Morgunblaðið - 14.04.1961, Qupperneq 17
Föstudagur 14. aprfl 1961
MORGVNBLAÐ1Ð
17
Sjötugur i dag
Lárus Kjartansson
■ Eskifirði
^ Einn af mínum ágætustu vin-
um er sjötugur í dag. Það er
Lárus Kjartansson fyrrum bóndi
að Byggðarholti við Eskifjörð.
Kynni okkar eru orðin nokkuð
löng, og þótt við höfum skilið
um stundarsakir hafa þau ætíð
verið jafn fersk og nú sem bezt
verður á kosið.
Beztu minningar mínar um
vináttu Lárusar á ég þó innan
(élagsstarfseminnar er við störf-
uðum saman í Góðtemplararegl-
unni á Eskifirði um mörg ár.
Dáði ég þá hversu hann, önn-
um hlaðinn einyrki í talsverðri
fjarlægð frá fundarstað, lét sig
( ejaldan vanta á fundi og hve
hann hafði miklum fróðleik að
1 (niðla á samverustundum. Einn-
j ig lágu leiðir okkar saman í
Ikristilegum félagssamtökum og
er sama um það að segja. Lárus
var allbaf til staðar í sínu sæti,
enda þannig gerður að hann gekk
heill að hverju verki og var
Iheill í hverju máli. Með honum
yar unun að starfa.
'}) Lárus er fæddur í Eskifjarðar-
seli, en reysti síðan nýbýlið
Byggðarholt skammt þar frá. Þá
var nú ekki gróðurlegt um að
litast á blettinum, sem hann hóf
etörfin, en þar vann hann þrek-
Virki í búskaparháttum og jarð-
arbótum, og er það einstök og
skemmtileg saga. Væri gaman
að segja frá því hvernig hann
gat hlúð að hverju minnsta fræi
og komið lífi, jafnvel í hvem
kalinn blett. Verkfæri hans voru
írumbýlingsins en orkan var hans
eigin trú á gróðurmátt jarðar-
innar, og var gaman að heim
sækja hann þegar hann hafði
unnið slíkt þrekvirki. Sigurgleðin
var mikil. Lárus er sannur mað-
ur hvers þess er hann tekur
tryggð við. Fals og fláræði á
hann ekki til og hrekklausari
mann þekki ég ekki. Skömmu
eftir að við fjarlægðumst og ég
fótr þvert yfir landið til Stykkis
Bílamiðstöðin VAC1\I
Amtmannstíg 2C.
Suni 16289 og 23757.
Opel Caravan ‘55 og ‘56
Mjög góðir bílar til sýnis
og sölu í dag. Ýmis skipti
gætu komið til greina.
Volkswagen ‘55, ‘57, ‘58 6g ‘59
og ‘60
Höfum fjöldan allan af 4. 5
og 6 manna bifreiðum til sýn
ia og sölu daglega.
Miðstöð bílaviðskipta er hjá
okkur.
Bílamiðstöðin VAGItl
Amtmannsstíg 2C.
Sími 16289 og 23757.
I. O. G. T.
Þingstúka Reykjavíkur
Fundur í kvöld, föstudag.
— Þ.t.
Málflutningsskrifstofa
PÁLL S. PÁLSSON
Hæstaréttarlögmaður
Bankastræti 7. — Simi 24-20&
Jóhannes Lárusson
héraðsdómslögmaður
lögfræðiskrifstofa-fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842.
hólms, barst mér skemmtileg
gjöf frá Lárusi, sem þökk fyrir
gömul kynni. Vár þetta mynd af
Hóhnatindinum, einu fegursta
fjalli fyrir austan, en undir hon-
um bjó Lárus og átti þar heimili,
en við heimili mínu á Eskifirði
blasti hann. Þetta var sannar-
lega smekklega valin gjöf.
Lárus var kvæntur frændkonu
sinni, Þorbjörgu Jóhannsdóttur
frá Áreyjum í Reyðarfirði, stór-
brotinni ágætfckonu. Ekki spillti
hún fyrir heimilinu né dró úr
hugsjónastarfi Lárusar, heldur
þvert á móti. Tveimur fóstur-
börnum gengu þau í foreldrastað
og gerðu það sem annað með
prýðL Þorbjörg er látin fyrir
nokkru og þá varð .Lárus að
bregða búi. Lárus vinnur nú hjá
Pósti og síma á Eskifirði. Er
ég fullviss, að í þeirri þjónustu
er trúmennskan í öndvegi. Ég
sendi honum alúðarkveðjur og
óska honum allrar blessunar á
komandi tímum, fullviss um, að
þegar hérvistardagar eru úti,
munu ritningar rætast: Svo sem
þér sáið, svo munuð þér upp-
skera. Heill þér kæri vinur.
Árni Helgason.
Atvinnurekendur
Okkur vantar 3ja herb. íbúð
getum tekið að okkur hrein-
gerningu á skrifstofum, við-
hald á bifreið. Leggið tilboð
inn á afgr. Mbl. fyrir þriðju-
dag n.k. merkt „Góð um-
gengni 1893“
Til leigu
3ja herb. sólrík íbúð I góðu
risi i steinhúsi rétt við Hljóm-
skálagarðinn. Árs fyrirfram-
greiðsla. Þeir, sem áhuga hafa
sendi Mbl. uppl. um fjölskyldu
stærð o. þ. h. merkt „3ja herb.
íbúð 1894“
Við seljum bílana
Dodge station árg. 1953.
vill skipti á 6 manna bíl.
árg. ’53—’54.
Ford 2ja dyra ‘50 selst gegn
góðu fasteignabréfi eða fast
eignatryggðum vixlum.
Plymouth árg ‘42 breyttur vill
skipta á jeppa.
Ford ’38. Vill skipta >’ yngri
4—5 manna bíl.
Mismunur greiðist strax í
peningum.
Fíat 1100 árg 1959 skipti á
Skoda árg. 1955, ‘56, ‘57
koma til greina.
Bílarnir verða til sýnis á
staðnum.
Bifreiðasalan
Borgartúni 7
Símar 18085 og 19615.
Bifreiðasalan
Bergþórugötu 3.
Sími 19032 og 36870.
Volkswagen ’57 (rúgbrauð)
vel með farinn.
Opel Capitan ‘60 skipti á eldri
bíl hugsanleg.
Volkswagen ‘59.
Opel Record ‘57. Mjög falleg-
ur.
Volkswagen ‘55 sanngjamt
verð.
Willys Station ‘53
Bílasala Guðmundar
Bergþórugötu 3
Sími 19032 og 36870
Magnús Thorlacius
hæstaréttariögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Simi 1-1875.
BAB-0 ræstiduft
speffiihreinsar
. . • allir þekkja
BAB-0
Stórt fyrirtæki í Reykjavik vill ráða röskan manm
á aldrinum 25—35 ára sem
Ú tbreiðslus tjóra
Verzlunarskóla- eða stúdentsmenntun nauðsynleg.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störí,
ásamt afriti af meðmælum sendist afgr. Mbl. fyrir
17. þ.m. merkt: „Trúnaður — 198“«
Hafnarfjörður - nágrenni
Pökkunarstúlkur óskast strax
Hraðfrystihúsið Frost Kf.
Hafnarfirði — Sími 50165
Járniðfiaðar- — Rafsuðumenn
Vantar nokkra járniðnaðarmenn og vana rafsuðu-
menn. — Upplýsingar í síma 19638 laugardaginn 1S
apríl kl. 2—6.
Húsgögn
Sófasett, 11 gerðir. 'T"J'
Svefnsófar — Svefnbekkir
Svefnstólar — Skrifborð
Klæðaskápar — Kommóður
Sófaborð — Vegghúsgögn — Dívanar.
BUSLOÐ
Sími 18520 — Skipholti 19 (Gengið inn frá Nóatúni)
Til söiu
3ja herb. íbúð á Seltjamarnesi rétt við bæjarmörk-
in. Verð hóflegt og útborgun lítil, Laus fljótlega.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl.
Laufásvegi 2 — Sími 19960 og 13243.
Yfirbyggður hátur 3 smálestir að stærð er til sölu
nú þegar. Báturinn er m. a, hagkvæmur fyrir sjó-
stangaveiði.
Upplýsingar í síma 16432 og 16440 eftir kl. 19.00
næstu kvöld.
Leiguíbúð óskast
Vantar 4ra herb. íbúð 14. maí handa fámennri og
reglusamri fjölskyldu. — Fyrirframgreiðsla ef
óskað er
FASTEIGNASALA
Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríkssonar
Laugavegi 27 — Sími 14226.