Morgunblaðið - 22.04.1961, Qupperneq 1
24 siður
Ákveðin yfirlýsirtg Kennedys:
landaríkin munu ekki ofurselja Kúbu
kommúnistum
) Sfevenson segir að uppreisn freisisvina hafi \
verið hrofin á bak aftur með rússnesk- )
KENNEDY Bandaríkjafor-
eeti lýsti því yfir á fundi
með bandarískum blaðaút-
gefendum í Washington á
sumardaginn fyrsta, að
Bandaríkjastjórn myndi ekki
horfa aðgerðarlaus á það að
Kúba kæmist á vald komm-
únista.
Kennedy sagði ennfremur
um vopnum
Gugnrm var
nr. 2
PARÍS 21. apríl. (Reuter) —
Moskvu-fréttaritari Parísar-
útvarpsins kveðst nú hafa
fengið áreiðanlegar upplýs-
ingar um það, að Yuri Gagar-
in hafi ekki verið fyrsti
geimfari jarðar. Annar rúss-
neskur maður Serge Ilyuchin
hafði uirnið þetta þrekvirki
fjórum dögum áður.
Fréttaritarinn sem heitir
Edouard Bobrowski segir að
geimhylki Ilyuchins hafi kom
ið niður á réttum stað og
stundu, en þegar það var opn-
að kom í ljós, að geimfarinn
hafði hlotið taugaáfall. Hann
segir að Ilyuchin liggi enn(
meðvitundarlaus á sjúkrahúsi'
í Moskvu.
Bobrowski kveður Serge Ilyu
chin vera hinn mesta ævintýra
mann. Hancn hafi fengið að
vera fyrsti geimfarinn fyrir
áhrif föður síns hins víðkunna
Elugvélaverkfræðing Ilyuchins.
Þó hafi hann ekki verið bú-
inn að fá eins mikla þjálfun
og margir aðrir sem til greina 1
höfðu komið. )
að þolinmæði Bandaríkja-
manna væri ekki óendanleg.
Hann ítrekaði það að Banda-
ríkin hefðu ekki beitt íhlut-
un á Kúbu né tekið þátt í
hernaðaraðgerðum þar. Hins-
vegar sagði hann að Banda-
ríkin myndu ekki hika við að
standa við skuldbindingar
sínar og vernda öryggi sitt,
ef ríki í Vesturálfu ættu í
vök að verjast vegna utanað-
komandi ásælni kommúnista.
Hann sagði að Bandaríkja-
menn myndu ekki láta Rússa
skrifa upp á neitt siðferðis-
vottorð fyrir sig og tækju
ekki mark á tali þeirra
manna um þjóðfrelsi, sem
stjórnuðu blóðsúthellingun-
um og þjóðarkúguninni í
Ungverjalandi. Hann benti
á það, að rússneskum skrið-
drekum hefði verið beitt
gegn uppreisnarmönnum á
Kúbu og sagði að það væri
ekki í fyrsta skipti sem rúss-
neskir skriðdrekar bældu
niður uppreisn frelsiselsk-
andi manna. Kennedy sagði
að öryggi Bandaríkajnna
skyldi varið hvað sem það
kostaði.
Sannleikurinn kemur í ljós.
Kennedy átti í gær sinn viku-
lega fund með fréttamönnum.
Þar kvaðst hann vilja ítreka allt
som hann hafði sagt á fundin-
um með blaðaútgefendum og
hefði hann engu þar við að bæta.
Blaðamaður einn spurði kennedy
hvort hann hefði ráðið því að
leyfa andstæðingum Castros að
hefjast handa gegn ráðum þeirra
Rusks og Bowles. Kennedy kvaðst
ekki vilja ræða meira um málið.
Sannleikurinn í því kæmi í ljós
þótt síðar yrði.
Samúð með frelsisvinum.
Adlai Stevenson fulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ tók mjög
í sama streng og Kannedy í
umræðum í stjórnmálanefndinni.
Hann lýsti því enn yfir, að
Bandaríkin hefðu ekki tekið
neinn þátt í innrásinni á Kúbu.
Hins vegar hefðu Bandaríkja-
menn haft mikla samúð með
frelsisvinunum sem réðust þar á
land og hófu baráttuaa gegn
kúgun og einræði Castros.
— Við höfðum samúð með
Castro, sagði Stevenson, þegar
Framhald á bls. 23.
Mynd þessi var tekin fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna i
Moskvu þar sem fjöldi manns safnaðist saman til þess að
mótmæla innrásinni á Kúbu.
Danir vil ja láta 1600 handrit
íslendingar vilja fá 2000
Tregir að láta af hendi dýrgripi eins
og Flateyjarbók og Sæmundar-Eddu
MBL. bárust í gær skeyti
frá NTB-fréttastofunni og
Uppreisnin á Kúbu bæid niður
Ciistro-sinnar undirbúa mikla sígurhátáð 1. maí
Havana og London, 21. apríl.
— (Reuter) —
S T J Ó R N Fidels Castros á
Kúbu tilkynnir, að uppreisn-
armenn á eynni hafi verið
gersigraðir. 350 þeirra hafa
verið handteknir, en fremur
fámennar leifar þeirra hafa
flúið út á mýrasvæði eitt
meðfram suðurströndinni þar
sem þeim verður ekki und-
ankomu auðið.
Byltingarráð Castro-and-
stæðinga, sem hefur bæki-
stöð í Miami á Florida-skaga,
viðurkennir, að innrásarher-
inn hafi beðið alvarlegan
hnekki, en barizt verði til
hinzta manns. Cardona, for-
maður ráðsins, sagði frétta-
mönnum í dag að það sem
Framh. á bls. 23.
frá Páli Jónssyni, fréttafit-
ara, þar sem sagt er frá því
að viðræður hafi stað'ið yfir
milli íslenzkra og danskra
ráðherra um handritamálið.
Ber þeim santan um það
að Danir hafi gert íslending-
um það tilboð að afhenda
þeim 1500—1600 handrit, en
íslendingar vilji fá um 2000.
Páll Jónsson segir, að við-
ræðurnar haldi áfram í dag,
laugardag. NTB-fréttastofan
segir hinsvegar, að íslenzka
ráðherrasendinefndin hafi
flogið heimleiðis í gærkvöldi
og hafi meðferðis tilboð
dönsku stjórnarinnar. Segir
fréttastofan, að mikil vanda-
mál séu í sambandi við til-
boðið.
Fréttastofan segir ennfrem
ur, að svar íslendinga mimi
fást eftir nokkra daga. Ef
samkomulag næðist myndu
Danir færa íslandi handritin
að gjöf, sennilega í sambandi
við 50 ára afmæli Háskóla
íslands í sumar. íslendingar
yrðu þá að skuldbinda sig til
að gera ekki kröfur til fleiri
handrita.
Báðum þessum heimildum
Mbl. ber saman um það, að
ekki sé aðeins ágreiningur um
tölu þeirra handrita sem af-
henda skal, heldur komi það
fram að íslendingar óski eftir
að fá allra mestu dýrgripina.
íslendingar óska þess að fá
Flateyjarbók og segir NTB
hugsanlegt að þeir fái hana. —
Hinsvegar vilji Danir ekki láta
Konunesbók Sæmundar-Eddu,
Framh. á bls. 23.