Morgunblaðið - 22.04.1961, Qupperneq 12
12
r
MORUVNBLIÐID
Laugardagur 21. apríl 1961
Utg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Frauikvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Steíánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason fiá Vigur.
Matthías Johannesserv.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Leshók: Arni Óla, sími 33045.
Augiýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðabtræti 6.
Auglýsingar og afgieiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
FRAMLEIÐSLUAUKNING LAND-
BÚNAÐARINS
Njósnamálið í Israel
Hafa Rússar selt Israel I hendur IVassers?
A aðalfundi Mjólkursamsöl-^
unnar, sem haldinn var
hér í Reykjavík nýlega, var
skýrt frá því að innvegið
mjólkurmagn á öllu sölu-
svæði fyrirtækisins íiefði
aukizt um 4,5% á árinu 1960.
Sala neyzlumjólkur jókst á
árinu um 6,57%.
Þessar staðreyndir um sölu
landbúnaðarafurða segja sína
sögu. Framleiðsla landbúnað-
arins hefur á síðasta ári vax-
ið verulega. Af því má
marka að því fer víðs fjarri
að um samdrátt sé að ræða
hjá þessari mikilvægu at-
vinnugrein. Þvert á móti
halda bændur áfram að
bæta búpening sinn og
stækka bú sín. Til þess ber
einnig brýna nauðsyn. Meðal
búið er ennþá alltof lítið hér
á landi. Til þess að bændur
og sveitafólkið yfirleitt geti
búið við svipuð lífskjör og
aðrar atvinnustéttir þurfa bú
in að stækka og framleiðslan
að aukast. Vaxandi áherzlu
þarf einnig að leggja á
bætta hagnýtingu mjólkuraf-
urðanna. Við þurfum t.d. að
framleiða fleiri og betri osta
og kenna þjóðinni að neyta
þessara ágætu og hollu mat-
væla, sem allar þjóðir hafa
í hávegum. Á síðustu árum
hefur verið unnið að því að
bæta ostaframleiðsluna og er
það góðra gjalda vert. En á
þessu sviði er mikið ógert.
Það þarf að kenna þjóðinni
að neyta osta í vaxandi mæli.
Með því að gera framleiðslu
þeirra fjölbreyttari og vör-
urnar betri mun það takast.
Framsóknarmenn hafa hald
ið því fram undanfarið að
landbúnaðurinn sé að drag-
ast saman og hrörna, vegna
stefnu núverandi ríkisstjórn-
ar í efnahagsmálum. Stað-
reyndimar um aukningu
mjólkurframleiðslunnar af-
sanna þessar fullyrðingar ger
samlega. Þróunin í landbún-
aðarmálunum heldur áfram.
BÆJAR- OG
SVEITARSTJÓRN-
ARKOSNINGAR
í MAÍ
Tl/feðal laga, sem síðasta Al-
þingi afgreiddi voru ný
sveitarstjórnarlög. Með þeim
voru endurskoðuð gildandi
ákvæði um sveitarstjórnar-
málefni. Má fullyrða að mikil
bót sé að þessari nýju lög-
gjöf.
Meðal nýjunga í henni
má nefna ákvæði um það, að
almennar sveitarstjórnarkosn
ingar í bæjum og þeim
hreppum, þar sem fullir 3A
hlutar íbúanna eru búsettir
í kauptúni, skuli fara fram
síðasta sunnudag í maí-mán-
uði, sem ekki beri upp .á
hvítasunnudag, en aðrar
sveitastjórnarkosningar skuli
fram fara síðasta sunnudag
júnímánaðar. Eins og kunn-
ugt er hafa sveitarstjórnar-
kosningar í bæjum áður far-
ið fram síðasta sunnudag í
janúarmánuði. Sá tími, sem
nú hefur verið ákveðinn, er
að ýmsu leyti heppilegri. í
janúarmánuði er veðrátta að
jafnaði miklu harðari. Frost
og hríðar eru þá algengar og
geta torveldað kosningaþátt-
töku. Hefur það t.d. komið
fyrir, að fresta hefur orðið
kosningum í einstökum þorp-
um vegna veð>urs. I lok maí-
mánaðar er hinsvegar yfir-
leitt miklu hlýrra í veðri og
minni líkur til að veðurfar
skapi erfiðleika á kjörsókn.
Næstu bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar í kaupstöð
um og hreppum, þar sem 3A
hlutar íbúanna eru búsettir
í kauptúni, fara samkvæmt
hinum nýju ákvæðum fram
í lok maímánaðar á næsta
ári.
RÚSSNESKIR
SKRIÐDREKAR
Á KÚBU
að er nú augljóst orð«ið, að
kommúnistastjóm Fid-
els Castros á Kúbu hefur
fe;ngið send ógrynni vopna
frá Rússum og fleiri komm-
únistaþjóðum. I bardögunum,
sem staðið hafa yfir undan-
farið við uppreisnarmenn á
Kúbu hefur stjórnarherinn
beitt rússneskum skriðdrek-
um og öðrum vélahergögn-
um. Virðist, þegar þetta er
ritað, svo sem uppreisnar-
menn hafi farið halloka í
viðureigninni við hin rúss-
nesku vopn.
Bardagamir á Kúbu und-
ÞEGAR sú frétt barst út
um síðustu helgi, að einn
helzti hermálasérfræðing-
ur ísraels, israel Beer,
hefði árum saman verið
njósnari „kommúnistarík-
is“, lá við borð, að Eich-
mann-málaferlin hyrfu í
skuggann í Gyðingalandi.
Það er heldur ekki undar-
legt, þegar þess er gætt,
að Beer hefur haft aðgang
að allri vitneskju, sem
máli skiptir, um ísraelska
herinn og varnarkerfi
landsins, en hins vegar
hefur verið kært með
kommúnistaríkjunum og
Arabíska sambandslýðveld
inu, erfðafjanda Israels-
ríkis. Því spyrja Gyðingar
hver annan nú: Hafa Rúss
ar selt okkur í hendur Ar-
anfarna daga em undanfari
stærri átaka. Byltingarmenn
virðast aðeíns hafa verið að
þreifa fyrir sér um styrk-
leika kommúnistastjórnarinn
ar og koma vopnum til
skæruliðanna, sem hafast
við víðsvegar um landið, í
fjöllum og skógum. Þannig
hóf Fidel Castro einnig sína
byltingu gegn hinni spilltu
einræðisstjórn Batista á sín-
um tíma. En nú hefur hann
sjálfur gerzt sekur um ennþá
verra einræði og kúgun gagn
vart kúbönsku þjóðinni. Þess
vegna hefur uppreisn verið
hafin gegn honum. En Rúss-
ar hafa ákveðið að gera allt
sem þeir geta til þess að
styðja völd Castros á Kúbu.
Þeir vita að hann er algert
handbendi þeirra.
Yfirlýsing Kennedys Banda
ríkjaforseta sl. fimmtudag
um afstöðu Bandaríkjanna til
Kúbu sýnir hversu alvarlegt
vandamál hér er um að ræða.
Bandaríkin hafa engan þátt
tekið í hernaðaraðgerðum á
Kúbu. En forsetinn lýsti þvi
yfir, að Bandaríkin gætu ekki
til lengdar horft upp á það, að
Kúba væri notuð sem rúss-
nesk hernaðarbækistöð, er
ógnaði öryggi allra þjóða
Vesturheims.
Af þessum ummælum for-
setans má draga þá ályktun,
að til frekari tíðinda kunni
að draga á Kúbu áður en
langt um líður.
Njósnarinn Beer að stíg-a upp í lögreglubíl er hann var hand-
tekinn. —
öbum? Ekki er ósennilegt,
að „sérfræðingar“ Rússa
eða Tékka, sem nú dvelj-
ast fjölmennir í Kaíró,
ásamt aragrúa gamalla
nazista, sem einnig eru
„sérfræðingar“ Nassers,
hafi látið Aröbum vit-
neskju í té um herbúnað
Gyðínga. Viti Nasser allt,
sem Israel Beer veit, þá
getur það bókstaflega
þýtt, að dauðadómurinn sé
kveðinn upp yfir ísraels-
ríki — af Rússum.
ísrael Beer var handtekinn
af öryggislögreglunni í ísrael
fyrir nokkrum dögum, en um
síðustu helgi var yfirlýsing
gefin út um málið, sem vakti
þvílíka athygli meðal ísrael-
búa, að þeir hafa ekki um
ann'að talað sðan, enda getur
þarna bókstaflega verið um
líf og dauða þjóðarinnar að
tefla.
ísrael Beer stundaði nám
við háskólann í Vínarborg og
lauk þar prófi í heimspeki
um 1935. Þá var hann starf-
andi sósíalisti. Fram til 1938
barðist hann í spönsku borg-
arastyrjöldinni gegn Franco.
Þá fluttist hann til Palestínu
og fékkst við kennslu við he-
breska háskólann svonefnda.
Hann gekk strax í neðanjarð-
arhreyfingu Gyðinga, Haga-
hna, og varð brátt einn aðal-
foringi hennar. Hæfileikar
hans á sviði hermennsku
þóttu óvenjumiklir, og fékkst
hann einkum við gerð hernað-
aráætlana og herþjálfun. .í
stríði Gyðinga og Araba 1948—
49 var hann skipaður næst
æðsti yfirmaður alls herafla
Gyðinga. Sðan hefur Beer ver-
ið ráðgjafi í varnarmálaráðu-
neyti fsraels. Hann umgekkst
alla æðstu me»n landsins og
var m. a. mjög náinn einkavin-
ur Bens Gurions. Víst er talið,
að enginn einn naaður hafi vit-
að jafn mikið um her og varn
arkerfi landsins, enda er skipu
lag þess öðrum fremur verk
hans.
Fyrir allnokkru síðan fékk
ásraelska öryggislögreglan
grun um að Beer hefði sam-
band við kommúnista erlend-
is, en gat ekki látið til skarar
skríða vegna sannanaskorts.
Frá Atlantshafbandalaginu
bárust upplýsingar um að
ekki væri allt með felldu um
ferðir Beers í Evrópu, og að
lokum mun það hafa verið
bandaríska öryggislögreglan,
sem lét ísrael 1 té upplýsing-
ar, sem sönnuðu sekt. Beers.
Sagt er, að Ben Gurion hafi
tekið sér þetta mjög nærri.
ísrael Beer hefur að mjög
miklu leyti grundvallað varn
ir landsins, sem hann heitir
eftir, og gat Ben Gurion ekki
sagt annað en: „Ég hef verið
umsettin svikurum og táldreg
inn svívirðilega.
Beer, sem nú er 49 ára virt-
ist ekki verða neitt undrandi,
þegar öryggislögreglan hand-
tók hann kL hálfþrjú að
morgni. Lögreglan spurð
Framh. á bls. 16