglingar, sem hafa
lagt mikið á sig til að komast
í þessa ferð, og búizt við miklu
af henni, hafa ekki orðið fyrir
vonbrigðum.
'x '
Hlutl hópslns á Hótel Borg. Edith Stringham lengst t.v. Gísii Guðmundsson, fararstjórinn og ljós-
myndararnir lengst til hægrL
3ja herb. íbúð
til leigu, ca. 110—114 ferm.
Sími 33251.
Saumavél
í borð með mótor til sölu.
Uppl. í síma 33217.
Lítið orgel til sölu
vegna flutnings. Uppl. í
síma 33160.
Múrarar
geta tekið að sér vinnu. —
Uppl. í síma 37201, 24091.
Húsbyggjendur
Öska eftir að fá leigt móta
timbur gegn múrhúðun. —
Nánari uppl. í síma 36907.
Volkswagen
til sölu, model 1956 í mjög
góðu standi. Uppl. í síma
13324.
Stúlka óskast til vinnu
hálfan daginn við léttan
iðnað. Uppl. í síma 19222
frá kl. 5—7 í dag.
Handrið
úr járni úti, inni.
Verkst. Hreins Haukssonar
Birkihvammi 23 Sími 36770
Ford 1930 „5 manna“
til sölu á 5000 kr. Skipti á
litlum sendiferðabíl eða
4ra mannabil koma til
greiná: Sími 22636.
Til sölu
Tvær nýlegar dragtir og
mohair kápa. Allt nr. 16.
Uppl. að Meðalholti 5 —
(efri endi uppi). Sími
35735.
Stúlka
óskar eftir atvinnu um
óákveðinn tíma. Uppl. í
síma 35572 eftir kl. 16.00.
1—2 herbergja íbúð
óskast til leigu strax. —
Þrennt í heimili. Tilboð
sendist Mbl., merkt: „1554“
sem fyrst.
Keglusamur piltur
Piltur sem hefur áhuga
fyrir málaraiðn, getur kom
izt sem nemi. Tilb. sendist
blaðinu merkt: „Málara-
iðn — 1004“.
Permanent og litanir
geislapermanent, gufu-
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastíg 18A
Óska eftir ráðskonustöðu
á léttu heimili í Reykjavík
eða nágrenni. Tilb. sendist
Mbl. merkt: „Ráðskona —
1005“.
Sfarfsstúlka
óskast að vistheimilinu Arnarrolti.
Upplýsingar í síma 22400.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur
INIauðungaruppboð
sem auglýst var í 117., 118. og 121. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1960 á eigninni Sólvallagötu 38 A í Kefla-
vík, þingl. eign Guðrúnar Sigurðardóttur, fer fram á
eigninni sjálfri, föstudaginn 14. apríl 1961 kl. 14,30.
Bæjarfógetinn í Keflavík
Rúðugler
2ja, 3ja, 4ra og 5 millimetra þykktir
fyrirliggjandi.
Eggert Kristjánsson & Co. ht.
Símar 1-14-00
Yerzlunarhúsnœði
um 75 ferm. á 1. hæð í steinhúsi með tveim bak-
herbergjum á hæðinni og 2 geymsluherbergjum í
kjallara við Njálsgötu til sölu. — Laust næstu daga.
I\lý]a Fasleignasalan
Bankastræti 7 — Sími 24300
kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546.