Morgunblaðið - 13.04.1961, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 13. apríl 1961
MORVVNBLAÐIÐ
3
MYNDIRNAR hér á síðurmi
eru teknar á Holtavörðuheiði
sl. þriðjudag, er flutningabíl
arnir fjórir og Norðurleiðarbíll
\ inn á annarri myndinni töfð
ust á heiðinni í nær þrjá tíma.
Heiðin hafð verið rudd með
atnjóplóg um morguninn, en á-
; stæðan til tafarinnar var sú,
, i að Moskwitch-bíllinn á hinni
, myndinni sat fastur í snjótröð
unum efst í Norðurárdalnum.
Hann hafði fylgt stóru bílun
I um yfir Öxnadalsheiði, sem
var nýrudd, en hélt síðan á-
fram á undan þeim. Háheiðin
var vel fær, en skóf talsvert
efst í Norðurárdalnum, frá
Biskupsbeygju, á 2—300 m
kafla.
Þarna sat Moskwitch-bíllinn
' fastur, komst hvorki aftur á
bak eða áfram Norðurleiðarbíl
Flutningabílarnir fjórir frá Akureyri og Norðurleiðarbíllinn, sem töfðust tæpa þrjá tíma á
Holtavörðuheiði sl. þriðjudag. (Ljósm. tók Sveinn Þormóðsson fyrir Mbl.)
stjórarnir, þeir Gunnar Jóns-
son og Pétur Kristjánsson,
fóru ásamt nokkrum röskum
strákum, sem voru farþegar í
Norðurleiðarbílnum til hjálp
ar bifreiðastjóranum á Mosk-
witch-bílnum. Þeir mokuðu
undan bílnum og frá, lyftu
honum og ýttu yfir ófærðina.
Á meðan skóf látlaust í hjól
förin fyrir framan og á milli
stóru bílanna, svo þeir voru
fastir um tíma, þegar að þeim
kom. Sumir voru ekki á keðj
um og lentu bílstjórarnir í
nokkru stímabraki við að setja
keðjur á þá, þar sem snjórinn
var djúpur og laus undir þeim
og fast að. Þetta hafðist þó
fyrir harðfylgi bifreiðastjór
anna, einkum Norðurleiðarbíl
stjóranna, sem eru sérstaklega
fylgnir sér og vanir að taka
til höndunum á þungfærum
heiðavegum.
Flutningabílarnir og áætlun
arbíll Norðurleiða mjökuðust
áfoam meter fyrir meter með
því að troða snjóinn undir hjól
unum. Við hvern meter, sem
ávannst, var þeim bakkað og
síðan ekið af fullum krafti
áfram. Stundum unnust nokkr
ir metrar í einu og hentust bíl
arnir þá til hliðanna eins og
bátar í stórsjó.
Þegar síðasti bíllinn var
kominn yfir þennan 2—300
metra kafla, sem var að heita
mátti eina torfæran á allri
leiðinni, voru liðnir tæpir þrír
tímar frá því þeir komu að
honum. Vegurinn var að
mestu auður það sem eftir var
leiðarinnar, og kom áætlunar
bíll Norðurleiðar frá Akureyri
og annar frá Fonahvammi kl.
um hálftvö á miðvikudagsnótt
til Reykjavikur. Holtavörðu-
heiði var orðin ófær í gær, en
verður væntanlega opnuð aft
ur n.k. föstudag.
i
Moskwitch-bíllinn sat fastur í snjótröðunum, en farþegar og bílstjórar Norffurleiðar mokuðu
frá honum og ýttu yfir ófærðina, Maðurinn sem er við hlið bílsins er Gunnar Jónsson, bíl-
stjóri hjá Norðurleið. .
i
l&naðarmannafélagið á Selfossi 15 ára
Fjársöfnun til kaupa á röntgen-
tækjum í Sjúkrahúsið á Seifossi
IÐNAÐARMANNAFÉLAGIÐ á
Selfossi var stofnað af 24 áhuga-
mönnum 17. marz 1946 og er því
nýorðið 15 ára. Aðalhvatamaður
að stofnun þess var Daníel Berg
mann, bakarameistari, og var
hann fyrsti formaður félagsins.
Tilgangur félagsins var og er að
hlynna að aukinni iffnment og
bættri aðstöðu iðnnema á Sel-
fossi. Vísir að iðnskóla var til á
etaðnum frá 1943, sem hafðist við
í litilli stofu í gamla barnaskól-
nnurn. Iðnaðarmannafélagiff tók
ekólann að stVr og stækkaði
«amla barnaskólahúsið um tvo
þriðju. Fékk iffnskólinn þá
viðbót tU afnota. Hefur hann
BÍðan starfað við vaxandi gengi
og stórbætt skilyrði á allan hátt.
Stjórn félagsins skipa nú: Dan
íel Þorsteinsson klæðskeri, form.,
Guðmundur Helgason trésmið-
ur, ritari, Þórmundur Guðmunds
son vélvirki, varaform. og Har-
aldur Diðriksson trésmiður, fjár
málaritari.
Félagið minntist 15 ára starf-
semi sinnar á afmælisdegi þess
og ákvað þá að hrinda í fram-
kvæmd málefni því, sem nú
verður skýrt frá .
Röntgentækjakaup
til sjúkrahússins.
Á öðrum fundi félagsins 1946
var'*" stofnaður sjóður, er ber
heitið Sjúkrahússjóður Selfoss-
byggðar. Lagði þáverandi for-
maður, Daníel Bergmann, fram
’ fyrsta tillagið. Ákveðið var, að
fastar tekjur sjóðsins skyldu vera
15% af félagsgjöldum, auk þess
að minningarsjpjöld hafa verið
seld til styrktar honum. Nemur
sjóðurinn nú rúmum 60 þúsund-
um króna.
Nú hefur verið ákveðið að
stefna að kaupum á mjög full-
kominni gerð röntgenmynda-
tækja, er kosta um 400 þús. kr.
Ríkissjóður greiðir % verðs af
slíkum tækjum, eða kr. 160 þús.
Þar.f félagið því að hafa handbær
ar 240 þús. kr.
Stórt átak til að koma
málinu í höfn.
I tilefni af afmælinu var ákveð
ið að reyna að gera stórt átak til
að hrinda málinu í framkvæmd,
með því að snúa sér Uréflega til
allra félagsmandnfhag ? íö ?í‘”
allra félagssamtaka í Árnes-
sýslu um að þau, af fúsum og
frjálsum vilja, legðu af mörkum
nokkurt fjármagn til að ljúka
þessu nauðsynjamáli, þar sem
vitað er að sjúkrahúsið sjálft
mun ekki náinni framtíð hafa
ráð á að kaupa slík tæki, sem
eru hin stærstu og dýrmætustu
er sjúkrahúsið þarf að eignast
fyrst um sinn.
Árangurinn af þessum tilmæl-
um er þegar orðinn sá, að lof-
orð hafa borizt að upphæð kr.
115.000,- til viðbótar við áður-
nefndan sjóð, svo að ekki vantar
nú nema kr. 6’5.000,- til þess að
málinu sé borgið.
Til dæmis um hversu góðar
viðtökur þessi málaleitan hefur
þegar fengið, skal frá því sagt,
að fyrst til að svara voru kven-
félögin á Stokkseyri og í Hvera-
gerði, er hvort um sig hafa lofað
kr. 10.000,-. Kvenfélagið á Skeið-
um hóf þegar fjársöfnun í hreppn
Framh. á bls. 23.
SIAK8TEII\iAR
Fylgisleysi kommúnista
í Prentarafélaginu
Það hefur vakið mxkla athygli,
hversu ört fylgi kommúnista hof
ur hrakað innan Hins íslenzka
prentarafélags. Þeir eru þar nú
aðeins rúmlega hálfdrættingar í
atkvæðum á við lýðræðissinna.
Þetta er m.a. athyglisvert
vegna þess, að fáa menn innan
verkalýðshreyfingarinnar hafa
kommúnistar lagt eins í einelti
og Magnús Ástmarsson frúfarandi
formann Prentarafélagsins. En
því meira, sem kommúnistar
hafa skammað Magnús Ástmars-
son og skoðanabræður hans, þeim
mun traustara hefur fylgi hans
og lýðræðissinna orðið innar
félagsins.
Hið íslenzka prentarafélag er
eitt öflrugasta stéttarfélag lands
ins. Það mun almennt viðurkennt
að því hafi verið vel stjórnað og
með hagsmuni f élagsmanna sinna
fyrir augum. Félagið hefur á "iðn
um árum komið fram margvísleg
um umbótum á kjörum þeirra, og
haft forustu um að bæta aðstöðu
þeirra á ýmsa lund utan hinnar al
mennu kjarabaráttu. Fylgisleysi
kommúnista innan Prentarafé-
Iagsins er prenturum til hins
mesta sóma, og sýnir félagslegan
þroska þeirra.
Nazistaþvættingur
Þjóðviljinn hefur undanfarið
haldið uppi stöðugum áróðri, þar
sem andstæðingum kommúnista
er bnugðið um nazistavináttu fyrr
og síðar. Sérstaklega beinast
þessi brígslyrði kommúnista aff
Sjálfstæðisflokknum.
Auðvitað tekur enginn mark á
þessu þvaðri. Sjálfstæðisflokkur
inn hefur jafnan verið harðsnú-
inn andstæðingur nazisma og fas
isma. En í þessu sambandi mætti
minna á það, hverjir það voru
sem sömdu við þá herra Adolf
Hitler og Joacliim von Ribbentrop
sumarið 1939. Það voru þeir herr
ar Jósep Stalin og Molotov utan-
ríkisráðherra hans. Það var i
grundvelli þessa samkomulags
nazista og kommúnista, sem ann
arri heimsstyrjöldinni var hleypt
af stokkunum. Þeir Hitler og
Stalin skiptu síðan Póllandi bróð
urlega milli sín eftir hina sví-
virffilegu árás nazista og komm-
únsta á þetta ógæfusama land.
Þetta man íslenzkur almenning
ur þótt liðnir sém um þaff bil tveir
áratugir síðan þessir atburðir
gerðust.
Rödd af Austurlandi
f Tímanum birtast nú öðni
hverju raddir, sem sýna að Fram
sóknarmenn eru orðnir hræddir
við kommúnistadekur sitt og telja
nauðsynlegt að leyfa einstökum
flokksmönnum sínmm að láta í
ljós andúð sína á því. Þannig birt
ir Tíminn í gær grein eftir Fram
sóknarmanna á Austurlandi, þar
sem bent er á það, að Moskvu-
kommúnistar séu nú alls ráðandi
innan hins svokallaða Alþýðu-
bandalags. í grein Austfirðingsins
er bent á það að Sosialistaflokk
urinn hafi alllengi búið að þeim
efniviði, sem Héðinn Valdemars
son kom með í flokkinn er hann
klauf Alþýðuflokkinn á sínum
tíma. Allt frá þeim tíma hafi
verið menn í flokknum, sem
reynt hafi að hamla gegn því að
hann yrði alger kommúnistaflokk
ur á ný. En „nú er svo komið“
segir Austfirðingmrinn „að áhrif
þessara manna hafa farið síminnk
andi, en kommúnistarnir undir
stjórn Einars, Kristins og Brynj
ólfs, aff Bjarna Þórðarsyni d-
gleymdum, hafa náð æ meiri
völdum í fIokknum“.
Austfirðingnum er sýnilega lít
ið gefið um hina nánu samvinnu
Ieiðtoga Framsóknarflokksins við
hina harðsoðnu Moskvu-kommún
ista.
/