Morgunblaðið - 14.04.1961, Side 13
Föstudagur 14. aprfl 1961
MORGVNBLAÐ1Ð
13
Snjór teppti samgöngur
í Danmörku um páskana
Kaupmafinahafnarbréf frá Páli Jónssyni
Kaupmannahöfn 1 apríl 1961.1 Dr. Mansholt, sem er Hollend-
Pað snjóaði í Danmörku um • ingur og varaforseti Bruxelles-
páskana, meira að segja svo mik-
ið, að samgöngur töfðust víða í
'landinu. Og þetta var svo að
segja fyrsti snjórinn á þessu ári.
Síðan í desember hafði verið ná-
lega snjólaust, aðeins gránað dá-
lítið einstöku sinnum.
Petta kuldakast kom flatt upp
á alla. Eftir óvenjulega mildan
vetur hélt fólk, að vorið væri
íkomið fyrir alvöru.
}l Skömmu íyrir páskana reikn-
laði danskt blað út, að Danir
muni hafa sparað miljarð danskra
(króna vegna góðu veðráttunnar
í veiur.
|*i Frá Kyndilmessu og fram í lok
marz var málega frostlaust. I
ifebrúar, sem venjulega er kald-
asti mánuður ársins, var að jafn-
aði 3,2 stiga hiti, en meðalhiti
, jþessa mánaðar er 0,1 stig. Frost-
dagarnir í febrúar voru í vetur
ekki nema 4 en eru annars að
meðaltali 20. f marz var oft
(10—15 stiga hiti.
' ísbrjótarnir hafa því verið í
ihöfn allan veturinn. Vegir hafa
ihvergi skemmzt vegna frosta, en
vegabætur vegna vetrarhörku
ikosta Dani venjulega stórfé. Hit-
un húsa hefur verið langt um
ódýrari en menn eiga að venjast.
Atvinnuleysi vegna árstíðarinn-
ar hefur verið mjög lítið. At-
vinnuleysissjóðirnir hafa því
sparað mikið fé.
Bændur voru víðast hvar bún
Ir að plæja akrana í lok febrúar
og sumir byrjuðu að sá snemma
í marz.
Fyrstu vorblómin í görðunum
sprungu út snemma í febrúar.
Blómskrúðið var í lok marz eins
mikið og menn annars eiga að
venjast seinni hluta apríl. Víða
er farið að grænka. Kastaníurn-
ar á Ráðhústorginu eru í þann
veginn að laufgast. En nú er allt
hlómskrúðið hulið snjó.
Páskaleyfi þingmanna
"t Rétt áður en páskaleyfi þing-
mannanna byrjaði ræddi þjóð-
(þingið utanríkismálin. Fyrst og
fremst fjölluðu umræðumar um
EFTA (Fríverzlunarsvæðið) og
Sameiginlega markaðinn.
Krag utanríkisráðherra lét í
Ijósi gleði yfir, að búið er að
undirrita samninginn um þátt-
töku Finnlands í EFTA, þótt hún
sé sérstökum skilyrðum bundin.
IHann sagðist vona, að lausn land
(helgisdeilunnar milli íslendinga
og Breta gæti gert fslandi kleift
«ð gerast aðili að EFTA. Rætist
þessar vonir, þá taki öll Norður-
lönd þátt í Fríverzlunarsvæðk
Jnu. Mundi það efla afstöðu
(þeirra í þessu viðslkiptabanda
lagi.
Utanrfkisráðherrann boðaði
Ibráðlega yfirlýsingu um aðild
Grænlands að EFTA. Grænland
íær sérstöðu en verður þó að-
wjótandi tollalækkana á Breá-
landi, þegar um ýmsar fiskafurð
lr er að ræða, fyrst og fremst
fiskiflök og rækjur. Krag vænti
þess líka, að Færeyjar bætist
bráðlega við í hópinn.
Aðildarlönd Sameiginlega
markaðsins skaupa hér um bil
þriðjung útfluttra danskra land-
búnaðarafurða. Þarna eru sér-
Btaklega Vestur-Þjóðverjar góð-
|r viðskiptavinir Dana. En þessi
þýðingarmikl útflutnngur er far-
Inn að torveldast, og er Krag
mjög svartsýnn um framtíð hans.
Hin svokallaða Mansholt-áætl-
nn miðar að því, að Sameigin-
legi markaðurinn verði sjálfum
lér nógur með landbúnaðarvörur.
nefndar þessa markaðar, gerir
ráð fyrir, að þessu takmarki
verði náð áður en fjögur ár eru
liðin. Sér hann jafnvel fram á
þann möguleika, að landbúnað-
arvöruframleiðsla allra aðildar-
landanna verði þá svo mikil, að
hún fullnægi ekki aðeins þörf-
um þeirra, heldur muni þau lika
hafa eitthvað aflögum til útflutn
ings.
Krag telur ástæðu til að ótt-
ast, að þetta muni torvelda mjög
útflutning danskra landbúnaðar-
afurða. Lítur hann svo á, að þess
um vandræðum verði ekki af-
stýrt, nema öll Vesturevrópu-
lönd komi sér saman um lausn
á viðskiptamálunum á breiðum
grundvelli. En möguleikarnir fyr
ir því, að byggja brú milli EFTA
og Sameiginlega markaðsins tor
veldast með ári hverju að áliti
ráðherrans.
Verzlun Dana við Breta
Það hefur vakið töluverðan
ótta í Danmörku, að brezka rík-
isstjórnin hefur verið að athuga
möguleikana fyrir þátttöku Bret-
lands í Sameiginlega markaðn-
um. Bretar mæta þarna mót-
spyrnu af hálfu de Gaulle, fyTSt
og fremst af pólitískum ástæðum.
Það verður líka miklum erfið-
leikum bundið, að skapa sam-
komulag milli Breta og Sam-
I eiginlega markaðsins um land-
búnaðarvörurnar. Þar að auki
torveldast lausn málsins af því
að samveldislöndin brezku njóta
tollaívilana á brezka markaðn-
um. En fullyrt er, að aðild Bret
lands að Sameiginlega markaðn
um sé brezku ríkisstjórninni mik-
ið áhugamál, sumpart af pólitísk
um og sumpart af efnahagsleg-
um ástæðum.
..Eftir' að dagar brezka heims-
veldisins eru taldir, er Bretum
nauðsynlegt að leita nánari sam-
vinnu við meginlandsrSki E
rópu“, sagði Poul Möller, tals-
maður íhaldsflokksins, þegar
þjóðþingið ræddi utanríkismál-
in. ,,Það hefur verið sagt, að við
getum fetað í fótspor Breta, ef
þeir gerast aðilar að Sameigin-
lega markaðnum. En svo einfalt
er málið ekki. Bretar hafa þarna
margra hagsmuna að gæta. Það
sem við óttumst mest er sá mögu
leiki, að lausn, sem Bretar og
aðildarlönd Sameiginlega mark-
aðsins kunna að koma sér saman
um, verði þess eðlis, að hún reyn
ist óaðgengileg fyrir okkur.
Móti kjarnorkuvopnum
Nálega 2.000, sem vilja mót-
mæla notkun kjarnorkuvopna,
tóku þátt í kröfugöngu frá Hol-
bæk til Kaupmannahafnar um
páskana. Á föstudaginn langa
var gengið frá Holbæk til Hró-
arskeldu. Þar var 33 km. göngu-
för. Hríð skall á, þegar leið á
daginn. Margir voru því illa
leiknir, þegar þeir komu á á-
fangastaðinn. Daginn eftir var
gengið 14 km. frá Hróarskeldu
til TSstrup og páskadag 19 km.
til Kaupmannahafnar. Var margt
manna saman komið á Ráðhús-
torginu, þegar kröfugöngufólkið
kom þangað.
Bæði koftimúnistar og alþýðu-
sósíalistar Aksels Larsens færa
sér þessa kröfugöngu til tekna,
og Autur-'þýzka útvarpið gerir
mikið úr henni.
Áður en hún hófst, sagði Poul
Möller í þingræðu: ,,Við sem
heima sitjum erum ekki síður
hræddir við kjarnorkustríð. En
meðan þegnarnir i Rússldndi
geta ekki gengið til Kreml og
Kínverjar til valdhafanna í
Peking, til þess að mótmæla
notkun kjarnorkuvopna, þá
verða þessar vestrænu kröfu-
göngur ekki að neinu gagni. Ef
þeir, sem til þeirra efna, fá vilja
sínum framgengt, þá eiga aðeins
austræn ríki kjarnorkuvopn. Það
getur ekki gefið okkur tryggingu
fyrir því, að þau verði ebki not-
uð á móti okkur“.
Ifampmann forsætisráðherra
hélt um páskana ræðu á fundi
ungra jafnaðarmanna í Odense
og sagði m. a.: „Þeir sem taka
þátt í þessari kröfugöngu halda
auðsjáanlega, að þeir hafi einka-
rétt til að mótmæla notkun
kjarnorkuvopna. Við viljum allir
afstýra notkun þeirra. En það
ætti að vera augljóst, að meðan
þau eru til í Austri, þá er ekki
hægt að vera án þeirra í Vestri.
Núverandi ríkisstjórn hefur
sagt, að Danir ætli ekki að afla
sér kjarnorkuvopna að svo
stöddu. Fundið hefur verið að
því, að þetta sé engin endanleg
afstaða, og öruggara væri, eí
fyrirvaranum væri sleppt. En
það væri ekki rétt af okkur að
bera fr.am skilyrðislausa yfir-
lýsingu. Núverandi ríkisstjórn
getur ekki bundið komandi ríkis
Páskaliljur í snjó.
stjórnir. Enginn getur vitað,
hvað kann að gerast í heiminum
*
í framtíðinni. Við höfum ekki
gleymt Tékkóslóvakíu og Ung-
verjalandi“.
Þess má geta, þótt forsætis-
ráðherrann nefndi það ekki, að
Danir eiga vopn, sérstaklega
loftvarnareldflaugar, sem hægt
er eftir vild að hlaða með venju
legum sprengiefnum eða kjarn-
orkusprengjum.
Tillögur samþykktar á
ársþingi iðnrekenda 1961
Endurskoðun vinnulöggjafar
Ársþingið ítrekar fyrri áskor-
anir á Alþingi að endurskoða nú
þegar lög um stéttarfélög og
vinnudeilur og leyfir ársþingið
sér að benda á, að núverandi
skipan þessara mála getur
renyzt hættuleg efnahagskerfi
þjóðarinnar og er löggjafarvald-
inu til vansa.
Sérstaklega álítur þingið nauð
synlegt, að breytt sé ákvæðum
laganna á þann hátt, að vinnu-
stöðvun sé því aðeins heimil, að
meirihluti atkvæðisbærra félags
manna viðkomandi félags hafi
samþykkt hana með leynilegri at
kvæðagreiðslu, er fari fram
undir opinberu eftirliti eins og
t. d. bæjar- og sveitastjórnar-
kosningar.
Kaup- og kjarasamningar
Ársþing iðnrekenda 1961 álít-
ur, að það sé ekki hlutverk Al-
þingis að blanda sér inn í samn
inga um kaup og kjör eins og
átt hefur sér stað undanfarin ár
heldur láti það eftir viðkomandi
hagsmunasamtökum, enda ekki
hægt að lögfesta samningsatriði
án þess að ganga á rétt annars
hvors aðilans eða beggja.
Opinber rekstur
Ársþing iðnrekenda 1961 vill
endurtaka áður framkomna til-
lögu, þar sem þingið telur óeðli-
legt og hættulegt fyrir atvinnu-
jafnvægi landsins, að einstakar
stofnanir, bæjarfélög eða ríki,
sem njóta algerrar sérstöðu varð
andi rekstrarlán og skatta grípi
inn á svið atvinnufyrirtækja,
sem engra fríðinda njóta og
keppi við þau.
Minnir þingið á, að bæjar- og
ríkisrekstri er haldið uppi með
framlögum frá sömu gjaldþegn-
um og þau keppa við og telur
varhugavert að minnka þannig
gjaldþol þeirra.
þess að gem fyrirtækjum kleift
að sjá sívaxandi fólksfjölda fyrir
nægilegri og arðbærri atvinnu.
3. Að arðsúthlutun hlutafélaga
sé aðeins skattskyld hjá þeim
aðilum, er þær tekjur fá. Sé um
hámark að ræða, verði það eigi
Staðsetning iðirfyrirtækja
í Reykjavík
Ársþing iðnrekenda vill ítreka
áður fram komna tillögu, þar
sem skorað er á bæjarstjórn lægra en sv0_ að það hvetji al_
Reykjavikur að taka staðsetn- menning til þess að leggja spari.
mgu íðnaðarfynrtækj a til alvar ! fé sitt f aimenningshlutaíélög í
legrar meðferðar og styðpst í j yon um hagnað
þeim efnum við nyjustu þroun ,
erlendis. í þessu sambandi vill
ársþingið þakka það starf, sem
hafið er með skipulagningu iðn-
aðarhúsanna við Grensásveg og
bendir iðnrekendum á þá mögu
leika, sem skapast við þessar
framkvæmdir.
Endurskoðun iðnlöggjafar
Ársþing iðnrekenda vill ítreka
fyrri áskoranir á Alþingi um, að
endurskoða iðnlöggjö'fina með
tilliti til breyttrar tækni, þar
sem úreltir atvinnuhættir mega
aldrei standa eðlilegri framþró-
un fyrir þrifum.
Skattamál
Ársþing iðnrekenda 1961 legg-
ur áherzlu á, að heildarendur-
skoðun skatta- og útsvarslaga
verði lokið fyrir næsta alþingi
og ný löggjöf samþykkt á þessu
ári.
Leggur þingið höfuðáherzlu á
eftirfarandi atriði, sem lögfest
verði í hinum nýju lögum:
1. Eignaskattur og eignaútsvar
verði algjörlega numið úr lög-
um, en verði þessi gjöldum við-
haldið verði þau lækkuð í sam-
ræmi við endurmat fastafjár-
muna, miðað við núverandi verð
gildi þeirra.
2. Að hámark þess hundraðs-
hluta, sem atvinnufyrirtækjum
verður gert að greiða í skatta
og útsvör fari aldrei fram úr
40% af skattskyldum tekjum til
) 4. Að afskriftir af atvinnu-
j tækjum verði miðaðar við end-
urkaupsverð þeirra.
5. Að fyrirtækjum, sem upp-
fylla viss skilyrði, verði heimil-
uð skattfrjáls útgáfa jöfnunar-
'hlutabréfa, byggð á raunveru-
legu verðmæti eigna fyrirtækj-
anna.
6. Að veltuútsvar verði lagt
niður og ríkisvaldið finni annan
réttlátari tekjustofn fyrir bæj-
ar- og sveitarfélög.
7. Að öll atvinnufyrirtæki,
hvaða rekstrarformi, sem þau
lúta, ásamt fyrirtækjum ríkis-
og bæjarfélaga, verði háð sömu
reglum um slcatt- og útsvars-
álagningu.
Þá samþykkir ársþingið að
kjósa milliþinganefnd, sem starfi
að því ásamt fulltrúum frá öðr-
um samtökum atvinnuveganna
að koma sjónarmiðum þessum á
framfæri við ríkisstjórnina og
milliþinganefndirnar í skattamál
um.
Lausaskuldir í föst lán
Ásrþing iðnrekenda beinir
þeirri áskorun til ríkisstjórnar-
innar, að hún hlutisí til um, að
lausaskuldum iðnaðarins verði
breytt í löng lán á svipaðan hátt
og nú er verið að gera fyrir sjáv
arútveginn og heyrzt hefur, að
fyrirhugað sé að gera einnig
fyrir landbúnaðinn.
ITrQ mVi oÍÁqv