Morgunblaðið - 22.04.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. apríl 1961
Djáknavígsla í
Grímsey á sunnudag
í>AÐ VORU miklar annir í
Grímsey í gærdag, er eyjar-
skeggjar undirbjuggu móttökur
fyrir biskup landsins og fleiri
kirkjunnar menn, sem þangað
voru væntanlegir í gærkvöldi
með djúpbátnum. Á sunnudaginn
vígir biskupinn Einar Einarsson
frá Grímsey sem djákna að Mikla
garðskirkju.
Einar Einarsson, sem búið hef
ur í Grimsey í nær 10 ár hefur
verið hér í Reykjavík undanfarið,
til þess að búa sig undir að tak
ast á hendur djáknastarfið. Hef
Botvinnik
nálgast markið
STABFESTING hefir nú fengizt
» því að 14. skákin í einvigi
þeirra Tals og Botvinniks, lauk
meS jafntefli. Staðan varð því
1:5 og Botvinnik hafði fjögurra
vinninga forskot, er hann settist
að 15. skákinni í gærkvöldi og
lék drottningarpeði sínu fram.
Tal svaraði með kóngs-indverskri
vöm og Botviimik vaidi hvassa
leið, en hrá svo út af í 9. leik og
fékk stöðu við sitt hæfi. Síðar
hóf Botvinnik peðasókn að kóngi
Tals, en hinn ungi heimsmeistari
varðist vel í erfiðri stöðu og
reyndi gagnsókn á drottningar-
væng. Þegar skákin fór í bið
höfðu báðir tvo hróka, tvo
biskupa og nokkur peð, en
Botvirmik hefir rýmri stöðu og
allgóðar vinningslfltur. — Skákin
verður tefld í dag.
Nýr rafveitustjóri
í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI — Fyrir nokkru
réð bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Gísla Jónsson rafmagnsverkfræð
ing sem rafveitustjóra hjá Raf-
veitu Hafnarfjarðar í stað Val-
garðs Thoroddsens, sem ráðinn
hefir verið yfirverkfræðingur
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Gísli Jónsson, sem er 31 árs að
aldri, lauk fyrrihlutaprófi við Há
skóla íslands og lokaprófi frá
Kaupmannahafnarháskóla. Hann
starfaði áður hjá raforkumála-
stjóra og er búsettur í Kópavogi.
Valgarð Thoroddsen, sem nú
hefir látið af störfum hjá Raf-
veitunni, hafði starfað þar í 23
ár samfleitt og því manna mest
mótað hana og komið henni í það
horf, sem hún er nú í dag. Hefir
undir hans stjórn verið imnið
markvisst að því að endurbæta
nafmagnskerfið í bænum. — G. E.
ur hann m.a. sótt fyrirlestra í
guðfræðideild háskólans.
Biskup landsins próf. Sigur-
björn Einarsson, vígir Einar til
djáknastarfa, síðdegis á sunnu-
daginn við vígslumessu í Mikla-
garðskirkju. Verða þeir við vígsl
una vígslubiskup sr. Sigurður
Stefánsson á Möðruvöllum og
sóknarpresturinn sr. Pétur Sigur
geirsson, á Akureyri.
Miklagarðskirkja hefur öll ver
ið málum hátt og lágt í vetur.
UmrœSufundir úti á landi
um byggingarmál
EIN S og flestum er kunnugt
var Byggingaþjónusta Arkitekta
félags íslands stofnuð fyrir rétt-
um tveim árum. Á stefnuskrá
Byggingaþjónustunnar hefur frá
upphafi verið að kynna al-
menningi þau byggingarefni,
sem á markaðnum eru á hverj-
um tima.
Sú nýbreytni hefur nú verið
tekin upp að fá þekkta sérfræð-
inga í byggingarmálum til að
mæta á almennum umræðu-
fundiim úti á landi. A fundum
þessum verður rætt um bygg-
ingarefni og verða þeir haldnir
í samráði við iðnaðarmannafé-
lögin á hverjum stað.
Friðvænlegra
í Laos
MOSKVA 21. apríl (Reuter) —
Brezka og rússneska stjómin
komu sér í dag saman um að
birta sameiginlcga áskorun til
styrjaldaraffila í Laos, að hætta
vopnaviffskiptum. Jafnframt
þessu boða þær til nýrrar ráff-
stefnu um Laos-málið og skora
á Nehru forsætisráðherra Ind-
lands aff láta Laos-vopnahlés-
nefndina hefja störf a'ð nýju, en
i nefndinni eiga sæti auk ind-
versks fulltrúa, menn frá Pól-
landi og Kanada.
Tilkynning um þetta samkomu
lag varðandi Laos var gefin eftir
að Sir Frank Roberts, sendi-
herra Breta í Moskvu hafði átt
klukkustundar viðræður við
Georgi Pushkin aðstoðarutan-
ríkisráðherra.
Laoski stjórnmálamaðurinn og
hlutleysinginn Souvanna Phouma
dvelst enn í Moskvu. í dag hélt
rússneska stjórnin honum mikla
veizlu í Kreml. Síðar í kvöld
ætlaði hann að leggja af stað
flugleiðis til Peking. Souvanna
kvaðst bjartsýnn um að koma
mætti á friði í Laos.
J/w/íwir IV^ SV50 hnútar X Snjihmo • Úti —• \7 Skúrir fC Þrumur WS KuUosM Hifoski!
H.Hmt
LáLetqi
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-mið: Hvass austan, dá-
lítil rigning.
SV-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið og Breiðafj.mið:
NA stinningskaldi, skýjað, og
víða dálítil rigning.
Vestfirðir, Norðurland og
miðin: Hvass NA, slydda eða
rigning.
NA-land og miðin: ,NA kaldi,
þokuloft Og dálítil rigning.
Austfirðir, SA-land og mið-
in: Austan Og NA átt, víða
allhvasst, þokuloft og rigning.
Þegar hefur verið haldinn
einn fundur og var hann á Sel-
fossi 7. apríl sl. Þar mætti
Gústaf E. Pálsson verkfr. og
ræddi um steinsteypu og hag-
nýtingu hennar. Var þetta fjöl-
mennur fundur og tóku margir
til máls.
Næsti fundur er ákveðinn
þriðjudagskvöldið 25. apríl nk.
kl. 8,30 í Keflavík. Þar mun
Haraldur Ásgeirsson verkfr.
ræða um einangrun og einangr-
unarefni.
Erindi og umræður á fund-
unum eru tekin á segulbönd,
sem síðar verða lánuð til þeirra
er þess óska og ekki hafa að-
stöðu tU að sækja þessa fundi.
1 gær var opnuð í húsakynn-
um Byggingaþjónustunnar að
Laugavegi 18 A sýning á teikn-
ingum er bárust í hugmynda-
samkeppni um kirkju að Mos-
felli 1 Mosfellssveit. — Verður
sýningin opin almenningi £ dag
og á morgun kl. 2—6 en mánu-
dag á sama tíma og Bygginga-
þjónustan er opin.
Farfuglar
SUMARFERÐALOG Farfuglar
hefjast næstkomandi sunnudag.
Þá er ráðgerð göngu- og skíða-
ferð á Botnssúlur. Gengið verður
upp frá Svartagili.
Farið verður frá Búnaðarfé-
lagshúsinu kl. 9 árdegis. Farseðl-
ar verða seldir við bílinn.
3Ö0-4Ö0 fingraför
á Akranesi.
Akranesi, 21. apríl.
LÖGREGLAN hér í bænum
hefur undanfarna daga unn-
ið að því að taka fingraför
af mönnum hér í bænum, í
því skyni að koma sér upp
safni fingrafara. Eru milli
300—400 komnir á fingra-
faraskrá. — Oddur.
Bát rekur á land
í Bíldudal
BlLDUDAL, 21. apríl -Umkl.
fjögur í nótt tók að hvessa hér
Og í morgun var komið vonzku
veður með miklu brimi Um kl.
8 í morgun var veðrið og báran
orðin svo mikil aff einn bátanna,
Jörundur Bjamason sem er 50 t
bátur, slitnaði upp af lengunni
og rak á land. Strandaði hann í
grýttri fjörunni fyrir neðan Gils
bakka og hefur brotið á honum
í dag. Ekkj er báturinn skemmd-
ur. Um kl. 10 10 í morgun slitn-
aði svo annar bátur, sem Ásbjörn
heitir upp. Skipsmönnum tókst að
komast út á báti upp í bátinn og
setja vélina í gang og sigla út á
fjörðinn áður en hann strand-
aði. Veðurofsinn er enn mikill
nú í kvöld. — Fréttaritari.
UNDAN þessu bilflakj skriðu
fjórir ungir menn, síðdegis á
sumardaginn fyrsta. Þeir voru
á leiff til Beykjavíkur. Öku-
maðurinn kvaffst sjálfur hafa
ekiff ógætilega, og missti hann
stjómina á bílnum á 70 km.
hraða. Utan vegarins mæld-
ust för eftir hjói og veltur, á
alls 32 metra kafla. Einn far-
þeganna haltraffi lítilsliáttar
er lögreglumenn komu á vett-
vang. Þetta gerffist skammt
frá Lambhagabrú í Mosfells-
sveit.
('Ljósm. Þórir Hersveinsson)
Somgöngur nð
Ingnst nyrðrn
FRÉTTARITARI Mbl. í Aðaldal
í S-Þing., Hermóður bóndi i
Arnesi sagði í símtali við Mbl.
í gær, að samgöngur þar nyrðra
væru sem óðast að færast i
venjulegt horf, eftir stórhríð-
ina á dögunum. Er búið að ryðja
veginn um Aðaldal, Reykjahverfi
og Reykjadal og upp að Mývatni,
en við það verk var_ lokið a9
faranótt föstudagsins. í gær var
verið að ryðja þjóðveginn 1
Kinn áleiðis til Akureyrar. Ófært
er ennþá um Bárðardal, Tjörnéa
og Laxárdal. í dag er bjart veð-
ur hér og hæg austan átt og hlýtt
í veðri og hefur snjórinn mikiS
sigið og við höfum það á til
finningunni að vorið sé að korna
sagði Hermóður. ,
* * * ■
Mishermi var það í frétt frá
Hermóði í Arnesi um daginn, að
í hríðinni á dögunum hafi sett
niður meiri snjó þar en komíð
hefði árum saman.
Tvær FerSafélags-
ferðir á simnudag
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
fyrstu sumarferðanna á sunnu-
dag. Tvær ferðir verða famar,
göngu og skíðaferð yfir Kjöl, lagt
upp úr Hvalfirði og komið niður
á Þingvöll og ferð út á Reykja-
nes með viðkomu á helztu stöð-
um. Lagt verður af stað í báðar
ferðirnar kl. 9 á sunnudagsmorg-
un frá Austurvelli.
Óvinir sættast
í Belgíu
BRUSSEL 21. april (Reuter) —
Tveir stærstu stjórnmálaflokkar
Belgíu, Kaþólski flokkurinn og
Jafnaðarmenn hafa ákveðið a3
mynda samsteypustjóm. Forsæt-
isráðherra verður Leon Collartl
úr Kaþólska flokknum.
Þessir flokkar, sem deildu harð-
ast í vetur um efnahagsmálalög-
gjöf þáverandi stjómar, svo a5
lá við blóðugri borgarastyrj öld
eru nú orðnir sáttir að kalla og
hafa hógværaTi menn í báðum
flokkunum tekið höndum sam-
an um þefcta. Flokkarnir hafa
komizt að samkomulagi
um stefnuskrá í efnahagsmál-
um, sem miðar að nýsköpun at-
vinnulífsins.
Vélsmiðjan Þór hf. á ísafirffi.
Fullnaðarviðgerð
framkvœmd á Isafirði
ÍSAFIRÐI, 18. apríl: — í frétt
frá Akureyri dags. 12. marz sL
er viðtal við brezkan skipstjóra,
Ronald Hall, fró Hull. Kom hann
til Akureyrar á skipi sínu Loch
Oskaic til þess að fá viðgerð.
í viðtalinu segir orðrétt: „Hafði
togarinn orðið fyrir ketilbilun út
af Vestfjörðum og þá leitað til
ísafjarðar. Þar fékkst þó ekki
fullnaðarviðgerð, og sigldi skip-
ið því til Akureyrar og mun
Vélsm. Oddi ljúka viðgerð í
dag“.
Forráðamönnum Vélsmiðjunn
ar Þór, h.f. hér á ísafirði þykir
allmikiff hallað á sig í þessari
frétt, því að þeir voru þess full-
vissir, að fullnaðarviffgerS hafði
farið fram.
í dag vildi svo til, að Ronald
Hall skipstjóri kom á ný til
ísafjarðar og var nú á öðru skipi
en í fyrra skiptið eða Loch Sea-
firth frá Hull. Leitaði hann til
ísafjarðar til þess að fá viðgerð
á radar og mun viðgerð fara
fram í dag. Framkvæmdastjóri
Vélsmiðjunnar Þór h.f., Ólafur
Guðmundsson bað fréttaritara
blaðsins að ræða við skipstjór-
ann til þess að fá leiðrétta mis-
sögn þá sem birtist £ Morgunblað
inu í fyrrgreindu viðtali. Átti
fréttaritari tal við skipstjórann
og skýrði hann svo frá að hann
■hefði komið til ísafjarðar £ byrj
un marz til þess að fá viðgerð
á eldhólfi £ gufukatli. Hefði
viðgerð gengið mjög vel og tek-
izt fullkomlega að gera við það
sem í ólagi var. Var síðan haldið
á miðin á ný og austur með
landi. en eftir 4 daga bilaði ket-
ilrör og var þá leitað til Akur-
eyrar til viðgerðar, því að þang.
að var stytzt. Fór viðgerð þar
fram á ketilrörinu. Viðgerðin á
Akureyri var þannig ekkert I
sambandj við það, sem gert hafði
verið á ísafirði.
Að lokum skal svo því bætt
við, að fjöldi brezkra togara og
annara erlendra veiðiskipa hef-
ir leitað hingað til ísafjarðar til
viðgerðar vegna vélabilunar.
Hefir vélsmiðjan Þór ávallt leyst
viðgerðir af hendi með prýðL
Sýndi framkvæmdastjóri vél.
smiðjunnar fréttaritara MbL
bréf og skeyti frá brezkum út-
gerðarfyrirtækjum þar sem vél-
smiðjunni er þakkað fyrir vel
unnin störf £ þágu brezkra tog-
ara. — GK.