Morgunblaðið - 19.04.1961, Side 1
24 siður
Í8. árgangfur
87. tbl. — Miðvikudagur 19. apríl 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Uppreisnarmenn 50 km. frá Havana?
Rússneskir skriðdrekar teknir I notkun
Castro lætur taka sam-
særismenn af lifi
• Þótt tveir sólarhringar
séu liðnir frá landgöngu inn
rásarhers á Kúbu eru fréttir
af uppreisninni enn mjög
óljósar og mótsagnakenndar.
iVirðist allt í hinni mestu tví-
sýnu hvernig atburðum þess
um lyktar. Enn er ekkert
símasamband við eyna og
Havana útvarpið birtir eng-
ar fréttir aðeins áskoranir
til þjóðarinnar um að sýna
stillingu og berjast gegn
innrásarliðinu. Það er helzt
að fréttastofur reyni að
gera sér grein fyrir ástand-
ínu á eynni með því að
hlusta á raddir í her og lög-
reglusenditækjum og af til-
kynningum frá hyltingarráði
Kúbumanna á Flórida.
• Af heimildum þessum
virðist mega ráða, að upp-
reisnarmenn sæki fram til
höfuðborgarinnar Havana frá
lendingarstaðnum á vestur-
enda Kúbu og séu nú aðeins
í 50 km fjarlægð frá borg-
inni.
• Hinsvegar virðist upp-
reisnarmönnum hafa gengið
verr um miðbik eyjarinnar
hjá bæjunum Trinidad og
Camaguay. Segir stjórn bylt
ingarráðsins, að þar hafi upp
reisnarmenn orðið að þola
árásir rússneskra flugvéla
og þungra rússneskra skrið-
dreka.
Byltingarstjórn á Pinas
Byltingarráðið segir að eyjan
Pinas suður af Kúbu sé nú öll
á valdi uppreisnarmanna. f>ar
hafi pólitískar fangabúðir verið
opnaðar og þúsundum andstæð-
inga Castros gefið frelsi. Lausa-
fregnir herma, að ný frelsis-
stjórn hafi verið mynduð undir
forsæti Cardonas og hafi hún 1
fyrstu aðsetur á Pinas-eyju.
Samsæri gegn Castro
Havana-útvarpið birti frétt í
dag um að komizt hefði upp
um samsæri að myrða Fidel
Castro forsætisráðherra. Bam-
særismenn voru allir gamlir fé-
lagar Castros og forsprakki
þeirra Humberto Marin, sem var
fyrsti landbúnaðarráðherra í
stjórn Castros.
í morgun voru átta samsæris-
menn skotnir af aftökusveit
Castro-stjórnarinnar í La Cabana
fangelsinu í Havana, sagði út-
varpið.
Eintómar flugufregmr
Fréttastofur höfðu engar frétt
Frh. á bls. 2
Eistneski fidttamaðurinn fööur-
landsvinur, sem gerði skyldu sína
— segir þekktur sænskur lögfræðingur, sem kannadi málin niður í kjölinn
ÞJÓÐVILJINN boðar í gær,! á eistneska flóttamanninn
að á ný skuli hafnar árásir | Eðvald Hinriksson (áður Mik
Krúsjeff iieitir
Castro stuðningi
Grjótkast í Moskvu
MOSKVU, 18. apríl (Reuter).
«— Nikita Krúsjeff sendi
Kennedy forseta í dag bréf,
þar sem hann bað hann um
að grípa í taumana og stöðva
árásina á Kúbu.
Krúsjeff kvaðst senda
bréfið á stund örvæntingar
og lagði áherzlu á það, að
á þessum tínnim fullkominn-
ar hernaðartækni væru smá-
styrjaldir hættulegar, þær
gætu valdið keðjusprengingu
breiðst út og orðið úr þeim
eitt ægilggt heimsbál.
Skömmu eftir að rússncska
utanríkisráðuneytið hafði af
hent bandaríska sendifulltrú-
anum bréf þetta, kom hópur
um 400 stúdenta að banda-
ríska sendiráðinu í Moskvu.
Stúdentarnir grýttu sendi-
ráðsbygginguna, svo að allar
rúður í forhlið hússins brotn
uðu.
Stúdentarnir báru merkis-
spjöld með álctrunum eins
og Niður með imperíalism-
ann. — Burt með nýlcndu-
kúgarana
Hlutverk lögreglunnar.
Grjótkastið stóð í 20 mínútur.
Hafði fólki þá fjölgað framan við
sendiráðið og fjölgaði smámsam
an upp í nokkur þúsund. Virtust
Framh. á bls. 23.
son), og nú verði birt „gögn“.
Af þessu tilefni kom Eðvald
Hinriksson að máli við Mbl.
í gær og bað það um að
birta bréf frá hinum þekkta
sænska lögfræðingi Yngve
Schartaus sem hafði með mál
hans að gera í Svíþjóð. Seg-
ir hann þar að flóttamaður-
inn sé algerlega saklaus.
Verður að telja furðulegt að
kommúnistar skuli halda
áfram þeim Rauðagaldri, sem
nú hefir í fyrsta sinn verið
settur fullkomlega á svið
hérlendis.
Þess má geta, að hinn
sænski lögfræð'ingur er hvað
þekktastur fyrir afskipti sín
af Wallenberg málinu svo-
nefnda, Wallenberg var sem
kunnugt er sænskur diplo-
mat, sem hvarf 1945 í Buda-
pest. Hann hafði þá verið að
aðstoða Gyðinga, sem ofsótt-
ir voru af nazistum og komm
únistum. Síðar fréttist af hon
um í rússneskum fangabúð-
um, en Rússar mótmæltu að
hafa rænt honum. Þjóðvilja-
menn segja nú, að Eðvald
Hinriksson hafi staðið fyrir
Gyðingaofsóknum í heima-
landi sínu. Ófyrirleitni þessa
blaðs er svo mikil, að íslend-
ingum er ætlað að trúa því,
að hinn sænski lögfræðingur
hafi lagt sig í líma við það
tvennt í senn að upplýsa
Wallenhergmálið og hilma
yfir með manni, sem sekur
á að vera um Gyðingaofsókn
ir.
í bréfi sínu segir Schartaus
m. a.: „Auk þess get ég per-
sónulega staðfest, að við
vitnaleiðslur kom greinilega
fram, að þér væruð hvorki
nazisti né kommúnisti, held-
Framhald á bls. 3.
v